Morgunblaðið - 26.11.1992, Síða 45

Morgunblaðið - 26.11.1992, Síða 45
UTMMn CIIGAJHVTJDflOM FIMMTUDAOUR 26. NÓVEMBERT992 45 IÞROTTIR UNGLINGA Fjórðungsglíma Suðuríands Pórðungsglíma Suðurlands var haldin fyrir nokkru að Laugar- vatni. Keppt var í fimm flokkum, þar af fjórum unglingaflokkum og voru helstu úrslit þessi. Sveinar, 13 - 15 ára l.LárusKjartansson........3 vinn. 2. Kjartan Kárason..............2 vinn. 3. Óðinn Þór Kjartansson..1 vinn. Piltar, 12 ára og yngri 1-2. Sölvi Ámason...2,5 + 0,5 1-2. Daníel Pálsson.2,5 + 0,5 3. Eyþór Sigurðsson.......0,5 + 1 Meyjar, 13 - 15 ára 1. Heiða Tómasdóttir.....1,5 vinn 2. Karólína Ólafsdóttir...1 vinn. 3. Sabína Halldórsdóttir.0,5 vinn Telpiir, 12 ára og yngri l.DagnýTómasdóttir.....1 vinn 2. Sóley Ösp Karlsdóttir..0. ■Fimmtán ára glímumaður, Ólafur Sigurðsson vakti athygli í fullorð- insflokki með því að sigra í þremur glímum og hreppa annað sætið. Hann tapaði aðeins einni glímu, gegn Jóhannesi Sveinbjömssyni sem varð meistari í fullorðinsflokki. Allir keppendur vom frá HSK. Morgunblaðið/Frosti Þ»r eru á lelðinni til Skotlands til að taka þátt í fyrstu Friðarleikunum í fimleikum í næsta mánuði. Talið frá vinstri: Angelian Schalk, Sara Jónsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Auður Inga Þorsteinsdóttir og Helga Ágústdóttir KÖRFUKNATTLEIKUR Æfa af krafti fyrír friðarieika í fimleikum Félagarnlr Sigurður og Óli fylgjast vel með NBA-deildinni. Reyna stundum að líkja eftir Jordan „Michael Jordan er uppáhalds- íþróttamaðurinn. Hann er snill- ingur og við reynum stundum að herma eftir honum, til dæm- is með því að reyna mismun- andi skot„ sögðu þeir Sigurður Gunnarsson og Óli Garðar Ax- elsson, ellefu ára gamlir, sem leika körfuknattleik með Reyni Sandgerði í minniboltanum. Reynismenn standa óneitanlega í skugga frægari nágranna sinna á Suðumesjunum, Keflvíking- ar og Njarðvíkingar eiga sterkum liðum á að skipa í yngri flokkunum og þeir Sigurður og Oli samsinntu því að það yrði erfítt að leggja þá að velli í körfuknattleiknum í vetur. Körfuknattleiksdeild Reynis var stofnuð á síðasta ári og þegar komu tuttugu drengir á æfingar hjá félag- inu og sá fjöldi hefur haldist síðan. Þeir félagar fylgjast vel með hvað er að gerast í amerísku deildinni og eins og svo margir aðrir drengir eiga þeir sér sin átrúnaðargoð. „Jordan er snillingur en „Magic“ og Pippen eru líka góðir,“ sögðu Reynisdrengimir sem fylgjast grannt með málum í NBA deildinni á Stöð 2 og á gervihnattastöðvum sem þeir.ná með stóm kapalkerfi í Sandgerði. FIMM stúlkur úr Gerplu á aldrinum 11 -14 ára æf a nú af krafti fyrir fyrstu „friðarleik- ana“ ífimleikum sem fram fara í Skotlandi um miðjan næsta mánuð. Auður Inga Þorsteinsdóttir er ein af fimmmenningunum og hún sagði að þrátt fyrir strangar æfingar gerðu þær Frosti sér ekki miklar vonir Eiðsson gegn svo sterkum skrífar mótheijum en kepp- endur á mótinu koma meðal annars frá Bandaríkj- unum og af Bretlandseyjum. „Við höfum undanfarið æft sex daga vikunnar og yfirleitt í þijá og hálfan tíma á dag. Ég held samt að möguleikar okkar á verðlaunum séu ekki miklir en er viss um að mótið kemur til með að vera mjög mikil reynsla og góð skemmtun þrátt fyrir það,“ sagði Auður. Mót sem þetta hefur ekki verið haldið áður en mikið er lagt upp úr því að gera dvölina skemmtilega fyrir þáttakendur. Keppt verður í Olympíugreinunum, gólfæfingum, jafnvægislá, tvíslá og í stökki og síðan er boðið upp á kvöldvökur og ýmislegt fleira í léttum dúr. Tæplega fimm hundruð böm og unglingar stunda fimleika hjá Gerplu og til gamans má geta að félagið notar stafina í nafni sínu til að skipta iðkendum í flokka. Fyrsti stafurinn, G, stendur fyrir grunnhópa en þær sem náð hafa lengst eru í A-hópi sem er meistara- hópur félagsins. Fjórtán stúlkur eru í þeim flokki þar af þær fimm sem taka þátt í Friðarleikunum. Stúlkumar fjármagna ferðina sjálfar með ýmsum hætti, meðal annars með humarsölu auk þess Snævar sigraði öragglega í flokki 7-10 ára og gerði gott betur þegar hann hreppti gullið í flokki 11-14 ára. Snævar var mun lágvaxnari en keppinautar hans í eldri aldursflokknum en hann bætti það upp með mikilli útsjónarsemi og góðri t'ækni sem færði honum gullverðlaun. Annars urðu helstu úrslit á mót- inu þessi: 7 - 10 ára - 25 kg 1. Sigurður M. Davíðsson, Á. 2. Amar Halldórsson, Á 3. Bjarki Sólmundsson, JFR 3. Kári Birkisson, JFR. - 30 kg Sigurður Kristjánsson, JFR 2. Helgi I. Halldórsson, JFR sem þær hyggjast bjóða fyrirtækj- um að sýna dans á skemmtunum svo eitthvað sé nefnt, þær munu dvelja í fímm daga ytra ásamt kín- verskum þjálfara sínum Duan Er Li og Kristínu Gísladóttir sem verð- ur fararstjóri. 3. Sigurjón M. Heiðarsson, Þ. 3. Hannes Jónsson, Á. -35 kg 1. Snævar M. Jónsson, Á. 2. Dagur Sigurðsson, JR. 3. Óskar Jónsson, Þ. 3. Hreinn Halldórsson, Á. + 35 kg 1. Þormóður Jónsson, JR. 2. Bjöm Árnason, JR. 3. Hallur Ámason, Þ. 3. Gunnar Jakobsson, Þ. 11 - 14 ára 1. Snævar M. Jónsson, Á. 2. ívar Sigurbjömsson, Á. 3. Eymar B. Gunnarsson, Á. 4. Snorri Gunnarsson, Á. - 40 kg 1. Funi Sigurðsson, JR. 2. Hjörtur Davíðsson, Á 3. Teitur Hjaltason, Á 3. Páll B. Jacþórsson, Á. - 46 kg. 1. Ólafur Baldvinsson, Á.. 2. Andri Júlíusson, Á. 3. Kristinn Guðjónsson, JR. 3. Tryggvi Ólafsson, Á. + 46 kg 1. Atli Gylfason, Á. 2. Ólafur Baldursson, Á. 3. Bergur Sigfússon, Á. 15 - 17 ára 1. Vignir Stefánsson, Á. 2. Atli Gylfason, Á. 3. Bergur Sigfússon, Á. Næsta stórmót í júdó fer fram um aðra helgi. Þá verður Sveita- keppni drengja haldin í íþróttahúsi Fjölbrautaskólans í Breiðholti. BADMINTON Reykjavíkurmót unglinga um helgina Reykjavíkurmót unglinga í bad- minton verður haldið í TBR-húsun- um um helgina. Keppni hefst kl. 14 á laugardag og 10 á sunnudag. Þátttökutilkynningar verða að ber- ast til TBR í síðasta lagi kl. 18 í dag. Framarar veita viðurkenningar Knattspyrnudeild Fram veitti leikmönnum félagsins viðurkenningu nýlega fyrir afrek á sumrinu. Eftirtalin fengu viðurkenningar. ■2. flokkur: Ómar Sigtryggsson var valinn besti leikmað- ur og Friðrik I. Þorsteinsson fékk viðurkenningu fyrir góða frammistöðu. ■3. flokkur: Þorbjöm Sveinsson var valinn besti leikmað- ur og Kristján Kristjánsson fékk viðurkenningu. ■4. flokkur: Kolbeinn Guðmundsson valinn besti leikmaö- ur og þeir Gunnar Sveinn Magnússon og Bjarki Hinriks- son voru heiðraðir fyrir góða frammistöðu. ■5. flokkur A: Viðar Guðjónsson var besti leikmaður og Bjarni Þór Pétursson fékk viðurkenningu. ■5. flokkur B: Helgi Davíð Ingason var besti leikmaður og Trausti Jósteinsson fékk viðurkenningu. ■6. flokkur A: Kristján Páll Pálsson var valinn besti leik- maður og Skarphéðinn Njálsson var heiðraður. ■ 6. flokkur B: Jakob Jóhann Sveinsson var valinn besti leikmaður og Gylfi Jónsson var heiðraður. ■2. flokkur kvenna: Guðrún Daníelsdóttir var valin besti leikmaður og þær Ása Gunnarsdóttir og Olga Steinunn Stefánsdóttir voru einnig heiðraðar. ■Runólfur Geir Benediktsson fékk Eiríksbikarinn fyrir mestu framfarir sl. sumar. Knattspyrnumenn Fram sem voru heiðraðir fyrir góða frammistöðu sl. sumar. JÚDÓ / REYKJAVÍKURMÓT Snævar sigraði í tveimur flokkum SNÆVAR M. Jónsson, tíu ára drengur úr Ármanni geröi sér lítið fyrir og sigraði í tveimur flokkum á Reykjavíkurmótinu í Júdó sem fram fór hjá Júdódeild Ármanns um síðustu helgi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.