Morgunblaðið - 26.11.1992, Síða 22

Morgunblaðið - 26.11.1992, Síða 22
S6ÖÍ H3HM3VÖ'/Í 3S H’JOAaUTMMIH (IKSAjaAUOHOM MORGUNBLABIÐ FIMMTUÐAGUR 26. NÓVEMBER 1992 Sorg í Kína Ættingjar far- þega biðu komu kínversku Bo- eing-þotunnar á flugvelli Guilin. Brotnuðu margir þeirra saman þeg- ar fregnin um af- drif flugvélarinn- ar barst. Allir sem um borð voru, 133 farþegar og átta manna áhöfn, biðu samstundis bana er flugvélin flaug á fjallshlíð. Orsakir þess eru óljósar en sjónar- vottar sögðu að reykjarstrókur hefði staðið aftur úr þotunni áður en hún brotlenti. Reuter . Qljóst hvað oili því að Boeing-þota fórst í Kína Flugmennirnir virtust reyna að snúa þotunni við í dalnum Hljóðritarnir fundnir mikið skemmdir Guilin. Reuter. SÉRFRÆÐINGAR, sem kanna orsakir brotlendingar Boeing 737- þotu í innanlandsflugi í Kína í fyrradag, sögðu í gær að erfitt væri að gera sér í hugarlund hvað olli því að þotan fórst. í gær fundust hljóðritar þotunnar en voru það skemmdir að ólíklegt var talið að miklar upplýsingar væri að fá úr þeim. Sjónarvottar sögðu að svo hafí virst sem flugmennimir hafi átt í erfiðleikum með að halda stjórn á flugvélinni sem flaug á fjallshlíð 30 km frá borginni Guilin í suðausturhluta landsins. Áfram viðskipta- bann á Iraka ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna ákvað í gær að af- létta ekki viðskiptabanninu á írak, eftir að fulltrúar ráðsins höfðu rökrætt um málið sín í milli og við Tareq Aziz, varafor- sætisráðherra íraka, í tvo daga. Andre Erdos, sendiherra Ung- veijalands, sagði, að fulltrúarn- ir hefðu ekki treyst sér til að aflétta banninu í ljósi þess, að írakar hefðu ekki sýnt nógu mikinn samvinnuvilja og Aziz hefði á engan hátt gefið til kynna, að til stæði að breyta því. írösk stjómvöld sögðu í boðskap sínum til þjóðarinnar í gær, að þolinmæði og trú á almættið væri eina vonin, eftir að Sameinuðu þjóðimar hefðu hafnað að aflétta banninu, sem væri að leggja efnahag landsins í rúst. Sjónvarps- stjóri rekinn JEGOR Jakovlev, sem gegndi forystuhlutverki, þegar fjöl- miðlar fengu frelsi í kjölfar lýð- ræðisumbóta Míkhafls Gorb- atsjovs, var rekinn úr embætti sjónvarpsstjóra Samveldisríkj- anna í fyrradag. Hann sagði við blaðamenn af því tilefni, að hlutur Borís Jeltsíns í brott- rekstrinum sýndi, að ríkisstjóm Rússlands setti hagsmuni sína ofar tjáningarfrelsinu. Forseta- embættið gagnrýndi Yakovlev fyrir umfjöllun sjónvarpsins um deilur Ingusa og Osseta í suður- hluta Rússneska samveldisins og taldi, að farið hefði verið út fyrir takmarkanir sem settar vom á fréttflutning frá átökun- um. EB átelur Breta fyrir vatnsmál DÓMSTÓLL Evrópubandalags- ins, sem hefur aðsetur í Lúxem- borg, hefur úrskurðað, að vatn í Bretlandi sé ekki nógu hreint til að fullnægja stöðlum banda- lagsins, að því embættismenn dómstólsins sögðu í gær. „Við höfum enga vísbendingu fundið um hugsanlegar orsakir," sagði Luo Gan, háttsettur embætt- ismaður sem fer fyrir rannsóknar- nefnd flugslysa í Kína. Haft hefur verið eftir flugvallaryfírvöldum í Guilin að þotan hefði lækkað flugið of hratt en um ástæðu þess er ekki vitað. Tveir íbúar þorps í grennd við slysstaðinn sögðust hafa séð þotuna koma lágt niður eftir þröngum dal sem þorp þeirra er í. Aftur úr þot- unni hefði staðið reykjarstrókur en hún flaug á fjallshlíð um 300 metr- um fyrir ofan þá. Veður var hið besta á flugleið þotunnar en þunnt mistur lá yfir stöku stað. Fréttastofan Xinhua hafði einnig eftir öðmm sjónarvottum að svartur reykjarmökkur hefði borist úr þot- unni áður en hún skall á ijallshlíð- inni. Hefði litið út fyrir að flug- mennirnir ættu í miklum erfiðleik- um. „Biksvartur strókur stóð aftur úr þotunni er hún kom fljúgandi. Flugmennimir virtust reyna að fljúga hring og snúa við í dalnum," sagði ungur maður sem kvaðst hafa fylgst með þotunni undir það síð- asta. Brak úr þotunni dreifðist yfir talsvert svæði og hmndi niður á þorpið Baitengqiao sem var undir fjallshlíðinni sem þotan flaug á. „Við sátum að snæðingi innandyra og heyrðum ógurlegan hvell. Hlup- um út og sáum eldhaf í fjallshlíð- inni,“ sagði kona í þorpinu. Hundmð her- og lögreglumanna leituðu í gær og fyrradag líkams- leifa þeirra sem fómst, 133 farþega og átta manna áhafnar. Einn Kanadamaður var meðal farþega, spænsk hjón, níu Tævanir en aðrir vom kínverskir. Kínverska þotan var af gerðinni Boeing 737-300 og tekin ný í notk- un í fyrravor. Hún er þremur metr- um styttri og ber 19 farþegum færra en 737-400 tegundin og er skammdrægari. Reynt að styrkja eiturstíflu í Svartfiallalandi Byggingarefni verða send FAGOR KYNNINGARVERÐ GERÐFE54-STAÐGRELITKR. 39900 KR. 4 í 9 9 0 - MEÐ AFBORGUNUM RÖNNING SUNDABORG 15 SÍMl 68 58 68 með loftbru til Pogorica Genf. Reuter. NEFND sú sem hefur eftirlit með því að refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) gegn fyrrum ríkjum Júgóslavíu sé framfylgt gaf í gær leyfi fyrir því að sérstakar sveitir yrðu sendar til Svartfjallalands til þess að reyna að gera við stífiu á eiturefnaþró og koma þannig í veg fyrir mikla umhverfismengun á Balkanskaga. Að sögn fulltrúa SÞ verður reynt Mojkovac í Svartfjallalandi. í flóð- að koma 30 tonnum af byggingar- um að undanförnu hefur brotnað efnum í skyndingu til hættusvæðis- úr stíflugarði við þróna sem geymir ins við zink- og blýnámur við bæinn sjö milljónir tonna af eiturefnum. UPPLESTUR UR NYRRI BÓK UM ÞÓRBERG verður í Norræna húsinu í dag, fimmtudaginn 26. nóvember, kl. 17.15 síðdegis, á vegum Minja og sögu. Þar verður lesið úr nýrri bók, Frumleg hreinskilni - Þórbergur Þórðarson og minningin á mölinni í byrjun aldar. Upplesturinn annast Jón Hjartarson leikari, sem sérstaklega er kunnur fyrir leik sinn í Ofvitanum. Höf- undurinn, Helgi M. Sigurðsson, svarar fyrirspurnum. Bókin er fróðleg og skemmtileg umfjöllun um meistar- ann, líf hans og störf, samferðamenn og menningar- strauma í Reykjavík 1912 til 1924, tímabil Þórbergs í Unuhúsi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. árbæiarsafn Hið íslenzka bókmenntafélag Veruleg hætta er talin á að hún bresti þá og þegar verði ekkert að gert. Bresti stíflan þykir víst að eitrið flæði út í ána Tara, berst lík- lega þaðan í Dóna og ána Sava og loks út í Svartahaf. í dag, fímmtudag, er ráðgert að flytja 1.500 stálstrengjabúr með flugvélum frá Ítalíu til Podgorica, höfuðborgar Svartfjallalands. Verð- ur búrunum komið fyrir við stífluna og stórgrýti sturtað í þau til að styrkja stífluna. Eiturefnaþróin er hátt í fjallahér- uðum Svartfjallalands og var byggð fyrir 20 árum til að taka við eitruð- um úrgangsefnum frá zink- og blý- vinnslu. Svæðið sem þróin er á er á sérstakri skrá SÞ yfír náttúruperl- ur en af hálfu stofnunarinnar var ekki vitað um tilvist eiturþróarinnar fyrr en fyrir röskum mánuði enda er hún hvergi á kortum. Aðvörun um yfirvofandi hættu- ástand vegna stíflunnar var gefin út í fyrradag. Var þar sagt að hörmulegt umhverflsslys væri yfír- vofandi og líf mörg þúsund manna í hættu ef stíflan brysti. Af hálfu Evrópubandalagsins (EB) var fjárstuðningi heitið til viðgerðar á stíflunni í gær. Belgíustjóm lánaði tvær Herkúles C-130 flutningaflug- vélar til að taka þátt í loftbrúnni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.