Morgunblaðið - 14.05.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 14.05.1993, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1993 Mörg dæmí um aö gefa þurfi börnum lyf í æð HEILBRIGÐISYFIRVÖLD hafa vaxandi áhyggjur af ónæmi sýkla fyrir sýklalyfjum. Mörg dæmi eru um að börn hér á landi með þrálátar eyrnabólgar eru lögð inn á sjúkrahús og þeim gefin sýklalyf í æð, en slík meðferð getur tekið allt upp í tíu daga, að sögn Karls G. Kristins- sonar, sýklafræðings á Landspítalanum og formanns Samtaka um sýklavarnir á sjúkrahúsum. Karl segir að um sé að ræða börn með þrálátar eymabólgur sem stafi af bakteríum af ónæmisstofnum. Börnunum hafi mörgum verið geftn sýklalyf um langan tíma, en þó sé það ekki einhlít skýring á vandan- um. „Þetta er nýtt fyrirbæri hér- lendis. Vandamálið hefur verið að þróast síðan í ársbyijun 1989, en fyrst varð þess vart í Ástralíu. Slíkt ónæmi var orðið algengt í Suður- Afríku, Spáni og Ungverjalandi áður en það varð að vandamáli hér. Eina landið í Norður-Evrópu sem á við sambærilegan vanda að stríða og við er Frakkland," sagði Karl. Ofnotkun sýklalyfja Karl segir að ofnotkun sýklalyfja á undangegnum árum eigi stóran þátt í þessu vandamáli hérlendis. „En það er ýmislegt sem kemur til hérlendis annað en eingöngu sýkla- lyfjanotkun, eins t.a.m. það hve stór hluti íslenskra bama er í dagvist, þar sem smithætta er mikil. Það era helst böm sem bera þessar bakter- íur,“ sagði Karl. „Það sem einkum snýr að okkur era pneumókokkar, lungnabólgu- bakteríur sem valda eirinig eyrna- bólgum. En það era fleiri bakteríur sem gætir vaxandi ónæmis hjá, bakteríur sem valda húðsýkingum og ótilgreindum öðram sýkingum. Þetta tengist sýklalyfjanotkun, ekki bara á íslandi heldur í öllum heimin- um. Sums staðar er Iyfjanotkunin of mikil og við höfum áhyggjur af því. Það er tilefni til að fara gæti- lega og nota sýklalyfin af varúð. Við viljum halda virkni þeirra lyfja sem við höfum þar til ný lyf hafa fundist," sagði Karl. Karl sagði að enginn annar skrif- aði upp á sýklalyf en læknir. Hins vegar væru sumir sjúkdómar þess eðlis að lengi mætti deila um það hvort gefa eigi sýklalyf við þeim eður ei. Almenningur ætti vissan þátt í ofnotkun sýklalyfja, ef rétt er sem haldið hefur verið fram, að sjúklingar beiti lækna þrýstingi í þeim tilgangi að þeir gefi sýklalyf. Samtökin um sýklavarnir á sjúkrahúsum gangast fyrir fundi um sýkingavarnir á Hótel Holiday Inn í dag kl. 14, og er fundurinn opinn læknum og öðra áhugafólki um sýk- ingavarnir. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 13. MAI YFIRLIT: Yfir Norðvestur-Grænlandi er 1046 mb hæð og hæðarhryggur á Grænlandshafi. Milii ian Mayen og Grænlands er vaxandi 1015 mb lægð sem mun fara suður yfir landið í nótt. SPA: Norðvestlæg eða vestlæg átt, víða kaldi og bjart veður fram eftir kvöldi en gengur í nótt í vaxandi norðanátt með mjög kólnandi veðri. Allhvass og sums staðar hvass norðan á morgun með éljagangi og frosti um norðanvert landið en sunnanlands verður bjart veður og 2ja- 4ra stiga hiti um hádaginn. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG, SUNNUDAG OG MANUDAG: Norðan- og norðaustanátt, strekkingur á laugardag. Dálítil él og vægt frost um land- ið norðanvert. Sunnantil verður víðast bjartviðri og allt að 10 stiga hita að deginum, en hætt við næturfrosti. Á mánudag er útlit fyrir austlæga átt og heldur hlýnandi veður. Rigning suðaustanlands, en léttskýjað víð- ast annars staðar. Nýir veðurfregnatímar: 1.30,.4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30 og 22.30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað v Ý ý Skúrir Slydduél Él / / r f f f r f Rigning * r * * / r * r Slydda * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig,. 10° Hitastig v Súld = Poka dig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Greiðfært er um alla helstu þjóðvegi landsins. Á vestanverðu landinu hafa orðið skemmdir á vegum vegna vatns og aurskriða en unnið er að viðgerð og er víða lokið. Gjábakkavegur er orðinn fær og einnig Klettsháls en þar eru öxulþungatakmarkanir 2 tonn. Vormokstur er haf- inn á Dynjandisheiði, Lágheiði og Mjóafjarðarheiði. Sérstakar öxulþunga- takmarkanir erti víða á landinu og hálendisvegir eru nú lokaðir. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hití veður Akureyri 6 léttskýjað Reykjavlk 8 hátfskýjaö Bergen 9 skýjað Helslnki vantar Kaupmannahöfn 22 hálfskýjað Narssarssuaq 5 léttskýjað Nuuk 0 þoka Ósló 16 háifskýjað Stokkhólmur vantar Þórshöfn 2 snjóél Algarve 18 8kýjað Amsterdam 12 rlgnlng Barcelona 19 mistur Berifn 26 léttskýjað Chicago 6 heiðskirt Feneyjar 20 léttskýjað Frankfurt 16 skýjað Glasgow S rigning Hamborg 26 skýjað London 12 skýjað Los Angeles 13 heiðskírt Lúxemborg 13 skúr Madríd 17 alskýjað Malaga 20 skýjað Mallorca 18 rigning Montreal 8 skýjað NewYork 18 skýjað Orlando 22 skýjað Parls 12 þokumóða Madelra 20 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Vín 26 léttskýjað Washington 18 þokumóða Winnipeg 12 léttskýjað / DAG kl. 12.00 Heímild: Veðurstofa íslands (Byggt é veðurspá kl. 16.15 í gær) María Rún Hafliðadóttir í Mexíkó Fegurð í Mexíkóborg FÚLLTRÚAR Kóreu, Finnlands og íslands í keppninni um ungfrú alheim í Mexíkóborg. Keppir um titilinn ungfrú alheimur UNDIRBÚNINGÍJR fyrir fegurðarsamkeppnina ungfrú alheimur er nú á lokastigi í Mexíkóborg en keppnin verður þar 21. maí. María Rún Hafliðadóttir, fulltrúi íslands, segir að keppnin leggist vel í sig og sér gangi vel í undirbúningnum. „Þetta er mun meiri vinna en fyrir keppnina um ungfrú heim [sem haldin var í Namibíu í vet- ur]. Maður vaknar hér stundum klukkan 4 á nóttunni til að fara í ferðalög og dagskráin stendur síðan langt fram á kvöld,“ sagði María Rún þegar Morgunblaðið talaði við hana í gær. María Rún kom til Mexíkó í apríl. Hún sagði að undirbúning- urinn fælist ekki eingöngu í æfingum heldur kæmu keppend- umir fram í auglýsingum og á góðgerðarsamkomum. Alls keppa 79 stúlkur um titilinn að þessu sinni. María Rún segir keppnina vekja athygli í mexíkóskum fjöl- miðlum. María Rún varð fyrir því að týna dýrmætum demants- hring á hótelinu þar sem kepp- endurnir búa. Kvenkyns örygg- isvörður á hótelinu fann hringinn og kom honum til skila. „Hún fékk síðan sérstök verðlaun við hátíðlega athöfn, fyrir að af- henda mér hringinn og þetta atvik var mikið í fréttunum hér,“ sagði María Rún Hafliðadóttir. Bmggverksmiðja í Breiðholti upprætt LÖGREGLUMENN af Breiðholtsstöð helltu rúmlega 800 lítrum af gambra og 80-90 lítrum af Ianda niður, þegar þeir upprættu bruggverksmiðju í bílskúr í Breiðholti í fyrra- kvöld. Talið er að bruggunin hafi verið eina atvinna 29 ára manns, sem bílskúrinn leigði. Seldi í Eyjum Eigandi bílskúrsins leigði hann út og kvaðst hann ekki hafa vitað hvaða starfsemi fór þar fram. Lög- reglan handtók 25 ára mann, sem viðurkenndi að hafa keypt landa af bruggaranum. Hann kvaðst hafa drukkið mest af honum sjálfur, en einnig hefði hann selt landa í Vest- mannaeyjum. Auk hinnar ólöglegu braggfram- leiðslu telur lögi-eglan líklegt að bruggarinn sé sekur um orkustuld. Hann lét heitt vatn renna í sífellu í eimingartækin í bílskúmum. Svo háttar til að fjórir bílskúrar eru tengdir við sama vatnsmælinn, svo nágrannarnir hafa þurft að súpa seyðið af ótæpilegri vatnsnotkun mannsins. 4 Lögreglan hafði haft veður af framleiðslunni um nokkurt skeið og lét til skarar skríða skömmu fyrir kl. 23 á miðvikudagskvöld. Þegar lögreglumenn komu að bílskúrnum, sem er við Jöklasel, var bruggarinn ekki á staðnum. Megna áfengislykt lagði mili stafs og hurðar og inni blasti við fullkominn eimingarbún- aður úr ryðfríu stáli, um 830 lítrar af gambra í tunnum, 20 lítrar af landa í 1 líters flöskum, fjórir 25 lítra plastbrúsar, hver hálffullur af landa og 12 lítrar af landa voru í eimingu. Samtals var landinn því á milli 80 og 90 lítrar. Bílskúrinn var með sjálfvirkum hurðaropnara, svo bruggarinn gat ekið beint inn til að hlaða bíl sinn af veigunum. Lög- reglan veit hver bruggarinn er og verður hann að öllum líkindum handtekinn í dag eða á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.