Morgunblaðið - 07.02.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1993
B 15
Morgunblaðið/Sverrir
svona púrítanskt milljarða-
mæringaandrúmsloft; mið-
stöð trúmála og olíugróðans.
Að öðru leyti er dálítil diskó-
menning þar eins og hér.
Og ég heyri núna að leikhús-
ið þar sé að dala, listrænt.
Annars þótti það gott í eina
tíð. En þetta er líka eina
leikhúsið á stóru svæði; það
er 6-8 tíma ferðalag í næstu
leikhús. Svo maður sá aldrei
neitt annað en það sem
maður var að fást við sjálf-
ur.“
- Hvað ferðu að gera
þegar þú kemur aftur út?
Eg veit það ekki
fyrir víst. Ég er
með heimild frá
Halldóri Laxness
til að láta flytja leiklestur
upp úr verkum hans, von-
andi með íslenskri tónlist.
Ég var lengi að velta fyr-
ir mér hvemig ég ætti að
hefja slíka dagskrá. Loks
hugkvæmdist mér að nota
upphafið á í túninu heima,
frásögn hans af því þegar
vinnukonan missti hann ný-
fæddan út um glugga á
Laugaveginum. En þetta
kunni samstarfsfólkið ekki
að meta; annað eins_ gerði
ein vinnukona ekki. Ég var
eitthvað að reyna að veija
minn mann, segja að hann
hefði þó orðið nóbelskáld;
höfuðhöggið hefði að
minnsta kosti ekki orðið til
skaða. En svo hugsaði ég:
Jæja, ég er að fara héðan,
ég kem hugmyndinni frekar
í verk suðrí Osló, þar sem
fólk er öðruvísi þenkjandi,
svolítið nær heimsmenning-
unni.
En þetta rekur maður sig
á í Noregi: Þeir eru alltaf
að bíða eftir því hvað bisk-
upinn segi. Og þeir taka það
nærri sér ef hann er reiður.
Það er ekki bara ég sem
segi þetta; m.a. nokkrir leik-
húsmenn hafa haft orð á
því. Gallinn við marga Norð-
menn er sá að þeir em
feimnir við menningarhug-
takið. Maður á að trúa en
ekki fræðast og grúska.
Til að mynda stóð til að
sýna í Stafangri feikisterkt
leikrit eftir Heinrich Böll,
Konur í flæðarmáli (Frauen
in Flusslandschaft), um það
hvernig nasismi og tilhneig-
ingar honum skyldar birtast
í þremur kynslóðum allt til
Svo má nefna
menn eins og
Simon dalaskáld
og Gvend dúllara.
Og þeirra sam-
skipti, þar sem
Símon samdi við
Guðmund um að
ganga ávallt tíu
skrefum á eftir
sér, svo ekki færi
á milli mála hvor
væri fyrir hvorum.
Símon er maður
sem er leikhús-
legur íháttalagi.
vorra daga. En skyndilega
í miðjum klíðum tilkynnti
leikstjórinn að þetta verk
væri ekki vel séð, myndi
ekki falla í góðan jarðveg.
Og þar með var það búið.
Mér finnst útlendingahat-
ur líka farið að vera áber-
andi í Noregi, og það tekur
á sig ansi ljótar myndir. Það
hefur aftur þau áhrif á mig
að mig langar að kynna mér
menningu þessa fólks sem
verið er að agnúast út í.
Ég hef til dæmis verið að
lesa trílógíuna miklu eftir
Elias Canetti, endurminn-
ingar hans. Oh, þetta er svo
gott! Og bemskuminningar
Miloszar þess pólska, sem
er yndislegt ljóðskáld sem
söðlar svo um og fer að
skrifa dýrlegan prósa. Það
er ekkert sjálfgefið að slíkt
lánist. En þessir menn hafa
líka frá svo miklu að segja,
og kunna að vinsa úr það
sem hefur haft mest áhrif á
þá. Þeir hafa sínar skoðanir
á hlutunum og standa og
falla með þeim. Það þýðir
ekkert að múta þeim; gjörðu
svo vel, hér er milljón, hættu
þessu. Þetta er spurningin
um að fá að vera maður
sjálfur. Sú spurning er
naumast á dagskrá hér. Hér
ríkir meira þessi innkaupa-
stíll, að láta verðbréfamark-
aðinn móta skoðanirnar."
- Þú hefur alltaf lesið
mikið. Maður hefur helst séð
til þín í fombókaverslunum
hér heima?
Fornbókasalar hafa
alls staðar verið
mínir bestu vinir.
Þeir lifa í þessari
diskólausu veröld, þeir eru.
Ég er kannski ekki svo góð-
ur viðskiptavinur þeirra í
seinni tíð, ég rápa meira en
ég kaupi. Eg var duglegri
fram eftir aldri. Fyrir svo
sem 20 árum.
En það er satt, að íslensk-
ar bókmenntir búa yfir ýms-
um mannlýsingum sem
gaman væri að sjá líkamn-
ast á sviði og í mynd. Ég
gæti sjálfur hugsað mér að
fást við alvarlega dramatík
frá fyrri öldum.
Forvitnilegt efni em til
að mynda^ skáldsögur Jóns
Mýrdals. Ég las þær fyrir
mörgum áram; þar er
skemmtilegur stíll. Um leið
og ný persóna kemur til
sögunnar, þá er tveimur,
þremur síðum varið í að út-
lista allt hennar háttalag.
Ef við lítum á þetta efni frá
kímilegu hliðinni, þá gæti
t.a.m. Mannamunur Jóns
verið mjög skemmtilegt leik-
húsverk.
Svo má nefna menn eins
og Símon dalaskáld og
Gvend dúllara. Og þeirra
samskipti, þar sem Símon
samdi við Guðmund um að
ganga ávallt tíu skrefum á
eftir sér, svo ekki færi á
milli mála hvor væri fyrir
hvorum. Símon er maður
sem er leikhúslegur í hátta-
lagi. Hann er existensíalisti
eins og Dunganon.
Við eram svo voðalega
staðreyndaglöð. Okkur
vantar að hugsa skakkt.
Heimspekilegur leikur á
ekki upp á pallborðið hjá
okkur. Hér er líka orðið svo
fátt um beitta, hnyttna og
vel formaða gagnrýni,
hvassa penna eins og gat
að líta fyrir ekki mörgum
áram, þegar maður hlakkaði
til að lesa blaðagreinar. í
staðinn era komnar mein-
lausar vangaveltur. Mann
langar oft að strika út 90
prósent af textanum til að
fá þó ekki sé nema einn
gullmola til að njóta. Og sá
gullmoli þarf alls ekki að
vera eitthvað rökrétt.
Við eigum góð skáld, líka
meðal þeirra yngri, eins og
Gyrði, en mér finnst ugg-
vænlega mikið um hitt, að
menn séu fastir í þeirri kröfu
að vera frumlegir í hveiju
orði, og vera að streða við
að skapa nýjan stíl. Ég vil
að menn hafi eitthvað að
segja mér. Og þá má stíllinn
mín vegna vera í formi síma-
skrár.“
- Nú hefurðu búið í Sví-
þjóð, Danmörku og Noregi
undanfarin ár. Er eðlilegt
menningarlegt andrúmsloft
á milli þessara norrænu
þjóða og okkar?
„Nei. Við eram svo voða-
lega hrædd hvert við annað
menningarlega, Norður-
landabúar. En við gleypum
hratið úr mygluðum kana-
kúltúr gagnrýnislaust. Ég
þarf ekki að nefna Svíagrýl-
una. En margt leikhúsfólk
hér hrekkur til að mynda í
kút ef maður nefnir August
Strindberg. Og hann er af-
greiddur sem kvenhatari.
Þó er þetta stórkostlegt
skáld, mörg ljóðin hans era
gull, og hann er líka fullur
af húmor. Lestu bara Föður-
inn! Nú eram við búin að
vera með þennan norræna
kúltúr í Vatnsmýrinni í rúm
tuttugu ár. En þeir aðilar
sem maður hefði haldið að
vildu sinna honum, þeir hafa
einhvern veginn ekki gert
það nægilega.
„Grátlegast af öllu er,
hvað samfélagið hér líkist
alltaf meir og meir tískubúð.
Þar ríkir vor- og vetrartísk-
an. Líka í bókmenntunum;
mörg gullkom týnast vegna
þess að þau era ekki gefín
út 25. nóvember klukkan
kortér yfir tólf. Þau birtast
á röngu kortéri. Þessu er
ekki svona farið í Danmörku
til dæmis. Þar er gróska í
bókaútgáfunni allt árið;
maður getur alltaf átt von
á einhveiju bitastæðu jafnt
og Jrétt.
Ég ætla samt að vona að
fólk taki nú við sér og kaupi
bókina hans Þorsteins frá
Hamri, þótt kominn sé febr-
úar. Hann var mjög vel að
verðlaununum kominn."
Höfundur er textasmiður í
Iausamennsku og hefur
skrifað greinar fyrir
Morgunblaðið.
Okkar landsfræga útsala
hefst á morcyun kl. 9.
Allur vetrarfatnaóur,
íþróttagallar, íþróttaskór,
skíói, skíóaskór o.fl. o.fl.
20-50%
afsláttur
»hummel é
SPORTBÚÐI N
ÁRMÚLA 40 • SÍMAR 81B555, 813655.