Morgunblaðið - 11.05.1993, Síða 46

Morgunblaðið - 11.05.1993, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993 fclk í fréttum Morgunblaðið/Ól.K.Magnússon Endurfundir Systurnar Ásta Tómasdóttir t.v. og Guðrún Tómasdóttir Petersen á leið frá Geysishúsinu, en á milli [x'irra er Pétur Pétursson þulur. Morgunblaðið/Börkur Arnarson Listamennirnir Hrafnkell Sigurðsson, Kristján Steingrímur, Tumi og Daníel Magnýssynir við opnun sýningarinnnar „Look North“. LIST Fjórir Islendingar sýnaíLondon Listamennirnir Hrafnkell Sig- urðsson, Kristján Stein- grímur, Tumi Magnússon og Daníel Magnússon opnuðu 20. mars sl. sýningu í íslensku sýn- ingarsölunum í Butlers Wharf í London undir nafninu „Look North“. Þetta er fjórða íslenska myndlistarsýningin í röð, sem haldin hefur verið á þessum stað. Fjöldi manns var viðstddur opn- unina og lék jazzband fyrir gesti. Sýningunni lýkur 16. maí. ENDURFUNDIR 7 0 ára afmæli kröfu- göngunnar í Geysishúsinu Um þessar mundir stendur yfir í Geysishúsinu ljósmynda- sýning og er þar einvörðungu að finna ljósmyndir frá fyrstu kröfu- göngunni sem farin var 1. maí hér á landi árið 1923. Er sýningin í tilefni af því að 70 ár eru liðin síðan gangan var farin. Myndirnar voru flestar teknar af Gísla Ólafs- syni bakara, en einnig á Kristinn Emilsson nokkrar myndir. Pétur Pétursson þulur sagði í samtali við Morgunblaðið að í gangi væri viðleitni til að bera kennsl á það fólk sem sést á mynd- unum, annað hvort í göngunni sjálfri eða í hópi áhorfenda. „Það er þessi þráhyggja í íslendingum að rekja ættir manna og útlit. Við höfum þekkt úr margt manna, þar af 17 sem enn eru á lífí. Þarna er margt nafnkunpra manna og virkilegur fengur fyrir eldri borg- ara að koma og kíkja á þetta,“ sagði Pétur. Pétur sagði enn fremur, að á sýningunni væru gamlar fundar- gerðir sem sýndu aðdragandann að þessari fyrstu göngu, einnig nokkrar gamlar fjölskyldumyndir sem sýndu hvaða rætur hreyfingin hefði átt. Meðal þeirra sem hafa litið á sýninguna voru systurnar Ásta Tómasdóttir og Guðrún Tóm- asdóttir Petersen. Þær systur fæddust báðar í Viðey, en Guðrún hefur verið búsett í Danmörku í meira en 50 ár. Jakob Magnússon ræðir við tvo breska listfræðinga. VÁKORT Eftirlýst kort nr.: 4507 4300 0004 4817 4507 3900 0003 5316 4507 4300 0014 8568 4543 3700 0007 3075 4548 9000 0042 4962 4548 9018 0002 1040 Afgreiðslufólk vinsamlegast takió ofangreind kort úr umferð og sendió VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir aó klófesta kort og vísa á vágest. Vhl\ Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík Sfmi 91-671700 Wterkurog kj hagkvæmur auglýsingamiöill! Andrea Róberts- dóttir sem útnefnd var með fegurstu fótleggina 1993 á dögunum, var krýnd ungfrú Oroblu í Súlnasaln- um. Hún er þarna t.v., en auk þess eru þarna Ari Singh, Guðlaug Guð- mundsdóttir fyrrum ungfrú Island og Brynja Vífilsdóttir sem varð þriðja í keppninni um ungfrú ísland 1993. Morgunblaðið/Þorkell Sýning á Oroblu sokkabuxum í al- gleymingi. Fremst er Andrea Róberts- dóttir, sú er tald- ist hafa fegurstu fótleggina, en þeir t.jóta sín lítt, svo sem sjá má. TÍSKA Sumar- gleöi í sokka- buxum Islensk - Austurlenska hélt sum- argleði sína fyrir fáum dögum og var þar margt um dýrðir. Með- al annars var krýnd ungfrú Oroblu. Uppákoma þessi var hald- in í Súlnasal Hótels Sögu. Af öðru má nefna sýningar á fatnaði, und- irfatnaði og sokkabuxum, auk þess sem boðið var upp á söng- og dansatriði. Kynnir kvöldsins var Sigrún Waage leikkona.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.