Morgunblaðið - 07.02.1993, Blaðsíða 13
iíJAíí .V HU0AGUViHU8 UiGAuci/1 JUJriOlvl cx ■— -
MORGUNHLAÐIÐ 'SUNMUDAGUK 7J VEHkOAK 1993 .. ' ~ B T3
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Hamslaus Flosi kveður
Ham.
HAMSKIPTI
MANNASKIPTI hafa
orðið í rokksveitinni
hugljúfu Ham, sem
hyggur á strandhögg
vestan hafs með vorinu.
Flosi er hættur, en í hans
stað kemur Jóhann G.
Jóhannsson.
Jóhann G. hefur reyndar
leikið með Ham undan-
farið og þá á hljómborð.
Hann er þó kunnur sem
gítarleikari, en hann leiddi
á sínum tíma hljómsveitina
ágætu Daisy Hill Puppy
Farm. Heimildir herma að
Flosi hyggist leggja hljóð-
færið á hilluna í bili, en
hann hætti meðal annars
vegna fyrirhugaðrar utan-
farar Ham í vor. Þá hyggj-
ast Hamar fara til Banda-
ríkjanna í tónleikaför fyrir
þrábeiðni umboðskvenna
sinna þar í landi og
frammámanna útgáfufyr-
irtækja sem þyrstir í að
gera við sveitina útgáfu-
samning.
Af hundabúgarðinum Jó-
hann G. Jóhansson.
DÆGURTÓNLIST
Er daubarokkiö dauttf
■Á ÞESSU ári verður
starfsemi Smekkleysu líf-
leg, því í burðarliðnum eru
ýmsar útgáfur. Þar ber
hæst að Smekkleysa
hyggst gefa út verk
Purrks Pillnikks á tveim-
ur geisladiskum. Á fyrri
disknum, sem væntanleg-
ur er með vorinu, verða
Ekki enn og
Tilf, en á seinni disknum,
sem væntanlega kemur
út síðar á árinu verða
Googooplex og No
Time to Think og
valdir bútar af Mask-
ínunni. Fleiri plötur
eru í burðarliðnum,
en talsmenn Smekk-
leysu veijast allra
frétta.
■ TÍMARITIÐ NúlI-
ið hóf göngu sína seint
á síðasta ári og gekk
vel. Með næsta tölu-
blaði, sem koma á út í
vor, mun fylgja safndiskur
sem Núllið gefur út í sam-
vinnu við Smekkleysu. Á
disknum verða ný lög með
ýmsum reif- og rokksveit-
um, alls 18 sveitum, þar á
meðal Rut +, Kolrössu
krókríðandi, Funk-
stra&e, Stilluppsteypu,
Rotþró, Sagtmóðigi, Hún
andar, Púff, Júpíters,
tslenskum tónum, Mind
in Motion og Reptilicus.
MS/H Draumur er með
helstu sveitum rokksög-
unnar, en upptökur með
sveitinni hafa ekki verið
fáanlegar lengi. Nú hefur
rofað til og sérfræðingar
Erðanúmúsíkur leggja
nótt við dag til að ljúka
við safndisk Draumsins,
sem koma á út á næstu
mánuðum. Á disknum
verða öll lög af plötum S/H
Draums, Bensínskrímslið
skríður, Goð, Drap mann
með skóflu og Bless, og
3 aukalög, samtals 76 mín-
útur af tónlist. Með diskn-
um fylgir ítarleg úttekt á
ferli hljómsveitarinnar.
■ SUNNLENSKAR rokk-
sveitir hafa ekki verið ýkja
áberandi síðan Mánar iiðu,
en á því verður gerð bragar-
bót á næstunni, því þá er
fyrirhugað að út komi
safndiskur sunnlenskra
sveita. Á disknum, sem heit-
ir Suðurlandsskjálftinn,
verða sextán lög níu sveita,
Forgarðs helvítis, Skrýtn-
um, Loðbítlum, Poppins
flýgur, Hor, Bacchus,
Munkum í meirihluta, Pir-
ana og Túrbó. Hljómsveit-
irnar gefa sjálfar diskinn út.
Rokkveishi
framundan
MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar, sem er árleg keppni
bUskúrssveita hvaðanæva af landinu eru framund-
an. Ekki ber á öðru en sprettan sé góð í bílskúrun-
um, því þegar hafa fimmtíu og þijár rokksveitir
skráð sig til keppni, sem er met þátttaka, og
enn er tekið við.
Það gefur augaleið að
ekki er hægt með
góðu móti að koma ríflega
fimmtíu sveitum fýrir í
Músíktilraunum, en ýmsar
wmmmm—^^m breyting-
ar eru
fyrirhug-
aðar á til-
högun til-
raunanna
að
eftir Áma
Matthíasson
til
koma
fleiri
sveitum
að. Þegar hefur verið
ákveðið að fjölga tilrauna-
kvöldunum í fjögur, og
einnig velta menn því fyrir
sér að fækka lögunum sem
hver hljómsveit flytur og
ná þannig að kreista enn
inn einhvetjar sveitir til við-
bótar.
Undan-
farin ár
hafa
rokk-
sveitir
af höfuðborgarsvæðinu verið áberandi á tilraun-
unum, sem vonlegt er, en að þessu sinni eru
þær í minnihluta, í það minnsta af þeim
hljómsveitum sem skráð hafa sig til leiks.
Áthygli vekur að hljómsveitirnar eru víðar
að en áður, til að mynda frá Patreks-
firði, ísafírði, Hrísey og Neskaupstað,
en þaðan skráðu þijár sveitir sig til
keppni.
Rokkið er jafnan áberandi í Mús-
íktilraunum og síðustu ár hefur far-
ið lítið fyrir vinsældapoppi og sum-
arsmellum. Eftirminnilegt er að
á síðasta ári lék þorri sveit-
anna dauðarokk, en að
þessu sinni kennir
ekki nema
fimmtungur
sig við
dauða-
Ljósmyndir/Björg Sveinsdóttir
rokk, sem bendir til þess
að dauðarokkið sé út af að
deyja. I þess stað hefur
komið sýrurokk eða grun-
gerokk.
Verðlaun í Músíktilraun-
um eru jafnan hljóðverstím-
ar og gefur Skífan fyrstu
verðlaun, 25 tíma í Sýr-
landi, Gijótnáman gefur 26
tíma í önnur verðlaun,
Hljóðriti 20 tíma í þriðju
verðlaun, Hljóðhamar 20
tíma í fjórðu verðlaun.
Steini
Jhyggst gefa
besta gítar-
leikara til-
raunanna
gítar og einnig
gefa Rín, Paul Bem-
burg, Samspil og Japís
verðlaun. Það er því meira
í boði en áður, ekki síður
en fleiri sveitir bítast um
verðlaunin. Fyrsta tilrauna-
kvöldið verður 18. mars,
annað 25. mars, þriðja 26.
mars og fjórða 1. apríl, en
úrslitakvöldið verður svo 2.
apríl.
GCDÍHUÓÐVER
ÞAÐ vakti mikla athygli þegar Bubbi Morthens lýsti
samstarfsslitum sínum við Steina hf. en Steinamenn
voru ekki á því að hann gæti hætt að svo komnu.
Ekki hefur Bubbi enn gert samning við annan útgef-
anda og segist ekki hyggja á slíkt fyrr en með vorinu.
Hann hefur þó nóg fyrir stafni, því GCD, sem er skip-
uð honum meðal annarra, leggur nú drög að upptökum
á annarri breiðskífu sinni sem Skífan gefur út.
GCD gerði samning við
Skífuna fyrir
skemmstu og þegar og sá
var í höfn fóm aðalsprautur
sveitarinnar, Bubbi og Rún-
ar Júlíusson, til Amsterdam
að semja lög á plötuna. Af-
raksturinn var sextán lög,
en að sögn Bubba hyggjast
þeir félagar taka upp tólf
bestu lögin. Hann segir að
lagasmíðar hafi gengið gríð-
arvel og að lögin séu öllu
lagrænni en áður, þó grunn-
urinn verði hrár. Upptökur
hefjast 1. mars, en æfingar
nú í vikunni.
Eins og áður sagði hefur
Bubbi ekki samið við neinn
enn sem komið er, enda
hyggur hann ekki á sóló-
skífu á árinu, þó hann sé
þegar farinn að semja á
næstu plötu. Hann sagðist
enn vera að velta fyrir sér
ýmsum möguleikum, en lík-
lega myndi hann semja við
Skífuna, því hann hefði það-
an tilboð sem erfitt væri að
hafna.
Upptökur GCD í Kaplakrika sumarið 1991.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir