Morgunblaðið - 26.11.1992, Side 12

Morgunblaðið - 26.11.1992, Side 12
12 ZZIIMÖK'fíPNEraÐro FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992 STÓRA VÍSINDABÓKIN Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Texti: Judith Hann. Þýðing: Óskar Ingimarsson. Umbrot: Prentsmiðjan Oddi hf. Prentun: Singapore. Utgefandi: Iðunn. Sumar bækur fylla lesandann gleði sem erfítt er að fanga í orð. Þannig fer mér með þessa bók í höndum. Ég hefi alla tíð verið for- vitinn fiktari, eyðilagði því margt leikfang bernskunnar og síðar nytjahluti lífsins, af einskærri löng- un til þess að skilja betur. Ekki aðeins mína hluti, heldur líka ann- arra, til dæmis regnhlíf móður minnar, sem átti að verða mér fall- híf í stökki af húsþaki. Æði margt foreldri mun í forundarn hafa horft á ruslatunnu sína rifna eða rekið augu í hana uppi á húsþaki, þegar krakkaormar hafa verið að gera sér grein fyrir áhrifum efna. Og ætli læknirinn kunni ekki marga söguna af því er sauma þurfti eða plástra óvita, sem hætti sér of langt í þekk- ingarleit sinni. Já, manninum er eðlislæg löng- unin til þess að gera sér grein fyrir umhverfí sínu; glíman við að skilja og skynja sköpunarinnar leyndar- dóm. Af þessu leiða framfarir, þekking. Þeir eru og til, sem telja svör við gátum tilverunnar öll á bókfell skráð fyrir löngu, þar megi við engu hrófla, því opinberunin buppgötvun* . Ljósapera Edisons úr koluðum baðrnullamefj j,ráðinn komu þa \ ,ann tann nwutlangt a5 uppfmntng |um sínum. J Glólampi f pUrkúlunni dl oH> trygoa 281. kámist aðeins við slíkt. Ef þetta er rétt, þá sætum við enn við hellisop- ið nagandi svefnþom stöðnunarinn- ar. Sagnfræðin kennir þannig árekstur vísinda og trúar. Að nokkru rétt, en Kristur og hjólið komu fram og heimur, sem betur fer, allur annar eftir. En snúum aftur að bókinni. Henni er skipt í 7 kafla. Byijað er á heimahlaði, síðan er lesandinn leiddur um efnisheiminn; honum kynnt orka, kraftur og hreyfing; ljós og hljóð; loft og vatn; rafmagn og segull, rafeindatækni og tölvur. Af upptalningunni sést, að margt er skýrt, á meistaranlegan hátt tvinnað saman leik og fróðleik, þar til úr verður þekking sem ekki að- eins auðveldar lausnir þrauta við prófborð, heldur líka gerir tilverun- ar alla skemmtilegri, skiljanlegri. Hér er sagt frá sérvitringum, sem þorðu að hugsa, voru því sumir ekki í skóla hæfír, en eru í dag nefndir spekingar. Hér birtast orð- skýringar og skrá atriðisorða er heldur ekki gleymt. Texti er sagður eftir Judith Hann. 10 taldi ég þó í hópnum sem með henni unnu. „Hvað er hvers, og hver er hvurs,“ hefí ég ekki hugmynd um. Hitt veit ég, eftir lesturinn, að vinnuþjarkurinn óskar Ingimarsson hefir unnið frábært starf, þýtt á þann hátt sem aðeins lífslöng þjálfun leyfir. Eftir lestur- inn tel ég mig miklu fróðari. Pjöður dreif úrið mitt forðum. Nú gerir það kvars, og það svo að í engu skeik- ar. Hvað veldur? Hvemig? Svör mín í síðustu viku hefðu verið röng. Þökk sé bókinni, að nú veit ég bet- ur. Ég hefí alla tíð verið ákaflega stoltur af frændgarði mínum. Að glerið í skjánum sé skylt mér, slíkri fullyrðing hefði ég mætt með hroka, jafnvel efast um andlegt heilbrigði þess er slíkt staðhæfði. Hvað teng- ir mig og glerið saman? Því svarar bókin. Frábær bók, útgáfunni til mikils sóma, því hér er í engu til sparað að búa vel úr garði. Bók sem á erindi við fók á öllum aldri, bæði á heimili og í skóla. SPASTEFNA haklin í HöI’Oa, Ilóteí Lof'tieidum, fimniíud. 8. dosémlier 1992, kl. 14,00-17.00 Efnahagshorfur 1993 - „Sókn í íslensku atvinnulífí Kl. Kl. Kl. Kl. Kl. Kl. Kl. 14.00 Setning sþástdfnu: Jón Ásbergsson, formaður SFÍ. 14.10 „Sókib%iiteisku eftvinnulífí 1993.“ Davíð OddssjjiS, forsætisráðherra. 14.30 „Árið l^^S^Stefán Ólafsson, prófessor og Ásmi^dur Stefánsson, fyrrver andj Jdfseti ASÍ. 15.00 Kamhle. 15.20 Spá fyrfl^ækja um efnahagsþróun 1993. Hagstærðir, kjarasamningar, ríkis- búskapúrínn, langtímahorfur. Umsjón: Arnar Jónsson, cand. oecon. 15.40 N'ýjfaMeiðir til stefnumótunar þjóða í atvinnumá Christian Mariager fulltrúi frá Mc Kinsev ^.Qtimnanv, 16.10 1993 - Fallborósumræður Brynjólfur Bjamason, framkvi?rff31sf[óri Granda hf., Stefán Ólafsson, pró- fessor H.Í., ÁsmufaSWíSífransson, fyrrverandi forseti ASÍ, Hannes Hólm- steinn Gissurarson, dósent H.í. og Thomas Möller, forstöðumaður rekstrar- deildar Eimskipafélags íslands, sem jafnframt stýrir umræðum. Skráning er hafín í síma 621066 Chrisfian Mariager Brynjólfur Bjarnason Hannes Hólmsteinn Gissurgrsoo Thomas Möller umrsoo . Scjornunarfelag íslands Regnbogi í vatnsúða neðan við Dettifoss. Ljósmyndabók eft- ir Bjöm Rúriksson TÖFRAR íslands heitir bók með ljósmyndum Björns Rú- rikssonar, sem komin er út. Bókin skiptist í sex meginkafla, sem heita Náttúruöflin, Landið, Gróðurinn, Vatnið, Birtan og Formið. Önnur bók í þessum flokki , Yfír íslandi, kom út 1990.„Þessi bók, sem kemur nú út, er eðli- legt framhald af fyrri bókinni, en er þó á allt öðrum nótum og gjörólík henni,“ sagði Björn Rúriksson í samtali við Morgun- blaðið. „Yfír íslandi var fyrsta bók sinnar tegundar og fjallaði um ísland ofan frá, þar sem hægt er að virða fyrir sér stóru drættina í landinu, sköpun landsins og landfræðileg sér- kenni. í þeirri bók var jarðsagan til umfjöllunar. í þessari bók flyt ég mig nið- ur á sjálft landið og nánast allar myndimar í henni eru teknar á jörðu niðri. Hér er verið að fjalla um umhverfísþættina, landið í kring um okkur, fegurð ís- lenzkrar náttúru, gróðurinn, vatnið og hina sérstöku birtu. Björn Rúriksson Og síðast en ekki sízt formin í náttúrunni." Útgefandi er Jarðsýn. Bókin er 96 blaðsíður og kostar 4.460 krónur. ' KAUP MOIRE -gluggatjaldaefni, einlitt. 1.45m á breidd. Verð kr. 1.120 m BAÐMULLARFÓÐUR 1.40m á breidd. Verð kr. 580 m bassetti ný mynstur og lækkað verð. Vorum að fá nýja sendingu af fallegum Bassetti- efnum og rúmteppum í stíl. Mtrima.. CLUCCA TJOLD SÍÐUMÚLA 35, SÍMI: (91) 680 333, FAX: (91) 680 334 Góðan daginn!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.