Morgunblaðið - 26.11.1992, Page 20

Morgunblaðið - 26.11.1992, Page 20
20 MORGUNBLÁÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992 37. ÞING ALÞÝÐUSAMBANDS ISLANDS A' AKUREYRI Benedikt Davíðsson kjörinn forseti ASÍ með 61 % atkvæða Akureyri. Frá Iljálmari Jónssyni, blaðamanm Morgnnblaðsms. BENEDIKT Davíðsson var í gær kjörinn forseti Alþýðusambands ís- lands til næstu fjögurra ára í stað Asmundar Stefánssonar, fráfarandi forseta sem ekki gaf kost á sér á þingi ASÍ sem haldið er á Akur- eyri. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, var kjörin fyrsti varaforseti og Hervar Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, var kjörinn annar varaforseti. Benedikt bar sigurorð af Pétri Sigi Qarða, með 33.650 atkvæðum gegn 20.350 atkvæðum eða rúmlega 61% atkvæða gegn 37%. 3.850 atkvæði voru auð og 950 ógild. Benedikt kom í ræðustól eftir að kjörinu hafði ver- ið lýst og þakkaði það traust sem honum væri sýnt. Hann væri ekki að koma inn sem einhver byltingar- maður heldur sem einn úr hópnum sem væri búinn að starfa lengi og hefði átt þátt í að móta starfshætti innan ASI undanfarin kjörtímabil. Pétur Sigurðsson kom í ræðustól á eftir Benedikt, þakkaði þeim sem stutt hefðu hann í kjörinu og óskaði Benedikt til hamingju með sigurinn. Þegar úrslitin lægju fyrir hlytu allir að sameinast um nýkjörinn forseta og styðja hann með ráðum og dáð 'ssyni, forseta Alþýðusambands Vest- og hugsa fyrst og fremst um það fólk sem þeir væru fulltrúar fyrir. Kjömefnd kom saman til fundar klukkan 11 í gærmorgun og sam- staða tókst ekki um eina tillögu um forseta. Alþýðubandalags- og Fram- sóknamenn stóðu að tillögu um Bene- dikt Davíðsson, fyrrverandi formann Sambands byggingarmanna, en Al- þýðuflokksmenn í nefndinni stungu upp á Pétri Sigurðssyni, forseta Al- þýðusambands Vestflarða. Sjálfstæðismenn sátu hjá við af- greiðsluna og mæltu með hvorugum frambjóðandanum. Þeir höfðu lagt til á fundi kjömefndar í fyrrakvöld að leitað yrði til Láru V. Júlíusdótt- ur, framkvæmdastjóra ASÍ, um að hún gæfi kost á sér, en það var bund- ið því skilyrði að einhugur yrði í nefndinni um það sem ekki var. Fyrr um daginn hafði Öm Frið- riksson, formaður Málm- og skipa- smiðasambands íslands gefíð Iq'ör- nefnd afdráttarlaust afsvar um að hann yrði í framboði. Ekki var sátt um að Pétur Sigurðsson yrði einn í framboði og því var óskað eftir því við þingforseta að kjörinu yrði frest- að fram eftir degi, en það átti að hefjast klukkan 9 í gærmorgun, meðan leitað væri að öðrum fram- bjóðanda. Bæði Alþýðubandalags- menn og Alþýðuflokksmenn funduðu í fyrrakvöld hvorir í sinn hóp eftir að fundi kjömefndar var frestað og varð niðurstaðan af fundi Alþýðu- bandalagsmanna að leita til Bene- dikts Davíðssonar um að hann gæfí kost á sér. Sjálfstæðismenn funduðu í gærmorgun fyrir fund kjömefndar og varð niðurstaða þeirra að sitja hjá við afgreiðsluna. Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reylq'avikur, Morgunblaðið/Rúnar Þór Ný forysta ASÍ. Frá vinstri: Hervar Gunnarsson, annar varaforseti, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, fyrsti varaforseti, og Benedikt Davíðs- son forseti. Átta nýir í miðstj órnarkj öri ÞRJÁR uppástungur komu úr sal um félaga í 18 manna mið- stjórn ASI í gærkvöldi til viðbótar tillögu kjörnefndar, sem var samhljóða. Stungið var upp á Birnu Þórðardóttur, Kára Arnóri Kárasyni, Verkalýðsfélagi Húsavíkur, og Rögnu Larsen frá Verkalýðsfélaginu Þór á Selfossi. Átta manns, sem ekki sitja nú í miðstjóm, em í kjöri. í kjömefnd var gerð tillaga um fímm nýja félaga í miðstjóm. Þeir eru: Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands- ins, Bjöm Snæbjömsson frá Ein- ingu á Akureyri, Böðvar Péturs- son frá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, Kristján Gunnars- son frá Verkalýðs- og sjómanna- félagi Keflavíkur og Sólveig Har- aldsdóttir, Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar. Atkvæðagreiðsla átti að hefjast seint í gærkvöldi. Ekki var búist við að talningu lyki fyrr en ein- hvem tímann seint í nótt. Husqvarna Huskylock Loksaumavélin (over lock) Gerð 360 D Verð stgr. kr. 33.820.- VOLUSTEINNhf Faxafen 14, Sími 679505 Umboðsmenn um allt lond Benedikt Davíðsson nýkjörinn forseti Alþýðusambandsins Þáttaskil í samstarfi ASI og stjóravalda BENEDIKT Davíðsson, nýkjörinn forseti Alþýðusambands íslands í stað Ásmundar Stefánssonar, segir að nú þurfi Alþýðusambandið að styrkja innra starf sitt til að undirbúa það sem framundan sé. Stjórnvöld hafi með efnahagsaðgerðum sínum kallað fram ákveðin þáttaskil ef ekki hafnað samstarfl við ASÍ og hreyfíngin þyrfti að gera það upp við sig hvemig hún héldi á málinu og hvenær. Hann segist ekki óttast að eftirmál verði vegna forsetakosninganna og að hann tetfi ekki að flokkspólitík ætti eftir að setja meira mark á starfsemi samtakanna en verið hafi. „Ég mun fyrst og fremst byggja á þeim góða grunni sem lagður hefur verið undanfarin kjörtímabil, sem ég tel fyrst og fremst hafa verið faglegan og að unnið verði að málum á breiðum grundvelli til hagsbóta fyrir okkar fólk,“ sagði Benedikt í samtali við Morgunblað- ið. Hann sagði að styrkja þyrfti samstarf innan samtakanna og það þyrfti einnig að ná til þeirra aðila utan hreyfíngarinnar sem hefðu með ákvörðunum sínum veruleg áhrif á kjör launafólks, bæði stjórn- völd og gagnaðila á vinnumarkaði. Samstarfið þyrfti að vera bæði fag- legt og póiitískt. Aðspurður hvort hann myndi fylgja stefnu fyrri forseta sagðist hann myndu gera það að svo miklu leyti sem hann yrði ráðandi um hana. Hann hefði verið með í að móta þá stefnu sem fylgt hefði verið undanfarin ár og hann myndi leggja til að haldið yrði áfram á svipaðri braut, að bæta kjörin eftir þeim leiðum sem famar hefðu ver- ið á undanfömum misserum. Stærstu verkefnin núna væru þær alvarlegu horfur sem væru í at- vinnumálum og í stöðu atvinnulífs- ins almennt. Það verkefni hefði verið í vinnslu og hann kæmi að því nú þegar búið væri að fjalla um þessi mál ítarlega af þeim sem hefðu tii þess mikla þekkingu. Hann þyrfti að setja sig inn í það hvernig máiið stæði í dag og myndi vinna það áfram í samvinnu við það fólk sem hefði fjallað um það. Benedikt sagðist taka undir þá gagnrýni sem komið hefði fram á þingi Alþýðusambandsins á efna- hagsaðgerðir ríkisstjómarinnar. Hann væri sammála því sem Ás- mundur Stefánsson, fyrrverandi forseti, hefði sagt í framsögu um kjara-, atvinnu- og efnahagsmál á þinginu á þriðjudag að nú þyrfti fyrst og fremst að skipuleggja málin innan Alþýðusambandsins. Benedikt segir að stjómvöld hafi að minnsta kosti kallað fram ákveð-- in þáttaskil „ef ekki hafnað sam- starfi við okkur og við þær aðstæð- ur þurfum við fyrst og fremst að gera upp við okkur í hreyfíngunni hvemig við höldum á málinu áfram og hvenær," sagði Benedikt. Aðspurður hvernig starfíð legð- ist í hann þar sem framboð hans hefði komið skyndilega upp og raunar ekki endanlega fyrr en í gærmorgun sagði Benedikt að hann þekkti vel til í hreyfingunni, hefði verið lengi viðloðandi hana og vissi nokkuð við hvað væri að glíma. „Ég veit að það er mjög mikið verkefni sem er framundan. Ég treysti því að til samstarfs við mig veljist mjög gott og hæft fólk sem ég þekki_ hér inni frá öllum samböndum. Ég mun líka byggja ákaflega mikið á þeirri víðtæku þekkingu sem starfsfólk Alþýðu- sambandsins og annars staðar í hreyfíngunni hefur yfír að ráða. Ég kvíði þessu verkefni því ekkert mjög mikið, en ég geng þess ekk- ert dulinn að það er mikið starf framundan. Ég hef hins vegar hugsað mér að reyna að hafa þann verkstjómarhátt á að fá hina fær- ustu menn til að vinna með mér og reyna að vera sem mest sam- nefnari fyrir þá vinnu. Ég ætla mér ekki þá dul að ég geti farið í sporin hans Ásmundar, því égþekki hans vinnubrögð í gegnum árin og veit að hann hefur ekki bara sett fram tillögurnar í flestum tilfellum heldur hefur hann líka unnið málið áfram. Hann hefur verið hug- myndafræðingurinn, vinnuþjarkur- inn og síðan unnið tillögunum framgang. Ég geri mér grein fyrir því að ég þarf að vinna þetta öðru- vísi.“ Hann sagði aðspurður ekki óttast að þessi forsetakosning ætti eftir að skilja sár eftir sig. Hann tæki fullt mark á orðum Péturs Sigurðssonar eftir kjörið þar sem hann hefði hvatt til samstöðu um úrvinnslu þeirra verkefna sem væru framundan. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að það er eindrægni innan hreyfmgarinnar. Umfjöllunin öll um aðgerðir stjórnvalda til dæmis ber þess vitni," sagði Benedikt. Hann sagðist ekki óttast að flokks- pólitík færi að setja meira mark á starf samtakanna en verið hefði og hann myndi gera allt tij að draga úr því ef svo yrði. Starf samstak- anna á undanfömum árum sýndi að hún beitti sér án tillits til þess hvaða flokkar væru í stjóm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.