Morgunblaðið - 11.05.1993, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 11.05.1993, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1993 mmmn „Bg sagbí þér ab pan to,ekJci„ heimcc. - t'iigún&r -PransbarJtbkJc.urinn- býr c 30 km. Pjarlsegb. " BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811 Enn um sjúklingahótel Frá Ólafi Ólafssyni og Ástu S. Ólafsdóttur: Staðhæfingar um að tilkoma sjúklingahótela í nýrri mynd muni auka heildarútgjöld til heilbrigðis- þjónustu eru ekki réttar ef málið er skoðað betur. Sem dæmi má nefna eftirfar- andi: Við háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð hefur verið rekið sjúklingahótel í nær 5 ár. Á hótel- inu eru 95 herbergi og þar dvelj- ast sjúklingar að meðaltali í 3 daga. Þar starfa 5 hjúkrunarfræð- ingar ásamt ræstingarfólki og eld- hússtarfsliði. Sjúklingar hafa eigin lykil og eru frjálsir ferða sinna eins og á venjulegu hóteli. Einn hótelgangur er rekinn fyr- ir sængurkonur sem eru fluttar á fyrsta eða öðrum degi frá sængur- kvennagangi sjúkrahússins til hót- elsins. I kjölfar þessara breytinga var ein sængurkvennadeild lögð niður á háskólasjúkrahúsinu. Kostnaður við sólarhringsdvöl á hótelinu er um 800 SEK en á sængurkvennadeild er kostnaður- inn um 2.000 SEK. Legudögum hefur ekki fjölgað og sængur- kvennafjöldinn er svipaður, því að í Svíþjóð fæða nær allar konur á stofnunum eins og á íslandi. Sjúk- lingar koma frá öllum deildum spítalans, þ.e. hjarta-, æða-, gigt- ar-, krabbameins-, skurðsjúkling- ar o.fl. Heildarrekstrarkostnaður gæti hugsanlega aukist ef sængurkon- um fjölgaði og allar aðrar aðstæð- ur væru óbreyttar, en sængurkon- um hefur ekki fjölgað og ýmis konar hagræðing fylgir þessari breytingu. Menn mega ekki festast í kenni- setningum eins og t.d. er tillaga kom fram um 5 daga deildir. Þá var því spáð að vegna þess að sjúklingaflæðið ykist þá myndi kostnaður aukast. Við rekstur 5 daga deilda hefur sjúklingafjöld- inn aukist verulega og biðlistar styst en kostnaður hefur ekki auk- ist, t.d. á lyflækningadeildum’. Beinn kostnaður hefur aukist á skurðlækningadeildum en trúlega ekki heildarkostnaður, m.a. vegna þess að aukin virkni sjúklinga dregur úr fylgikvillum eftir að- gerðir, þeir verða fyrr „sjálf- bjarga“ og komast fyrr til starfa en ella. Þess skal getið að sjúkl- ingahótel hafa verið rekin um ára- tugaskeið í N-Ameríku og því hef- ur fylgt veruleg hagræðing og minnkandi kostnaður að sögn ís- lenákra lækna er þar hafa unnið. Legudagar eru yfirleitt færri en ella. Mun auðveldara er að fá sjúkling til þess að flytja á „hótel“ þar sem hjúkrunaraðstaða er og sjúklingur hefur jafnframt vissu fyrir að komast án tafar á sjúkra- deild, ef með þarf, en á sjúkrahót- el sem rekin eru sem venjuleg hótel. I raun er verið að flytja þjón- ustu úr dýru í ódýrara umhverfi án þess að þjónustan versni. Aðrar þjóðir hafa getað sparað verulegan „stofnanakostnað“, sem er dýrasti liður heilbrigðisþjónustunnar, með rekstri sjúklingahótela. Við ættum að feta í fótspor þeirra án tafar. Besti kosturinn væri að reka eitt stórt sjúklingahótel fyrir deilda- skiptu sjúkrahúsin í Reykjavík. ÓLAFUR ÓLAFSSON, landlæknir, ÁSTA S. ÓLAFSDÓTTIR, hjúkrunarfræðingur. HEILRÆÐI KENNDU BARNINU ÞÍNU AÐ UMGANGAST ELD MEÐ VARÚÐ. SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS RAUÐI KROSS ÍSLANDS HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar Margt bendir til þess, að niður- færsla verðlags sé í fullum gangi í viðskiptalífinu, þótt tals- menn útgerðarmanna hafi ekki trú á niðurfærsluleið til þess að leysa vanda sjávarútvegsins. Svo að tekin séu dæmi úr Morgunblaðinu í fyrra- dag: Toyota auglýsir, að 500 lítrar af benzíni fylgi með hveijum nýjum bíl, sem keyptur er. Þetta jafngildir auðvitað rúmlega 30 þúsund króna afslætti á hverjum bíl. Honda aug- lýsir sérstök tilboð í maí án þess að gera frekari grein fyrir þeim í auglýsingum en augljóst er, að í þeim tilboðum felst einhver kjarabót fyrir viðskiptavini. Hekla auglýsti á tímabili í vetur vaxtalaus lán, sem auðvitað jafngildir afslætti af verði bíls. Toyota auglýsti í janúar að fyrirtækið væri sveigjanlegt í samn- ingum, sem benti til að semja mætti um verð bíls að einhveiju marki. Kosta Boda auglýsti í Morgun- blaðinú í fyrradag 20% verðlækkun á matar- og kaffistellum. Ikea aug- lýsti vaxtalaus lán vegna kaupa á eldhúsinnréttingum fyrir nokkrum dögum, sem auðvitað samsvarar einhverri verðlækkun. Kunnugir fullyrða, að verð í kvenfataverzlun- um fari lækkandi og jafnvel svo, að muni verulegum upphæðum. Ástæðan fyrir þessu er augljós: kaupgeta almennings er orðin mjög takmörkuð. Þessar verðlækkanir í einu eða öðru formi eru vísbending um, að seljendur vöru vilja heldur lækka verð og fá minna fyrir sinn snúð en selja ekki neitt. xxx Til viðbótar þessu kemur, að atvinnuhúsnæði hefur á und- anförnum misserum lækkað mjög í verði og nú er sennilega hægt að gera mjög góð kaup í slíku hús- næði, sem ekki er ólíklegt að seljist á 40 þúsund krónur fermetrinn og jafnvel enn minna, sem er svo langt fyrir neðan byggingarkostnað í dag, að þar er engu saman að jafna. Húsaleiga í atvinnuhúsnæði hefur líka farið lækkandi. Jafnvel á bezta verzlunarstað bæjarins um þessar mundir, þ.e. í verzlunarmiðstöðinni í Kringlunni fer húsaleiga lækkandi vegna þess, að verzlun fer minnk- andi. Víða um bæinn eru þess dæmi, að þeir, sem hafa verið með at- vinnurekstur í leiguhúsnæði fá sam- þykkta leigulækkun vegna þess, að ella missa húseigendur leigutakann og eiga tæpast kost á öðrum. Hér er auðvitað á ferðinni mikil niður- færsla verðlags. xxx Ekkert skal fullyrt hér um það í hve ríkum mæli verð á sum- arleyfisferðum hefur lækkað eins og ferðaskrifstofumar halda fram en þó er margt, sem bendir til þess að svo sé og ekki ólíklegt að slík verðlækkun eigi eftir að koma enn skýrar í ljós, þegar kemur fram á sumar, ef minna verður um ferðir til útlanda en áður. En af framansögðu er augljóst, að allir straumir í þjóðfélaginu vísa til verðlækkunar en ekki hækkun- ar. Ætli nokkum tíma hafi verið betra tækifæri til að framkvæma hina svonefndu niðurfærsluleið en einmitt nú?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.