Morgunblaðið - 12.05.1993, Qupperneq 1
56 SIÐUR B/C
105. tbl. 81.árg.
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stjórn Bills Clintons deilir við Evrópuríki um aðgerðir í Bosníu
Reuter
Hrifsaðir úr faðmi fjölskyldunnar
EKKERT lát varð á bardögum Króata og múslima í Bosníu I sem sveitirnar tóku til fanga í bænum Mostar í gær. Voru
í gær þrátt fyrir nýgerða friðarsamninga. Á myndinni fylg- þeir sóttir inn á heimili sín og reknir til yfirgefinnar verk-
ist liðsmaður sveita Bosníu-Króata með um 300 múslimum | smiðju utanbæjar þar sem þeir voru hafðir í haldi.
Ljær máls á að falla frá
afnámi vopnasölubanns
Brussel. Reuter.
Jeltsín
rekur
íhalds-
menn
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsfor-
seti vék tveimur háttsettum
embættismönnum úr starfi í
gær með tilskipun. Jafn-
framt hvatti hann leiðtoga
88 héraða og sjálfstjómar-
svæða landsins til að sam-
þykkja stofnun sérstaks
stjórnlagaþings og taka
stjórnlagagerð úr höndum
fulltrúaþingsins.
Ákvörðun Jeltsíns um að víkja
Júrí Skokov, formanni öryggisráðs-
ins, og Georgíj Khízha aðstoðarfor-
sætisráðherra úr starfi, féll í góðan
jarðveg hjá umbótasinnaðri ráð-
herrum. Báðir þóttu of íhaldssamir.
Skokov var ábyrgur fyrir rússneska
heraflanum, öryggisráðuneytinu,
arftaka KGB, og innanríkisráðu-
neytinu. Khízha var áhrifamaður í
atvinnulífí og settur við hlið Jegors
Gajdars þáverandi forsætisráðherra
fyrir ári er nauðsynlegt þótti að fá
nokkra hófsama menn til liðs við
rótttæka sveit umbótasinna sem
Gajdar hafði raðað í kringum sig.
Snuprar Rútskoj
Jeltsín snupraði varaforsetann
Alexander Rútskoj enn frekar;
fækkaði starfsliði hans úr 51 manni
í sex með tilskipun í gær. Áður
hafði hann svipt Rútskoj embætt-
um, afnotum af lúxusbifreið og
fækkað lífvörðum hans.
Jeltsín hvatti til þess að stjórn-
lagaþing, sambandsráð, skipað
tveimur fulltrúum úr hveiju héraði
og sjálfstjórnarsvæði, kæmi saman
5. júní til að setja Rússum nýja
stjórnarskrá. Óvíst þykir að héraðs-
stjórar styðji hugmyndina.
BLOSSAÐ hefur upp deila milli Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra í Evrópu um hvernig bregðast eigi
við stríðinu í Bosníu og stjórnarerindrekar telja litlar
líkur á að unnt verði að ná
ið til þess að binda enda á
Bills Clintons er sögð hafa
tillögu sinni um að afnema
„Svo virðist sem deilan sé kom-
in á hættulegt stig, að beiskja sé
farin að gera vart við sig,“ sagði
stjómarerindreki hjá NATÓ. „Evr-
ópumennimir líta á Bandaríkja-
mennina sem kúreka og Banda-
ríkjamennirnir á Evrópumennina
sem gungur. Sannleikurinn er sá
að það er enginn auðveldur val-
kostur."
Bandaríkjastjórn hefur beitt sér
fyrir því að gerðar verði loftárásir
á serbnesk skotmörk í Bosníu og
að múslimum verði leyft að kaupa
vopn til að veija sig. Evrópuríkin
leggja hins vegar áherslu á refsi-
aðgerðir, pólitískan þrýsting og
friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna.
Stjórnarerindrekar í Brussel
segja að Bandaríkjastjórn hafi
samkomulagi sem geti orð-
blóðsúthellingarnar. Stjórn
léð máls á því að falla frá
vopnasölubann á Bosníu.
gefið til kynna að hún sé retðubú-
in að falla frá tillögu sinni um að
leyfa múslimum að kaupa vopn.
Þeir segja að deilan hafi harðnað
til muna á mánudag þegar Evr-
ópubandalagið (EB) lýsti því yfír
að tími væri kominn til að Banda-
ríkjamenn sendu friðargæsluliða
til Bosníu. Bandaríkjastjórn hafi
ekki svarað þessu en gefið út yfir-
lýsingu um að ákvörðun um hugs-
anlega hernaðaríhlutun í Bosníu
verði frestað vegna þess að Evr-
ópubandalagið vilji bíða eftir nið-
urstöðu þjóðaratkvæðis Bosníu-
Serba um friðaráætlun Sameinuðu
þjóðanna um helgina. Yfirlýsingin
olli reiði í Evrópu þar sem evrópsk-
ir ráðherrar höfðu lýst því yfir að
ekki yrði tekið mark á þjóðarat-
kvæðinu þar sem það væri aðeins
„kænskubragð" af hálfu Bosníu-
Serba til að vinna tíma. Stjórnarer-
indrekarnir segja að Bandaríkja-
stjórn hafi frestað ákvörðun um
hernaðaraðgerðir vegna þess að
Bill Clinton Bandaríkjaforseti telji
að ekki sé nægur stuðningur á
meðal almennings við hernaðar-
íhlutun. Staða hans sé slæm sam-
kvæmt skoðanakönnunum, auk
þess sem ágreiningur sé um málið
innan stjórnarinnar.
Enn þrýst á Bosníu-Serba
Slobodan Milosevic forseti Serb-
íu reyndi enn í gær að fá Bosníu-
Serba til að samþykkja áætlun um
frið í Bosníu. Hvatti hann til þess
að haldinn yrði sameiginlegur
fundur þinga Serbíu, Svartfjalla-
lands, Krajina-héraðsins og Bos-
níu-Serba í Belgrad á föstudag.
Viðbrögð Bosníu-Serba lágu ekki
fyrir í gærkvöldi en Milosevic sagði
ekki hægt að líða þeim að standa
í vegi friðaráætlunarinnar þar sem
viðbrögð ríkja heims myndu leiða
hörmungar yfír alla Serba.
Reuter
Gleymdi gleraugunum
ELÍSABET drottning átti að halda ræðu á hátíðarfundi í tilefni aldar-
afmælis Samveldisstofnunarinnar í London í gær. Þegar til kom fann
hún ekki gleraugun í handtösku sinni; hafði gleymt þeim í höllinni.
Bar hún sig aumlega en eiginmaður hennar, Filippus prins, virðist
ekki jafn alvörugefinn. Varð það hlutskipti hans að flytja ræðuna.