Morgunblaðið - 28.11.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.11.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/LESBOK 273. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Hallarbruni í Vín Miklar skemmdir urðu á hinum sögufræga Hofburg-kastala í Vín þegar eldur kom upp í honum í gær. Urðu þær mestar á þeim hluta hans sem heitir Redoutensaal og hefur hýst marga afvopnunarráðstefnuna, en það tók 350 slökkviliðsmenn um fimm klukkustundir að ná tökum á eldinum og koma í veg fyrir að hann næði Þjóðskjalasafninu. Þar er eitthvert mesta safn fágætra bóka og skjala sem til er. Stytt- una af Jósef, fyrrum keisara, ber hér við loga- tungumar upp úr þakinu. Sjá „Ómetanlegur hluti ...“ á bls. 26. Banna starfsemi þýsks öfgaflokks Bonn. Reuter. ÞÝSKA stjórnin ákvað í gær að banna lítinn nýnasistaflokk og er litið á það sem upphaf að harðari aðgerðum gegn ofbeldi og ofsókn- um annarra slikra samtaka á hendur innflytjendum og minnihluta- hópum. Þá var einnig tilkynnt, að átta félagar í flokki, sem hatast við útlendinga, hefðu verið handteknir en þeir eru grunaðir um að hafa tekið þátt í íkveikjuárás á gistiheimili þar sem þrjár tyrknesk- ar konur létu lifið. Var útför þeirra gerð í gær. Flokkurinn, sem bannaður var, kallast „Þjóðemissinnafylkingin“ og Rudolf Seiters, innanríkisráð- herra Þýskalands, sagði, að fleiri slík samtök, sem leyniþjónustan hefði haft auga með, yrðu bönnuð fljótlega. Á þessu ári er vitað um 1.800 árásir á útlendinga, gyðinga og aðra minnihlutahópa í Þýska- landi og hafa ofbeldisverkin kostað að minnsta kosti 16 manns lífið. ,J>jóðernissinnafylkingin“ hefur haldið uppi eins konar herþjálfun fyrir félaga sína og við leit í aðal- stöðvum hennar gerði lögreglan upptæk vopn, skotfæri og efni til sprengjugerðar. Aðrir flokkar, sem eru líklegir til að verða bannaðir, eru „Þýski kosturinn" og „Fijálsi, þýski verkamannaflokkurinn", sem vill koma á nýrri nasistastjórn í landinu. í fyrradag var leiðtogi „ofbeldis- sinnaðs öfgahóps" handtekinn og í gær var tilkynnt, að þá hefðu einn- ig verið handteknir átta aðrir í flokknum, ungmenni á aldrinum 15-19 ára. Eru þeir grunaðir um að hafa kveikt í gistiheimili fyrir innflytjendur síðastliðinn mánudag en eldurinn kostaði þrjá Tyrki, full- orðna konu og tvær stúlkur, lífið. Voru þær jarðsettar í gær að við- stöddu miklu fjölmenni, sem mót- mælti jafnframt ofbeldinu gegn út- lendingum í Þýskalandi. Sagði sendiherra Tyrklands í Bonn við það tækifæri, að margir Tyrkir hefðu búið í Þýskalandi í 30 ár og lagt sitt af mörkum til samfélagsins ekki síður en aðrir. „Þess vegna eigum við ekki skilið þessa með- ferð,“ sagði sendiherrann. Fólk safnaðist saman í mörgum bæjum og borgum í Þýskalandi i gær til að láta í ljós andúð á útlend- inga- og kynþáttahatri í landinu og í sambandsráðinu eða efri deild þingsins voru yfírmenn lögreglunn- ar hvattir til að kveða niður ofbeld- ið með öllum löglegum ráðum. Ekvador úr OPEC Vín. Reuter. EKVADOR hefur sagt sig úr Samtökum olíuútflutningsríkja, OPEC, og er fyrsta ríkið sem það gerir. Var skýrt frá þessu á fundi samtakanna í Vín í gær en þá komust aðiidarríkin, önnur en Ekvador, að samkomulagi um að draga úr framleiðslunni á næsta ári í því skyni að hækka olíuverðið. Stjómvöld í Ekvador höfðu áð- ur boðað að til úrsagnar gæti komið en þau segjast ekki hafa efni á kostnaðinum við aðildina auk þess sem þau sætti sig ekki við að OPEC ákveði hve mikil framleiðslan eigi að vera. Olíu- vinnslan í Ekvador er nú aðeins 300.000 föt á dag en ríkisstjómin segir það vera allt of iítið vegna óhjákvæmilegrar efnahagsupp- byggingar í landinu. Sumir sér- fræðingar telja hugsanlegt að fleiri ríki muni fara að dæmi Ekvadors í náinni framtíð. Á fundi OPEC-ríkjanna í gær urðu olíuráðherramir sammála um að minnka aðeins heildarfram- leiðsluna á næsta ári til að ná fram hækkun á olíuverði. Utanríkisráðherra Hollands um GATT „EB má ekki líða Frökkum að beita neitunarvaldinu“ París. Reuter. HANS van den Broek, utanríkisráðherra Hollands, sagði í gær að Evrópubandalagið (EB) myndi ekki geta þolað Frökkum að beita neitunarvaldi gegn landbúnaðarkafla GATT-samningsins og skapa hættu á viðskiptastríði við Bandaríkin. Skoðanakönnun í Frakklandi gefur til kynna að mikill meirihluti Frakka sé ánægð- ur með andstöðu frönsku stjórnarinnar við samkomulag sem EB og Bandaríkin náðu fyrir viku um landbúnaðarmálin. „Það væri mjög erfitt að skilja að ríki eins og Frakkland, með þá ábyrgðarkennd sem það svo rétti- lega þykist hafa, skuli ætla sér að bera ábyrgð á því að hindra alþjóðlegan samning um aukið fijálsræði í viðskiptum," sagði Van den Broek í viðtali sem birt var í franska dagblaðinu Le Monde. Hann kvað Evrópubandalagið og Bandaríkin hafa fullreynt allar hugsanlegar tilslakanir. Ef land- búnaðarkaflanum yrði hafnað myndi undirritun nýs GATT- samnings dragast í mörg ár og hætta yrði á viðskiptastríði sem gerði vonir manna um aukinn hag- vöxt út um allan heim að engu. Van den Broek sagði einnig, að vekti það fyrir frönsku stjóminni með hótununum að neyða Evrópu- bandalagið til að bæta frönskum bændum sérstaklega niður- greiðslumissinn, væri hún komin á hála braut. Bændur í öðrum EB-ríkjum myndu þá krefjast þess sama og þá væri búið að opna flóð- gáttir, sem erfitt yrði að loka aft- ur. 82% Frakka vilja að samkomu- lagi EB og Bandaríkjanna í land- búnaðarmálum verði hafnað og 69% þeirra eru hlynnt þvi að franska stjómin beiti neitunarvaldi sínu gegn því, samkvæmt skoð- anakönnun sem birt var í gær. -----» ♦ ♦----- Los Angel- es skelfur Los Angeles; Reuter. JARÐSKJÁLFTI, sem var 5,1-5,3 stig á Richter-kvarða og nógu mikill til að skekja 30 hæða hús, reið yfir Los Angeles í Bandaríkjunum í gærmorgun. Ekki er vitað til, að slys hafi orðið á fólki en eitthvað var um minniháttar skemmdir. Bandaríska jarðskjálftastofnun- in segir skjálftann hafa verið „meðalstóran" og hafa átt upptök sín fjalllendi norður af San Bern- ardino, 80 km austur af Los Ang- eles. Sögðu jarðskjálftafræðingar í Pasadena í Kalifomíu, að jörð hefði skolfið í fáar sekúndur en skjálftinn er talinn einn af mörg- um eftirskjálftum skjálfta, sem fannst á þessu sama svæði 28. júní í sumar og mældist 6,6 stig á Richter. Margir, smáir eftir- skjálftar fylgdu skjálftanum í gær. Uppreisnarmenn í her Venesúela reyndu í gær að ná völdum í landinu en gáfust flestir upp eftir snörp átök við hermenn holla stjóminni. Talið er að allt að 50 manns hafí fallið og mörg hundruð særst en þetta er í annað sinn á árinu að reynt er að bylta stjórn Carlos Andr- es Perez forseta. Hér er hermaður úr þjóðvarðliðinu að skiptast á skotum við uppreisnarmenn en félagi hans liggur fallinn í dyrunum. Sjá „Misheppnuð ...“ á bls. 27. Reuter Valdaráni afstýrt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.