Morgunblaðið - 05.05.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1993
41
Hver er bótaskylda efnalauga?
Frá Þorbjörgu Pálsdóttur:
Það er vafalítið ekkert einsdæmi
að tjón verði á taui í meðförum
efnalauga. í því sambandi vaknar
sú spurning, hvað valdi því og hver
skuli bera skaðann. Sú skýring sem
virðist liggja næst, er að mistök
hafi átt sér stað við hreinsunina. I
því sambandi má hugsa sér t.d. að
meðferð á viðkomandi taui hafi
ekki verið í samræmi við leiðbein-
ingar framleiðanda. Slíkt getur
gerst af vangá eða vegna skorts á
þekkingu um viðkomandi efni.
Þegar viðskiptavinur leitar að-
stoðar efnalaugar, gerir hann ráð
fýrir fagmennsku og góðri kunnáttu
starfsmanna. Hann leggur því
vandamálið í hendur þjónustuað-
ilanum til bestrar mögulegrar
lausnar. Á umsömdum tíma sækir
hann síðan vöruna. Nú vita flestir,
að sumir blettir eru mjög erfiðir
viðfangs. í því sambandi verður að
hafa í huga, að ekki má ofbjóða
tauinu við tilraunir til að fjarlægja
blettinn. Eigandanum er lítill greiði
gerður ef í stað litla blettsins er
kominn annar enn stærri vegna
ofníðslu á tauinu. Slíkt getur vart
talist fagmennska.
Undirritaður fór með áklæði af
dýru sófasetti í efnalaugina Úðafoss
á síðastliðnu ári. Árið þar á undan
hafði sama áklæði verið hreinsað
af efnalauginni Kjól og hvítt með
frábærum árangri, enda töldu
starfsmenn þar efnið auðhreinsan-
legt, ef rétt væri með farið. Tilefni
hreinsunarinnar þessu sinni, var að
smábarn hafði kastað upp og æla
farið í einn púða af alls 6. Þá hafði
einnig æla farið á bakhluta sófans,
en sá hluti áklæðisins er ekki fjar-
lægjanlegt með sama hætti og
áklæði á púðum. Bæði púði og bak
voru hreinsuð eftir bestu getu með
volgu vatni. Á bakinu sjást engar
menjar um óhappið. Það skal tekið
fram, að þótt skolað hafi verið af
púðaáklæðinu, var enn töluverð
ælulykt af verinu. Þar sem svo vel
hafði tekist að hreinsa áklæðið árið
áður, var ákveðið að senda öll verin
til hreinsunar, en ekki aðeins þetta
eina sem æla hafði farið í.
Tilviljun ein réði því að ekki var
leitað til sama aðila og árið áður
,og harmar undirritaður það mjög.
Þegar verin voru sótt kom í ljós að
þau voru öll orðin ljósflekkótt (ekki
aðeins það ver sem æla hafði farið
í heldur öll). í meðferðinni höfðu
verin aflitast vegna notkunar á
blettaefnum sem ekki má nota á
þessa tegund áklæðis. Væntanlega
til að dylja mistök sín, og til að
friðþægja viðskiptavininum, bauðst
eigandinn til að hreinsá þau einu
sinni enn. Hvernig í ósköpunum
dettur fagmanni í hug, að reyna
að hreinsa burt bletti sem stafa af
aflitun?!!! Ofan á þetta allt bættist
síðan dónaleg framkoma eigandans,
sem taldi sig enga ábyrgð bera í
þessu máli. Hann hélt því fram, að
svo mikil æla hefði verið í verunum,
að hann hefði ekki haft í sér geð
til að taka verin í sundur, heldur
fleygt þeim öllum eins og þau komu
inn í vélina. Það eru nægjanleg vitni
til um það, í hvaða ástandi verin
voru þegar þau fóru í hreinsunina'
og er því hér um hrein ósannindi
að ræða. Það segir sig einnig sjálft
að hafi starfsmennirnir ekki flett
áklæðunum í sundur, þá eru þeir
heldur ekki til frásagnar um ástand
þeirra fyrir „hreinsunina".
Eftir þessi ókurteisu samskipti •
við efnalaugina, ákvað undirritaður
að snúa sér til neytendasamtak-
anna. Þar taldi ég líklegt að finna
fýrir kappsama og dugmikla að-
stoð. í fávisku minni taldi ég mig
aðeins þurfa að skýra frá málavöxt-
um og síðan myndu þeir keyra
málið áfram fýrir mína hönd. í stað
þess mætti ég áhugaleysi og tor-
tryggni. Þá virtist lítið sem ekkert
gerast í fleiri vikur. Niðurstaðan
varð sú að aðeins hlaust viðbótar-
umstang og töf af þessum sam-
skiptum. Þar sem efnalaugin vildi
ekki af fijálsum vilja greiða neinar
bætur töldu fulltrúar neytendasam-
takanna sig ekki geta gert meira í
málinu. Þeir töldu að hér væri vissu-
lega um bótaskylt mál að ræða, en
rétti yrði ekki fullnægt án aðstoðar
lögfræðings fyrir dómstólum. Slíkt
tækju þeir ekki að sér. Svo mörg
voru þau orð.
Þá var að finna lögfræðing. Nú
er það hreint ekkert gamanmál að
kalla til lögfræðing og leggja út í
umtalsverða kostnaðaráhættu sam-
fara hugsanlegri málsókn. Eru það
kannski einhveijir sem treysta því
að maður láti af þeim sökum mál
kyrrt liggja? Það reyndist torsótt
að finna lögfræðing sem var reiðu-
búinn að taka málið að sér. Það
læðist að manni sá grunur, að mál
sem þetta sé ekki nægilega girni-
legt að því er tekjur varðar fýrir
lögfræðinga. Þeir hafi því ekki
áhuga á málinu burt séð frá sekt
eða sakleysi. Þá vaknar sú spurn-
ing, hvort þessi stétt leyfi sér að
hafha minni verkunum meðan t.d.
læknar sinna jafnt smá kveisum
sem hjartauppskurðum.
Það er sárt að láta í minni pok-
ann þegar maður er sannfærður
um réttmæti málflutnings síns. Mér
er ljóst að bætur hljóti ég tæplega
úr því sem komið er. Það er von
mín, að með þessum skrifum, verði
viðkomandi vaktir til umhugsunar
og vonandi jákvæðrar breytni. Við
aðstæður sem þessar má vera ljóst,
að veruleg áhætta getur fylgt því
að fara með dýrar flíkur eða áklæði
í Úðafoss.
ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Sjafnargötu 14,
Reykjavík.
LEIÐRÉTTIN G AR
Dansinn
í myndatexta í grein um íslands-
meistarakeppni í dansi í Morgun-
blaðinu í gær sagði, að íslands-
meistaramir í flokki 7 ára og yngri,
þau Sigurður Ágúst Gunnarsson og
María F. Þórsdóttir, væru frá Dans-
skóla Heiðars Ástvaldssonar. Það
er ekki rétt, heldur eru þau frá
Dansskóla Auðar Haralds. Beðist
er velvirðingar á þessu mishermi.
Þá féllu niður úrslit í standard-
dönsum 14 til 15 ára. Þar urðu í
fyrsta sæti Victor Victorsson og
Jóhanna Ella Jónsdóttir, í öðru
sæti Ólafur Már Sigurðsson og
Hilda Stefánsdóttir og í þriðja Jón
Ágústsson og Henríetta Magnús-
dóttir. Þau eru öll frá Nýja
dansskólanum.
í latin-dönsum 12-13 ára var
Inga Dröfn Óladóttir dansféllagi
Hallgríms Jónssonar, en ekki Erla
Eyjólfsdóttir, eins og ranghermt
var. Þá var ekki rétt farið með
nöfn parsins, sem varð í 3. sæti í
latin-dönsum 14-15 ára. Það sæti
skipuðu Ásgeir Jón Einarsson og
Hrafnhildur Benediktsdóttir frá
Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar.
Þá féllu niður nöfn sigurvegara
í A-riðli 50 ára og eldri í latíndöns-
um og standarddönsum. í latíndöns-
um urðu Hafsteinn Sigurðsson og
Ágústa Hjálmtýsdóttir frá Dans-
skóla Jóns Péturs og Köru í fyrsta
sæti og í öðru sæti Jón Freyr Þórar-
insson og Matthildur Guðmunds-
dóttir frá Dansskóla Sigurðar Há-
konarsonar, en þriðja parið er einn-
ig frá þeim skóla, Sigurður Stein-
grímsson og Margrét Sigurðardótt-
ir.
í standarddönsum urðu hlut-
skörpust í A-riðli Hafsteinn Sig-
urðsson og Ágústa Hjálmtýsdóttir,
í öðru sæti Arngrímur Marteinsson
og Ingibjörg Sveinsdóttir öll frá
Dansskóla Jóns Péturs og Köru og
í þriðja sæti urðu Jón Freyr Þórar-
insson og Matthildur Guðmunds-
dóttir frá Dansskóla Sigurðar Há-
konarsonar. Hlutaðeigandi eru
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum. ___________
Gaf sig ekki
fram
Ranghermt var í frétt á blaðsíðu 2
í Morgunblaðinu í gær að 15 ára
piltur sem réðist á roskinn bakara
í bakaríinu í Kleifarseli á laugar-
dagsmorgun hefði gefið sig fram
við lögreglu. Rétt er að lögreglu-
menn í Reykjavík rannsökuðu mál-
ið, leituðu piltsins, fundu hann sið-
degis á laugardag í leiktækjasal í
borginni og handtóku hann þar.
6 fóru yfir
markið
í frétt í laugardagblaðinu var
sagt að 25 manns frá landbúnaðar-
ráðuneytinu hefðu farið yfir 400
þúsund krónur í dagpeninga á síð-
astliðnu ári. Hið rétta er að það
voru 6 aðilar, sem það gerðu. Hins
vegar voru 25 starfsmenn frá sjáv-
arútvegsráðuneyti, sem fóru yfir
400 þúsund krónur, en það féll nið-
ur í fréttinni.
___________ Brids_____________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
íslandsmót í parakeppni 1993
íslandsmót í parakeppni (tvímenn-
ing) verður haldið í Sigtúni 9, um
næstu helgi. 40 pör hafa þegar skráð
sig til kepþni en síðasti skráningardag-
ur er miðvikudagurinn 5. maí. Spilað-
ur er barómeter, tvö spil á milli para
og fer því lengd keppninnar eftir því
hve mörg pör veða með. Skráning er
á skrifstofu Bridssambands íslands í
síma 91-689360.
Vetrarmitcell Bridssambands
íslands
Góð þátttaka var í vetrarmitcell BSÍ,
föstudaginn 30. apríl. 47 pör spiluðu
og urðu úrslit þannig.
N/S riðill:
AlfreðKristjánsson-EggertBergsson 543
KjartanJóhannsson-SævarJónsson 519
Annaívarsdóttir-GyjfiBaldursson 506
AndrésÁsgeirsson-ÁsgeirSigurðsson 480
Guðra.Kr.Sigurðsson-JónÞórKarlsson 479
A/V riðill:
Ingibjörg Grimsdóttir - Þórður Bjömsson 528
PállÞórBergsson-ViðarJónsson 511
Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn Sigurðsson 475
Sturia Snæbjömsson - Rósmundur Guðmundsson
474
Jóhannes-Ágústsson-FriðrikFriðriksson 472
Spiiað er í Sigtúni 9 á föstudags-
kvöldum og hefst spilamennska kl. 19»-'
Öllum er frjálst að mæta og skráning
er á staðnum.
Bridsdeild Félags eldri
borgara
Tíu pör spiluðu 29. apríl.
Röð efstu para:
Gísli Guðmundsson - Eyjólfur Halldórsson 143
Eysteinn Einarsson - Bergsveinn Breiðfjörð 120
BaldurHelgason-HaukurGuðmundsson 118
IngólfurHelgason-HannesIngibergsson 118
Meðalskor 108.
2. maí spiluðu 16 pör.
Helga Helgadóttir - Kristrún Kristjánsd. 238
BaldurHetgason-HaukurGuðmundsson 134 -
Hlaðgerður Ingólfsdóttir - Rut Pálsdóttir 131
ÞorsteinnErlingsson-JónMapússon 131
Meðalskor 210.
VELVAKANDI
AFLEITUR SJON-
VARPSÞÁTTUR
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
sýndur í Sjónvarpinu 1. þáttur
af fjórum sem bar heitið Þjóð í
hlekkjum hugarfarsins. Ekki ein-
ungis fannst mér þessi þáttur illa
gerður, heldur koma fram í hon-
um sjúklegt hatur á íslenskri
menningu og bændastéttinni
allri. Ég vil mótmæla að svona
löguðu sé dembt yfir þjóðina og
vona jafnframt að næstu þættir
verði menningar- og málefna-
legri.
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gullúr
KVEN-GULLÚR tapaðist sl.
sunnudag, trúlega á leiðinni frá
Dunhaga, upp á Bergþórugötu,
í blómabúðina í Domus Medica
og síðan á Tunguveg. Finnandi
vinsamlega hringi í síma 37919.
Týndur jakki
SUMARDAGINN fyrsta lagði
drengur frá sér svartan
' ............
mittisjakka á tröppunum á móti
Sparisjóði Hafnarfjarðar við
Strandgötu á meðan hann tók
þátt í víðavangshlaupinu. Jakk-
inn er með leðurermum, gulum
smellum og rennilás. Myndir og
stafir á bakinu. í vasanum á
jakkanum var úr með blárri
leðuról. Jakkans er sárt saknað.
Hafi einhver orðið hans var er
hann vinsamlega beðinn að hafa
samband í síma 54095.
Hálsmen tapaðist
HÁLSMEN með semelíusteinum
og silfurkeðju tapaðist á skírdag,
8. apríl, á leiðinni frá Hótel Sögu
að Grenimel. Finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma 10067.
Fundarlaun.
Hanskar fundust
BRÚNIR kvenhanskar, leður,
fundust í bás Heildverslunarinn-
ar Esju á garðyrkjusýningunni í
Perlunni sl. sunnudag. Upplýs-
ingar í síma 687020.
Muddy-Fox hjól
RAUTT Muddy-Fox hjól fannst
f Breiðholti. Upplýsingar í síma
72405.
Ráðstefna um efnahagsmál,
efnahagsstefnu og atvinnumál
veróur haldin laugardaginn 8. maí nk. kl. 1 2.00 til 16.00
í Ársal, Hótel Sögu.
Dagskrá:
Ávarp fjármálaráóherra, Fridriks Sóphussonar. -
Dr. Siguróur B. Stefánsson, framkvstj.:
Efnahagsmál: Tíundi áratugurinn.
Dr. Guómundur Magnússon, prófessor:
Velferð á ótraustum grunni - vaxtarkreppa og
stjórnbrestir á Norðurlöndum.
Haraldur Sumarlióason, forseti
Landssambands iónaóarmanna:
Staða iðnaðarins í atvinnulífinu.
Dr. Stefán Ólafsson, prófessor:
Pólitískar og félagslegar forsendur hagvaxtar.
Umrϗur og fyrirspurnir.
Ráóstefnustjóri: Davió Scheving Thorsteinsson.
Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um efnahags-
og atvinnumál.
Landsmálafélagid Vöréur
SunmdagareruKompudagar
íKoIaportinu!
Okkar vantar alltafmeira afþessu
sívinsæla kompudóti og nú bjóðum við
30% afslátt ú leiguverði slíkra sölubása.
Sölubásarnir kosta þá aðeins
kr. 2.450.- og 3.150.-
Drífið í vorhreingerningunum og búið til
tugþúsundir króna úr gamla kompudótinu!
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Sími 62 50 30
TEIKNAD HJA TÓMASI