Morgunblaðið - 06.04.1993, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRIL 1993
+ Eiginmaður minn, ALBERT MAGNÚSSON, Stapahrauni 2, andaðist í St. Jósefsspitala að morgni 3. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Valgerður Valdimarsdóttir.
+ Faðir okkar, ÞORVALDUR VALDIMARSSON, Austurbergi 30, Reykjavík, lést í Vífilsstaðaspítala aðfaranótt 5. apríl. Sigríður Þorvaldsdóttir, Birgir Þorvaldsson, Sigurður Már Helgason.
+ Faðir okkar, GUÐMUNDUR JÓNSSON fyrrverandi lögregluvarðstjóri, Dalbraut 27, lést laugardaginn 3. apríl. Kristfn Guðmundsdóttir, Ólafur V. Guðmundsson, Guðmundur M. Guðmundsson, Þorbjörg Guðmundsdóttir.
+ Móðir okkar, FRIÐBJÖRG DAVÍÐSDÓTTIR hjúkrunarkona, Hringbraut 43, lést á heimili sínu 4. apríl. Hrafnhildur Hreiðarsdóttir, Sigriður Karlsdóttir, Birgir Karlsson, Kolbrún Karlsdóttir.
+ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Suðurgötu 3, Keftavík, lést í Borgarspítalanum 3. apríl. Katrín Warren, John Warren, Elín Óla Einarsdóttir, Sigurður Markússon, Ólafía Sigriður Einarsdóttir, Aðalbergur Þórarinsson, Guðmundur Einarsson, Sveingerður Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KATRÍN EINARSDÓTTIR, Kringlunni 61, lést á heimili sínu sunnudaginn 4. apríl. Einar Jónsson, Einar Kristbjörnsson, Brenda Kristbjörnsson, Sigriður Kristbjörnsdóttir, Gunnar Zóphaníasson, Jóna Kristbjörnsdóttir, Jón Búi Guðlaugsson, Birna Kristbjörnsdóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson og barnabörn.
+ Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, PÁLÍNA GUÐJÓNSDÓTTIR frá Móakoti í Garði, er lést í Vífilsstaðaspítala mánudaginn 29. mars, verður jarðsung- in frá Útskálakirkju í dag, þriðjudaginn 6. apríl, kl. 14.00. Óskar Sigurjónsson, börn og tengdabörn.
•?
+ JÓNÍNA BENEDIKTA EYLEIFSDÓTTIR verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum miðvikudag- inn 7. apríl kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Jórunn Ingimundardóttir.
Minning
Selma Dóra Þor-
steinsdóttir
Það gleymist víst engum, sem gengur sinn veg
hve gott er að mæta þar vini
og finna samúð á langri leið
í lífsins hverfula skini.
Þú deildir á milli í dagsins önn
þínum drengskap sem heilu réði.
Að rétta fómandi heita hönd
var hamingja þín og gleði.
En nú hefir hverfleikinn kvatt á dyr
og kul er í dagsins svöram.
En minningin lifír svo ljúf og hlý
með ljóð sinna drauma á vöram.
Svo fógur og hlý er sú ferða bæn,
sem flutt er í drottins nafni,
meðan siglir þú vinur yfír sumarbiátt haf
með sólroðið land fyrir stafni.
Valdimar Hólm Hallstað.
Þessi kveðja var ort við fráfall
föður míns, Helga S. Pálssonar,
árið 1979 og finnst mér hún segja
vel hug minn núna, er ég kveð
móðursystur mína, Selmu Dóru
Þorsteinsdóttur. Jafnt á sorgar-
sem gleðistundum stóð hún við
hlið mér og fjölskyldu minnar.
Selma Dóra fæddist í Vogi við
Raufarhöfn 27. júní 1953. Hún var
dóttir Svanhvítar Pétursdóttur og
Þorsteins Péturs Jósefssonar, sem
bæði eru látin fyrir mörgum árum.
Selma á einn albróður, Hólmgrím,
sem búsettur er í Reykjavík, en
hálfsystkini hennar, sammæðra,
eru fímm: Sigurbjörg og Hólmfríð-
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN F. PÉTURSDÓTTIR,
Austurbrún 25,
lést í Landspítalanum að morgni 3. apríl.
Ingibjörg Ólafsdóttir Wilson, Perry G. Wilson,
Sigurjón Árni Ólafsson, Hildur Sigurðardóttir,
Hafdis Ólafsdóttir, Guðjón Guðnason,
Theódóra Ólafsdóttir, Þórir Ingvarsson,
Óli Rúnar Ólafsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi,
HELGI KRISTINN JÓNSSON
prentari,
Laufbrekku 7,
Kópavogi,
lést aðfaranótt 3. apríl.
Þóra Guðmundsdóttir,
Guðmundur Helgason, Bryndís Birnir,
Þórdís Helgadóttir, Jón Ágúst Eggertsson,
Sigurður Helgason,
Berglind Helgadóttir, Björn Hermannsson,
Kristín Helgadóttir, Jakob Viðar Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabarn.
+ -
Eiginmaður minn,
KARLÓSKAR FRÍMANNSSON,
Reynimel 48,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. apríl
kl. 15.00.
Kristin H. Jónsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN GEIR KJARTANSSON
leigubifreiðarstjóri,
Teistunesi 1,
Garðabæ,
sem lést 31. mars síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Garða-
kirkju miðvikudaginn 7. apríl kl. 15.00.
Sólveig Alda Pétursdóttir,
Ómar Kristjánsson, Hjördís Ingvadóttir,
Halldór B. Kristjánsson, Auðbjörg Erlingsdóttir,
Kjartan B. Kristjánsson, Hutda F. Hafsteinsdóttir,
Kristján V. Kristjánsson, Christel Johansen
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐMUNDA G. SIGURÐARDÓTTIR,
áðurtil heimilis
að Austurbrún 2,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 7. apríl
kl. 13.30.
Anika Magnúsdóttir,
Ólöf J. Magnúsdóttir,
Unnur Magnúsdóttir, Stefán Kristmundsson,
Brynhildur Magnúsdóttir,
Haukur Ö. Magnússon, Erla Finnsdóttir,
Önundur Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
ur, búsettar í Reykjavík, Halldóra,
búsett á Húsavík, Þuríður, búsett
í Keflavík og Jóhann, sem býr í
Vogi. Faðir þeirra var séra Hólm-
grímur Jósefsson, sem lést langt
um aldur fram, aðeins fertugur að
aldri. Hólmgrímur og Þorsteinn
Pétur voru bræður, ættaðir frá
Ormarslóni í Þistilfirði.
Það eru ótal minningar sem
koma upp í huga minn við fráfall
Selmu. Fyrstu minningarnar tengj-
ast Vogi, áhyggjulausum og ærsla-
fullum leilqum okkar frændsystk-
inanna, sem alltaf höfðum nóg
fyrir stafni. Selma byijaði snemma
að spila á gítar og oft sátum við
og sungum frumsamin lög við
ýmis gömul og virðuleg ljóð. Dular-
fullar njósnasögur voru skrifaðar
og farið í könnunarleiðangra um
umhverfið og búnar til kynngi-
magnaðar sögur um hvert kenni-
leiti. Alltaf var Selma leiðtogi okk-
ar, bæði var hún elst og ekki skorti
hana forystuhæfileikana.
Tólf ára gömul fluttist hún með
móður sinni og bróður til Húsavík-
ur og bjó hún þá í næsta nágrenni
við mig. Á Húsavík bjuggu þau í
tvö ár og eignaðist Selma þar góða
vini. Minntist hún oft skemmti-
legra stunda með þeim og hafði
alltaf sterkar taugar til Húsavíkur.
Eftir að hún fluttist til Reykjavík-
ur, 14 ára, kom hún norður í jóla-
og sumarfríum og var koma henn-
ar alltaf tilhlökkunarefni. Þá var
vitað að líf og fjör yrði hjá okkur.
Innan við tvítugt kynntist Selma
eftirlifandi eiginmanni sínum, Guð-
jóni Ágústssyni, múrarameistara,
og eiga þau tvö börn, Þorstein
Pétur, f. 9. nóvember 1976, og
Hrefnu Ýr, f. 13. maí 1983. Auk
þeirra misstu þau árið 1973 dóttur
í fæðingu. Þau Selma og Guðjón
stofnuðu sitt fyrsta heimili í
Dúfnahólum 2 í Reykjavík. Þá var
Selma nemi í Fósturskóla íslands
og Guðjón í Iðnskólanum og með
dugnaði þeirra og bjartsýni eignuð-
ust þau þessa fyrstu íbúð sína á
sama tíma og þau voru í námi.
Seinna byggðu þau sér hús í Rauf-
arseli 5, þar sem fjölskyldan býr
enn.
Á þessum árum kom ég suður
í skóla og stóð þá heimili þeirra
mér opið og bjó ég þar hátt á þriðja
ár. Þá mynduðust með mér og
þeim hjónum vináttutengsl sem
aldrei rofnuðu. En það var ekki
bara ég sem naut gestrisni og
hjálpsemi þeirra Selmu og Guð-
jóns, heldur margir aðrir, bæði
ættingjar og vinir. Alltaf var nóg
pláss fyrir þá, sem þurftu á húsa-
skjóli að halda í stuttan eða langan
tíma og sjaldan man ég eftir heim-
ili þeirra án einhverra dvalargesta.
Velferð bama var alltaf efst í
huga Selmu og árið 1984 tók fjöl-
skyldan sig upp og fluttist til Nor-
egs, þar sem Selma fór í fram-
haldsnám. í Noregi voru þau í þrjú
ár. Á sama tíma var ég ásamt
eiginmanni mínum, Hólmgrímur
bróðir Selmu og eiginkona hans,
búsett í Danmörku við nám. Ekki
var langt að fara á milli landanna
og hittumst við eins oft og tæki-
færi gafst, bæði í Noregi og Dan-
mörku. Þá var heldur betur glatt
á hjalla og mikið skrafað og hleg-
ið. Heim til íslands komum við öll
og tókumst á við mismunandi störf
og Selma helgaði sig áfram mál-
efnum barnanna, allt fram á síð-
asta dag.
Það hefur verið hörð lífsreynsla
í Raufarseli að horfast í augu við
illvígan sjúkdóm, sem kvaddi þar
dyra hjá ungri eiginkonu og móð-
ur. Og það var aðdáunarvert að
sjá, hvað Selma barðist áfram í
þessu stríði, en þrátt fyrir baráttu-
viljann varð hún að lokum að lúta
lægra haldi eftir tveggja og hálfs
árs orrustu.
Um sinn skiljast leiðir, en að
leiðarlokum vil ég og fjölskylda
mín þakka kærri frænku og vin-
konu fýrir samfylgdina, öll góðu
ráðin og hjálpsemina í gegnum
árin. Elsku Gaui minn, Steini Pétur
og Hrefna, ég bið góðan Guð að
leiða ykkur í framtíðinni. Guð
blessi minninguna um einstaka
konu. Minningin mun ávallt lifa í
hjörtum okkar allra.
Inga Rósa.