Morgunblaðið - 07.02.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. FEBRUAR 1993
B 7
Stjórn Nemendafélags Verzlunarskóla íslands. Efsta röð: Pétur ÓIi Gíslason ritstjóri
Viljans, Sigrún Sigurðardóttir ritstjóri Verzlunarskólablaðsins, Sigurður Kári Krist-
jánsson forseti NFVI, og Eva Margrét Ævarsdóttir formaður Listafélagsins. Miðröð:
Halldór Jónsson formaður íþróttafélagsins, Þorsteinn Jónsson féhirðir, Rúnar Freyr
Gíslason formaður Nemendamótsnefndar. Neðasta röð: Hrannar Pétursson formaður
skemmtinefndar og Ólafur Teitur Guðnason formaður Málfundafélagsins.
bekkingar, þ.e. þeir sem eru
að ljúka verslunarprófi, sem
fá að taka þátt í þessum
degi. Dömumar klæða sig
upp í peysuföt eða upphlut
og herramir í kjólföt. Gleðin
byrjar eldsnemma um morg-
uninn og er haldið áfram
fram á rauða nótt. Eldri
nemendur horfa jafnan öf-
undaraugum á þessar litlu
peysufatakerlingar og karla
skemmta sér og hugsa með
söknuði til þessa ógleyman-
lega dags.
Ein fjölmennasta hátíð
sem haldin er í Verzló fyrir
utan nemendamótið er
Verzlóvæl, söngkeppni
Verzlinga. Á hana mæta að
jafnaði um 800 manns. Á
síðasta Verzlóvæli sigruðu
hinir óviðjafnanlegu Bee Ge-
es-bræður í annað sinn. Að
undanförnu hefur rignt yfír
þá tilboðum um að koma
fram á hinum ýmsu skemmt-
unum, s.s. á Hótel íslandi
og í Tunglinu. Það má því
svo sannarlega segja að
Verzlingar hafi á að skipa
miklu hæfíleikafólki. Fyrir
utan það að eiga marga góða
söngvara og skemmtikrafta
eru í Verzló margir góðir
leikarar og á hverju ári setur
listanefnd upp leikrit á lista-
hátíð, sem haldin er í nóvem-
ber. Leikrit þessi hafa oftar
en ekki tekst mjög vel og
hlotið gífurlega aðsókn.
Á listahátíð er margt að-
hafst til að svala listafíkn
nemenda. Ýmsar uppákomur
þar sem nemendur sýna snilli
sína eru haldnar en hápunkt-
ur hátíðarinnar er, auk frum-
sýningar á leikritinu, svo-
nefnt fríkball. Á það mæta
nemendur undantekningar-
laust í furðufötum ýmiss
konar eða grímubúningum.
Mörg góð skáld eru í skólanum
og hafa verið gefnar út tvær bækur
sem bera nafnið Ljóðdrekar 1 og 2
og hafa að geyma ljóð eftir skóla-
skáldin okkar. Verzlingar eiga einnig
marga ræðusnillinga og hefur Verzló
sigrað MORFÍS, mælsku- og rök-
ræðukeppni framhaldsskólanna,
undanfarin tvö ár.
Mælskulist hefur ávallt átt miklum
vinsældum að fagna í Verzló enda
stendur málfundafélagið á gömlum
og traustum grunni. Það er innan
verkahrings þess að halda málfundi
og nú fyrir stuttu stóð það fyrir fundi
þar sem fulltrúar frá Krossinum,
Veginum og Vottum Jehóva mættu
og kynntu sínar skoðanir. Mættu
margir Verzlingar á þennan fund og
sýndi það sig svo sannarlega að þeir
eru ekki síður miklir áhugamenn um
andleg málefni en veraldleg.
í síðustu viku hófust útsendingar
frá Útvarpi Verzló á fm 94,2 og stóðu
þær yfir síðustu þijá sólarhringana
fyrir nemendamót og einnig á sjálfan
nemendamótsmorguninn. Voru
Verzlingar mjög ákafir í að komast
í útvarpið og má segja að lög úr
söngleiknum Tommy, ásamt öðrum
góðum lögum sem Verzlingar kunna
að meta, hafi hljómað stanslaust
þessa þrjá sólarhringa, jafnt á nóttu
sem degi.
Auk þessara atburða sem hér hafa
verið taldir upp eru að jafnaði einn
til tveir atburðir í viku, svo sem
skemmtikvöld, samkvæmisdansa-
námskeið, stefnumótaball, íþróttahá-
tíð, leiklistarnámskeið, kvikmynda-
kvöld, tónleikar og svo mætti lengi
telja.
Iþróttakeppnir eru fjölmargar og
auk hefðbundinna greina er keppt í
ýmsum íþróttum sem þykja nýstár-
legar hér á íslandi, t.d. „soft-bail“
og „street-ball“, sem er einstaklega
skemmtilegt afbrigði af körfubolta.
Hafa þessar nýju íþróttagreinar vak-
ið mikla lukku meðal nemenda og
því sem næst allir bekkir í skólanum
hafa sent lið til keppni. Þegar mikill
heimatærdómur er farinn að gera
Verzlinga þunga í skapi eru þeir
vanir að lyfta sér upp með því að
fara í ferðalög ýmiss konar. Á þessu
skólaári verða í allt famar að minnsta
kosti sex ferðir út á land. Það er því
greinilegt að kennarar hafa verið
harðir við nemendur í vetur og sett
þeim mikið fyrir.
Hagnýtt nám
Svo við víkjum aðeins að kennsl-
unni í Verzló er rétt að benda á að
það kemst enginn í gegnum skólann
án þess að opna bók. Félagslífíð er
vissulega tímafrekt og bitnar oft á
náminu. Aðalvandamálið er að sam-
ræma þetta tvennt, skólalærdóminn
og félagslífíð, án þess að það bitni
of mikið hvort á öðru. Of lítið félags-
líf er ekki síður skaðlegt fýr-
ir andlega heilsu nemenda
en of mikið félagslíf. Vanda-
málið er að fínna meðalveg-
inn.
Fyrstu tvö árin í Verzló
reynast flestum erfíðust
námslega séð. Mikil áhersla
er lögð á verslunargreinar,
s.s. hagfræði, bókfærslu og
ritvinnslu. Að þessum tveim
ámm loknum taka nemendur
verslunarpróf og geta þá
valið um fjórar brautir: hag-
fræðideild, stærðfræðideild,
máladeild og verslunardeild,
en ólíkt hinum þremur braut-
unum útskrifast nemendur
úr verslunarmenntunardeild
ekki með stúdentspróf heldur
með nám að baki sem undir-
býr þá enn frekar fyrir at-
vinnulífíð og nám á við-
skiptasviði í erlendum há-
skólum.
Margir hafa talið sér trú
um að einu fögin sem Verzl-
ingar geti farið í að loknu
stúdentsprófí séu viðskipta-
fræði, hagfræði og lögfræði.
Þetta er alls ekki rétt. Eftir
að Verzló opnaði nemendum
sínum víðtækari möguleika
með auknu valfrelsi á tveim
síðustu námsámm standa nú
allar deildir háskólans Verzl-
ingum opnar. Til að mynda
vom 11 af þeim 36 nýnemum
sem hófu nám í eðlisfræði
við HÍ Verzlingar. Þessir
nemendur eru að sjálfsögðu
útskrifaðir af stærðfræði-
deild en flestum reynist sú
deild vera hvað erfíðust.
Auðvitað er það einstaklings-
bundið og stærðfræðideildar-
nemendur hafa ekki síður
verið virkir í félagslífínu en
aðrir.
Verzlunarskólinn hefur
lengi verið þekktur fyrir sitt
óviðjafnanlega félagslíf.
Margir þeir sem hafa verið hvað
mest áberandi í félagslífnu í Verzló
hafa náð langt í þjóðfélaginu, hvort
sem er í viðskiptalífínu, á stjómmála-
sviðinu eða einhveiju öðm. Þó að
margt nytsamlegt og skemmtilegt
sé kennt í Verzló er ekki hægt að
kenna stjómun, skipulagningu, við-
skipti og mannleg samskipti til hlítar
í kennslustundum og því er sá lær-
dómur sem maður hlýtur í þessum
málum með þátttöku í félagslífinu
mjög nytsamlegur. Það má segja að
félagslífíð sé verklegt nám í þessum
efnum.
Verzlingar gera sér grein fyrir því
að það er ekki aðeins ánægja og
félagsskapur sem fæst út úr félags-
lífínu. Þess vegna era þeir staðráðn-
ir í að gera sitt besta tit að félagslífíð
í Verzló verði áfram það mesta og
besta sem um getur.
Höfundur er nemandi í VÍ.
Á 61. NEMENDAMÓTI
VERZLUNARSKÓLA ÍSLANDS
Tommy, sem Hrannar Pétursson leikur, á milli móður sinnar og stjúp-
föður sem leikin eru af Birnu Hafstein og Vilhjálmi Alvari Halldórssyni.
Dansararnir setja skemmtilegan svip á sýninguna.
Hvers vegna
Verzló?
Eg fór í Verzló vegna þess að ég
hafði áhuga á að læra það sem þar
er kennt og
eins vegna
þess að ég
vissi að það er
gott félagslíf í
skólanum. Fé-
lagslífíð í vet-
ur er búið að
vera frábært
og skemmti-
legast þótti
mér að taka
þátt í nem-
endamótinu.
Það sem
kom mér mest á óvart var hversu
góður andi var í skólanum. í Verzló
safnast saman krakkar alls staðar
að af landinu og þess vegna er minni
hætta á klíkuskap þar en í hverfís-
skólunum þar sem sömu krakkarnir
hafa haldið hópinn í gegnum gmnn-
skóla gera það áfram.
Mestu viðbrigðin við að koma úr
grunnskóla í Verzló var að heima-
lærdómurinn jókst til muna. Annars
er ég mjög ánægð með kennsluna
og hef verið heppin með kennara.
A-<g fór aðallega í Verzló vegna
þess að ég þekkti marga krakka
þar sem vom
mjög ánægð
með skólann
og félagslífið.
Menntunin
sem hægt er
að fá í Verzló
höfðaði einnig
til mín og því
lá beinast við
að fara þang-
að.
Strax Og ég Þórunn Ema
byijaði í 3. Clausen, 4. bekk.
bekk fannst
mér áberandi hvað vel var tekið á
móti nýnemum. Það má segja að
það séu allir svo góðir vinir í Verzló.
Með því að taka þátt í félagslíf-
inu kynnist maður fullt af nýju fólki
og eins lærir maður heilmikið á því
að vera í félagslífínu.
XLg hafði mikinn áhuga á að læra
viðskiptagreinar og eins vildi ég
vera í skóla
sem gæti boð-
ið upp á góða
tölvukennslu
og því lá bein-
ast við að fara
í Verzló.
Félagslífið í
Verzló er einn-
ig mjög öflugt
og það freist-
aði mín þegar
ég valdi mér
framhalds-
skóla. Þegar
margir taka þátt í félagslífinu kynn-
ist fóik vel og það verður meiri
samheldni meðal nemenda.
Björgvin Sigurðsson,
5. bekk.
Óskar Axelsson, 6. bekk.
5að kom aldrei til greina hjá mér
að fara í einhvern annan skóla en
Verzló. Öll systkini mín höfðu verið
þar og sagt mér frá frábæm félags-
lífínu og í raun má segja að í mínu
tilfelli hafði Verzló haft alla kosti
fram yfír aðra skóla.
Þegar ég bytjaði í skólanum bjóst
ég við að ég þyrfti að leggja harðar
að mér við lærdóminn en raun ber
vitni. Ég hef haft miklu meiri tíma
fyrir félagslífíð og annað en ég átti
von á.
Það skemmtilegasta við félagslíf-
ið er hvað það er fjölbreytt og það
ættu allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfí.