Morgunblaðið - 26.11.1992, Side 48
UORGUNBLADW, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 16SS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉRLEIÐ
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Niðurskurður á búvörusamningi
Sækjum rétt okkar
fyrir dómstólunum
verði skorið niður
- segir formaður Stéttarsambands bænda
HAUKUR Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda segir að
ekkert hafí verið rætt við bændur um niðurskurð á greiðslum ríkisins
samkvæmt búvörusamningi. Hann trúi því varla að þær verði skertar
um 250 milljónir eins og sagt er frá í Morgunblaðinu í gær að sam-
komulag hafi orðið um í ríkisstjórninni. Segir Haukur að ef þetta
verði raunin muni Stéttarsambandið sækja rétt sinn með því að fara
í mál við landbúnaðar- og fjármálaráðherra.
Haukur sagði að það væru mikil
vonbrigði ef farið yrði í niðurskurð
á greiðslum samkvæmt búvöru-
samningi, ekki síst í ljósi þess að
forsætisráðherra hefði sagt í síðustu
viku að ódrengilegt væri að höggva
aftur í sama knérunn. Sagðist hann
ekki trúa því að forsætisráðherra
væri sá ódrengur að standa ekki við
þessa yfirlýsingu.
Fram kom í frétt Morgunblaðsins
að einkum væri rætt um að minnka
niðurgreiðslur vegna ullar eða
geymslugjöld. Haukur sagði sama
hvort gert væri, það þýddi brot á
búvörusamningi.
-y Varðandi ullina sagði hann að við
verðlagningu í haust hefðu fulltrúar
bænda og neytenda fengið þær upp-
lýsingar frá fulltrúum ríkisvaldsins
Útgefnum
barnabók-
um fjölgar
Bókaútgefendur segja að
útgáfa barnabóka hafí aukist
mjög fyrir þessi jól samanbor-
ið við sl. ár en þá var einnig
nokkur aukning. Arni Einars-
son hjá Máli og menningu seg-
ir að sér virðist sem aukningin
sé allt að 50% frá fyrra ári.
í bókatíðindum sem koma út
nú fyrir jólin eru um 110 kynn-
ingar á bamabókum og þar af
eru 44 á íslenskum barnabókum,
að sögn Vilborgar Harðardóttur,
framkvæmdastjóra Félags ís-
lenskra bókaútgefenda. Bama-
bækumar em um fjórðungur af
öllum titlunum í bókatíðindum.
Sjá umfjöllun í viðskipta-
blaði, bls. 4C.
að 250 milljónir kr. væru ætlaðar í
þennan lið í fjárlagafrumvarpi. Hafi
kjötið verið verðlagt með hliðsjón
af því og nú væri of seint að breyta
kjötverðinu. Ef þessi greiðsla yrði
lækkuð væri það ekki einungis brot
á búvörusamningi heldur einnig á
verðlagsgrundvélli með þeim afleið-
ingum að bændur næðu ekki þeim
tekjum sem gengið hefði verið út frá.
Haukur sagði að skerðing á
vaxta- og gejroslugjaldi kæmi fram
á heildsölustigi og væri hægt að
setja hana út í verðlagið. En það
væri í ósamræmi við þá hagræðing-
arkröfu sem gerð hefði verið og verð-
lækkun búvara. Við samninga um
það hefði það verið gert að skilyrði
að ríkið stæði við sitt.
Loks vildi Haukur vekja athygli á
því að í athugun sem Ríkisendur-
skoðun gerði fyrir Egil Jónsson, for-
mann landbúnaðarnefndar Alþingis,
kæmi fram það álit að í fjárlaga-
frumvarpið vantaði 250-300 milljón-
ir kr. til að hægt væri að standa við
gildandi búvörusamning. „Það væri
nær að draga eitthvað af þessu til
baka en bæta við,“ sagði Haukur.
Morgunblaðið/Rúnar Þ6r
Benedikt Davíðsson forseti ASI
BENEDIKT Davíðsson, fyrrverandi formaður
Sambands byggingarmanna, bar sigurorð af Pétri
Sigurðssyni, formanni Alþýðusambands Vest-
§arða, í formannskjöri á þingi Alþýðusambands
Islands í gær. Benedikt fékk um 61% atkvæða en
Pétur 37%. Fyrsti varaforseti ASÍ var kjörin Ingi-
björg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssam-
bands verzlunarmanna, sem atti kappi við Bimu
Þórðardóttur og fékk um 60% atkvæða. Hervar
Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélags Akraness,
var kosinn annar varaforseti. Benedikt Davíðsson
sagði eftir forsetakjörið að hann myndi leggja til
að haldið yrði svipaðri stefnu og ASÍ hefði fylgt
undanfarin ár. Stærstu verkefnin væru hinar alvar-
legu horfur í atvinnumálunum og staða atvinnulífs-
ins almennt. Hann sagði að með efnahagsaðgerð-
um sínum hefðu stjómvöld að minnsta kosti kallað
fram ákveðin þáttaskil „ef ekki hafnað samstarfi
við okkur.“ Á myndinni sjást Benedikt og Ásmund-
ur Stefánsson, fráfarandi forseti ASÍ, takast í
hendur að formannskjörinu loknu.
Sjá fréttir á bls. 20-21.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ hafnar samkomulaginu um Þróunarsjóð
Verður ekki hrint í fram-
kvæmd með neinum friði
„LÍÚ HAFNAR algjörlega þvl
samkomulagi sem tekist hefur á
milli stjómarflokkanna og í tví-
höfða nefndinni um fjárhagslega
endurskipulagningu i sjávarút-
vegi af tveimur ástæðum: Það
liggur ekki fyrir að það sé til-
greind upphæð um hvað við eigum
að greiða árið 1996, eins og mér
hafði verið sagt að lægi fyrir. Og
Hlutafé í Járnblendinu
lækkað um 1.400 milljónir
FULLTRÚAR eigenda Járnblendiverksmiðjunnar á Gmndartanga
ákváðu í fyrradag að færa hlutafé fyrirtækisins niður um 1.400
milljónir og veita heimild til aukningar þess. Þannig er nafnverð
bréfa í Járnblendinu nú 600 mil|jónir króna og stjórnendur þess
hafa lagt til að 560 mil|jónir verði lagðar í reksturinn til að fleyta
honum gegnum erfiðleika næstu missera. Ríkissljórain veitir í vik-
unni 50 milljónum króna til verksmiðjunnar og þörf er öðru eins í
næsta mánuði.
Fulltrúar íslenskra stjómvalda hittu
á þriðjudag menn frá Elkem í Nor-
egi og Sumitomo í Japan. Þessi
fyrirtæki eiga 30% og 15% hlut í
Jámblendiverksmiðjunni á móti
55% ríkisins. Offramboð kísiljáms
og lágt verð á heimsmarkaði hefur
valdið miklum erfiðleikum hjá fyrir-
tækinu að undanfömu og í haust
var gerð neyðaráætlun um hvernig
halda mætti rekstrinum áfram við
óbreyttar aðstæður í tvö ár. Fyrsti
liður hennar hefur þegar komið til
framkvæmda með uppsögnum 40
starfsmanna. Afskriftir og síðan
aukning hlutafjár hefur verið til
umræðu og endanlegur botn ekki
fengist í málið. Samið hefur verið
um afslátt við ýmsa viðskiptaaðila,
viðræður standa yfir við Landsvirkj-
un en orkuverð er veigamikill þátt-
ur í rekstri verksmiðjunnar. Form-
legar viðræður við banka um tilslak-
anir lána hafa ekki farið fram þar
sem ákvörðun eigenda um hlutafé
liggur ekki fyrir.
Sjá einnig Af innlendum vett-
vangi, bls. 18.
í öðm lagi, þá höfnum við því að
Atvinnutryggingasjóður og Hluta-
fjársjóður verði settir á okkur,“
sagði Kristján Ragnarsson for-
maður Landssambands íslenskra
útvegsmanna í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Það er nú ekki mikið sem ber á
milli í þessu efni og mér finnst það
ekki vera meira en svo, að það ætti
ekki að þurfa að ráða úrslitum,"
sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði að ágreiningsefn-
ið væri ekki upphæð þess gjalds sem
rætt hefði verið um að sjávarútvegur-
inn greiddi í framtíðinni. „Aðalatriðið
í mínum huga er að það er samkomu-
lag um að festa í sessi grundvallarat-
riði núverandi fiskveiðistjómunar-
kerfis; Að breyta gjaldtöku sem í dag
fer fram með sölu á veiðileyfum og
rennur í ríkissjóð, yfir í fasta gjald-
töku sem fer inn í sjóð sem sjávarút-
vegurinn nýtur sjálfur. Þegar þetta
er metið í heild, þá er þetta tvímæla-
laust til hagsbóta fyrir sjávarútveg-
inn að mínum dómi,“ sagði Þorsteinn.
„Atvinnutryggingasjóður á úti-
standandi lán upp á rúma sjö millj-
arða. Hvemig ætla menn að fá vitn-
eskju um það hversu mikið af því
mun falla á þennan nýja sjóð í fram-
tíðinni og við eigum að gangast í
ábyrgð fyrir, í stað ríkissjóðs?" spurði
Kristján í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta verður aldrei framkvæmt
með okkar samkomulagi, eða í sátt
við okkur. Auðvitað er valdið stjóm-
málamannanna, enginn dregur það
í efa. En þessu verður ekki hrint í
framkvæmd með neinum friði. Þær
kvaðir sem forsætisráðherra er að
tala um að leggja á okkur, ætlum
við ekki að láta leggja á okkur með
góðu,“ sagði Kristján Ragnarsson.
Kristján sagði að forsætisráðherra
hefði í ræðu sinni á Alþingi í fyrra-
kvöld látið liggja að því að verið
væri að láta sjávarútveginum í té
verðmæti með stofnun Þróunarsjóðs-
ins: „Þau verðmæti em mikið minni
en engin. í þeim felst kvöð um að
greiða annarra skuldir, og því höfn-
um við alfarið," sagði Kristján. Hann
sagðist ganga út frá því sem gefnu
að þetta yrði niðurstaða stjómar
LÍÚ, en hann hefði enn ekki haft
aðstöðu til þess að bera afstöðu sína
undir stjómina. Hann hefði þó heyrt
í býsna mörgum útvegsmönnum og
þeir væru allir sama sinnis og hann.
Sjá einnig Af innlendum vett-
vangi á miðopnu.