Morgunblaðið - 25.04.1993, Blaðsíða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1993
Matthildur Þórarinsdðttir
er 18 ára, fegurðardrottning Austurlands, og
býr á Neskaupstað. Foreldrar hennar em
Jóna Sigríður Gunnarsdóttir og Þórarinn Öl-
versson. Hún er í stúdentsnámi, á 2. ári á
félagsfræðibraut. Helstu áhugamál hennar
eru blak, útivist, ferðalög og skemmtanir í
góðra vina hópi. Matthildur er í kóngabláum
pallíettukjól sem Jórunn Karlsdóttir hannaði
og saumaði.
Sigurbiðrg Sigurðardótlir
er 18 ára og býrí Ólafsvík. Foreldrar hennar
eru Inga Kristinsdóttir og Sigurður Hjörleifs-
son. Hún stundar nám í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla. Helstu áhugamál eru skíði, lík-
amsrækt, ferðalög, fjölskylda og vinir. Sigur-
björg er í svörtum kjól, skreyttum rauðum
pallíettum. Hann er frá Bandaríkjunum.
Nanna Guöhcrgsdðttir
er 18 ára og býr í Reykjavík. Foreldrar henn-
ar eru Iðunn Angela Andrésdóttir og Guð-
bergur Auðunsson. Hún er í almennu námi í
Iðnskólanum og stefnir að því að iæra ljós-
myndun. Hún stariar einnig sem fyrirsæta
hér heima og erlendis. Helstu áhugamál henn-
ar eru systkini, vinir, skíði, útivist og fyrir-
sætustörf. Nanna er í rauðum shiffonkjól með
pallíettum sem Edda Sigurbergsdóttir hann-
aði og saumaði.
Svala Björk Arnardóttir
er 18 ára og býr í Garðabæ. Foreldrar henn-
ar eru Bjarnfríður Jóhannsdóttir og Örn Bárð-
ur Jónsson. Hún stundar nám við fjolbrauta-
skólann í Garðabæ og starfar að auki við
módelstörf og afgreiðslu. Áhugamál hennar
eru ferðalög, gönguferðir, tónlist, módelstörf
og skíði. Svala er í kjól úr dökkgrænu slétt-
flaueli með pallíettuskrauti sem Jórunn Karls-
dóttir hannaði og saumaði.
% *»> ;}