Morgunblaðið - 28.11.1992, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992
Ymisleg íslenska
Frá Rósu B. Blöndals:
EITT sinn var það talið aðal íslens-
kunnar, að hún væri sérlega rök-
rétt mál. Lögð var áhersla á það.
Nýlega sást í blaði auglýsing:
„Hið námfúsa fyrirtæki framtíðar."
Hér er þessi nýja óheillavænlega
meðferð á íslensku, ensk áhrif.
„Námfúst fyrirtæki" er ekki til. í
seinni tíð úir og grúir af svona
beinni þýðingu. Forstjóri fyrirtækis-
ins getur verið námfús.
Þá er sögnin að „skapa" sífellt
notuð um allt mögulegt, sem ekki
er skapað. Menn skapa í raun ekki
neitt. Það er aðeins einn skapari.
Ef menn gætu skapað atvinnuvegi
og fyrirtæki, þá væri nú ekki mik-
ill vandi. Menn byggja upp fyrir-
tæki, reka atvinnuveg, valda vand-
ræðum, mynda ýmislegt eða koma
einhveiju á fót.
Eitt sinn hét það um kaup að
láta kaupið endast, nú að láta enda
ná saman. Raunverulega eru engir
endar á kaupi.
Oft hefur heyrst í fréttum: „Pal-
estínskir hryðjuverkamenn sögðust
bera ábyrgð á glæpnum." Hér ætti
að segja, lýstu glæpnum á hendur
sér, könnuðust við að hafa drýgt
glæpinn eða valdið glæpnum. Fom-
menn lýstu vígum á hendur sér.
Þannig hafa ýmsir bestu þulir orðað
það. En Morgunblaðið orðar það
gjaman svo, að menn beri ábyrgð
á dauða svo og svo margra manna.
Hvemig er sú ábyrgð? Hingað til
hafa glæpamenn ekki verið taldir
ábyrgir menn, heldur alveg það
gagnstæða.
Geta málfræðingar ekki krafíst
þess af dagblöðum, þar með víðlesn-
asta blaði landsins, að réttri hugsun
sé haldið? í blaði á svona röng hugs-
un ekki að sjást.
RÓSA B. BLÖNDALS,
Háengi 14, Selfossi.f
Pennavinir
Tékki, 25 ára, útskrifarður úr
tónlistarháskóla, með áhuga á
stjórn- og efnahagsmálum svo og
menningarmálum:
Radovan Vojtek,
Gavlovicova 2,
831 03 Bratislava,
Czechoslovakia.
Nítján ára Nígeríupiltur búsettur
í Finnlandi vill skrifast á við 18-22
ára stúikur:
Leonard C. Uboh,
Kehruutie 5B 16,
00410 Helsinki,
Finland.
Tvítug tékknesk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Lenka Kngcirovicova,
Inovecka 1/29,
911 01 Trencin,
Czechoslovakia.
LEIÐRÉTTING
Rangt nafn
í Morgunblaðinu síðastliðinn
þriðjudag var rangt farið með nafn
listakonunnar Sigurlaugar Jónas-
dóttur í frétt af útgáfu jólakorts frá
Amnesti International, Islandsdeild.
Þess má einnig geta að kortin fást
á skrifstofu samtakanna, Hafnar-
stræti 15 og kosta 800 krónur 10
saman í pakka.
VELVAKANDI
HRINGUR
GIFTINGARHRINGUR fannst
við Laugaveg. Upplýsingar í
síma 10974.
ILLA UNNIÐ
VERK
Ingibjörg Guðmundsdóttir:
MIG langar til að vara fólk við
að fara eftir auglýsingum um
ýmsa þjónustu án þess að þekkja
til manna sem auglýsa þannig.
Ég fór eftir auglýsingu í smá-
auglýsingadálki DV. Hreingem-
ingarþjónustan, var nafnið á fyr-
irtækinu, sem þegar til kom voru
aðeins tveir menn. Hringdi ég
og var maðurinn liðlegur í sím-
ann. Komu þeir síðan og gerðu
„hreina" íbúðina, að ég hélt.
Vinnubrögðin voru þannig að
þeir sprautuðu á loft og veggi
og þurrkuðu síðan með moppu
yfír. í öllum homum, kverkum
og undir gluggaköppum vom
sömu óhreinindin eftir, einnig j
kringum ljósastæði í loftum. Á
veggjum vom för eftir myndir
og fíngraför og rákir neðar, einn-
ig í svefnherberginu vora för í
kringum höldur á skápum og
hurðir eins og þær áður voru.
Þeir úðuðu yfír fataskáp og
kommóðu, þar sem taumarnir
láku niður og ekki er hægt að
ná þeim föram af, sem sagt
skemmt eftir þá. Ullarteppi er á
gólfínu sem þeir notuðu sugu á
og varð blautt eftir, tók það 2
daga að þorna og komu þá í ljós
sömu blettirnir og það lýstist
ekkert.
Ég hringdi aftur í manninn
og spurði hvort hann vildi ekki
koma og sjá mismuninn. Hann
hafði mörg orð um hvað þeir
hefðu farið vel yfír allt og gert
þetta vel. Vissi ég þá að ekki
þýddi að eyða fleiri orðum á
hann og fór fram á endur-
greiðslu, a.m.k. að hluta. Féllst
hann með semingi á að borga
hluta til baka, en sá hængur var
á að það yrði ekki fyrr en eftir
mánaðamótin, þ.e. rúmar 2 vik-
ur. Beið ég nú eftir mánaðamót-
um, fór þá heim til hans til að
sækja endurgreiðsluna. Svaraði
enginn dyrasímanum, enda var
hann fluttur. Hafði ég upp á
nýja heimilisfanginu, fór þangað
og fékk ekki blíðar móttökur.
Vildi hann ekkert við mig tala
og bar við persónulegum ástæð-
um og dyram lokað á mig. Beið
ég nú í 2 vikur af tillitssemi við
manninn, hringdi þá og spurði
hvort hann myndi ekki leggja
endurgreiðsluna á ávísanareikn-
inginn minn. Svarar hann sjálfur
í símann stuttur í spuna og sagð-
ist ekkert ætla að borga, skellti
síðan á. Auðvitað láta þeir engar
kvittanir af hendi. Verð ég nú
sjálf að hreingera íbúðina eftir
þá, loftin líka því þau voru öll
rákótt. Tók þetta erfiði mjög á
mig og varð ég að fara í sjúkra-
þjálfun eftir þetta.
ÚLPA
SVARTGRÁ ullarúlpa með
loðkraga (the House of Prazer)
tapaðist á L.A. Café föstudaginn
20. nóvember. Finnandi vinsam-
legast hringi í Sigrúnu í síma
43831 eftir kl. 18.
REIÐHJÓL
GRÁTT 18 gíra reiðhjól var tek-
ið við Völvufell í Breiðholti. Vin-
samlegast hafíð samband í síma
72812 ef það hefur sést.
BLÓMVÖNDUR
SILKIBLÓMAVÖNDUR, tólf
rauðir túlipanar, tapaðist á leið
frá Hagkaupi Laugavegi niður
Barónsstíg að Hverfisgötu 102.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 73331.
draumurinn gæti o
MERKISMENNHF