Morgunblaðið - 14.05.1993, Side 10
MORGUNPLAÐIÐ FÖSTUDAGUK 14. MAÍ 1993
10
Aðstandendur Elínar Helenu.
Æfingar hafnar á
Elínu Helenu hjá LR
ÆFINGAR eru hafnar hjá Leikfélagi Reykjavíkur á nýju íslensku leik-
riti eftir Árna Ibsen. Það heitir Elín Helena og verður frumsýnt á litla
sviði Borgarleikhússins næsta haust. Ingunn Asdisardóttir er leikstjóri,
í fyrsta sinn hjá LR. Leikmynd og búninga annast Guðrún S. Haralds-
dóttir og tónsmíðar Hilmar Örn Hilmarsson. Leikendur eru Sigrún
Edda Björnsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Elín Helena gerist í nútímanúm
og lýsir minningum þriggja kvenna
um fortíðina og uppgjöri þeirra við
hið liðna. Sagt er frá systrunum El-
ínu og Helenu og dóttur þeirrar fyrr-
nefndu Elínu Helenu. Hún ætlar
vestur um haf í óþökk móður sinnar
til að semja um útgáfu bókar, heim-
sækja móðursysturina og grafast
fyrir um óljósar minningar. í frétta-
tilkynningu segir að á ferðalaginu
takist Elínu Helenu að nálgast sann-
leikann um æsku sína og uppruna.
Lokauppgjör leiksins eigi sér stað á
Islandi þegar frænkurnar snúi aftur
og heimsæki systur og móður.
FIM-salurinn
Grísk listakona sýnir
LITAGLEÐI þykir einkenna list grísku listakonunnar Theano Sundby
sem opnar sýningu á 36 vatnslitamyndum og teikningum í FÍM-saln-
um, á morgun, laugardaginn 15. maí kl. 14. Sýningin stendur til 30.
maí.
Theano er fædd
í Hellas á Grikk-
landi árið 1928.
Hún nam við List-
háskólann í Aþenu,
hélt til framhalds-
náms í Frakklandi
og útskrifaðist frá
Ecole Nationale
Superieure des Be-
aux-Arts í París
árið 1956, þar sem hún nam undir
leiðsögn Jean Souverbie og André
Lhote. Hún hefur verið búsett í Nor-
egi síðan 1960, en dvalið um lengri
og skemmri tíma í Belgíu, Bandaríkj-
unum, Sovétríkjunum sálugu, Eng-
landi, Kýpur og víðar. Theano er
félagi í UKS, Félagi ungra lista-
manna, Landssamtökum norskra
listmálara og NBK, Félagi norskra
myndlistarmanna. Hún hefur haldið
sýningar víða um heim, m.a. í París,
Chicago, New York, Aþenu og Ósló,
og einnig unnið að kynningu á grískri
og franskri list í Noregi og meðal
annars staðið fyrir námsferðum til
Grikklands og Frakklands.
í frétt frá Félagi íslenskra mynd-
listarmanna segir að með ljóðrænu,
táknsæi og dulúðgri umsköpun og
myndhvörfum smáatriða í 'verkum
sínum leiði Theano Sundby áhorfand-
ann inn í persónulegan myndheim
sinn. Sýnir, hugleiðingar, tilfinningar
og kenndir blandast saman í hrynj-
andi forma og litaandstæðna svo úr
verður súrrealískt samkrull afstrakt-
stefnu og expressjónisma.
Baltasar og Kristjönu
Samper vel tekið í Belgíu
NÝIEGA lauk fyrstu samsýn-
ingu þeirra Baltasars og Krist-
jönu Samjjer og um leið fyrstu
sýningu Islendinga í Listamið-
stöðinni di Coylde í Brugge í
Belgíu. Baltasar sýndi þar 18
stór málverk úr töfraheimi
Eddukvæða, en Kristjana Sam-
per sýndi 10 skúlptúra unna
með blandaðri tækni, og sótti
viðfangsefnið í heim íslenskra
þjóðsagna. Viðstaddir opnunina
voru meðal annarra gesta ís-
lensku sendiherrahjónin í
Brussel, islenski konsúllinn og
frú, borgarstjórinn í Brugge og
aðrir góðir gestir.
Sýning Baltasars og Kristjönu
stóð yfir í þrjá' mánuði og hlaut
mjög góða aðsókn og lofsamleg
ummæli í öllum helstu fjölmiðlum.
í gagnrýni sem Morgunblaðinu
hefur borist eftir Johan Debruyne
segir um verk Kristjönu að „þau
einkennast af hlédrægni og
spennu, togstreitu og harmi eins
og í konumyndinni „Vandráð“.
Þau eru sem fagurlega unnar, stíl-
færðar verur úr forneskju, ljóð-
rænar, dularfullar og um leið óum-
breytanlegar.“ Um verk Baltasars
segir Debruyne: „í sterkt máluðum
„monumental" málverkum, méð
breiðum, gráum og svörtum pens-
ilstrokum, blómstrar ljósbrot er
móta myndefnið. Verurnar í mál-
verkunum eru oft í björtum litum,
umkringd seiðmögnuðu mistri,
Baltasar Samper
mistri sem gælir við þær, eins og
í málverkinu „Bæli Billingsdótt-
ur“; eitt mikilfenglegasta verkið á
sýningunni, þar sem á þessum
dökka fleti er samspil ljóðræns
forms og geómetríu beitt af ag-
aðri ástríðu en þó sjálfsprottinni."
Endurreisn fígúrutífrar listar
Og einn virtasti gagnrýnandi
Belga, prófessor Hugo Brutin,
segir að „verk þeirra beggja stað-
festa endurreisn fígúratífrar list-
ar.“ Brutin lýkur lofsamlegri
gagnrýni sinni á þessum orðum:
„Ég vona og er raunar fullviss um
Kristjana Samper
að verk þeirra hljóti verðskuldaða
viðurkenningu og aðdáun margra.
Sá andi sem svífur yfir skúlptúrum
Kristjönu og málverkum Baltasars
Samper er í raun ekki svo mjög
frábrugðinn anda flæmskrar list-
ar. Uppspretturnar eru aðrar og
tilvist þeirra upprunaleg, en gæðin
jafnframt afar mikil. Að horfa á
verk þeirra og smjúga um þau
auðgar okkur, bætir og vekur
sterkar kenndir í brjósti og huga.
Verk þeirra vekja löngun til að
heimsækja fsland, náttúru lands-
ins og sýnilega sem falda guði
þess.“
Barokkóperan Orfeó frum-
flutt í Langholtskirkju
ÍTALSKA tónskáldið Claudio Monteverdi lést fyrir 350 árum og
er þess minnst 15. maí. Af þessu tilefni verður fyrsta ópera hans
og jafnframt hin fyrsta í sögunni frumflutt í Langholtskirkju 4.
og 5. september næstkomandi. Flyljendur verða frá Þýskalandi,
Sviss, Ítalíu og íslandi. Eingöngu verður leikið á upprunaleg hljóð-
færi. Stjórnandi á tónleikunum verður Gunnsteinn Olafsson hljóm-
sveitarstjóri.
í fréttatilkynningu segir að þótt
Monteverdi teljist upphafsmaður
óperunnar hafi ekkert sviðsverka
hans verið flutt áður hér á landi.
Hljóðfærin sem til þurfi séu enda
ekki mörg til á íslandi. Þess vegna
hafi tónlistarmenn verið fengnir
að utan, með hljóðfæri sem sumum
hafi aldrei heyrst í hér. Aðalhlut-
verkið verði í höndum þýska te-
nórsins Hansjörg Mammel, en
einnig taki tíu íslenskir einsöngv-
arar þátt í uppfærslunni auk söng-
hópsins Hljómeykis.
Gunnsteinn Ólafsson er aðal-
hvatamaður tónleikanna. Hann
lærði í Þýskalandi og Ungveija-
landi, en er nú búsettur á Ítalíu
þar sem hann hefur m.a. fylgst
með æfingum óperu eftir Monte-
verdi. Hann mun í júní stjórna
Sinfóníuhljómsveit íslands á ferð
hennar um Austfirði.
MENNING/LISTIR
Myndlist
Opin hög'grnyndasýn-
ing- í Gerðubergi
Menningarmiðstöðin Gerðubergi
hyggst standa fyrir skúlptúrsýningu
síðsumars. Sýning þessi er liður í
afmælishaldi Gerðubergs sem fagnar
10 ára afmæli um þessar mundir.
Öllum myndlistarmönnum er boðið
að senda inn tillögur að verkum, en
þriggja manna dómnefnd, skipuð
fulltrúum frá Myndhöggvarafélagi
íslands, Kjarvalsstöðum og Gerðu-
bergi, velur verkin. Frestur til að
skila inn hugmyndum og teikningum
að verkum er til 1. júní, en sýningin
er opnuð á afmælisdegi Reykjavíkur-
borgar 18. ágúst.
Arnold Postl í Gerðu-
bergi
Austurríski
myndlistarmaður-
inn Amold Postl
opnar á morgun,
laugardag, einka-
sýningu í Gerðu-
bergi kl. 17.00.
Málverk hans eru
eftirgerðir fornra
helgimynda, frum-
myndin er endur-
gerð í silkiþrykk og málað ofan í það
svo útkoman verður alveg nýtt verk.
Postl er fæddur 1952 og lærður í
Graz og Vínarborg. Þetta er sjöunda
einkasýning hans, unnin í framhaldi
af sýningunni „Paarweise" í Vín á
fyrra ári. Mótív hans eru áheita-
myndir, altaristöflur frá miðöldum
og íkonar, viðfangsefnið er trúarlegt
þótt inntakið þurfi ekki að vera það.
Þóra Sigurðardóttir í
Nýlistasafninu
Þóra Sigurðardóttir opnar sýningu á
myndverkum sínum á morgun, laug-
ardaginn 15. maí kl. 16.00 í Nýlista-
safninu. Á sýningunni eru teikningar
og skúlptúrverk frá síðastliðnum
tveimur árum. Þrívíðu verkin eru
unnin úr steinsteypu, leir, pappír,
gifsi o.fl. Þóra stundaði nám við MHI
og framhaldsnám hjá Det Jyske
Kunstakademi í Árósum. Sýningunni
lýkur sunnudaginn 30. maí.
Safnsýning
Safnsýning á verkum þeirra Ing-
vars Ellerts Óskarssonar, Sveins
Óskarssonar og Óskars M.B. Jóns-
sonar opnar í Nýlistasafninu á morg-
un, laugardaginn 15. maí, kl. 16.00.
Á sýningunni eru teikningar og litk-
rítamyndir, verk unnið úr plasthúð-
uðu blikki, útskurðarverk og myndir
úr sandsteini. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 30. maí.
Kjartan Guðjónsson
Sýningum Kjartans Guðjónssonar
í Galleríi Fold og Listhúsinu lýkur á
sunnudaginn. Teikningar og gvass-
myndir hafa verið til sýnis í Fold við
Austurstræti, þar er opið daglega frá
10-18, nema laugardaga til klukkan
17 og sunnudaga 13-17. Kjartan er
fæddur 1921. Hann stundaði mynd-
listamám í Chicago og telst til Sept-
em-hópsins. Hann kenndi lengi við
Myndlista- og handíðaskólann, hefur
myndskreytt bækur, blöð og frí-
merki, haldið einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum.
Vorsýning MHI
Vorsýning 46 útskriftamema
Myndlista- og handíðaskólans opnar
á laugardag klukkan 14 á þremur
stöðum í Reykjavík. í nýju Listahá-
skólahúsi við Laugamesveg sýna
nemendur úr málun, skúlptúr, fjöl-
tækni, leirlist og textíl. I Perlunni
sýna nemar úr grafískri hönnun. í
Skipholti 25 sýna nemendur úr graf-
ík og málun. Sýningamar í Listahá-
skólahúsinu og Skipholti verða opnar
15., 16., 22. og 23. maí frá kl. 14-18.
í Perlunni verður opið daglega frá
15. til 23. maí.
Björg í Hafnarborg
Björg Þorsteinsdóttir opnaði mál-
verkasýningu í Hafnarborg, 8. maí
sl. Á sýningunni era málverk og olíu-
krítarmyndir sem unnar vora á sl.
þremur áram. Björg stundaði mynd-
listamám við Myndlistarskólann í
Reykjavík, MHÍ, Akademie der bild-
enden Kunste í Stuttgart og Atelier
17 í París.
Kristín Geirsdóttir í
G15
Nú stendur yfir sýning á verkum
Kristínar Geirsdóttur í G15, gallerí.
Kristín stundaði nám við málaradeild
MHÍ á árunum 1985-1989 og hefur
haldið nokkrar einkasýningar hér á
höfuðborgarsvæðinu og tekið þátt í
samsýningum.
Tónlist
Ljóðatónleikar Rann-
veigar
Rannveig Bragadóttir Postl
messósópran syngur á laugardag á
Ljóðatónleikum Gerðubergs við und-
irleik Jónasar Ingimundarsonar. Þau
flytja ljóðasöngva eftir Schumann,
Grieg, Poulenc og Strauss. Þessir
tónleikar hefjast klukkan 15, en
verða endurteknir á mánudag klukk-
an 20.30. Rannveig hóf söngnám í
Reykjavík en lauk einsöngvaraprófí
frá Tónlistarháskólanum í Vínarborg
fyrir þrem áram með sérstakri opin-
berri viðurkenningu. Hún varð félagi
í óperastúdíói Ríkisóperannar í Vín
1987 og einsöngvari við óperana
1989. Síðan hefur hún sungið í yfir
hundrað sýningum undir stjófh
heimsþekktra listamanna, tekið þátt
í uppfærslum annarra óperahúsa í
Austurríki og á íslandi.
Rókókósvítan frum-
flutt
Tónlistarskóli Bessastaðahrepps á
5 ára afmæli um þessar mundir. Af
því tilefni var pantað tónverk hjá
John Speight, tónskáldi, sem verður
framflutt á skólaslitum á morgun,
laugardaginn 15. maí kl. 14.00.
Verkið er í fjórum köflum, samið
fyrir kór og hljómsveit við texta eft-
ir Þórarin Eldjám og klæðskera-
saurnað fyrir nemendur skólans. Þeir
taka allir þátt í flutningnum sem
verður í hátíðarsal Iþróttahúss
Bessastaðahrepps.