Morgunblaðið - 07.02.1993, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1993
U --------11) iIOM
Stafli af bókum Astrid Lindgren liggur alltaf við
hliðina á baðkarinu hennar Synnnve Sne.
Synnnve Sne segir að það hafí verið kraftaverk að
hún hafi Iokið við nýjustu bókina sína „Orm & Ar“.
HEIÐURSMERKI
Flugstjórinn
frækni
Danski flugstjórinn Stefan
Rasmussen mætti til hall-
ar Svíakonungs í Stokkhólmi
28. janúar sl. og tók við Kon-
ungsorðunni úr hendi Karls
Gústafs 16. konungs. Orðuveit-
ingin er viðurkenning fyrir
hetjulegá frammistöðu er Stef-
an Rasmussen nauðlenti giftu-
samlega farþegaþotu með 129
manns innanborðs. Þessi at-
burður varð nálægt Arlanda-
flugvelli, rétt fyrir jólin 1991
og er oft kallaður „jólakrafta-
verkið“. Öll áhöfn flugvélarinn-
ar SK 751 hlaut heiðursmerki
frá Svíakonungi af þessu tilefni
auk flugmanns sem var farþegi
með flugvélinni en lagðist á eitt
með áhöfninni við að undirbúa
nauðlendinguna.
DANMÖRK
Synnove Sne fer í bað þrisvar
á dag og les Línu langsokk
Rithöfundurinn og sjónvarps-
stjaman Synneve Soe er dóttir
foreldra af ’68 kynslóðinni. Hún
segir í viðtali við danska blaðið Alt
for damerne að hún hafi aldrei kom-
ist yfír sársaukann sem hún hafí
orðið fyrir vegna þess að foreldrar
hennar gátu ekki sinnt henni sem
skyldi. Sársaukinn upphófst aftur
þegar Synnove gifst manni, sem
vildi ekki heldur viðurkenna hana,
að því er hún segir.
Blaðamaðurinn segir að erfítt sé
að gera sér í hugarlund hvemig
manneskja Synnove sé. Skilaboðin
frá henni séu svo mótsagnakennd.
Hún segir þó að níu atriði skipti
Synnove miklu máli, baðið, Astrid
Lindgren, vinirnir, ró og skipulag,
fjölskyldan, ástin, nærfötin, þján-
ingin við að skrifa og dauðinn.
Það sem skiptir hana máli
Synnove fer helst í bað þrisvar á
dag, því það gefur henni öryggistil-
finningu að finna vatnið umvefja
sig.
Astrid Lindgren er átrúnaðargoð
hennar og bækur hennar les
Synnove gjarnan í baðinu. Uppá-
haldsbókin er Lína langsokkur,
einkum kaflinn úr sælgætisbúðinni.
Flestir vinir hennar em gagnkyn-
hneigðir og hafa reynt flest í lífínu,
en geta gert grín að öllu saman.
Synnove segist í mörg ár hafa
forðast að verða fullorðin, en nú sé
hún orðin varkárari og sé farin að
hugsa áður en hún tali. Þá segist
hún kunna best við að hafa frið og
ró í kringum sig og röð og reglu á
hlutunum. Móðir hennar og systir
em farnar að hafa samband við
hana aftur, en þær hættu að tala
við hana eftir að bókin „Fars“ kom
út. Hún segir að það gangi ekki upp
að eiga kærasta, hún vilji ekki leng-
ur neina rómantík. Hún hafí hins
vegar búið til lista yfír það fólk sem
hún vilji knúsa.
Varðandi nærföt segist hún vera
hrifnust af blúndunærfötum. Þau
gleðji hana. Auk þess hafi þau þann
kost að fæla karlmenn í burtu, en
að vísu þann ókost að þá giftist hún
auðvitað aldrei. Synnove segist ekki
hafa haldið lífí nema vegna þess að
hún hafí skrifað. Það hafí hins veg-
ar verið kraftaverk að hún hafi lok-
ið við síðustu bók sína „Orm & Ar“,
því hún hafi verið svo hrædd um
að deyja áður en bókinni væri lokið.
Að iokum segist hún trúa á end-
urholdgun.
Fyrst tók Stef-
an flugstjóri við
riddarakrossi
frá Margréti
Danadrottn-
ingu og nú
hlaut hann
Konungsorðu
Karls Gústafs
Svíakonungs.
TOPPSKORINN
Veltusundi - sími 21212
ATH: VERSLUNIN VERÐUR LOKUÐ
MÁNUDAGINN 8. FEBRÚAR
ÚTSALAN HEFST
ÞRIÐJUDAGINN
9. FEBRÚAR KL. 8.00
Skyhningafélag Reykjavíkur
auglýsip;
a
Óskum eftir hugrökku
hæfileikafólki til
skylmingaiðkunar.
Kennsla fyrir byrjendur
hefst á næstu dögum,
bæði barna- og
fullorðinshópar.
Kennari verður búlgarski
skylmingameistarinn
meistro Nikolay Mateev.
Mateev hefur undanfarin
ár verið meðal fremstu
skylmingamanna heims.
Þetta er því einstakt
tækifæri til að læra þessa
fögru íþrótt.
Upplýsingar gefa:
Örn Leifsson sími 622349
Nikolay Mateev sími 33296
Hildigunnur Sverrisdóttir
sími 12240.
SAFNGRIPIR
Klukkan tífar
Einar J. Gíslason predikari og fyrmm
forstöðumaður Hvítasunnusafnaðar-
Morgunblaðið/Sigurgeir
F.v.: Einar J. Gíslason, Jóhann
Friðfínnsson forstöðumaður
^yggðasafnsins, Sigurður Ein-
arsson forseti bæjarstjórnar
Vestmannaeyja, Guðjón Hjör-
leifsson bæjarsljóri, Arni John-
sen alþingismaður og Signrður
Ingólfsson útgerðarmaður.
ins hélt upp á 70 ára afmæli sitt í Vest-
mannaeyjum 30. janúar sl. Veislan var hald-
in í Hvítasunnukirkjunni Betel og var það
við hæfi því afmælisbarnið er þekkt í Eyjum
sem „Einar í Betel“. Fjöldi fólks samfagn-
aði Einari, margir tóku til máls og mikið
var sungið eins og vænta mátti.
I tilefni af afmælinu færði Einar Byggða-
safni Vestmannaeyja 130 ára gamla stand-
klukku, til mibningar um Gísla Jónsson og
Guðnýju Einarsdóttur frá Amarhóli í Vest-
mannaeyjum, frá afkomendum þeirra. Afí
Einars og nafni, Einar Þorsteinsson frá
Amarhóli f Vestur-Landeyjum, keypti
klukkuna á uppboði árið 1907 og flutti með
hana í heimili dóttur sinnar að Amarhóli í
Vestmannaeyjum. Klukkan var smíðuð
1862 og flutt til landsins af Lefoliverslun á
Eyrarbakka. Einar og klukkan eiga því sam-
tals 200 ára afmæli á árinu. Gangverkið
er upprunalegt, utan eitt tannhjól sem þurfti
að endursmíða. Klukkan er gangfær og slær
hvellum hljómi á stundarfresti. Nýr kassi
var smíðaður utan um verkið fyrir mörgum
ámm og listilega viðarmálaður af Engilbert
Gíslasyni málarameistara og listmálara í
Vestmannaeyjum.
Einar útskýrði leyndardóm gangverks gömlu klukkunnar
fyrir konu sinni Sigurlínu Jóhannsdóttur, Jóhanni Friðf-
innssyni.