Morgunblaðið - 26.11.1992, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 26.11.1992, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992 Nfffa 88 37 Danny, amman Priscilla og Lisa Marie með sveininn unga. BARNEIGINIR Lítill Elvis Elvis heitnum Presley hefur fæðst dóttursonur. Lisa Marie, 24 ára, og maður hennar, Danny Keough, 27 ára, eignuðust fyrir skömmu son, en þau eiga fyrir dótturina Danielle, þriggja og hálfs árs. Að þessu sinni kom bamabarn Elvis í heiminn án þess að mikið bæri á en mikið fjölmiðla- fár greip um sig við fæðingu Dani- elle. Ekki hefur enn verið ákveðið hvað drengurinn á að heita en vafalaust hafa hörðustu aðdáendur afans sína skoðun á því. Foreldrarnir eru báðir tónlistar- fólk, þó ekki hafi þau Danny og Lisa Marie vakið eins mikla at- hygli fyrir tónlist og fyrir bam- eignir. Lisa Marie hyggst hins veg- ar bæta úr því á næsta ári, en þá ætlar hún að syngja inn á fyrstu hljómplötuna. VEITINGAHÚS Yfirþjónninn allt í öllu Yfírþjónninn á nýjasta veitinga- stað borgarinnar, Pasta Basta, er fjölhæfur maður. Hann er lærður þjónn og matreiðslumað- ur og er að opna sinn fyrsta veit- ingastað, sem hann hefur innréttað að öllu leyti sjálfur. Yfirþjónninn fjölhæfi heitir Ingvi Rafn og er þessa dagana að opna Pasta Basta við ofanverðan Klapparstíginn, þar sem matseðillinn verður helgaður ítalskri matargerðarlist. Auk Ingva Rafns á Sigurður B. Sigurðsson veitingastaðinn en matreiðslumeistari er Sturla Birg- isson, sem hefur m.a. matreitt ofan í gesti Perlunnar og Punkts og pasta. Ingvi Rafn hefur starfað sem matreiðslumaður og þjónn í Danmörku og á íslandi, m.a. á Eldvagninum, Við sjávarsíðuna, Café Rosenberg og á Holiday Inn. Það hefur lengi verið draumur Ingva að hafa opið eldhús, þar sem gestimir sjá matreiðslumennina að störfum. A Pasta Basta er eldhús- ið þiljað af með gleri svo að tengsl skapast milli eldhúss og salar, án þess að of sterk matarlykt berist inn í salinn. „Við höfum dekstrað við eldhúsið enda verður það að viðurkennast að mig langar að skella á mig kokkahúfunni og svuntunni," segir Ingvi. Önnur nýjung sem vert er að geta er ítölsk pastavél, sem veit- ingahúsið hefur keypt. í vélinni má laga flestar gerðir af pasta, með fyllingum og án. Gestum Pasta Basta verður því eingöngu boðið upp á ferskt pasta. Til að kynna pastavélina og kenna á hana kom hingað til lands framkvæmda- stjóri ítalska framleiðandans, Gianmaria Pinna. Á þriðjudag bætti hann um betur og kynnti vélina fyrir 40 kokkum af veitinga- húsum borgarinnar. Ingvi Rafn segir Pasta Basta ekkert eiga skylt við samnefndan stað í Kaupmannahöfn. „Staðirnir em að mörgu leyti frábrugðnir, ekki síst hvað varðar ferska pastað sem við bjóðum upp á. Þar sem Morgunblaðið/Þorkell Eigendurnir Sigurður B. Sigurðsson og Ingvi Rafn við pastavélina góðu, sem Gianmaria Pinna, lengst til hægri, kynnir. Matreiðslumeist- arinn Sturla Birg- isson reiðir fram tagliatelle að hætti hússins. pasta spilar svo stóran þátt í mat- seðlinum, vildi ég að nafnið vísaði til þess. Svo rímaði „basta“ einfald- lega vel við,“ segir Ingvi. Hann hannaði allar innréttingar á staðn- um og hefur tekist að skapa þægi- legan ítalskan anda. Myndarlegar og nánast „matarmiklar“ glerljósa- krónur prýða staðinn, á veggjum er m.a. að sjá harmóniku og göm- ul útvörp. Einnig ber mikið á jámi og messingi, „Þetta er hálfgerð smekkleysa fyrir augað, vaðið úr einu í annað, þannig að fólki líði vel hér.“ Pasta Basta tekur um 50 manns í sæti. Á góðviðrisdögum næsta sumar, verður opnað út á verönd og út í garð þar sem sæti verða fyrir rúmlega tvöfalt fleiri gesti. jy\rasir á jólaföstu aö er góður siður að gera sér dagamun á jólaföstunni,hitta góð vini,kunningja, samstarfsfélaga eða venslamenn. Til þess er einn staður flestum betur fallinn. SKRÚÐUR á Hótel Sögu. Þar er nú standandi hlaðborð með gómsætum jólakrásum, bæði skandinavískum, íslenskum og amerískum. Ljúf hljómlist er leikin öll kvöld af þekktum hljómlistarmönnum. Við bjóðum einnig vistlega sali af ýmsum stærðum fyrir fyrirtæki og félagasamtök. Rjúfið annríki jólaundirbúningsins og njótið ánægjustundar á Hótel Sögu. -lofar góðu! V / HAGATORG SlMI 29900 QÁaaááuí fafkw fíwmi/va<T feáta. jólalilaálíorcí efsé £ösiua.agiim ^olasvipur cpYíú að færast ylir Naústiö og og með fösludcginum 27. nóvember svigna >orð undan okkar rómaða jólahlaðborði. Eihstök þjónusla, ijúffengur matur og heillandi umhverfi í h^dcginu og á kvöldin. £gna þeirra vinsæida sem jólhveisia Naustsins nýtur bjóðum við einnig ikpp á jóiahlaðborð í veislusal Naustsins í Fóstpræðraheimilinu fyrir 40 - 140 manna hópa. QyffáuuÓ- eÁÁÍ afjó/aA/uéÁm yárí u/, —/ia,rtli/ tíwian/ya/ - íifa&a* me& iá/ « Pantanir í síma 1 77 59 * ► I YIJCCA GCLL er frábært fæðubótaefni sem sífellt fleiri og fleiri íslendingar kjósa að nota daglega, til að auka eigin vellíðan og bæta heilsu- farsástand sitt. UEKNIN6IJURT FNÍ URÚFI KLDl i ★ YUCCA plantan hefur frá örófi alda verið notuð sem lækninga- jurt og hjá þeim indíánum sem bjuggu á hásléttum suðvestur- ríkja Bandaríkjanna má segja að hún hafi að mikilvægi komið næst á eftir vatni. BRÝTUR NIÐUR FÆÐUNA ★ Nútíma rannsóknir hafa leitt í Ijós að YUCCA plantan inniheld- ur yfirborðsvirkt efni (saponin) sem brýtur niðurfæðuna og hreins- ar uppsafnaðan úrgang úr meltingarvegi líkamans. FRABJER ÁRANGUR VIÐ MEBHÖNDLUN A LIÐAGIGT, STREITU O.FL. ★ Frá árinu 1973 hafa verið stundaðar rannsóknir við National Arthritis Medical Clinic í Bandaríkjunum sem miða að því að kanna áhrif YUCCA á liðargigtarsjúklinga. Helstu niðurstöður þeirra rann- sókna eru að yfir 85% þeirra sjúklinga sem fengu YUCCA dag- lega fengu að hluta eða öllu leyti bata á liðagigt sinni. Við rann- sóknirnar kom einnig í Ijós að YUCCA dró verulega úr streitu og óeðlilega háu kólesteróli í blóðinu. VEITIR PSORIASIS- 06 ASTMASJUKLINGUM BATA ★ Frekari rannsóknir hafa sýnt fram á að YUCCA veitir psorias- is og astma sjúklingum bata að hluta eða öllu leyti. Neglur og hár styrkist einnig við notkun YUCCA GULLS og almenn vellíðan eykst. 100% NATTORULEGT efni ★ YUCCA GULL er unnið úr plöntum sem vaxa á hásléttum Nevada og Arizoa. Vinnslan fer fram við lágt hitastig til að fyrir- byggja að lífræn ensým eyðileggist. Engin fylliefni eru notuð við frannleiðsluna og í hylkjunum er 100% gelatín. ★ í einu glasi af YUCCA GULLI eru 60 hylki, eða 30 daga skammt- ur og verðið er aðeins 490,- kr. Einkaumboð á íslandi. Söluaðilar: Betra lif, Laugavegi 66; Hlouptu & Kauptu, Borgarkringlunni; Heilsu- val, Barónstíg; Heilsubúðin, Hafnarfirði; Gæðakjör, Keflavík; Höndin, Akureyri. I M 1192

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.