Morgunblaðið - 05.05.1993, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1993
I.
^ Morgunblaðið/Kristinn
A Fæðingarheimilinu
FYRSTA sængurkonan lagðist inn á Fæðingarheimilið við Eiríksgötu síð-
degis í gær. Það var Birna S. Pálsdóttir, sem fætt hafði dóttur á fæðingar-
deild Landspítalans fyrr um morguninn. Þegar ljósmyndara bar að garði
var Birna ennþá eina sængurkonan á heimilinu og gat snætt í ró og
næði mat sem Ása Hlín Svavarsdóttir hafði fært henni og eiginmanni
hennar, Þorsteini Þór Guðjónssyni.
Ríkisstjórnin samþykkir að samið verði um þyrlukaup
Áfram er mælt með
Super Puma-þyrlu
RÍKISSTJÓRNIN ákvað í gær að
fela Þorsteini Pálssyni dómsmála-
ráðherra og Friðrik Sophussyni
fjármálaráðherra að leita samn-
inga um kaup á nýrri björgunar-
þyrlu fyrir Landhelgisgæzluna
með aðstoð viðræðunefndarinnar
sem skipuð var síðastliðið vor.
Ráðgjafarhópur, sem áður hafði
lagt til að leitað yrði eftir kaupum
á notaðri Super Puma-þyrlu, hef-
ur skilað nýju áliti, eftir að hafa
kannað ábendingar um aðrar teg-
undir, og heldur við fyrri niður-
stöðu sína.
Ráðgjafarhópur ríkisstjórnarinnar
komst upphaflega að þeirri niður-
stöðu að þijár þyrlutegundir upp-
fylltu þær lágmarkskröfur, sem gera
yrði til nýrrar björgunarþyrlu. Þetta
voru vélar af gerðinni Super Puma,
Sikorsky, Jay Hawk og Bell Textron,
Super Transport.
Sikorsky hentar ekki
Ráðgjafarhópurinn taldi Sikorsky-
þyrluna of dýra og að Super Puma-
3.800 nemar leita
sér að sumarvmnu
TÆPLEGA 3.000 manns hefur skráð sig hjá Ráðningastofu
Reykjavíkurborgar til sumarvinnu, þar af 1.619 piltar og 1.332
stúlkur, 16 ára og eldri. Á sama tíma í fyrra höfðu 2.628
manns skráð sig. Gunnar Helgason, forstöðumaður Ráðninga-
stofunnar, segir að útlitið sé ekki alltof gott því atvinnuleysi
í borginni sé mikið. Um 800 manns höfðu látið skrá sig hjá
Atvinnumiðlun námsmanna. Atvinnuhorfur skólafólks eru
dökkar, að mati viðmælenda Morgunblaðsins. Alls eru 2.564
manns skráðir atvinnulausir hjá Ráðningastofunni.
„Atvinnuleysingjar eru helmingi
fleiri en í fyrra, þannig að útlitið er
auðvitað mjög dökkt. Astandið hefur
aldrei verið eins slæmt,“ sagði Gunn-
ar. Hann sagði að í fyrra hefðu ver-
ið ákveðnar aðgerðir í gangi af hálfu
Reykjavíkurborgar til að bæta úr
atvinnuástandinu og yrði slíkt áreið-
anlega einnig á döfinni núna, en það
mál væri allt í undirbúningi. Þar
væri um alls kyns framkvæmdir að
ræða, eins og ræktun, gróðursetn-
ingu og viðhald gatna. „Það verður
auðvitað reynt að hjálpa eins mörg-
um og auðið er, en það er ekki hægt
að segja til um það á þessu stigi
málsins hve mörg störf gæti verið
um að ræða,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að tala skráðra gæti
aukist verulega. í fyrra hefðu 3.051
skráð sig og tekist hefði að útvega
flestum vinnu.
Lítil hreyfing
Um 800 manns höfðu látið skrá
sig til sumarvinnu hjá Atvinnumiðlun
námsmanna. Auðunn M. Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri atvinnumiðl-
unarinnar, sagði að það bættist á
skrá á hveijum degi. Hann var þó
svartsýnn á atvinnuhorfurnar. „Þær
eru svartari núna ef eitthvað er. Það
fór að streyma inn slæðingur af til-
boðum á sama tíma í fyrra, en það
er ennþá mjög rólegt," sagði Auð-
unn. Hann sagði að það væri sérstak-
lega lítið af atvinnutilboðum frá hinu
opinbera og bönkunum sem hefðu
alltaf leitað töluvert til Atvinnumiðl-
unar námsmanna.
Ætlunin að saltfisktollar EB iækki úr 13% í 4-5% á morgun
Skiptir Islendinga nokkur
hundruð milliónum króna
Frá Kristófer M. Kristinssyni fréttaritara Mbl. í Brussel
SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins verður heimilt
að flytja inn til Evrópubandalagsins frá næstu viku og til
áramóta 60.000 tonn af blautverkuðum saltfiski á tollum
sem verða 4-5%. Þessir tollar eru nú 13% og segir Magnús
Gunnarsson framkvæmdastjóri SÍF að þetta séu góðar frétt-
ir fyrir saltfiskútflytjendur því þessi tollalækkun skiptir
þá nokkrum hundruðum milljóna króna. Magnús reiknar
með að samhliða verði ákveðið að lækka toll á saltfiskflök-
um úr 20% niður í 9% en kvótinn á flökin nemur 3.000
tonnum. Fastafulltrúar aðildarríkja EB munu fjalla um
málamiðlunartillögu frá Dönum vegna ívilnana á innfluttum
sjávarafurðum til EB á fundi á morgun.
í dag
Tyrkneska forræðismálið
Höfundur bókarinnar „Ekki án
dóttur minnar", aðstoðar Sophiu
Hansen 19
Meiri samdráttur?______________
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra segir að íslendingar verði að
horfast í augu við frekari samdrátt
í þorskveiðum 22
Fyrsta skútan__________________
Þýska skútan Dagmar Aaen, sem
komin er til Akureyrar, er á sínu
þriðja ári í siglingum í ís 27
Leiðari________________________
Efnahagsskilyrði og vaxtastig 22
r
Ur verinu
► Markaðsverð á mjöli með
lægsta móti - Bankasljórinn í
netaróðri - Krafa EB um veiði-
heimildir Norðmönnum erfið -
Milljón í hásetahlut
Framkvæmdastjóm EB lagði fram
í janúar sl. tillögur um árlegar ein-
hliða ákvarðanir bandalagsins um
tollaívilnanir á hráefni til fiskvinnslu
í aðildarríkjunum. Slæmt ástand á
mörkuðum EB hefur hins vegar vald-
ið því að innflutningsheimildirnar
sem taka áttu gildi 1. apríl hafa dreg-
ist til þessa. Gert er ráð fyrir að
heimildir til innflutnings á saltfiski
verði að mestu óbreyttar frá því sem
samþykkt var í byijun febrúar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er líklegt að í stað tveggja
Myndasögur
► Börn um víða veröld - Hjól
- Ljóð - Þrautir - Blásturmálning
- Myndasögur - Dverglilja - Orð-
tak - Brandarar - Fingraför -
Drátthagi blýanturinn
innflutningstímabila verði einungis
eitt og að tollflokkarnir verði samein-
aðir frá því sem gert var ráð fyrir í
febrúarsamþykkt EB þannig að
heimilt verði að flytja inn allt að
60.000 tonn af saltfiski á tolli á bil-
inu 4-5% frá og með næstu viku fram
að áramótum.
Saltfiskkvótar í forgang
Náist samkomulag um málamiðl-
un dönsku stjórnarinnar verða heim-
ildimar að öllum líkindum staðfestar
á ráðherrafundi 9. maí og öðlast gildi
um leið og þær hafa birst í stjórnar-
tíðindum EB. Heimildarmenn Morg-
unblaðsins telja sennilegt að salt-
fískkvótarnir verði látnir hafa for-
gang í framkvæmd vegna mikils
þrýstings frá ríkjunum í suðurhluta
bandalagsins.
„Ég vona að þetta verði niðurstað-
an og um leið eru þetta fyrstu góðu
fréttir sem við heyrum í langan
tíma,“ segir Magnús Gunnarsson.
„Þetta getur skipt verulegum upp-
hæðum fyrir okkur því nú er salt-
fiskkvóti Norðmanna í EB að verða
uppurinn þannig að við ættum að
geta orðið mjög samkeppnisfærir um
verð.“
Aðspurður um hve stór hluti af
60.000 tonna kvótanum gæti komið
í hlut íslendinga segir Magnús að
það hafi verið misjafnt milli ára og
nú setji niðurskurður á þorskveiðum
strik í reikninginn. Árin 1987-88
fluttum við út 60.000 tonn af salt-
fiski til EB en í fyrra nam magnið
40.000 tonnum.
Skákmót á St. Martin
Helgi efst-
ur eftir 5
umferðir
Saint Martin. Frá Margeiri Péturs-
syni fréttaritara Morgunblaðsins.
HELGI
Ólafssson er
einn efstur á
opnu alþjóð-
legu skák-
móti á eyj-
unni Saint
Martin í
Karabiska
hafinu.
Tefldar hafa
verið fimm umferðir og hefur
Helgi unnið allar sínar skákir.
Tveir skákmenn hafa 4*/2
vinning en Jón L. Árnason og
Margeir Pétursson eru í hópi
þeirra sem hafa 4 vinninga.
Fjórði íslendingurinn, Karl Þor-
steins, hefur 3‘/2 vinning.
Mótið, sem endar á laugar-
dag, er mjög sterkt og á því
tefla 16 stórmeistarar.
Fjárveiting
til námskeiða
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu atvinnumálanefndar um að
veita 1.975 þúsund króna auka-
fjárveitingu vegna námskeiða fyr-
ir fólk á atvinnuleysisskrá.
Um er að ræða námskeið, sem
haldin voru á tímabilinu 4. febrúar
til 7. maí. Þau voru haldin í sam-
vinnu við atvinnumálanefnd og
Ráðningarstofuna með stuðningi fé-
lagsmálaráðuneytisins. Aðsókn
reyndist mun meiri en búist var við
eða 400 manns.