Morgunblaðið - 05.05.1993, Síða 1
56 SIÐUR B/C
99. tbl. 81.árg.
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Napólí gjaldþrota
Italska
slóórn-
in full-
skipuð
Róm, Napólí. Reuter.
CARLO Azeglio Ciampi, for-
sætisráðherra Ítalíu, hefur
skipað nýja ráðherra í stað
þeirra, sem sögðu af sér í
síðustu viku. Verður trausts-
yfirlýsing á stjórnina lögð
fyrir þing á morgun og er
búist við, að hún verði sam-
þykkt. Borgarstjórnin í Na-
pólí hefur lýst yfir gjaldþroti
borgarinnar en þar hefur
lengi þrifist gífurleg spilling.
Nýju ráðherrarnir eru
Franco Gallo, prófessor og sér-
fræðingur í skattamálum, sem
verður fjármálaráðherra, Paolo
Barile stjórnlagafræðingur,
sem mun fara með samskiptin
við þingið, Umberto Colombo,
sem verður háskóla- og rann-
sóknaráðherra, og Livio Palad-
in, fyrrum forseti stjórnar-
skrárdómsins, sem fer með
málefni Evrópubandalagsins.
Napólíborg er gjaldþrota og
getur ekki greitt af skuldunum,
sem eru um 87 milljarðar ísl.
kr. Er Napólí fyrsta ítalska
stórborgin, sem þarf að segja
sig til sveitar, en þar er mikil
mafíustarfsemi og spilling í
opinberu lífi. Búist er við, að
ríkissjóður greiði skuld borgar-
innar að hálfu en hinn helming-
inn ætlar hún að innheimta
eftir ýmsum leiðum, til dæmis
með því að krefjast þess, að
knattspyrnuliðið Napólí greiði
ógreidda leigu fyrir leikvanginn
en það skuldar rúmlega 850
milljónir kr.
Reuter
Beregovoy
vottuð hinsta
virðing
ÞÚSUNDIR manna vottuðu
Pierre Beregovoy, fyrrum for-
sætisráðherra Frakklands,
hinstu virðingu í gær í
heimabæ hans, Nevers. Langar
biðraðir mynduðust við höll
eina í bænum þar sem kistu
hans hafði verið komið fyrir á
viðhafnarbörum og var hún
sveipuð franska fánanum. Be-
regovoy framdi sjálfsmorð um
síðustu helgi og var það mat
manna að hann hefði ákveðið
að stytta sér aldur vegna ásak-
ana um spillingu og hraklegs
gengis franska Sósíalista-
flokksins í síðustu þingkosn-
ingum. Hefur sjálfsvíg forsæt-
isráðherrans fyrrverandi
hrundið af stað miklum um-
ræðum í Frakklandi um sið-
ferði í stjórnmálum og hlutverk
ijölmiðla. Hér bera slökkviliðs-
menn í Nevers kistu Beregovo-
ys frá kirkju.
Múslimar í Bosníu krefjast skyndifundar í öryggisráði SÞ
Bærími Zepa sag’ðiu' í ljós-
um logiim eftír árás Serba
Sartýevo, Brussel. Reuter.
MÚSLIMAR í Bosníu hvöttu í gær þjóðir heims
til að bjarga íbúum borgarinnar Zepa í austur-
hluta landsins og sögðu, að hún stæði í ljósurn
logum eftir ákafar árásir Serba. Atlantshafs-
bandalagið, NATO, hefur lokið við áætlanir
um að senda 60.000 manna alþjóðlegt herlið
til Bosníu, þar af 20.000 bandaríska hermenn
að minnsta kosti.
Samkvæmt útvarpssendingum, sem náðust í
Sarajevo, hafa Serbar ráðist gegnum vamarlínu
múslima við Zepa og láta stórskotaliðshríðina
dynja á borginni. Þar hafast við um 40.000 manns,
þar af um 8.000 börn. Zepa og Gorazde eru einu
bæirnir, sem múslimar ráða enn í Austur-Bosníu.
Reynir fólk að flýja borgina og sjúklingar hafa
verið fluttir af sjúkrahúsum í bráðabirgðaskýli í
skógunum.
„Ibúarnir reyna að forða sér, hver sem betur
getur, og það er enga hjálp að fá fyrir sjúka og
særða. Bærinn logar allur. Við skomm á þjóðir
heims að stöðva árásirnar og bjarga fólkinu,"
sagði í yfirlýsingu Bosníustjómar í gær en hún
hefur krafist fundar í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna.
NATO hefur lokið við áætlun um að senda
60.000 manna friðargæslulið til Bosníu og verður
unnt að hrinda henni í framkvæmd á nokkmm
dögum ef þing Bosníu-Serba fellst á friðaráætlun
SÞ. Hafa Bretar og Frakkar samþykkt að taka
þátt í friðargæslunni.
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, neitaði í gær
fréttum bandarískrar sjónvarpsstöðvar um, að
menn úr sérsveitum Bandaríkjahers væru þegar
komnir til Bosníu til að kanna hugsanleg skot-
mörk ef friðarviðræður fæm út um þúfur og loftá-
rásir yrðu gerðar á stöðvar Serba.
Skæðir dýrasjúk-
dómar breiðast út
PÓLITÍSKUR óstöðugleiki og efnahagslegt öngþveiti í Miðaustur-
löndum hefur leitt til mikillar fjölgunar skæðra dýrasjúkdóma á
svæðinu og hver faraldurinn hefur rekið annan, samkvæmt fréttum
Reufers-fréttastofunnar. Stafar Evrópu mikil hætta af þessu, að
sögn Alþjóða smitsjúkdómastofnunarinnar í París (OIE).
„Stjómmála- og efnahagsþróunin
í Miðausturlöndum hefur leitt til
vemlega breytinga á högurn og
heilsufari búfénaðar á svæðinu frá
Afganistan til Jemens,“ sagði í yfir-
lýsingu frá OIE. Vísbendingar væru
um, að hætta væri á útbreiðslu
skæðra sjúkdóma á borð við naut-
gripasótt, gin- og klaufaveiki og
smitandi fósturlát í kúm.
Síðastnefnda sóttin er einkum al-
varleg sakir þess að hún getur farið
í fólk og valdið mjög bráðum sjúk-
dómi, að sögn Sigurðar Sigurðarson-
ar dýralæknis. Fylgir honum hár hiti,
mikill sviti og verkur um allan líkam-
ann. Ýmsar tegundir þessa sjúkdóms
leggjast á nautgripi, sauðfé, geitur
og hunda. Að sögn Sigurðar hefur
Evrópubandalagið (EB) ekki talið
ástæðu til að verjast þessum sjúk-
dómi sérstaklega hingað til.
OIE hefur nú hins vegar lagt til
að gripið verði til víðtækra ráðstaf-
ana og bólusetningar til að stemma
stigu við þessum skæðu sjúkdómum
og vinna bug á þeim. Nýlega varð
að fella 10.000 dýr vegna gin- og
klaufaveiki á Ítalíu sem rakin var til
nautgripa frá Króatíu.
Njósnaforingi
fyrir rétt
RÉTTARHÖLD hófust í gær í
máli Marcus Wolfs, fyrrverandi
yfirmanns leyniþjónustu austur-
þýsku kommúnistastjórnarinn-
ar, en hann hefur verið ákærður
fyrir landráð og að hafa mútað
vestur-þýskum leyniþjónustu-
mönnum í rúma þrjá áratugi.
Wolf sakaði stjómvöld samein-
aðs Þýskalands um að sækja sig
til saka til að hefna sín á and-
stæðingum sínum úr kalda stríð-
inu. Hann kvað það fáránlegt
að hann skyldi leiddur fyrir rétt
á meðan fyrrverandi yfirmaður
vestur-þýsku leyniþjónustunnar,
Klaus Kinkel, skyldi vera gerður
að utanríkisráðherra.
Sjá „Njósnarinn andlitslausi
...“ á bls. 21.
Reuter