Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992 ■.. ■, ; ■'■■■ i ■ i ; v ; ' ''t"> 1 , ■ !1 ■. i"1 1,1 !' . 'Trvy'r—,-t .■ t : ^ ■ i ,J 17 22. flokksþing Framsóknarflokksins hefst á morgrm Flokkurinn mótar end- anlega afstöðu tíl EES Kemur til greina að sitja hjá við afgreiðslu samningsins, segir Steingrímur Hermannsson FLOKKSÞING Framsóknarflokksins, 22. í röðinni, fer fram á Hótel Sögu dagana 27.-29 nóvember. Stærstu mál þingsins verða efnahagsmál og einnig mun flokkurinn móta sér endanlega af- stöðu til samningsins um Evrópskt efnahagssvæði að sögn Stein- gríms Hermannssonar, formanns flokksins en hann staðfesti að skiptar skoðanir væru innan flokksins til samningsins. Framsókn- arflokkurinn stendur einnig fyrir fyrirlestrum og sýningu í Há- skólabíó í tengslum við flokksþingið um nýsköpun í íslensku at- vinnulífi með þátttöku fjölmargra aðila úr atvinnulífi og frá félaga- samtökum. Þá hefur verið ákveðið að sjónvarpa beint frá allri dagskrá þingsins og einnig frá sýningunni í Háskólabíó á Sýn. Að sögn Steingríms verður lögð fram tillaga um ákveðna afstöðu flokksins til EES á þinginu. Stein- grímur sagði að mjög erfitt væri fyrir flokkinn að hafna samningn- um efnislega en á móti kæmi að íslenskt atvinnulíf væri allt of veikt til að ganga inn í evrópskt efna- hagssvæði auk þess sem fyrir lægi ákveðin ályktun miðstjórnar flokksins frá í vor um að aðild að EES kæmi ekki til greina nema tryggt verði að samningurinn standist stjórnarskrána. „Eftir að hafa farið vel yfír það mál er þing- flokkurinn sammála um að samn- ingurinn standist ekki ákvæði stjómarskrárinnar og það mun ráða mjög um afstöðuna,“ sagði hann. Steingrímur sagði að vel kæmi til greina að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um samninginn á Alþingi en skiptar skoðanir væru um það innan flokksins og sumir vildu fremur greiða atkvæði gegn honum. Hins vegar væru ekki margir innan flokksins sem vildu samþykkja samninginn. „Mér fínnst persónlega koma til greina að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna um samninginn,“ sagði hann. Flokksþingið hefst kl. 10 á morgun, föstudag, og meðal þess sem þá er á dagskrá er yfírlits- ræða formanns og ávarp Ögmund- ar Jónassonar, formanns BSRB, sem verður sérstakur gestur þingsins. Steingrímur Hermanns- son sagði á blaðamannafundi að á þessu flokksþingi yrði brotið blað á ýmsan hátt. Akveðið hefði verið að aðgangur að öllum dagskrárlið- um þingsins verði opinn fjölmiðl- um og öðrum sem áhuga hefðu á að fylgjast með störfum þess. Kemur einnig til greina að nefnda- fundir þingsins verði opnir, að sögn Steingríms. Kjörorð þingsins að þessu sinni eru: „Framtíð á framtaki byggð.“ Málefnahópar hafa unnið að und- anfömu að undirúningi að ályktunum flokksþingsins sem hafa verið bomar undir kjördæm- isþing flokksins víðsvegar á land- inu að undanfömu. Fyrirlestrahald og sýning í Há- skólabíó hefst kl. 14 á laugardag og stendur yfír í tvær klukku- stundir en flokkurinn hefur leigt stóra sal Háskólabíós og anddyri þar sem sett verður upp sýning fjölmargra aðila. Meðal þeirra sem taka þátt í sýningunni era Félag íslenskra iðnrekenda sem stendur að sýningu á notkun jarðhita til iðnaðar, Fagráð bleikjuframleið- enda sýnir markaðssetningu á bleikju, Össur hf. sýnir stoðtækja- smíði, Hugrún hf. mælitæki, Rannsóknastofnun fískiðnaðarins sýnir reyktan háf, SÍF saltfískm- arning og Stúdentaráð sem kynnir Nýsköpunarsjóð stúdenta. Þá hafa tíu einstaklingar sem hafa tengst ýmsum nýsköpunarverkefnum verið fengnir til að gera grein fyr- ir hvernig þeir telja að standa beri að nýsköpun í atvinnulífínu með fyrirlesttahaldi. „Þessi fundur er ópólitískur og er fyrst og fremst ætlað að veita fræðslu,“ sagði Steingrímur. Helgi Pétursson hefur umsjón með sjónvarpsútsendingunum en flokkurinn hefur samið við Sýn um beinar útsendingar frá þing- inu. Verður leigður sýningarbíll til að hægt verði að sýna til skiptis frá þinginu og sýningunni í Há- skólabíó. Kostnaður við sjón- varpsútsendingamar er um 250 þúsund kr. Hefur flokkurinn leitað til ýmissa aðila og fyrirtækja um að styrkja fræðslufundinn í Há- skólabíó og kosta sjónvarpsút- sendingamar. Friðþjófur Jóhannsson formaður Afls Málinu lokið með réttlátri niðurstöðu Hæstaréttar FRIÐÞJÓFUR Jóhannsson formaður Afls, félags sendibílstjóra í Reykjavík, segir dóma Hæstaréttar í málum tveggja félagsmanna sýna að þeim beri engin skylda tíl aðildar að Trausta, öðru félagi sendibílstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna sé misvísandi sú túlkun formanns Trausta á niðurstöðunni sem fram kom í laugar- dagsblaðinu. Réttlát niðurstaða hafi fengist og málinu sé lokið. „Málið snerist um tengsl at- vinnuréttinda og félagsaðildar," segir Friðþjófur. „Hæstiréttur taldi að bílstjóranum bæri ekki skylda til að vera í Trausta þar sem lög mæltu ekki fyrir um það. Reglugerð nægir með öðram orð- um ekki. Félagar í Afli fagna þess- um úrslitum, við höldum okkar akstri áfram ótrauðir." Friðþjófur telur túlkun Ingólfs Finnbjömssonar formanns Trausta á dómunum misvísandi. Samkomulagið gerir ráð fyrir tengingu við Kolbeinsstaðamýri og er Seltjamameskaupstað heimilt að veita allt að 45 1/sek af skolpi og 135 1/sek af yfírborðsvatni inn á lagnakerfí borgarinnar. Áætlaður Ingólfur vill semja við eigendur Sendibfla hf, þar sem Aflsmenn vinna, um akstur þeirra, en fara ella í annað mál. Friðþjófur segir að bílstjóramir tveir hafí upphaf- lega verið kærðir fyrir að hækka ekki akstursgjöld á við félaga í Trausta, síðar hafí verið farið í mál við þá fyrir að neita að vera í félaginu. „Afl var stofnað til að beijast fyrir hagsmunum sendibílstjóra,“ segir hann „og gegn takmörkun- nýbyggingakostnaður ræsakerfí- sins með þátttöku Seltiminga er 3,7 milljónir en 30,5 milljónir án þeirra. Hlutur Seltiminga er því 3,2 milljónir. um á fjölda þeirra og annarri frelsisskerðingu í formi skattalaga eða reglugerða. Nú hefur verið skorið úr um að menn verða ekki neyddir til að vera í Trausta, sem hefur barist fyrir ijöldatakmörk- un. Við teljum að í þessu felist viðurkenning á félaginu og að málinu sé lokið.“ ÞEGAfí mJT) Á ÞAÐ BESTA Borgarráð Seltjarnarnes fær afnot af holræsakerfi borgarinnar BORGARRÁÐ hefur staðfest samkomulag milli Reykjavíkurborgar og Seltjarnarneskaupstaðar um afnot af holræsakerfi borgarinnar við Eiðsgranda. Gert er ráð fyrir að Seltjarnarnes greiði 3,2 milljón- ir fyrir afnotaréttinn og 45% af árlegum rekstarkostnaði. STEINAR WAAGE { SKÓVERSLUN Skórnir hennar Póstsendum samdægurs 5% staðgreiðsluafsláttur Domus Medica, Kringlunni, Toppskórinn, Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12, Veltusundi, sími 18519 sími 689212 sími 21212. v y Staögreíos Greiðslukortaþl /MIKUG4RDUR VIÐ SUND i Rtofjjpumatoife s Gódan daginn! co

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.