Morgunblaðið - 05.05.1993, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1993
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan-
lands. ( lausasölu 110 kr. eintakið.
Efnahagsskilyrði og
vaxtastig
Draga verður í efa, að
forsætisráðherra úr
Sjálfstæðisflokki hafi
nokkru sinni gert jafn stífa
kröfu til bankanna um
vaxtalækkun og Davíð
Oddsson gerði í ræðu sinni
við eldhúsdagsumræður á
Alþingi í fyrrakvöld. For-
sætisráðherra sagði m.a.:
„Það er ekki vafi á því í
mínum huga að verðbólgu-
spár gefa ærna ástæðu til
þess að bankar lækki nafn-
vexti sína enn frekar en
þeir hafa þegar gert. Það
er full ástæða til að hvetja
bankana til þess að fylgja
þeirri þróun eftir. Þeir hljóta
að hafa í huga, að stundar-
hagnaður bankakerfisins af
því að hafa vexti hærri en
efnahagsskilyrðin í raun
gefa tilefni til, munu til
lengdar bitna harðast á
bönkunum sjálfum. Það
heldur enginn góður bóndi
mjólkurkúm sínum við felli-
mörk.“
Af þessum ummælum
Davíðs Oddssonar er ljóst,
að hann telur efnisleg rök
vera fyrir enn frekari vaxta-
lækkun og bendir í því sam-
bandi á verðbólguspár. Af
orðum hans má einnig skilja,
að hann telji bankana halda
uppi vöxtum vegna stundar-
hagsmuna sinna. Og loks er
ljóst, að hann telur þessa
stefnu bankanna í vaxta-
málum koma niður á þeim
sjálfum.
Þessi ummæli forsætis-
ráðherra eru alvarlegt um-
hugsunarefni fyrir bankana.
Þau koma frá oddvita Sjálf-
stæðisflokksins, en sá flokk-
ur beitti sér fyrir vaxtafrelsi
bönkunum til handa haustið
1984. Ef ekki væri vegna
eindreginnar afstöðu Sjálf-
stæðisflokksins hefði frelsið
í vaxtamálum sennilega
aldrei komið til sögunnar.
Sjálfstæðisflokkurinn er
brjóstvörn frjálsrar vaxta-
stefnu í landinu. Ef forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins
missa trúna á vaxtafrelsið
vegna þess, að þeir telji
bankakerfið misnota þetta
frelsi, munu bankar og
sparisjóðir standa frammi
fyrir því, að talsmenn vaxta-
ákvarðana með handafli ná
yfirhöndinni á hinum póli-
tíska vettvangi.
Meðan kjarasamningar
voru til umræðu gátu bank-
amir rökstutt þá afstöðu að
fara sér hægt í vaxtalækk-
unum með tilvísun til þess,
að kjarasamningar væru á
næsta leiti. Nú er allt í
óvissu um gerð kjarasamn-
inga. Á sama tíma eru vext-
ir að lækka í nálægum lönd-
um. Þýzki Seðlabankinn hef-
ur lækkað vexti jafnt og
þétt að undanförnu. Hér á
Islandi er rekstrargrundvöll-
ur sjávarútvegsins ekki að
bresta, hann er brostinn.
Núverandi vaxtastig eykur
mjög á erfiðleika atvinnu-
veganna að standa undir
skuldbindingum sínum. Þeg-
ar Davíð Oddsson talar um,
að vaxtastigið komi harðast
niður á bönkunum sjálfum á
hann einfaldlega við, að
vaxtastigið reki fyrirtækin í
gjaldþrot og bankarnir muni
tapa miklum fjármunum á
þeim gjaldþrotum. Þess
vegna sagði forsætisráð-
herra í ræðu sinni á Al-
þingi, að vextirnir yrðu að
lækka og lánastofnanir yrðu
að lengja lán eins og kostur
væri.
Veiki bletturinn í mál-
flutningi forsætisráðherra
er auðvitað sá, að vaxandi
hallarekstur ríkissjóðs stuðl-
ar að vaxtahækkun en ekki
vaxtalækkun, eins og Valur
Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka víkur að í sam-
tali við Morgunblaðið í dag..
Bankakerfið liggur nú
undir harðri gagnrýni fyrir
of dýran rekstur. Sumir hafa
jafnvel talað um bankakerf-
ið sem bagga á atvinnulíf-
inu. Sjálfsagt má deila um
niðurstöður Hagfræðistofn-
unar háskólans um kostnað
við íslenzka bankakerfið en
í megindráttum er ljóst, að
í þjóðfélagsumræðunni bein-
ast spjótin í vaxandi mæli
að bankakerfinu sjálfu. Til
þess eru nú gerðar sömu
kröfur um hagræðingu í
rekstri eins og bankarnir
með réttu hafa gert til við-
skiptavina sinna á undan-
förnum árum. Vissulega
hefur verulegur árangur
náðst í þeim efnum en betur
má ef duga skal.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um þorskveiðar
Frekar stefnir
í samdrátt en
óbreyttan afla
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegssráðherra segir að stefni
í að Islendingar verði að'horfast í augu við frekari samdrátt
í þorskveiðum því ekkert bendi til þess að þorskstofninn
hafi styrkst. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði við eldhús-
dagsumræður á Alþingi á mánudagskvöld, að ekki væri hægt
að skera niður afla meira en orðið væri. Forstjóri Hafrann-
sóknarstofnunar segir að stefni í að þorskafli fari 40% um-
fram tillögur stofnunarinnar frá því skýrsla um ástand fiski-
stofnanna var skrifuð um mitt síðasta ár.
„Það hefur frekar stefnt í það
að við þyrftum að horfast í augu
við frekari samdrátt. Ráðgjöf Ha-
frannsóknarstofnunar frá í fyrra
gerði ráð fyrir samdrætti ef að-
stæður breyttust ekki til hins
betra. Þar ,var gert ráð fyrir því
að þrepa veiðina niður til þess að
ná uppbyggingarmarkmiðinu. Því
miður hefur ekkert komið fram
enn sem bendir til þess að þorsk-
stofninn hafi styrkst,“ sagði Þor-
steinn Pálsson.
Hann sagðist svo sem einnig
eiga þá ósk og von, að íslendingar
gætu veitt meir. „En aðalatriðið
er að taka raunsæja ákvörðun.
Endanlega getum við þó vitaskuld
ekki sagt neitt um þetta fyrr en
ráðgjöf vísindamanna liggur fyr-
ir,“ sagði Þorsteinn.
Misskilningur
Ég held að það gæti þarna
nokkurs misskilnings hjá forsætis-
ráðherra að því leyti, að það var
ákveðið að veiða meira á þessu
ári en Hafrannsóknarstofnun lagði
til,“ sagði Jakob. „Okkar aðaltil-
laga var að veiða 175 þúsund tonn
af þorski 1993 og það sama árið
1994, en stjómvöld heimiluðu að
veiða 205 þúsund tonn. Að flestra
mati verður aflinn svo mun meiri
á þessu ári, eða að minnsta kosti
230 þúsund tonn. Þar við bætist
að aflinn 1992 fór í 265 þúsund
tonn en við höfðum gert ráð fyrir
250 þúsund tonna afla. Aflinn mun
því á tímabilinu frá því skýrslan
um ástand fiskistofnanna var
skrifuð fram til næstu áramóta
fara um 70 þúsund tonn umfram
okkar tillögur eða 40%,“ sagði
Jakob.
Davíð Oddsson sagði á Alþingi
að óbreyttur afli þýddi hæga en
örugga uppbyggingu þorskaflans
ef marka mætti upplýsingar Haf-
rannsóknarstofnunar frá síðasta
ári. Um þetta sagði Jakob, að jafn-
stöðuafli hefði í fyrra verið metinn
um 220 þúsund tonn þannig að
fræðilega séð leiddi 205 þúsund
tonna afli til hægrar uppbyggingar
eins og Davíð segði. „Hins vegar
eru skekkjumörk víð, og 205 þús-
und tonn eru nærri jafnstöðuaflan-
um og sú var ástæðan fyrir því
að við töldum tillögu um 175 þús-
und tonn nauðsynlega,“ sagði Jak-
ob.
Ný skýrsla í maílok
Hann sagði að stefnt væri að
því að Hafrannsóknarstofnun legði
fram tillögur um hámarksafla á
næsta fiskveiðiári um næstu mán-
aðamót. Verið væri að vinna að
nýrri úttekt á fiskistofnunum sem
sæi vonandi dagsins ljós í lok maí.
Aðgerðarleysi er
spákaupmennska
eftirTryggva Pálsson
Skýringar á taprekstri
Á íslandi hefur allt of lengi talist
góð og gild afsökun fyrir taprekstri
fyrirtækis að gengisþróun hafi verið
óhagstæð. Á dæmigerðum aðal-
fundi félags, sem starfar við inn-
eða útflutning, flytur forstjórinn
slæm.u fréttirnar af gengistapinu.
Hluthafarnir veigra sér við að spytja
hvort ekki hefði mátt koma í veg
fyrir gengisáhættuna og fjölmiðlar
birta frásögnina án frekari skýr-
inga.
Stjórnendum fyrirtækja hefur
verið nokkur vorkunn í þessu efni.
Bankarnir hafa veitt takmarkaða
ráðgjöf og' til skamms tíma var
erfiðleikum bundið að veijast
gengisáhættu. Það virðist hins veg-
ar hafa farið framhjá mörgum, að
nú eru breyttir tímar. Stjórnvöld
hafa frá og með síðustu áramótum
aflétt flestum þeim höftum, sem svo
lengi hafa takmarkað svigrúm ís-
lenskra fyrirtækja til varnarað-
gerða.
Hefðin rofin
Aðalfundur Granda hf., sem hald-
inn var sl., föstudag, rýfur þessa
hefð aðgerðarleysis og afsakana.
Eins og lesa mátti í Morgunblaðinu
daginn eftir, ijölluðu æðstu stjórn-
endur fyrirtækisins með ábyrgum
hætti um orsakir tapsins og hvernig
þeir muni sjálfir draga úr gengis-
áhættu. Er full ástæða til að veita
orðum þeirra mikla eftirtekt.
Árni Vilhjálmsson, formaður
stjórnar, sagði m.a.: „Vera má, að
okkur hafi orðið á mistök í áætlana-
gerð í því, að hafa ekki hugað að
eðlilegum væntingum í gengisþró-
un, og að dregist hafi úr hömlu að
aðlaga skuldasamsetningu okkar að
þeim breytingum, sem orðið hafa á
síðustu misserum í samsetningu
afurðasölu okkar eftir myntum, en
vægi þýskra marka hefur stóraukist
á kostnað dollara."
. Upplýst var að á þrem síðustu
mánuðum ársins hefði gengistap
félagsins verið 154 milljónir kr. Þar
af voru 90 milljónir kr. vegna
gengisfellingar krónunnar í nóvem-
ber sl, sem var fyrsta gengisfelling-
in í þijú ár. Afgangurinn 64 milljón-
ir kr. varð vegna þess, að Banda-
ríkjadollar og japanskt jen vega
þyngra í skuldum Granda en í
myntkörfu Seðlabankans, þ.e.a.s.
vegna misvægis í fjármagnsupp-
byggingunni að þessu leyti.
I ræðu Brynjólfs Bjarnasonar,
framkvæmdastjóra, kom m.a. fram
að stjómendur fyrirtækisins hafa
lagt vinnu í að nota nútímatækni
til að breyta skuldasamsetningu
þess. Verið sé að gera samninga
um gjaldmiðlaskipti auk vaxta-
skipta til að ná meiri jöfnuði í sam-
setningu tekna og skulda og vinna
með því móti gegn áhættu á gengis-
tapi.
Grandi hf. er í framvarðarsveit
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
Eftirtektarvert hefur verið að fylgj-
ast með markvissum aðgerðum
fyrirtækisins frá sameiningu þess.
Skipulag veiða og vinnslu hefur
verið endurmótað frá grunni og
margar nýjungar hafa komið fram
varðandi samstarf við erlenda aðila.
Meðal bankamanna er fyrirtækið
þekkt fyrir styrka fjármálastjóm.
Með þeim aðgerðum sem stjórnend-
ur Granda hafa ákveðið að grípa
til sýna þeir athyglisvert frumkvæði
í að bæta eigna- og skuldastýringu
fyrirtækisins nú þegar tækifæri til
slíks hafa skapast.
Hvað hefur breyst?
Lögum nr. 87/1992 um gjald-
eyrismál og reglugerð nr. 471/1992,
sem gefin var út í lok liðins árs í
kjölfar laganna, hafa markað tíma-
mót. Nú er almenna reglan sú, að
gjaldeyrisviðskipti vegna inn- og
útflutningsvöru og þjónustu og ijár-
magnshreyfinga eru fijáls. Enn eru
nokkrar takmarkanir í gildi en þær
verða nánast horfnar í ársbyijun
1995.
Gjaldmiðlaskiptasamninga (curr-
ency swaps) og vaxtaskiptasamn-
inga (interest rate swaps) má nú
gera á grundvelli erlendra lána-
samninga. Þeir munu án efa verða
töluvert nýttir af stjómendum fyrir-
tækja til að draga úr gengis- og
vaxtaáhættu. Samt má búast við
því, að mest eftirspurn verði eftir
framvirkum gjaldeyriskaupum og
-sölu (forward contracts). Ekki er
einungis leyft að eiga framvirk við-
skipti með tvær erlendar myntir
Tryggvi Pálsson
„Hægl er að skipuleggja
fjármálastjórnina með
þeim hætti að samræmi
sé í þeim gjaldmiðlum
sem tekjur og lántökur
eru í. Þeir möguleikar
hafa lengi verið fyrir
hendi en það getur verið
kostnaðarsamt að
breyta þegar teknum
lánum eða greiðsluvenj-
um.“
heldur má nú kaupa og selja íslensk
ar krónur gegn erlendum gjaldmiðl
um fram í tímann.
Innlendir bankar hafa ger
skiptasamninga og framvirka samn
inga fyrir viðskiptamenn og vegn;
eigin þarfa. Þó hefur enginn þeirr,
auglýst þjónustu sína enn opinber
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 1993
23
Kröfuhafar Hagvirkis-Kletts samþykkja nauðasamningsfrumvarp um 40% greiðslu af höfuðstóli
Nær 80% kröfuhafa vilja
ganga til nauðasamninga
NAUÐASAMNINGSFRUMVARP Hagvirkis-Kletts hlaut í gær samþykki
tilskilins meirihluta kröfuhafa á fundi sem boðað var til á vegum félags-
ins. 79,36% kröfuhafa sögðu já við frumvarpinu og réðu þeir samtals
yfir um 201 milljón króna, eða um 67,20% af heildarfjárhæð þeirra
krafna sem lýst var og forsvarsmenn Hagvirkis-Kletts gerðu ekki ágrein-
ing við. „Ég er mjög ánægður með þann almenna stuðning sem við
höfum fengið hjá kröfuhöfum,“ sagði Jóhann G. Bergþórsson forstjóri
Hagvirkis-Kletts við Morgunblaðið í lok fundarins í gær. Af 9 kröfuhöf-
um sem sögðu nei og fóru samtals með 83 milljóna kröfur, vógu at-
kvæði ríkissjóðs langþyngst hvað fjárhæðir varðar, en auk þess var m.a
í þeim hópi Ragnar H. Hall, skiptastjóri þrotabús Fórnarlambsins og
smærri kröfuhafar.
Ragnar H. Hall fékk viðurkenndan
atkvæðarétt vegna um 3,5 milljóna
af þeim 570 milljóna kröfum sem
hann lýsti vegna nauðasamninganna.
Kröfur íslandsbanka, 94,7 millj., og
Iðnlánasjóðs, 151,2 millj., fengust
ekki teknar á kröfuskrá þar sem
trygging var fyrir kröfum þeirra í
eignum Hagvirkis-Kletts en nauða-
samningar ná aðeins til ótryggðra
samningskrafna.
Lýsti 57% krafna en fékk 0,3%
atkvæða
I kröfuskrá sem lögð var fram á
fundinum kemur fram að lýst var
vegna nauðasamninganna kröfum að
fjárhæð 990 milljónir króna. Þar af
átti þrotabú Fórnarlambsins, áður
Hagvirkis, um 570 milljóna króna
kröfur, eða tæp 57% af heildinni, en
þrotabúið hefur sem kunnugt er feng-
ið allar óveðsettar eignir Hagvirkis-
Kletts kyrrsettar til tryggingar riftun-
arkröfum sínum á hendur fyrirtæk-
inu. Staðfestingarmál vegna þess er
til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykja-
ness. Af hálfu Hagvirkis-Kletts var á
fundinum í gær gerður ágreiningur
við allar kröfur Fórnarlambsins að
frátöldum 3-4 milljóna króna húsa-
leigukröfum og fór því bústjóri Fórn-
arlambsins með rúmlega 0,3% at-
kvæða við afgreiðslu nauðasamnings-
frumvarpsins.
Þegar niðurstaða úr atkvæða-
greiðslu lá fyrir lýsti Ragnar Hall því
yfir að hann mundi mótmæla við
Héraðsdóm Reykjaness beiðni Hag-
virkis-Kletts um staðfestingu frum-
varpsins sem bindandi nauðasamn-
ings.
Vilyrði fyrir 82 millj. hlutafé
Jóhann G. Bergþórsson stjórnar-
formaður Hagvirkis-Kletts sagðist í
samtali við Morgunblaðið afar ósáttur
við afstöðu fulltrúa ríkisvaldsins á
fundinum, sem hann sagðist telja
andstæða hagsmunum skattgreið-
enda og einnig við afstöðu Ragnars
H. Hall bústjóra Fórnarlambsins.
Hann sagði að'fyrirtækið mundi verja
máistað sinn gegn andmælum bú-
stjórans fyrir Héraðsdómi Reykjaness
þegar samningsfrumvarpið verður
innan skamms lagt fyrir dóminn til
staðfestingar. Hjá Jóhanni kom fram
að fyrirtækið hefði fengið skrifleg
vilyrði fyrir 82 milljóna hlutafjár-
aukningu og munnleg fyrirheit um
enn frekari hlutafjárframlög fáist
nauðasamningar staðfestir.
Verði samningarnir staðfestir
greiðir Hagvirki-Klettur kröfuhöfum
5% krafna í reiðufé innan 2 vikna og
5% til viðbótar innan 3 mánaða og
auk þess 10% með 5 ára skuldabréfi
með 5% vöxtum. 20% geta kröfuhafar
valið um að fá greitt með hlutabréfum
í fyrirtækinu eða með vaxtalausum
óverðtryggðum skuldabréfum til 5
ára. í máli Jóhanns kom fram að við
mat á efnahag fyrirtækisins ef til
rekstrarstöðvunar kæmi hefði verið
talið að fjármunir þess dygðu til
greiðslu á 18% af höfuðstóli krafna.
Umdeildur sjónvarps-
þáttur tekinn af dagskrá
ÞÁTTURINN „Hver á að sýna?“ var óvænt tekinn af dagskrá sjónvarps-
ins í gærkvöldi þar sem hann braut í bága við ákvarðanir úvarpsráðs
um innihald. Það var Sigmundur Orn Arngrímsson settur dagskrár-
stjóri sem tók ákvörðun um að sýna ekki þáttinn. Sigmundur segir að
ekki hafi verið staðið við þá ákvörðun útvarpsráðs að ekki yrði fjallað
um hugsanlega sölu eða leigu á Háskólabíói. Ragnar Halldórsson umsjón-
armaður þáttarins segir að hann hafi tekið undir óskir útvarpsráðs með
því að fjalla ekki sjálfur um bíóið en það hafi aldrei hvarflað að honum
að útvarpsráð ætlaði að ritskoða málflutning viðmælenda í þættinum.
Þátturinn fjallar um möguleikana
á því að koma upp kvikmyndahúsi
þar sem almenningi gæfist kostur á
að sjá ailar íslenskar myndir svo og
vandaðar listrænar erlendar myndir.
í þættinum er bent á Háskólabíó sem
slíkt hús en útvarpsráð hafði ákveðið
að ekki mætti tjalla um bíóið með
þessum hætti þar sem það er hvorki
til sölu eða leigu. Gæti slík umfjöllun
skaðað viðskiptahagsmuni bíósins.
í valdi Útvarpsráðs
Sigmundur segir. að umsjónar-
manni þáttarins, Ragnari Halldórs-
syni, hafi verið fullkunnugt um vilja
útvarpsráðs í þessum efnum. Að-
spurður um hvort útvarpsráð gæti
ráðið innihaldi ákveðinna þátta í dag-
skrá sjónvarpsins með þessum hætti
segir Sigmundur að hann líti þannig
á. „Það segir í útvarpslögunum að
ákvarðanir útvarpsráðs í þessum efn-
um séu endanlegar,“ segir Sigmundur.
Ragnar Halldórsson segir að hann
hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum
með þessa ákvörðun Sigmundar dg
að honum finnist ótrúlegt að það fólk
sem kemur fram í þættinum megi
ekki tjá sig um þessa hluti.
A
Bankastjóri Islandsbanka um vaxta-
lækkunarhvatningu forsætisráðherra
Lítið svigrúm til
vaxtalækkunar
Lánsfjárþörf ríkisins hefur mest áhrif á vexti
VALUR Valsson, bankastjóri Islandsbanka, segir að svigrúm til
nafnvaxtalækkunar sé mjög þröngt um þessar mundir. Davíð Odds-
son forsætisráðherra hvatti bankana til að lækka vexti í þingræðu
í fyrradag og sagði að ærin ástæða væri til slíks, á grundvelli lágr-
ar verðbólguspár. Valur segir hins vegar að lánsfjárþörf ríkissjóðs
sé sá þáttur, sem mest áhrif hafi á vaxtaþróunina.
lega heldur kynnt hana þess í stað
með fræðslufundum og heimsókn-
um til viðskiptavina. Er það á vissan
hátt skiljanlegt í ljósi þess, að all-
nokkra þekkingu er nauðsynlegt að
viðskiptavinurinn hafi áður en
samningur er gerður og ráðleggja
þarf hveijum og einum miðað við
aðstæður hvers fyrirtækis.
Samkeppni í þjónustu
íslenskir bankar og sparisjóðir
hafa þegar fengið samkeppni frá
erlendum bönkum. I heimsóknum
fulltrúa þeirra til landsins á undan-
förnum misserum hafa nokkrir
bankanna boðið íslenskum fyrir-
tækjum, sjóðum og stofnunum þjón-
ustu sína í gjaldeyris- og vaxtastýr-
ingu. Á þessu sviði verða íslensku
bankarnir og sparisjóðirnir að
standa sig því þörfin er fyrir hendi
og ástæðulaust er að gefa erlendum
bönkum eftir viðskiptin. Samkeppn-
in er hvetjandi og mun án efa
harðna. Það er álit mitt, að fyrir-
tæki muni ekki leita eingöngu til
viðskiptabanka síns heldur hafi
samband við fleiri. Hvaða banki nær
forystu á þessu sviði mun ráðast
af verði, þekkingu og þjónustu.
Vönduð ráðgjöf er afar mikilvæg
og í því efni hafa bankar og spari-
sjóðir mikið verk að vinna til hags-
bótar fyrir atvinnulífið. Grund-
vallaratriðið er, að draga úr þeirri
gengis- og vaxtaáhættu sem óhjá-
kvæmilega fylgir rekstri. Hægt er
að skipuleggja fjármálastjórnina
með þeim hætti að samræmi sé í
þeim gjaldmiðlum sem tekjur og
lántökur eru í. Þeir möguleikar hafa
lengi verið fyrir hendi en það getur
verið kostnaðarsamt að breyta þeg-
ar teknum lánum eða greiðsluvenj-
um.
Þá er hættan sú, að ekki sé grip-
ið til aðgerða þó svo aðstæður breyt-
ist. Því miður eru mörg dæmi um
það, að sjávarútvegsfyrirtæki séu
enn með Bandaríkjadollar sem ráð-
andi mynt í teknuin lánum, þó svo
Evrópumyntir og japönsk jen hafi
fyrir löngu leyst dollarann af hólmi
í útflutningstekjunum.
Nýjungin er, að nú hafa bæst við
í verkfærakassa fjármálastjóra
margháttuð tæki til að breyta tekju-
og skuldasamsetningu án þess að
breyta þegar teknum lánum eða
þeim gjaldmiðlum sem greiðslur
berast í. Fyrrnefndir skiptasamn-
ingar og framvirkt gengi eru dæmi
um það. Gera þarf sér grein fyrir
hvers eðlis áhættan er og skoða
heildarmyndina en ekki t.d. áhættu
einstakra lána eða greiðslna. Að
lokum á að Velja sér aðgerðir til
mótvægis, því aðgerðarleysi er nær
undantekningarlaust versti kostur-
inn.
Stjórnendur dregnir fyrir dóm?
I tímaritinu Economist 13. mars
sl. var að finna athyglisverða frá-
sögn í þessu sambandi. Sagt var frá
stjórnendum lítils samvinnufyrir-
tækis í Indiana í Bandaríkjunum,
sem voru dregnir fyrir dóm af eig-
endunum. Stjórnendurnir voru síðan
dæmdir fyrir að hafa ekki dregið
úr áhættu i rekstrinum með því að
nýta sér möguleika í nútíma fjár-
málastjórn. Þeir áfrýjuðu dómnum
en töpuðu áfrýjuninni í júní í fyrra.
Glæpur stjórnendanna fólst í því að
hafa ekki tryggt verðmæti korns,
sem þeim hafi verið falið að selja,
með því að nota sér framvirkan
markað.
Þegar verðfall varð á korninu
urðu eigendumir fyrir tapi, sem
hefði verið hægt að komast hjá. í
Bandaríkjunum, landi lögsóknanna,
er að sögn tímaritsins nú búist við
að fleiri mál af svipuðum toga muni
koma fyrir dómstóla. Ekki er að
vænta að hið sama gerist á íslandi.
Samt segir mér hugur eftir aðalfund
Granda, að hluthafar og stjórnendur
í íslenskum fyrirtækjum muni átta
sig betur á, að aðgerðarleysi er spá-
kaupmennska.
Höfundur er framkvæmdustjóri í
íslandsbanka.
„Nafnvextir hafa farið lækkandi
að undanförnu,“ sagði Valur í sam-
tali við Morgunblaðið. Meðalárs-
ávöxtun nýrra, almennra lána var
14,7% 1. febrúar en er núna 13,4%.
Á algengustu skuldabréfalánum
íslandsbanka hafa nafnvextir lækk-
að síðustu þijá mánuði um U/2%.
Það er rétt að hafa í huga að þeg-
ar verðbólgan jókst snögglega
fyrstu mánuði ársins, og var til
dæmis 6,5% í febrúar, fylgdu bank-
ar og sparisjóður þeirri þróun ein-
ungis að hluta. Þess vegna tekur
lengri tíma að laga vextina að lækk-
un verðbólgunnar.11
Ríkið býður háa innlánsvexti
Hann benti einnig á að ríkisvíxl-
ar hefðu í síðasta útboði verið seld-
ir með 9,01% meðaltalsvöxtum og
ríkisverðbréf til sex mánaða á
11,5%. „Þetta eru innlánsvextir,
sem ríkið býður, en á sama tíma
eru kjörvextir víxla í íslandsbanka
10,2% og þetta eru beztu útláns-
vextir, sem við bjóðum. Þess vegna
er augljóst að svigrúm til lækkunar
nafnvaxta er ekki stórt og óneitan-
lega er nokkur óvissa um framvindu
mála, til dæmis í ljósi hugsanlegra
aðgerða vegna vanda sjávarútvegs-
ins. Nafnvextir eru hins vegar stöð-
ugt til skoðunar og verða það
áfram,“ sagði Valur.
Ekki efnahagslegar forsendur
fyrir lækkun
Hann sagði ljóst að þegar láns-
fjárþörf ríkisins færi vaxandi og
sparnaður ykist ekki, heldur dræg-
ist saman, væru ekki efnahagslegar
forsendur fyrir lækkun raunvaxta.
„Það kemur því ekki á óvart að
síðastliðna tvo mánuði hafa vextir
spariskírteina á eftirmarkaði verið
nær óbreyttir og reyndar hækkað
aðeins síðustu vikurnar. Það er
engum vafa undirorpið að halli rík-
issjóðs og lánsfjárþörf ríkisins í
heild er sá þáttur, sem hefur mest
áhrif á vaxtaþróun í landinu,“ sagði
Valur.
Bankastjórar Landsbankans
vildu ekki tjá sig um ummæli for-
sætisráðherra. Ekki náðist í banka-
stjóra Búnaðarbankans eða for-
mann Landssambands sparisjóða.