Morgunblaðið - 08.05.1993, Blaðsíða 13
13
AIORG UXBIADIB LAUGAIiDAGUll. & .ilAÍ 1993
Alþingi og utanríkismál
MUdlvæg sátt í
eftir Björn Bjarnason
Á Alþingi í vetur hafa verið
teknar ýmsar mikilvægar ákvarð-
anir um utanríkismál. I fyrsta lagi
samþykkti þingið aðild íslands að
evrópska efnahagssvæðinu (EES).
í öðru lagi samþykkti Álþingi
aukaaðild Islands að Vestur-Evr-
ópusambandinu (VES). í þriðja
lagi kom fram í tilefni af skýrslu
stjórnskipaðrar nefndar um örygg-
is- og vamarmál að minni ágrein-
ingur er um þau mál innan Alþing-
is en áður; gildi aðildarinnar að
Atlantshafsbandalaginu (NATO)
og varnarsamstarfsins við Banda-
ríkin nýtur víðtækrar viðurkenn-
ingar. I fjórða lagi náðist þverpóli-
tískt samkomulag um stefnu ís-
lands gagnvart Evrópubandalag-
inu (EB) í framhaldi af gerð samn-
ingsins um evrópska efnahags-
svæðið.
Allar eiga þessar ákvarðanir og
umræður eftir að hafa áhrif á stöðu
og stefnu íslands á alþjóðavett-
vangi. Þær taka mið af hinum
breyttu aðstæðum í heimsstjórn-
málum. Umræður um framtíð
Keflavíkurstöðvarinnar og varnar-
viðbúnaðinn þar eru tiþmarks um
þessar breytingar. Á miklum
breytingatímum er mikilvægt að
menn hafi fast land undir fótum
við stefnumótun. í því efni er
varnarsamningurinn við Bandarík-
in frá 1951 og aðildin að Atlants-
hafsbandalaginu slík fótfesta
ásamt viðurkenningunni á því, að
við íslendingar höfum eins og aðr-
ar þjóðir varanlegra öryggishags-
muna að gæta.
Sátt í Evrópumálum
Eftir hinar hörðu deilur sem
orðið hafa á Alþingi og annars
staðar á pólitískum vettvangi um
aðild íslands að evrópska efna-
hagssvæðinu (EES) hefði mátt
ætla að erfítt yrði fyrir stjórnmála-
flokkana að ná samkomulagi ura
framtíðarstefnu í Evrópumálum. Á
vettvangi utanríkismálanefndar
Alþingis, þar sem rætt hefur verið
um EES á um það bil 100 fundum
undanfarnar vikur og mánuði,
tókst þó slíkt samkomulag um
hvernig staðið skuli að gæslu ís-
lenskra hagsmuna gagnvart Evr-
ópubandalaginu (EB) í framhaldi
af gerð EES-samningsins. Var
samkomulagið samþykkt sam-
hljóða á Alþingi hinn 5. maí
skömmu eftir lokaatkvæðagreiðsl-
una um EES-samninginn.
Allir utanríkismálanefndarmenn
stóðu að flutningi eftirfarandi til-
lögu til þingsályktunar um tvíhliða
samskipti Islands og EB: „Alþingi
ályktar að í framhaldi af gerð
samningsins um Evrópska efna-
hagssvæðið skuli teknar upp við-
ræður við Evrópubandalagið um
tvíhliða samskipti þess og Islands,
einkum með hliðsjón af því að
Austurríki, Finnland, Noregur og
Svíþjóð hafa sótt um aðild að
bandalaginu. Því felur Alþingi rík-
isstjóminni að undirbúa slíkar við-
ræður um hugsanlegan tvíhliða
samning og tilkynna fram-
kvæmdastjórn Evrópubandalags-
ins um þennan vilja Alþingis.“
í áliti utanríkismálanefndar
kemur fram að ákaflega mikilvægt
sé að enginn vafi ríki um afstöðu
íslands til EB. Verði EFTA-ríkin
ijögur sem nefnd eru í tillögunni
aðilar að EB telur nefndin jafn-
framt mikilvægt að sú niðurstaða
Alþingis liggi fyrir að stefnt skuli
að tvíhliða samningi íslands og
EB. Þá segir: „Leiði tvíhliða við-
ræður íslands og EB í framhaldi
af gerð EES-samningsins til þess
að gengið verði á ný til samninga
við bandalagið verður sú ákvörðun
borin undir Alþingi. Við slíka tví-
hliða samningsgerð yrði einkum
litið á viðskiptahluta samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið þar
sem stofnanahlutinn hlyti óhjá-
kvæmilega að taka á sig allt aðra
mynd.“
Efni ályktunarinnar, sem er
breyting á upphaflegri tillögu frá
Steingrími Hermannssyni og Hall-
dóri Ásgrímssyni, fellur vel að því
sem boðað var í áliti meiri hluta
utanríkismálanefndar Alþingis um
EES-samninginn fyrr í vetur, en
þar segir: „Forsætisráðherra hefur
lýst vilja ríkisstjórnarinnar til að
kanna með bréfi og formlega hjá
framkvæmdastjórn EB hver staða
íslands yrði á grundvelli EES kæmi
til þess að önnur EES-ríki gengju
í EB.“
Óvissu eytt
Það er mjög mikilvægur áfangi
í samskiptum okkar íslendinga við
Evrópubandalagið að samstaða
náðist um þessa tillögu í utanríkis-
málanefnd Alþingis og hún naut
einróma stuðnings á Alþingi. Þessi
samstaða skiptir miklu fyrir okkur
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
íþróttaskór
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur
V
Domus Medica,
Egilsgölu 3;
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
Toppskórinn,
Vellusundi,
sími 21212.
J
Evrópumálum
„Þegar mikið er í húfi
eiga menn þó að vera
tilbúnir til þess að ýta
ágreiningsmálum til
hliðar og leggja sig
fram um að setja niður
deilur. Þegar lag gafst
til samkomulags um
Evrópumálin á Alþingi
var einsýnt að nýta það.
út á við og einnig inn á við eftir
hinar hörðu stjórnmáladeilur um
EES. Ályktun Álþingis um tvíhliða
samskipti við EB byggist á þeirri
meginforsendu að EES-samn-
ingurinn taki gildi. Bregðist .sú
forsenda heldur ályktunin þó gildi
sínu og vísar veginn um það hvern-
ig íslensk stjórnvöld muni þá nálg-
ast EB.
í sjálfu sér á það ekki að vera
sérstakt markmið í stjórnmálabar-
áttu að ná víðtækri málamiðlun
um stórt og smátt. Ágreiningur
Björn Bjarnason.
milli manna og flokka er eðilegur
þáttur í viðgangi lýðræðislegra
stjórnarhátta. Þegar mikið er í
húfi eiga menn þó að vera tilbúnir
til þess að ýta ágreiningsmálum
til hliðar og leggja sig fram um
að setja niður deilur. Þegar lag
gafst til samkomulags um Evrópu-
málin á Alþingi var einsýnt að
nýta það.
Ekki aðildarumsókn
í umræðum um þessa Evrópu-
samþykkt á Alþingi var á það bent,
að hún fæli ekki í sér aðildarum-
sókn að Evrópubandalaginu. Á
hinn bóginn kom það einnig fram
að ályktunin stæði ekki í vegi fyr-
ir því að Alþingi tæki ákvörðun
um aðildarumsókn, ef mál skipuð-
ust á þann veg að slíkt þætti skyn-
samlegt.
Nauðsynlegt er fyrir okkur Is-
lendinga að fylgjast náið með
framvindu mála í viðræðum EFTA-
ríkjanna fjögurra um aðild að EB.
Jafnframt eigum við að ræða opin-
skátt um kosti og galla þess fyrir
okkur að standa utan Evrópu-
bandalagsins. Með ályktun Alþing-
is um tvíhliða samskipti við EB er
síður en svo verið að útiloka að
menn velti stöðu okkar gagnvart
EB fyrir sér. Raunar kemur fram
í áliti utanríkismálanefndar að
nefndin telur það hlutverk sitt að
gæta hagsmuna lands og þjóðar
að þessu leyti.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
FRUMSÝNING í HÁSKÓLABÍÓI á morgun kl. 14.00 - Miðasala við innganginn.
Allir eiga sér draum.
Fáir hafa hugrekki til að láta drauminn rætast.
En Lenny gerði það!
I
John Malkovich og
Gary Sinise eru í
hlutverkum Lenny
og George.
Ný bandarísk
kvikmynd eftir hinni
þekktu sögu
nóbelsskáldsins
Johns Steinbecks.
Signý Sæmundsdóttir, söngkona, syngur nokkur lög fyrir frumsýningu.
Allur ágódi af seldum miðum á frumsýningu rennur til forvarnastarfs í baráttunni gegn eiturlyfjum.
BIL^QFUR
Bifreiöaverkstœðl Jöfurs hf.
RÁÐGARÐURhf.
STJÓRNUNAROG REKSTRAKRÁIXIKTT
OSIA-OG
SMJÖRSALANSE
Kjötsalurínn Ó.M. Búðfn
AVS Hagtæki Hl.MlOnes
Heimllistækl hl. Bergvikhl.
Ólalur Þorsteinsson & Co hl. Skipavarahlutir hl.
AfuiiMimBi Véla- & skipaþjanustan Framtak Veitingaskalinn Vestmannæyjum
FARVÍS
i^pnngor
FEROATÍMARIT
Andrés, latavershm
VerktræOistolan Vista
Ratvörur ht.
Skóvershm Þórðar hl.
Holtsapótek
EMPIRE
.. Einmitl fyrir þig "