Morgunblaðið - 26.11.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992
Carl Bildt fordæmir skemmdarverk á grafreitum gyðinga
Bretadrottning viðurkennir
breyskleika fjölskyldu sinnar
Lundúnum. The Daily Telegraph.
ELÍSABET Bretadrottning
flutti óvenjulega ræðu á þriðju-
dag þar sem hún viðurkenndi
mannlegan breyskleika fjöl-
skyldu sinnar og fór þess á leit
við fjölmiðla og aðra sem hafa
gagnrýnt hana að gæta hófs í
umfjöllun sinni. Drottningin
flutti ræðuna í veislu sem hald-
in var í ráðhúsi Lundúna til að
minnast þess að 40 ár eru liðin
frá því hún var krýnd. Ein-
lægni hennar kom á óvart og
hún viðurkenndi meðal annars
að árið 1992 hefði breyst úr
„dýrðlegu afmælisári“ í „róstu-
samt ár“ og „annus horribilis"
(„hræðilegt ár“ á latínu) fyrir
fjölskyldu sína.
„Enginn í samfélaginu er
gæddur öllum dyggðunum," sagði
drottning og nefndi fjármálamenn
í Lundúnum og fjölskyldu sína
sem dæmi. „Og enginn hefur alla
lestina. En við erum öll hluti af
sama þjóðfélagi og fjölmiðlaum-
fjöllunin kemur aðeins að haldi
ef hún ber vott um mildi, góða
kímnigáfu og skilning."
Þetta ár hefur verið erfitt fyrir
drottninguna. Anna prinsessa
hefur fengið skilnað, Andrés prins
og Sarah Ferguson eru skilin að
borði og sæng, fjölmiðlar hafa
birt reglulega fréttir um hjóna-
bandserfiðleika krónprinsins,
Karls, og Díönu prinsessu, æ fleiri
krefjast þess að drottningunni
verði gert að greiða skatta og til
að kóróna allt kviknaði í stórum
hluta af eftirlætis aðsetri hennar,
Windsor-kastala.
„Eins og einn af vinsamlegri
fréttariturunum sagði hefur þetta
ár reynst „annus horribilis," sagði
drottningin og þótt hún notaði
latínu vöktu þessi ummæli mikla
athygli viðstaddra. Það sem gerði
ræðuna enn áhrifameiri var að
drottningin var svo kvefuð að
stundum virtist hún vera að missa
málið.
Breskir veðmangarar töldu í
gær auknar líkur á því að Elísa-
bet drottning viki af valdastóli
fyrir árslok. Hjá fyrirtækinu Will-
iam Hill voru líkurnar á því að
hún tilkynnti afsögn í árlegri jóla-
dagsræðu taldar meiri í gær, eða
1 á móti 33 í stað 1 á móti 50.
Mótmæla ráðstefnu and-
síonista í Stokkhólmi
Stokkhólmi. Reutcr.
CARL Bildt, forsætisráðherra Svíþjóðar, fordæmdi í gær skemmdar-
verk á grafreitum gyðinga í Stokkhólmi og Israelsstjórn og samtök
gyðinga mótmæltu fyrirhugaðri ráðstefnu and-síonista í borginni
um helgina.
52 legsteinar voru vanhelgaðir í
kirkjugarði gyðinga í Stokkhólmi á
Músagildran
40 ára
HALDIÐ var hátíðlegt í gær 40
ára afmæli leikritsins Músagildr-
unnar eftir Agöthu Christie, sem
verið hefur á fjölunum allra leik-
rita lengst í Bretlandi. Leikritið
á lengstan samfelldan sýningar-
tíma allra leikrita heimsins. Frá
því það var fyrst sýnt í London
25. nóvember 1952, hafa yfir
9,5 milljónir sýningargesta
flykkst á sýninguna. Alls 259
leikarar hafa komið við sögu
hennar, 120 kílómetrar af bún-
ingum hafa verið straujaðir og
292 tonn af ijómaís verið inn-
byrt í híéum. Leikritið hefur ver-
ið sýnt í 45 löndum á 24 tungu-
málum.
Nýlegu við-
skiptabanni
verði aflétt
SAMÞYKKT var með 59 at-
kvæðum gegn þremur á allsheij-
arþingi Sameinuðu þjóðanna í
fyrradag að skora á Bandaríkja-
stjórn að aflétta nýlegri viðbót
við viðskiptabannið á Kúbu. 71
ríki sat hjá. Samkvæmt hinu
herta viðskiptabanni, sem sett
var á síðustu vikum kosninga-
baráttunnar fyrir bandarísku
forsetakosningarnar var erlend-
um dótturfyrirtækjum banda-
rískra fyrirtækja bannað að eiga
viðskipti við Kúbu og skipum
sem þangað komu bannað að
koma til bandarískra hafna.
mánudagskvöld. Hakakrossar voru
málaðir 'á legsteinana. Daginn eftir
voru unnin skemmdarverk á 92 leg-
steinum gyðinga í úthverfi Stokk-
hólms og nokkrir þeirra eyðilagðir.
Carl Bildt sagði í ræðu á sænska
þinginu að skemmdarverkin væru
„viðbjóðsleg" en minntist ekki á
kröfu ísraelsstjórnar, sænskra gyð-
inga og Ingvars Carlssons, leiðtoga
sænska Jafnaðarmannaflokksins,
um að svokölluð „heimsráðstefna
and-síonista“ í Stokkhólmi yrði
bönnuð.
Ahmed Rami, framkvæmdastjóri
Útvarps íslam, sem sendir út frá
Stokkhólmi, stendur fyrir ráðstefn-
unni og hefur boðið franska pró-
fessornum Robert Faurisson og
fleiri háskólamönnum sem neita því
að 6 milljónir gyðinga hafi verið
drepnar í útrýmingarherferð nas-
ista. Hann vill ekki upplýsa hvar
ráðstefnan verði en sagði í yfirlýs-
ingu í gær að nauðsynlegt væri að
halda hana með leynd þar sem and-
stæðingar kynþáttahaturs hefðu
ráðist á Faurisson þegar hann heim-
sótti Svíþjóð nýlega.
ísraelska utanríkisráðuneytið
bað sænsku stjórnina að banna ráð-
stefnuna þar sem markmiðið með
henni væri að endurlífga nasism-
ann.
Enn bætum vió úrvalið af leðursófasettum
og hornsettum.
Litir við allra hæfi.
Verð sem kemur á óvart...
Válhúsgogn
Ármúla 8, símar 812275 og 685375.
Nýtt þing kemur saman í Litháen
Brazauskas tekur
við af Landsbergis
Vilnius. Daily Telegraph. Reuter.
ALGIRDAS Brazauskas, leiðtogi Lýðræðislega verkamannaflokksins,
var kosinn forseti þingsins og þar með þjóðhöfðingi Litháens í gær.
Vytautas Landsbergis, sem af mörgum er talinn hafa komið upplausn
Sovétríkjanna af stað, lét af embættinu í gær í kjölfar kosningasigurs
flokks Brazauskas. Hann verður frambjóðandi Sajudis-flokksins við
fyrstu almennu forsetakosningunum í Litháen sem ráðgerðar eru
snemma á næsta ári.
Nýtt þing Litháens kom saman í
gær en af 141 sæti hlaut Lýðræðis-
legi verkamannaflokkurinn, gamli
kommúnistaflokkurinn, 73 í nýaf-
stöðnum kosningum. Brazauskas
fékk 81 atkvæði í kosningu þingfor-
seta en keppinautur hans, Aloizas
Sakalas, leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins, aðeins 7.
Nýju valdhafarnir erfa mikla
efnahagsörðugleika sem fráfarandi
stjórn fékk lítt ráðið við og kostaði
öðru fremur Sajudis völdin. Verðlag
hækkar um 20% á mánuði og iðnað-
arframleiðsla fert ört minnkandi. Á
fyrstu níu mánuðum ársins dróst hún
saman um 47% og álíka illa áraði í
landbúnaði, sem hefur löngum verið
einn af helstu atvinnuvegum Litháa.
Hagfræðingar telja að landbúnaðar-
framleiðslan dragist saman um 50%
á þessu ári. Nautgripum hefur fækk-
að um 35%, sauðfé um 40%, svínum
um 50% og alifuglum um 60% frá
síðustu áramótum. Bændur hafa
fremur kosið að selja búfénað lágu
verði fyrir gjaideyri en gegn opinber-
um skömmtunarseðlum. Af þeim
sökum hefur lengst af mátt sjá lang-
ar lestir pólskra og þýskra vörubíla
akandi í vesturátt frá Litháen með
kvikjénað.
„Ég geri ráð fyrir að fljótlega sjá-
A1IKUG4RDUR
VIÐ SUND
ist þess merki í þjóðlífinu að flokkur-
inn er tekinn við. Tíminn verður hins
vegar að leiða í ljós hvort nýju for-
ingjarnir hafi nógu sterkt nef til að
standast þær freistingar að grípa til
aðgerða sem vinsælar eru í fyrstu
en leiða til þess að óvinsælar aðgerð-
ir reynast óhjákvæmilegar síðar,“
sagði Aleksandras Abisala, fráfar-
andi forsætisráðherra.
Algirdas Brazauskas, leiðtogi
Lýðræðislega verkamannaflokksins,
sakaði fráfarandi stjórn um að
blekkja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
(IMF) með röngum upplýsingum um
efnahagsástandið. Sjóðurinn veitti
Litháuum 82 milljóna dollara aðstoð
í síðasta mánuði til þess að stuðla
að efnahagsumbótum.
Aðstoðin er veitt með því skilyrði
að Litháar beiti ströngu aðhaldi í
ríkisútgjöldum og peningastefnu
sem haldið getur vöxtum niðri. Braz-
auskas hélt því fram í gær að krafa
IMF um frystingu launa kæmi alltof
hart niður á meirihluta þjóðarinnar
sem rétt hefði til hnífs og skeiðar.
Þetta fólk hefði litlu hærri laun en
lögbundin lágmarkslaun en efna-
hagsmálaráðuneytið hefði reiknað
út að fjórföld lágmarkslaun væru
nauðsynleg til þess að menn gætu
framfleytt sér sómasamlega.
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA