Morgunblaðið - 24.01.1993, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.01.1993, Qupperneq 18
18___ i ■ ■!*,_MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24, JANÚAR 1993 ■ NÝTT SKIPULAG FYRIR SKÓLAVÖRÐUHOLTIÐ I Tillaga að skipulagi á Skólavörðuholti. eftir Elínu Pálmudóftur NÝ TILLAGA að skipulagi á Skólavörðuholti hefur verið lögð fram og er til meðferðar í borgarráði og viðkomandi nefndum. Tillagan var unnin að frum- kvæði Borgarskipu- lags Reykjavíkur af Ögmundi Skarphéð- inssyni arkitekt og Ragnhildi Skarp- héðinsdóttur lands- lagsarkitekt. En endurbætur á um- hverfi Skólavörðu- holts eru mikilvæg- ur þáttur í þeim end- urbótum sem unnið Elsta hugmynd Guðjóns Samúelssonar frá 1916. * hefur verið að í miðbæ Reykjavíkur, eins og segir þar. I þessari tillögu er Hallgrímskirkja þungamiðja svæðisins og afmörkuð með hlutlausu belti í formi sporöskju. Húsnæðis- þörf Iðnskólans er leyst með nýbyggingum á austursvæði. Stungið er upp á að Leifsstyttan verði flutt til. Með tilflutn- ingi gatnamóta og aðlögun aksturs- stefna er komið til móts við brýna þörf, svo og reynt að leysa sveiflukennda bílastæðaþörf án þess að það setji of mikinn svip á lóðina. Þarna verður úti- vistarsvæði með gróðri og göngustígum og arkitektarnir leggja áherslu á að tengja Skólavörðuholtið umhverfi og íbúum borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.