Morgunblaðið - 26.11.1992, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 26.11.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992 Kveðjuorð Þórey Þórðardóttir 15. október síðastliðinn andaðist í Landspítalanum Þórey Þórðardótt- ir. Hún var alltaf kölluð Eyja og hefði orðið 80 ára í dag, 26. nóvem- ber. Þótt þetta sé hár aldur má segja að dauðinn hafi komið á óvart eins og hann gerir gjaman, því Eyja hafði svo oft orðið veik og þurft að fara á sjúkrahús en náði sér alltaf aftur, og ég vonaði að svo yrði einnig í þettá skipti. Við vonuð- um að hún gæti verið á tónleikunum í Þjóðleikhúsinu sem haldnir voru til heiðurs eiginmanni hennar, Sig- urði Demetz, söngvara og sör.g- kennara, en hann varð áttræður 11. október. Svo átti að halda sameigin- lega veislu á afmælisdegi hennar, 26. nóvember. í sumar þegar við Eyja töluðum um hvað þetta yrði gaman bætti hún við „ef Guð lof- ar“. Nú vitum við að Guð hafði eitt- hvað annað í huga og verðum að treysta því að hann hafi vitað að betra væri að hafa þetta svona þótt við vitum ekki af hverju. Ég sá Eyju fyrst á þorrablóti hjá Nýja Tónlistarskólanum fyrir 11 árum. Það var ótrúlegt að hún væri nærri sjötugu, svo ungleg var hún. Hún var smávaxin og fínleg, sérstaklega fallega klædd með geislandi bros og tilbúin að taka þátt í gleðinni. Já, það var þetta heillandi bros og glaðværðin sem Eyja átti í svo rikum mæli. Það var Bíll fauk fimm veltur Húsavík. NOKKURN skaða gerði í óveðri sem gekk yfir Húsavík á mánu- dagskvöld. Bíll af Pajero gerð fauk og fór alls fimm veltur í þremur áföngum. Eigandinn, Gísli Salomonsson, var að gá að skepnum í húsi á Skógargerðis- mel og skildi bíl sinn eftir á ör- uggum stað, að hann hélt þá hann gekk í húsið, en þegar hann kom út aftur var bíllinn horfinn og hafði þá fokið og farið eina veltu. En þá hann nálgaðist hann aftur fauk hann aðra veltu og fór alls fimm veltur í þrem áföngum og er nú talinn ónýtur. Lítill fólksbíll sem kona ók úr Urðargerði lét ekki að stjórn, fauk eftir veginum og lenti á öðrum bíl og síðan upp á húsalóð en stað- næmdist þar án þess að fara af hjólunum. Á honum urðu nokkrar skemmdir. Skemmdir urðu á skála Golf- klúbbsins sem er í Þorvaldsstaða- gili. Austurstafn hússins lét undan storminum, gekk inn og rúður brotnuðu. Raflínur stóðu sig nokkuð vel, aðeins einn staur brotnaði í Tjörneslínu og eitthvað var um línu- slit svo rafmagnslaust var um tíma en ötullega var unnið að viðgerðum svo teljandi óþægindi urðu ekki af þótt sjónvarp sæist ekki. -Fréttaritari FÉLAGSLÍf St.St. 5992112619 VII I.O.O.F. 11 = 17411268’/2 = I.O.O.F. 5 = 17411268’/2 = Br. Sk. □ HELGAFELL 5992112619 VI 2 Frl Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma I kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjustneti 2 kvöld kl. 20.30 almenn sam- koma. Majorarnir Káre og Reidin Morkel stjórna og tala. ^fflhjólp I kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma I Þribúöum. Mikill söngur. Samhjálparvinir gefa vitnisburöi. Orö hefur Stefán Baldvinsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. AD KFUM, Holtavegi „Starf Hjálparstofnunar kirkj- unnar á Indlandi". Fundur i kvöld kl. 20.30 í umsjá Jónasar Þórissonar fram- kvæmdastjóra. Allir karlar velkomnir. FERÐAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 682S33 Ferðafélag íslands 65 ára föstudaginn 27. nóvember Opið hús á skrrfstofunni, Mörkinni 6 Kjörið tækifæri til að ganga íFerðafélagið I tilefni afmælisins 27. nóv. verö- ur opið hús í nýju skrifstofunni, Mörkinni 6 (austast við Suður- landsbrautina), allan föstudag- inn frá kl. 9-19. Félagar, sem utanfélagar, eru hvattir til að líta inn. Kaffi og meðlæti. Árbækur F.I., Ijósmyndir Bjöms Rúriks- sonar og feröaútbúnaöur til sýn- is í afgreiðslunni. Árbækur Ferðafélagsins Eignist árbækurnar frá upphafi. Þær eru besta íslandslýsing sem völ er á. Hægt er að fá þær með 40% afmælisafslætti og rað- greiðslum. Tilboð sem gildir til 15. desember. Afmælisganga frá Árfoæ að Mörkinni 6, föstudags- kvöldið 27. nóv. kl. 20.30 Brottför frá Mörkinni 6 (austast við Suöurlandsbrautina) kl. 20.30 rneö rútu að Árbæ. Geng- ið frá Árbæ um Reiðskarð í Ell- iðaárdalinn að Mörkinni 6. Um 1 klst. ganga. Frftt. Aðventuferð í Þórsmörk 27.-29. nóv. Brottför föstud. kl. 20. Enn er hægt að komast með í þessa ferð. Gönguferðir. Kvöldvaka með sannkallaðri aðventu- stemmningu. Pantið strax og takið miða á skrifstofunni. Sunnudagsganga um Sel- tjarnarnes 29. nóv. kl. 13.00 Það verður einnig afmælisganga á sunnudeginum. Brottför frá Mörkinni 6 (stansaö við BSl). Ekið aö Suðurnesi á Seltjarnar- nesi. Gengið um Suðurnes og út I Gróttu ef aðstæöur leyfa. Um 2 klst. Frítt. Afmælismyndakvöld mið- vikud. 2. desember Litskyggnusýning Grétars Ei- rikssonar „Úr starfi Ferðafélags- ins fyrr og nú“ og Björns Rúriks- sonar „Töfrar íslands". Mynda- kvöldið verður í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, og hefst kl. 20.30 stundvíslega. Góðar kaffiveit- ingar í hléi. Fjölmennið! Ferðafélag íslands, félag allra landsmanna! ekki verið að kvarta og kveina yfir þeim áföllum sem lífið hafði búið henni en oftar heyrði ég hana lofa það sem vel hafði farið. Bar þar hæst fjölskyldu hennar. Eiginmann- inn sem hún þó missti ung, bömin og bamabömin og svo manninn sem hún var gift núna. Hann hafði opn- að henni nýjan heim, tenórsöngvari og heimsborgari, kominn langt að, frá litlu þorpi á undurfögrum stað í Dólemítafjöllunum þar sem heitir Ortisei. Eyja talaði alltaf um „heima í Ortisei", svo vel leið henni þar. Eftir þetta varð söngurinn óijúfan- legur hluti lífsins. Eiginmaður 33 fá. Annars var alveg sama hvað Eyja bjó til matarkyns, á því sviði brást henni ekki bogalistin. Nú er tómlegt hjá elsku Demetz á Sólval- lagötunni. Afmælisbamið er ekki lengur hér. Það vantar Eyju. En minningin um hana er björt og hver veit nema hún geti haldið upp á afmælið sitt á öðrum stað, í það minnsta kunni hún manna best að gleðjast í lífínu. Um leið og ég kveð Eyju með þessum fátæklegu orðum þakka ég fyrir að hafa kynnst henni vel og samfylgdina þessi ár. Guðbjörg Sigurjónsdóttir. hennar kenndi söng bæði heima og í skólum. Nemendur komu og fóm. Eyja tók þeim öllum opnum örmum, hvatti og hældi. Hún studdi mann sinn með ráðum og dáð. Alltaf hafði hún eitthvað jákvætt til málanna að leggja. Aldrei heyrði ég hana tala illt um aðra manneskju. Það var svo fjarri henni að setja sig í dómarasætið. Alltaf steymdi frá henni einlægni og hlýja. Allir sem komu á heimili þeirra hjóna kynnt- ust ómældri gestrisni þeirra. Veit- ingamar virtust óþijótandi. Spag- ettíið í „Hvíta húsinu á Sólvaliagöt- unni“ er það besta sem hægt er að Matvælaiðnaður Samstarf og nýir möguleikar Ráðstefna í Höfða á Hótel Loftleiðum 30. nóvember 1992 Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar á alþjóðaviðskiptum, ekki síst í viöskiptum með matvæli. Hér er um brýnt hagsmunamál aö ræða fyrir íslenska matvælaframleiöendur, sem verða aö bregðast viö og ræða með hvaða hætti þeir geti best varið stöðu sína og ekki síst sótt inn á erlenda markaði með framleiðslu sína. Þess vegna er boðað til þessarar ráðstefnu. Tímamótaviöburður Það er tvímælalaust tfmamótaviðburður í atvinnumálum að atvinnuvegaráðuneytin þrjú, verkalýðshreyfíngin og hagsmunasamtökin í matvælaiðnaðinum skulu koma saman og ræða hugsanlegt samstarf og sameiginlega hagsmuni. Kl. 08:30 09:00 09:15 10:15 10:45 12:00 13:15 14:00 14:40 15:40 16:30 17:30 Dagskrá ráðstefnunnar Innritun og afhending ráðstefnugagna Setning ráðstefnu Gunnar Svavarsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda Samstarf - sameiginlegir hagsmunir Ágúst H. Elíasson, framkvæmdastjóri Samtaka fiskvinnslustöðva Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda Ámi Gunnarsson, stjómarmaður í Félagi íslenskra iðnrekenda Kaffihié Rannsóknir og nýsköpun • vöruþróun og gæði Sigmundur Guðbjamason, prófessor við Háskóla íslands Baldur Hjaltason, tæknilegur framkvæmdastjóri Lýsis hf. Óskar H. Gunnarsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar sf. Hádegisverður Matvæli og alþjóðaviðskiptasamningar Kjartan Jóhannsson, sendiherra íslands hjá EFTA í Genf Valgerður Bjamadóttir, viðskiptafræðingur og fulltrúi VSÍ og FÍI í Bmssel Mennta- og fagmál í matvælaiðnaði Halldór Grönvold, skrifstofustjóri Iðju Hannes Hafsteinsson, forstöðumaður matvælasviðs Iðntæknistofnunar Islands Grípum tækifærin • Hvað þarf til? Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands íslands Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri Marel hf. Kaffi og pallborðsumræður Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, ásamt ráðstefnustjómm Léttar veitingar - stund til að spjalla saman Ráðstefnulok Ráðstefnustjórar: Bjöm Bjömsson, bankastjóri íslandsbanka hf., og Guðmundur Þ. Jónsson, formaðurLandssambands iðnverkafólks. Að ráðstefnunni standa eftirtaldir aðilar: Iðnaðarráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti, Landssamband iðnverkafólks, Félag íslenskra iðnrekenda, Landssamband iðnaðarmanna, Samtök fiskvinnslustöðva og Stéttarsamband bænda. Þátttökugjald er kr. 3.000.- Óskað er eftir því að væntanlegir þátttakendur skrái sig fyrir 27. nóvember hjá: IÖnaðarráðuneyti: Vigdís Ársælsdóttir, sími 91-609070; landbúnaðarráðuneyti: Ágústa Andersen, sími 91-609750; sjávarútvegsráðuneyti: afgreiðsla, sími 91-609670. íslenskir matvælaframleiðendur eiga framtíðina fyrir sér - með öflugu samstarfi Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra Jón Sigurösson iðnaðarráðherra Porsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.