Morgunblaðið - 07.02.1993, Síða 19
MOTrawu yum
SUNNUBAQtm -7- ■ FBBRÚAR 1&»8~
-MOROHN-afaA-&iB-
Magnús Hallgrímsson og Hlíf Ólafsdóttir.
HJÁLPARSTARF
TILBOD
ÓSKAST
ílsuzuTrooperll4W/D,árgerð ’89
(ekinn 38 þús. mílur), Chevrolet Blazer4x4,
árgerð ’85, Dodge Caravan LE, árgerð '84 og
aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi
9, þriðjudaginn 9. febrúar kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Sárt að geta ekki hjálpað
Magnús Hallgrímsson verkfræð-
ingur, hjálparsveitarmaður
hér og erlendis með meiru, og^Hlíf
kona hans, skruppu lieim frá Isra-
el, þar sem þau búa rétt sunnan
við landamæri Líbanons. Tilefnið
að Yerkfræðingafélag íslands
hugðist heiðra Magnús á árshátíð
félagsins á'Hótel Sögu. Veitti hon-
um gullmerki félagsins, ásamt
tveimur öðrum verkfræðingum,
þeim Páli Siguijónssyni og Agli
Skúla Ingibergssyni. í meðfylgjandi
heiðurskjali segir að Magnús Hall-
grímsson byggingarverkfræðingur
sé kunnur fyrir björgunar- og hjálp-
arstörf. Hann kynnti sér fyrstur
íslenskra verkfræðinga nútíma
snjóflóðavarnir á námskeiðum er-
lendis og hagnýtti þekkingu sína
við hamfaravarnir á Islandi. Magn-
ús hefur með óvenjulegri atorku,
ósérhlífni og hæfni tekist að sam-
eina áhuga sinn á og reynslu við
björgunarstörf annars vegar og
verkfræðilegt hugvit og þekkingu
hins vegar til hjálpar og líknar-
starfa við frumstæð skilyrði á hörm-
ungarsvæðum víða um heim með
farsælum árangri.
Magnús var sem kunnugt er,
m.a. af grein í Mbl. í haust, ráðinn
til UNIFIL, friðargæslusveitar SÞ,
í Líbanon, til eins árs sem yfirverk-
fræðingur, en hefur nú verið beðinn
um að vera a.m.k. ár í viðbót þegar
þeim ráðningartíma lýkur. Hlíf, sem
er í launalausu ársleyfi frá Sauð-
fjárveikivörnum, kvaðst vonast til
að geta verið áfram með honum þar.
Magnús ekur til vinnu sinnar
daglega yfir landamærin til höfuð-
stöðvanna í Naqoura á strönd Mið-
jarðarhafsins, en friðargæslusvæði
Sameinuðu þjóðanna liggur þaðan
þvert yfir landið meðfram landa-
mærum ísraels. Þama er það ein-
mitt sem Palestinumennirnir 400,
sem ísraelsmenn ráku út landi,
hafast við í tjöldum á berangri.
Magnús sagði að strax eftir að þeir
voru hraktir þangað, hafi komið
beiðni frá Rauða krossinum og var
hann búinn að taka til vatnstanka,
kaðla og önnur hjálpargögn til að
fara á staðinn. Þá ákvað friðar-
gæsla SÞ að mönnunum yrði sinnt
frá NORBATT, norsku friðarsveit-
inni, sem er vestast og næst þeim.
En rétt á eftir lokuðu bæði líbönsk
og ísraelsk stjómvöld staðnum al-
veg. Svo háttar til að Palestínu-
mennimir era á svæði sem friðar-
gæslan hefur ekki aðgang að. En
eftirlitssvæðið er krókótt og ósam-
fellt og mennirnir voru einmitt
reknir á vik sem er inn í friðar-
gæslusvæðið. Sagði Magnús að sér
þætti afar sárt að geta ekki komið
til hjálpar þessum mönnum í neyð.
En hann sagði að það versta væri
yfirstaðið hjá þeim, því nú væri
farið að hlýna þarna suðurfrá.
Þau Magnús og Hlíf kváðust una
hag sínum vel á þessum stað. Þau
héldu jól með sonum sínum, Hall-
grími og Herði, sem komu í heim-
sókn. Hlíf þurfti að fara í bakupp-
skurð í ísrael, sem tókst svo vel
að nú ætla þau bráðum að fara á
skíði í Hermonsfjalli efst í Gólan-
hæðum, þar sem er ágætt skíða-
svæði. Og hlakka til þess.
Listskreytingasjóður
ríkisins
Listskreytingasjóður ríkisins starfar samkvæmt lög-
um nr. 71/1990 og hefur það markmið að fegra
opinberar byggingar og umhverfi þeirra með lista-
verkum og stuðla þannig að listsköpun í landinu.
Verksvið sjóðsins tekur fyrst og fremst til bygginga
sem ríkissjóður fjármagnar að nokkru leyti. Með list-
skreytingu er átt við hvers konar fasta og lausa list-
muni, svo sem veggskreytingar innan húss og utan,
höggmyndir, málverk, veggábreiður og hvers konar
listræna fegrun.
Þegar ákveðið hefur verið að reisa mannvirki, sem
lögin um Listskreytingasjóð ríkisins taka til, skulu
arkitekt mannvirkis og bygginganefnd, sem hlut á
að máli, hafa samband við stjórn Listskreytinga-
sjóðs, þannig að byggingin verði frá öndverðu hönn-
uð með þær listskreytingar í huga sem ráðlegar telj-
ast. Heimilt er einnig að verja fé úr sjóðnum til
skreytinga bygginga, sem þegar eru fullbyggðar.
Umsóknum um framlög úr Listskreytingasjóði, eða
óskum um faglega ráðgjöf stjórnar, skal beint til
Listskreytingasjóðs ríkisins, skrifstofu Sambands
íslenskra myndlistarmanna, Þórsgötu 24, 101
Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Æskilegt er
að umsóknir vegna fyrri úthlutana 1993 berist sem
fyrst og ekki síðar en 1. maí nk. Nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Sambands íslenskra myndlistar-
manna frá kl. 10.00 til 14.00 alla virka daga, sími
11346.
Reykjavík, 4. febrúar 1993.
Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins.
Magnús við störf í Nagoura í Líbanon.
Morgunblaðið/Elín Pálmadðttir
BIKARURSLITALEIKUR HSI
VISA-BIKARINN
VALUR
SELFOSS
Pú slærö á þnáð
-Bakan kemurí bráð
í kvöld kl. 20.00 í Laugardalshöll
Mætum öll og styðjum okkar menn
rafgeymar,
Einholti 6, s. 618401
Olíufélagið hf
fiisiÁI
Nýbýlavegi 18,
s. 641988