Morgunblaðið - 14.05.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1993
21
Hálfur iiin um glugga
MAÐUR var gripinn við innbrot
á Laugaveginum í fyrrinótt og
var hann kominn hálfur inn í
húsið þegar lögreglan greip í
taumana.
Lögreglan fékk tilkynningu um
að verið væri að bijótast inn í bak-
hús við Laugaveginn. Þegar hún
kom á vettvang sá hún mann, sem
var kominn hálfur inn um glugga
á húsinu. Lögreglan skipaði mann-
inum út aftur, en nokkur tími leið
þar til hann hlýddi, enda reyndist
honum prílið erfitt.
Maðurinn var fluttur í fanga-
geymslur lögreglunnar, en þar er
hann gjörkunnugur staðháttum frá
fyrri tíð.
Morgunblaðið/Kristinn
Lagaprófessor kvaddur til
BETTY Mahmoody, forsvarsmaður samtakanna Einn heimur fyrir
börn, sem stödd er hér á landi i því skyni að aðstoða Sophiu Hansen
í málarekstri hennar í Tyrklandi, ákvað i fyrradag að kalla til þýsk-
an prófessor í lögum með mikla reynslu af skilnaðarmálum milli
Þjóðverja og múslima og kom hann til landsins í gær. Betty ætlaði
að fara af landi brott um hádegi í dag en frestaði för sinni eftir
að hafa farið yfír alla málavexti með Sophiu, lögfræðingi og stuðn-
ingsmönnum hennar. Að ofan eru þau Cramer Donald frá Þýska-
landi, Betty Mahmoody og Sophia Hansen.
Athugasemd við Pressufrétt
Kristján Davíðsson, listmálari, um þátttöku hans í hinni sk. Óháðu
hefur beðið Morgunblaðið að koma listahátíð er byggð á misskilningi
því á framfæri, að frétt í vikublað- forráðamanna hátíðarinnar og
inu Pressunni, sem kom út í gær, harmar hann þennan misskilning.
• • '
Okumenn tekn-
ir á Laufásvegi
LÖGREGLAN hefur að undan-
förnu þurft að hafa afskipti af
allmörgum ökumönnum sem hafa
ekið á ólöglegum hraða inn á
Laufásveg frá Hringbraut. Leyfi-
legur hraði þama er 30 km og
virðast margir ökumenn ekki átta
sig á því.
Athugasemd frá Borgey hf.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Borgey hf. á Höfn í Hornafirði:
Af hálfu Borgeyjar hf. hefur ekki
verið dregin dul á að vandi fyrirtæk-
isins er mikill. Kemur þar bæði til
mikil skuldsetning og erfíð greiðslu-
fjárstaða og þörf á að ná betri
árangri í rekstri en verið hefur. Að
hvoru tveggja hefur verið unnið að
undanförnu.
Fjársterkir aðilar hafa á undan-
förnum vikum kannað rekstrarhorfur
Borgeyjar vegna hugsanlegrar þátt-
töku þeirra í endurfjármögnun fyrir-
tækisins. Nú liggja fyrir allar upplýs-
ingar um stöðu Borgeyjar og mun
það flýta fyrir úrlausn málsins. Ýms-
ar leiðir eru úr vandanum og er ver-
ið að skoða þá vænlegustu sem
tryggt getur framtíð Borgeyjar.
I viðræðum við lánardrottna og
hugsanlega fjárfesta hefur komið
fram að stjómendur Borgeyjar og
lánardrottnar em sammála um um-
fang þess vanda sem við er að glíma
og að lausn hans verði að felast í
endurfjármögnun. Endurfjármögn-
unin getur orðið með þrenns konar
hætti, nýju hlutafé, niðurfellingu
skulda og með sölu eigna. Ekki er
sama hvaða eignir em seldar og má
ljóst vera að sala á verulegum veiði-
heimildum mun veikja rekstrarhæfni
fyrirtækisins.
Miklu máli skiptir að starfsmenn
Borgeyjar missi ekki móðinn við þau
skrif sem að undanfömu hafa orðið
í fjölmiðlum. í gær áttu starfsmenn
og stjómendur Borgeyjar mikilvæga
fundi um hvemig þeir gætu snúið
vöm í sókn. Á fundunum kom fram
að neikvæður fréttaflutningur um
Borgey hefur skapað ótta, haft slæm
áhrif á vinnuanda og rekstrarárang-
ur. Þar ákváðu menn að láta ekki
uppgjöf veikja stöðu fyrirtækisins.
Eftir skrif Morgunblaðsins nú í
morgun er enn meiri ástæða til enn
áður fyrir starfsmenn að beijast til
sigurs. Öllu máli skiptir að þeir og
aðrir heimamenn snúi bökum saman
og beijist fyrir framtíð fyrirtækisins.
Rétt er að leggja áherslu á að
ekki hefur komið fram ósk frá lánar-
drottnum um greiðslustöðvun né
ákvörðun tekin um slíkt innan Borg-
eyjar hf. Landsbanki íslands hefur
heldur ekki sett Borgey hf. úrslita-
kosti. Umræða um mál af þessu tagi
er vandmeðfarin og með ólíkindum
að fréttir af trúnaðarfundi sem
stjórnendur Borgeyjar eiga með
Landsbankanum skuli vera komnar
í fjölmiðla með slíkum rangfærslum.
Stjómendur Borgeyjar leggja
áherslu á að niðurstöður liggi fyrir
eins fljótt og auðið er. Miklu máli
skiptir að samkomulag verði milli
eigenda fyrirtækisins og kröfuhafa.
Aths. ritstj.:
I frétt og fréttaskýringu Morg-
unblaðsins í gær um málefni Borg-
eyjar hf. er hvergp fullyrt, að fram
hafi komið ósk frá Iánardrottnum
um greiðslustöðvun eða að slík
ákvörðun hafi verið tekin af hálfu
fyrirtækisins. Morgunblaðið hefur
ekki heldur haldið því fram, að
Landsbankinn hafi sett fyrirtæk-
inu úrslitakosti.
Hins vegar sagði í frétt og
fréttaskýringu blaðsins, að Borg-
ey hf. mundi að öllum líkindum
óska eftir greiðslustöðvun og að
það væri mat helztu lánardrottna,
að fyrirtækinu væri nauðugur
einn kostur að undirbúa formlega
nauðasamninga. Fullyrðingum um
rangfærslur er því vísað á bug,
en yfirlýsing Borgeyjar hf. þess
efnis, að niðurfelling skulda sé ein
þeirra leiða, sem rætt er um er
staðfesting á þvi, að áþekkar að-
gerðir eru til umræðu og fjallað
er um í frétt og fréttaskýringu
Morgunblaðsins.
Það er ekki tilgangur Morgun-
blaðsins að skapa ótta meðal
starfsmanna Borgeyjar hf. heldur
segja frétdr af vandamálum þessa
fyrirtækis eins og annarra fyrir-
tækja í sjávarútvegi.
(DIBTOTOTU ænnaROTR
hver í sínum flokki
LADAS LADASfe LADASLADA
SAFIR
1500cc - 5gíra
495.000 kr.
130.000 kr. út
og 12.417 kr. ‘
í 36 mánuði
SKUTBILL
1500cc - 5gíra Ltix
597.000 kr.
150.000 kr. út
og 15.147 kr.
í 36 mánuði
SAMARA
1500cc - 5gíra
639.000 kr.
165.000 kr. út
og 16.060 kr.
í 36 mánuði
SPORT
1600cc - 5gíra
859.000 kr.
225.000,- kr. út
og 21.543 kr.
í 36 mánuði
Tökuin notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið hefiir verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum.
AFAR KAIMI.IH IÍ IíOSTHí:
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ARMÚUV 13, SÍMl: 68 12 00
BEINN SÍMl: 3 12 36