Morgunblaðið - 14.05.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1993
Mörg dæmí um aö gefa
þurfi börnum lyf í æð
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD hafa vaxandi áhyggjur af
ónæmi sýkla fyrir sýklalyfjum. Mörg dæmi eru um að
börn hér á landi með þrálátar eyrnabólgar eru lögð inn
á sjúkrahús og þeim gefin sýklalyf í æð, en slík meðferð
getur tekið allt upp í tíu daga, að sögn Karls G. Kristins-
sonar, sýklafræðings á Landspítalanum og formanns
Samtaka um sýklavarnir á sjúkrahúsum.
Karl segir að um sé að ræða börn
með þrálátar eymabólgur sem stafi
af bakteríum af ónæmisstofnum.
Börnunum hafi mörgum verið geftn
sýklalyf um langan tíma, en þó sé
það ekki einhlít skýring á vandan-
um. „Þetta er nýtt fyrirbæri hér-
lendis.
Vandamálið hefur verið að þróast
síðan í ársbyijun 1989, en fyrst
varð þess vart í Ástralíu. Slíkt
ónæmi var orðið algengt í Suður-
Afríku, Spáni og Ungverjalandi áður
en það varð að vandamáli hér. Eina
landið í Norður-Evrópu sem á við
sambærilegan vanda að stríða og
við er Frakkland," sagði Karl.
Ofnotkun sýklalyfja
Karl segir að ofnotkun sýklalyfja
á undangegnum árum eigi stóran
þátt í þessu vandamáli hérlendis.
„En það er ýmislegt sem kemur til
hérlendis annað en eingöngu sýkla-
lyfjanotkun, eins t.a.m. það hve stór
hluti íslenskra bama er í dagvist,
þar sem smithætta er mikil. Það era
helst böm sem bera þessar bakter-
íur,“ sagði Karl.
„Það sem einkum snýr að okkur
era pneumókokkar, lungnabólgu-
bakteríur sem valda eirinig eyrna-
bólgum. En það era fleiri bakteríur
sem gætir vaxandi ónæmis hjá,
bakteríur sem valda húðsýkingum
og ótilgreindum öðram sýkingum.
Þetta tengist sýklalyfjanotkun, ekki
bara á íslandi heldur í öllum heimin-
um. Sums staðar er Iyfjanotkunin
of mikil og við höfum áhyggjur af
því. Það er tilefni til að fara gæti-
lega og nota sýklalyfin af varúð.
Við viljum halda virkni þeirra lyfja
sem við höfum þar til ný lyf hafa
fundist," sagði Karl.
Karl sagði að enginn annar skrif-
aði upp á sýklalyf en læknir. Hins
vegar væru sumir sjúkdómar þess
eðlis að lengi mætti deila um það
hvort gefa eigi sýklalyf við þeim
eður ei. Almenningur ætti vissan
þátt í ofnotkun sýklalyfja, ef rétt
er sem haldið hefur verið fram, að
sjúklingar beiti lækna þrýstingi í
þeim tilgangi að þeir gefi sýklalyf.
Samtökin um sýklavarnir á
sjúkrahúsum gangast fyrir fundi um
sýkingavarnir á Hótel Holiday Inn
í dag kl. 14, og er fundurinn opinn
læknum og öðra áhugafólki um sýk-
ingavarnir.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 13. MAI
YFIRLIT: Yfir Norðvestur-Grænlandi er 1046 mb hæð og hæðarhryggur
á Grænlandshafi. Milii ian Mayen og Grænlands er vaxandi 1015 mb
lægð sem mun fara suður yfir landið í nótt.
SPA: Norðvestlæg eða vestlæg átt, víða kaldi og bjart veður fram eftir
kvöldi en gengur í nótt í vaxandi norðanátt með mjög kólnandi veðri.
Allhvass og sums staðar hvass norðan á morgun með éljagangi og
frosti um norðanvert landið en sunnanlands verður bjart veður og 2ja-
4ra stiga hiti um hádaginn.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG, SUNNUDAG OG MANUDAG: Norðan- og
norðaustanátt, strekkingur á laugardag. Dálítil él og vægt frost um land-
ið norðanvert. Sunnantil verður víðast bjartviðri og allt að 10 stiga hita
að deginum, en hætt við næturfrosti. Á mánudag er útlit fyrir austlæga
átt og heldur hlýnandi veður. Rigning suðaustanlands, en léttskýjað víð-
ast annars staðar.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30,.4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30 og
22.30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
v Ý ý
Skúrir Slydduél Él
/ / r
f f
f r f
Rigning
* r *
* /
r * r
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig,.
10° Hitastig
v Súld
= Poka
dig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Greiðfært er um alla helstu þjóðvegi landsins. Á vestanverðu landinu
hafa orðið skemmdir á vegum vegna vatns og aurskriða en unnið er
að viðgerð og er víða lokið. Gjábakkavegur er orðinn fær og einnig
Klettsháls en þar eru öxulþungatakmarkanir 2 tonn. Vormokstur er haf-
inn á Dynjandisheiði, Lágheiði og Mjóafjarðarheiði. Sérstakar öxulþunga-
takmarkanir erti víða á landinu og hálendisvegir eru nú lokaðir.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hití veður
Akureyri 6 léttskýjað
Reykjavlk 8 hátfskýjaö
Bergen 9 skýjað
Helslnki vantar
Kaupmannahöfn 22 hálfskýjað
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk 0 þoka
Ósló 16 háifskýjað
Stokkhólmur vantar
Þórshöfn 2 snjóél
Algarve 18 8kýjað
Amsterdam 12 rlgnlng
Barcelona 19 mistur
Berifn 26 léttskýjað
Chicago 6 heiðskirt
Feneyjar 20 léttskýjað
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow S rigning
Hamborg 26 skýjað
London 12 skýjað
Los Angeles 13 heiðskírt
Lúxemborg 13 skúr
Madríd 17 alskýjað
Malaga 20 skýjað
Mallorca 18 rigning
Montreal 8 skýjað
NewYork 18 skýjað
Orlando 22 skýjað
Parls 12 þokumóða
Madelra 20 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Vín 26 léttskýjað
Washington 18 þokumóða
Winnipeg 12 léttskýjað
/ DAG kl. 12.00
Heímild: Veðurstofa íslands
(Byggt é veðurspá kl. 16.15 í gær)
María Rún Hafliðadóttir í Mexíkó
Fegurð í Mexíkóborg
FÚLLTRÚAR Kóreu, Finnlands og íslands í keppninni um ungfrú
alheim í Mexíkóborg.
Keppir um titilinn
ungfrú alheimur
UNDIRBÚNINGÍJR fyrir fegurðarsamkeppnina ungfrú
alheimur er nú á lokastigi í Mexíkóborg en keppnin
verður þar 21. maí. María Rún Hafliðadóttir, fulltrúi
íslands, segir að keppnin leggist vel í sig og sér gangi
vel í undirbúningnum.
„Þetta er mun meiri vinna en
fyrir keppnina um ungfrú heim
[sem haldin var í Namibíu í vet-
ur]. Maður vaknar hér stundum
klukkan 4 á nóttunni til að fara
í ferðalög og dagskráin stendur
síðan langt fram á kvöld,“ sagði
María Rún þegar Morgunblaðið
talaði við hana í gær.
María Rún kom til Mexíkó í
apríl. Hún sagði að undirbúning-
urinn fælist ekki eingöngu í
æfingum heldur kæmu keppend-
umir fram í auglýsingum og á
góðgerðarsamkomum. Alls
keppa 79 stúlkur um titilinn að
þessu sinni.
María Rún segir keppnina
vekja athygli í mexíkóskum fjöl-
miðlum. María Rún varð fyrir
því að týna dýrmætum demants-
hring á hótelinu þar sem kepp-
endurnir búa. Kvenkyns örygg-
isvörður á hótelinu fann hringinn
og kom honum til skila. „Hún
fékk síðan sérstök verðlaun við
hátíðlega athöfn, fyrir að af-
henda mér hringinn og þetta
atvik var mikið í fréttunum hér,“
sagði María Rún Hafliðadóttir.
Bmggverksmiðja í
Breiðholti upprætt
LÖGREGLUMENN af Breiðholtsstöð helltu rúmlega 800
lítrum af gambra og 80-90 lítrum af Ianda niður, þegar
þeir upprættu bruggverksmiðju í bílskúr í Breiðholti í fyrra-
kvöld. Talið er að bruggunin hafi verið eina atvinna 29
ára manns, sem bílskúrinn leigði.
Seldi í Eyjum
Eigandi bílskúrsins leigði hann
út og kvaðst hann ekki hafa vitað
hvaða starfsemi fór þar fram. Lög-
reglan handtók 25 ára mann, sem
viðurkenndi að hafa keypt landa
af bruggaranum. Hann kvaðst hafa
drukkið mest af honum sjálfur, en
einnig hefði hann selt landa í Vest-
mannaeyjum.
Auk hinnar ólöglegu braggfram-
leiðslu telur lögi-eglan líklegt að
bruggarinn sé sekur um orkustuld.
Hann lét heitt vatn renna í sífellu
í eimingartækin í bílskúmum. Svo
háttar til að fjórir bílskúrar eru
tengdir við sama vatnsmælinn, svo
nágrannarnir hafa þurft að súpa
seyðið af ótæpilegri vatnsnotkun
mannsins.
4
Lögreglan hafði haft veður af
framleiðslunni um nokkurt skeið og
lét til skarar skríða skömmu fyrir
kl. 23 á miðvikudagskvöld. Þegar
lögreglumenn komu að bílskúrnum,
sem er við Jöklasel, var bruggarinn
ekki á staðnum. Megna áfengislykt
lagði mili stafs og hurðar og inni
blasti við fullkominn eimingarbún-
aður úr ryðfríu stáli, um 830 lítrar
af gambra í tunnum, 20 lítrar af
landa í 1 líters flöskum, fjórir 25
lítra plastbrúsar, hver hálffullur af
landa og 12 lítrar af landa voru í
eimingu. Samtals var landinn því á
milli 80 og 90 lítrar. Bílskúrinn var
með sjálfvirkum hurðaropnara, svo
bruggarinn gat ekið beint inn til
að hlaða bíl sinn af veigunum. Lög-
reglan veit hver bruggarinn er og
verður hann að öllum líkindum
handtekinn í dag eða á morgun.