Morgunblaðið - 07.02.1993, Síða 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1993
'1
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Erfítt getur verið að gera
bami til geðs snemma dags.
Ráðgjöfum ber ekki saman
varðandi málefni vinnunn-
ar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vandamál heima fyrir
þarfnast úrlausnar. Vand-
aðu valið varðandi afþrey-
ingu kvöldsins ef þú vilt
ekki láta þér leiðast.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) m
Þér gengur illa að fínna
rétta lausn á viðfangsefni.
Aðrir geta verið hörundsár-
ir. Sýndu þeim nærgætni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Góðar hugmyndir falla ekki
ætíð í góðan jarðveg. Ein-
hver óhreinlyndur og yfír-
borðskenndur veldur þér
leiða.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Erfítt getur verið að telja
ættingja hughvarf. Fjármál
geta valdið ágreiningi, og
óvænt útgjöld eru líkleg.
Meyja
(23. ágúst - 22. september'J
Þú getur lagt of hart að þér
við að fínna réttu lausnina.
Slakaðu á, og rétta svarið
kemur í ljós. Forðastu orða-
skak.
(23. sept. - 22. október)
Vinátta og íjármál fara ekki
alltaf vel saman. Þú gætir
verið eitthvað hikandi í
kvöld. Taktu tillit til ann-
arra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Leiddu hugann að einhverju
öðm en vinnunni í dag, og
varastu að sýna barni
hörku. Gakktu ekki of langt
í skemmtanalífínu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Einhver snurða getur
hlaupið á ferðaáætlanir.
Gættu nákvæmni og forð-
astu yfírborðsmennsku í
samskiptum í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér kann að mislíka þau
skilyrði sem fylgja tilboði í
dag. í kvöld ættir þú að
bjóða heim vinum eða
vandamönnum.
Vatnsberi
(20. janúar — 18. febrúar)
Félagi gæti verið þér ósam-
mála varðandi vinnu þína.
Skoðanaskipti em til bóta.
Farðu gætilega í peninga-
málum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ***
Árangur þinn í dag er ekki
eins góður og þú vildir.
Varastu of mikla gagnrýni
á þína nánustu og sýndu
samstöðu.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á iraustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
FERDINAND
SMÁFÓLK
YE5.MA‘AM..I 0ROU6MTMY
D06 T0 5CM00L T0PAY..WELL,
50METIME5 ME 6ET5 L0NELY...
/- íiií
Já, kennari, ég kom með hundinn
minn með mér í skólann, sko, hann
er stundum einmana.
Nei, kennari, það verður ekki rnikil Kannski.
truflun af honum.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Alan Tmschott hefur eftir
bandarískum dómarara og brids-
spilara, B.I. Humpreys, eftirfar-
andi tilvitnun: „Það býður heim
óréttlátum dómi að fela sann-
leikann." Humpreys taldi sig
margoft hafa sannreynt þessa
speki í daglegu starfí sínu, en
honum kom á óvart að sama
lögmál skyldi vera að verki við
spilaborðið. Hann var í sæti suð-
urs, sem sagnhafí í þremur
gröndum:
Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ DG72 V 10843 ♦ 7 ♦ G1092
Vestur Austur
♦ 1084 ♦ 653
♦ G72 ♦ D97
♦ Á863 ♦ D109542
♦ K74 ♦ D Suður ♦ ÁK9 ▼ ÁK5 ♦ KG ♦ Á8543
Vestur Norður Austur Suður
— — — 2 grönd
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 3 grönd Allir pass
Utspil: tígulþristur.
Eftir útspilið var greinilegt
að engin „heiðarleg" leið lá að
níunda slagnum. En dómarinn
ákvað að nýta sér þá staðreynd
að vörnin hafí ekki aðgang að
þeim sannleika. Hann drap tígul-
drottningu austurs með kóngi
og spilaði umsvifalaust tígulgosa
til baka!!
„Mér á vinstri hönd sat spil-
ari, prýddur þúsundum meist-
arastiga," sagði Humphreys.
„Það tók hann aðeins tvær sek-
úndur að dúkka tígulgosann og
ég var þá jafnfljótur að leggja
upp.“
Humpreys var að vonum
ánægður með eigin snilld. En
það voru mikil vonbrigði að opna
skorblaðið og sjá að 600 var
hreinn botn. Men voru að vinna
4-5 grönd. Hvemig þá? Jú, eng-
inn annars hafði fengið út tígul.
Vissulega óréttlátur úrskurð-
ur, en sannaði þó það sem dóm-
arinn vissi fyrir; það kann ekki
góðri lukku að stýra að breiða
yfír sannleikann. Eða þannig.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í opna flokknum á skákmótinu
í Wijk aan Zee í Hollandi kom
þessi staða upp í skák alþjóðlegu
meistaranna Winants (2.505),
sem hafði hvítt og átti leik, og
Rotsteins (2.465), Úkraníy.
• b c d • I o h
35. Itxg6+! og svartur gafst upp,
því eftir 35. - Dxg6, 36. Hf8+ -
Kg7, 37. Hg8+ tapar hann drottn-
ingunni. Staðan fyrir síðustu um-
ferðina í opna flokknum var þessi:
1. Salov 8"/2 v., 2. Lobron 8 v.,
3-5. Oll, Piket og Tukmakov Vh
v., 6. Kortsnoj 7 v. os.frv. Þeir
sem voru slegnir út úr útsláttar-
mótinu fengu að koma inn í opna
mótið með fyrirfram ákveðna
vinningstölu. Salov kom t.d. ekki
inn fyrr en í níundu umferð með
fímm og hálfan vinning af átta
mögulegum.