Morgunblaðið - 14.05.1993, Blaðsíða 27
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1993
JMmfgtmfrliifei
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
VSÍog
kjarasamningar
Irúman áratug hefur
Vinnuveitendasamband
íslands haft verulegt frum-
kvæði í stefnumörkun í efna-
hags- og atvinnumálum
landsmanna. Fram undir lok
áttunda áratugarins hafði
þetta frumkvæði verið í
höndum verkalýðshreyfing-
arinnar um langt skeið. For-
' ystumenn verkalýðsfélag-
anna fóru hins vegar yfir
strikið í pólitískri baráttu
sinni gegn ríkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar veturinn og
vorið 1978 og misstu þetta
frumkvæði úr höndum sér í
kjölfar þess. Síðan hefur
Vinnuveitendasambandið
verið ráðandi í stefnumörkun
á vinnumarkaðnum. —
Þess vegna kom það mjög
á óvart, þegar í ljós kom
fyrir nokkrum vikum, að
Vinnuveitendasambandið
var tilbúið til að standa að
gerð kjarasamninga, sem
augljóslega voru ekki í
nokkru samræmi við þá
ábyrgu og að mörgu leyti
hugmyndaríku stefnu, sem
V innuveitendasambandið
hafði rekið um langt árabil.
Þetta var meira áfall fyrir
VSÍ en ASÍ vegna þess, að
það eru þrátt fyrir allt gerð-
ar meiri kröfur til VSÍ en
ASÍ í þessum efnum.
Á aðalfundi VSÍ sl. þriðju-
dag kvartaði Magnús Gunn-
arsson, formaður VSÍ, mjög
undan neikvæðum viðbrögð-
um ýmissa aðila vegna
þeirra hugmynda að kjara-
samningi, sem VSÍ var
reiðubúið til að standa að.
Formaður VSÍ sagði m.a.:
„Margir urðu til þess að
benda á þær hættur sem
fylgdu auknum halla á
rekstri ríkissjóðs og þá sér-
staklega neikvæð áhrif á
fjármagnsmarkað. Þar voru
á ferðinni þingmenn úr
stjórnarliðinu, áhrifamiklir
embættismenn og þau blöð,
sem helzt hafa stutt við rík-
isstjórnina og töldu sumir
þessara aðila að samningar
af þessum toga væru hreint
ábyrgðarleysi og flótti frá
vandamálunum. Var raunar
svo langt gengið að láta að
því liggja, að halli ríkissjóðs
ykist um allt að 11 milljarða,
ef af samningsgerðinni yrði
... þessi málflutningur skað-
aði nóg til þess, að samstað-
an brast í hópi viðsemjenda
okkar og einstakir aðilar
lýstu sig andvíga samnings-
gerð til lengri tíma.“
Síðan sagði Magnús
Gunnarsson: „Þessi afstaða
hefur skiljanlega komið illa
við marga í röðum viðsemj-
enda okkar, því það er illt
undir því að sitja, ef vilji
mikils meirihluta í verka-
lýðshreyfingunni fær ekki
notið sín vegna ofríkis
fárra.“
Þessi málflutningur for-
manns Vinnuveitendasam-
bandsins vekur furðu. í
fyrsta lagi er það undarlegt
að kenna öðrum um, að
samningar náðust ekki. Ef
eitthvert vit hefði verið í
þessari samningagerð hefðu
aðstandendur hennar ekki
haft mikið fyrir því að ráða
við nokkra fjölmiðla, emb-
ættismenn og stjórnmála-
menn. Samningamir náðust
ekki vegna þess, að fjöl-
mörgum aðilum, ekki sízt
innan VSÍ og ríkisstjórnar,
var ljóst að það var ekki
grundvöllur fyrir svo dýrum
kjarasamningum við núver-
andi aðstæður. í öðru lagi
vekur það undrun, að for-
manni VSÍ skuli vera svo
mikið í mun að „vilji mikils
meirihluta í verkalýðshreyf-
ingunni“ nái fram að ganga.
Þetta er alveg nýr þáttur í
stefnu VSÍ og ekki gott að
segja, hvar þjóðin væri á
vegi stödd, ef vilji slíks meiri-
hluta hefði alltaf fengið að
ráða!
Ef ^ Vinnuveitendasam-
band íslands telur, að það
sé grundvöllur fyrir kjara-
bótum, sem kosta jafn mikið
og umræddar hugmyndir
hefðu kostað, verða vinnu-
veitendur sjálfir að vera til-
búnir til að greiða þær í stað
þess að senda reikninginn til
skattgreiðenda, eins og til
stóð að gera. Ef Vinnuveit-
endasambandið telur ekki
grundvöll fyrir því, að at-
vinnuvegirnir borgi slíkar
kjarabætur verður að gera
þá kröfu til talsmanna þess,
að þeir standi fast á sínum
sjónarmiðum og slaki hvergi
á.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Sléttanesið frá Póllandi
ÓHÆTT er að segja að glæsilegt fley hafí komið til Akranes
þegar frystitogarinn Sléttanes lagðist þar að bryggju eftir
Póllandssiglingu uppúr hádegi í gær. Skipinu var í desember
siglt til Póllands og breytt í frystitogara í borginni Gdynia.
Má þannig nefna að lengja þurfti skipið um u.þ.b. 10 metra.
Eftir breytinguna var skipinu siglt til Akraness þar sem lok-
afrágangur fer fram en vinnslulína skipsins er frá Þorgeiri og
Ellert á Akranesi. Jens Andrés Guðmundsson, útgerðarstjóri,
sagði að von væri á skipinu til heimahafnar á Þingeyri eftir
2-3 daga og færi það síðan beint á veiðar. Áætlaður kostnað-
ur við breytingar á Sléttanesinu eru 150 milljónir króna.
Samkeppnishiiidranir á markaðinum?
Geisladiskar
dýrastir hér
í KÖNNUN sem Verðlagsstofnun gerði fyrir ári í samvinnu
við Verðlagsráð samkeppnisyfirvalda á Norðurlöndum
reyndust geisladiskar dýrastir í Reykjavík en könnunin náði
til níu höfuðborga í Evrópu. Reyndist verðið í Reykjavík
fimmtungi hærra en verð á geisladiskum í London.
leitt í Ijós tilburði hjá fyrirtækjunum
til að hindra verðlækkun en lítil verð-
dreifing benti til þess að einhveijar
samkeppnishindranir væru á þessum
markaði. Eitt fyrirtæki, Japis hf.,
hefði þó skorið sig úr með lægri
verðlagningu þannig að einhver sam-
keppni væri til staðar.
Að mati breskrar þingnefndar er
álagning á geisladiskum í Bretlandi
of há og sakar nefndin geisladiskaút-
gefendur þar í landi um leynimakk
og ónóga samkeppni.
Guðmundur Sigurðsson viðskipta-
fræðingur hjá Samkeppnisstofnun
sagði að verðið hefði verið 7 til 10%
hærra í Reykjavík en í höfuðborgum
Norðurlanda en lægst var það í Ham-
borg.
Áþekk verðlagning
Hann sagði að verðlagning væri
hér mjög áþekk hjá stæstu innflutn-
ingsfyrirtækjunum og gæti það bent
til samráðs um verðlagningu. Guð-
mundur sagði að könnun hefði ekki
____________ +
Raunveruleg uppstokkun í ríkisstjórninni hefur verið sett í salt
Jón Sigurðsson út-
Karl Steinar inn
Varla er hægt að tala um uppstokkun í ríkisstjóm, þegar einn ráð-
herra hverfur til annarra starfa og annar tekur hans sæti í sljóminni
VANDRÆÐAGANGUR ríkisstjórnarinnar, vegna um-
ræðu um uppstokkun, er orðinn hálfpínlegur, að ekki
sé meira sagt, og ríkissljórnin getur engum um kennt
nema sjálfri sér. Það voru oddvitar ríkisstjórnarinnar,
þeir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson, sem
í sameiningu gáfu yfirlýsingu eftir stjórnarmyndun í
Viðey fyrir rúmum tveimur árum, í þá veru að stokkað
yrði upp í ríkisstjórninni á miðju kjörtímabili hennar.
Það er nú liðlega hálfnað, og sú uppstokkun sem við
blasir að gerð verði er eftirfarandi: Jón Sigurðsson, við-
skipta- og iðnaðarráðherra mun í júníbyijun ákveða að
hætta afskiptum af stjórnmálum og taka við stöðu dr.
Jóhannesar Nordal, sem Seðlabankastjóri. Inn í ríkis-
stjórn í hans stað mun Karl Steinar Guðnason koma.
Punktur - basta. Skoðanir um það hvort þessar tilfærsl-
ur standa undir nafngiftinni „Uppstokkun í ríkisstjórn“
hljóta eðli málsins samkvæmt að vera skiptar. Sjálfstæðis-
menn munu ekki hrófla við einum einasta ráðherra hjá
sér, þar sem þeir tveir ráðherrar sem hugsanlega voru
hreyfanlegir, þar til fyrir skömmu, Halldór Blöndal, sam-
göngu- og landbúnaðarráðherra og Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, hafa nú valdað ráðherrastóla sína
með þeim hætti, að ekki verður einu sinni hægt að stugga
við þeim.
Langlíklegast er að eina breytingin í ríkisstjórn í sumar verði
sú að Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra taki við
embætti Seðlabankastjóra og Karl Steinar Guðnason, alþingis-
maður taki sæti hans í ríkisstjóm.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Innan þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins hefur uppstokkun í ráð-
herraliði flokksins aldrei verið rædd.
Hún hefur ekki verið á dagskrá,
enginn hefur óskað eftir því að hún
væri tekin á dagskrá og enginn hef-
ur borið upp sérstakar óskir eða til-
lögur tengdar því efni. Ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins hafa ekki held-
ur rætt þetta mál sín á milli og sýn-
ist mönnum sem litlar sem engar
líkur séu á því að málið verði á dag-
skrá á næstunni.
Lélegir brandarar
Alþýðuflokkurinn og talsmenn
hans hafa á hinn bóginn rætt ýmis-
legt í tengslum við uppstokkun í
ráðuneytum á kratafundum og for-
maðurinn m.a. varpað fram ýmsum
hugmyndum, sem hann þó hefur
ekki borið við að kynna eða ræða
við samstarfsflokkinn í ríkisstjórn,
Sjálfstæðiflokkinn. Sjálfstæðismenn
hafa því ýmist afgreitt hugmyndir
um uppstokkun, sameiningu ráðu-
neyta landbúnaðar, sjávarútvegs og
iðnaðar í einu atvinnuvegaráðuneyti
og nýja verkaskiptingu flokkanna í
kjölfar slíkrar sameiningar, sem
hálfgert skemmtiefni á kratafundum
eða lélega brandara.
Þeir spyija hvort kratar ætlist til
þess að vera teknir alvarlega, þegar
þeir bjóða upp á að taka við stjórn
og starfsviði tveggja ráðuneyta,
landbúnaðar og sjávar, gegn því að
Sjálfstæðisflokkurinn haldi fjár-
málaráðuneytinu, eða að þeir gefi
eftir hálft verksvið viðskiptaráðu-
neytisins, sem er iðnaðarráðuneyti,
gegn því að fá í sinn hlut fjármálin.
Það er skoðun ýmissa sjálfstæðis-
manna að umræða kratanna um
uppstokkun sé að mörgu leyti sprott-
in af þeirra eigin vandræðagangi.
Það verði ekki um neina uppstokkun
að ræða, þótt Jón Sigurðsson setjist
í seðlabankastjórastólinn og Karl
Steinar komi inn fyrir hann. Kratar
séu því að reyna að beina spjótum
sínum að Sjálfstæðisflokknum og
vekja athygli á að þar fari engin
umræða fram um stólaskipti, enda
séu slík skipti ekki á döfinni. Raun-
ar telja ákveðnir ráðherrar sem rætt
hefur verið við, að það sé algjör
misskilningur að nú sé skynsamlegt
að hefja slíka uppstokkun. Það taki
menn a.m.k. tvö ár að setja sig al-
mennilega inn í ráðherraembætti og
það væri að þeirra mati fásinna að
skipta mönnum út, þegar þeir fyrst
séu að ná góðum tökum á starfínu.
Kratar hafa á hinn bóginn tengt
umræðuna um eitt atvinnuvegaráðu-
neyti í stað þriggja, verkefnum á
sviði ríkisfjármála, sparnaðar, hagð-
ræðingar og sameiningar ríkisstofn-
ana. Jafnframt hafa þeir, líkast til
réttilega, bent á að með einu slíku
ráðuneyti og atvinnumálaráðherra,
þá væri stórlega hægt að draga úr
því hagsmunagæsluhlutverki sem
atvinnuvegaráðherrarnir, einkum
landbúnaðar- og sjávarútvegsráð-
hérra, sinni í svo ríkum mæli.
Sjálfstæðismenn eru þeirrar skoð-
unar að utanríkisráðuneytið, sem
Jón Baldvin hefur sagt að kæmi til
greina að eftirláta Sjálfstæðis-
flokknum, fyrir annað hvort fjár-
mála- eða sjávarútvegsráðuneyti, sé
ekki lengur hin eftirsótta verslunar-
vara sem það var, þar sem samning-
um um Evrópska efnahagssvæðið
sé lokið, og verksvið utanríkisráð-
herra á næstunni verði vart annað
en halda uppi diplómatískum tengsl-
um við þau ríki sem ísland er í stjórn-
27
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra mun ekki eiga svo gott
með að hrókera í ráðherraliði
Sjálfstæðisflokksins, eftir þau
upphlaup sem urðu á vorþingi
í sambandi við landbúnaðar-
mál og starfsmannamál Sjón-
varpsins. Raunar er því haldið
fram að forsætisráðherra telji
ekki ráðlegt að breyta til í
ráðherraliði Sjálfstæðis-
flokksins, enn sem komið er.
málasambandi við, fara í kurteisis-
heimsóknir og fá aðra utanríkisráð-
herra hingað til iands í samskonar
heimsóknir og hafa ofan af fyrir
þeim.
Vill halda í fóstra sinn og nafna
Ákveðnir kratar halda því fram
að Jóni Baldvin sé eftirsjá að fóstra
sínum og nafna úr ríkisstjórn yfir í
Seðlabankastjórastól og hann vilji
mikið til vinna, til þess að lokka Jón
Sigurðsson til áframahaldandi
stjórnmálaþátttöku. Jón er ekki
ginnkeyptur fyrir slíku og fátt sem
gæti breytt þeirri ákvörðun hans um
að þiggja stólinn í Seðlabanka, þeg-
ar bankaráð Seðlabankans gerir til-
lögu um hann sem Seðlabankastjóra
í byijun júnímánaðar. Það broslega
við þá tiliögugerð er að bankaráðið
þarf að gera tillögu um Seðlabanka-
stjóra við viðskiptaráðherra, Jón Sig-
urðsson, sem í kjölfar þess mun
ræða málið við samráðherra sína.
Kratar telja að það eina sem
gæti fengið Jón Sigurðsson til þess
að ákveða áframhaldandi stjórn-
málaþátttök” sé tilboð um fjármála-
ráðherrastólinn. Jón Baldvin væri
að sögn reiðubúinn til mikilla við-
skipta, ef það mætti tryggja áfram-
hald nafna hans í pólitík, en ef af
slíkum viðskiptum yrði, þá myndi
formaður Alþýðuflokksins skilyrða
þau því að Jón Sigurðsson gengist
inn á að halda áfram að þessu kjör-
tímabili loknu. Þá vandast aftur
málið, því Jón Sigurðsson er ekki
maður prófkjöranna, eins og kunn-
ugt er. Hann féllst á framboð í
Reykjavík á sínum tíma, gegn því
að hann fengi öruggt þingsæti á
silfurfati. Þegar hann fór fram í
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, hefur reifað
hugmyndir um uppstokkun og
nýja verkaskiptingu ríkis-
stjórnar í fjölmiðlum og á
kratafundum, án þess að hafa
minnst einu orði á þessar hug-
myndir við samstarfsflokkinn,
Sjálfstæðisflokkinn.
Reykjanesi, var hið sama uppi á ten-
ingnum. Þannig að þótt kratar velti
fyrir sér ýmsum hliðum á þessu
máli og möguleikum, má telja svo
til frágengið að niðurstaðan verði
sú að Jón Sigurðsson verði orðinn
Seðlabankastjóri um mitt sumar.
Róttækari hugmyndir
Einhver umræða hefur farið fram
um það innan Alþýðuflokksins að
viturlegra væri af hálfu flokksins
að stokka upp í ráðherraliði sínu
með afgerandi hætti. Þeir fáu sem
eru stuðningsmenn róttækra breyt-
inga segja að ljóst sé að Eiður
Guðnason sé að hætta í pólitík, hvort
sem það verði hans ósk eða ekki.
Hann eigi einfaldlega engan stuðn-
ing til áframhaldandi þingsetu í sínu
kjördæmi, Vesturiandi, og því sé
sjálfhætt. Sömuleiðis liggi nokkuð
ijóst fyrir að Karl Steinar muni ekki
verða mikið lengur í pólitík og því
væri jafnráðlegt að hann færi beint
í forstjórastól Tryggingastofnunar,
án millilendingar í ríkisstjórn og að
Eiði yrði fundið sendiherraembætti
og tveir nýir menn kæmu inn í ráð-
herralið Alþýðuflokksins, þeir Össur
Skarphéðinsson, þingflokksformað-
ur, og bæjarstjórinn úr Hafnarfirði,
Guðmundur Arni Stefánsson, sem
þá yrði að láta af stöðugri stjórnar-
andstöðu sinni. Frómt frá sagt munu
þetta vera vangaveltur örfárra
manna og ekki njóta nokkurs stuðn-
ings meðal forystumanna Alþýðu-
flokksins, síst formannsins sjálfs.
Jafnframt er vitað að Eiður Guðna-
son hugsar sér ekki til hreyfings á
miðju kjörtímabilinu og hyggst sitja
sem umhverfisráðherra kjörtímabilið
á enda.
Vika eldri borgara
Föstudagur 14. maí
Gönguferð
um Landakotshæð ki. 8. Gengið
frá Borgarhúsi. Fararstjóri Sig-
urður Líndal prófessor.
Café París
morgunkaffi frá kl. 9.30.
Hótel Borg
morgunkaffi frá kl. 9.30.
Dómkirkjan
Helgistund kl. 14. Séra Ólöf Ól-
afsdóttir.
Hótel Borg
Eftirmiðdagskaffi kl. 15 með lif-
andi tónlist.
Café París
Eftirmiððagskaffi ki. 15 með lif-
andi tónlist.
Ráðhúsið
Dagskrá frá kl. 16. Kór félags
eldri borgara á Selfossi, undir
stjórn Sigurveigar Hjaltested.
Leikhópurinn Snúður og Snælda.
Los Dos Paraguayos.
HÓPUR eldri borgara tók fram gönguskóna í
gær og fór í gönguferð um Öskjuhlíðina, en
þetta var liður í dagskrá Viku eldri borgara
Aldraðir ganga á Öskjuhlíð
sem nú stendur yfir. Safnast var saman á Hót
el Borg og drukkið þar morgunkaffi, en síðai
var ekið um miðborgina og að Öskjuhlíð.
Sjávarútvegsráðherra um afgreiðslu hvalveiðiráðsins á kröfu Japana
Niðurstaðan í fullu samræmi
við það sem við reiknuðum með
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að það
hafi alls ekki komið á óvart að krafa Japana um að fá að
veiða 50 hrefnur við Japansstrendur hafi verið felld á árs-
fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins í gær. „Þessi niðurstaða er í
fullu samræmi við það sem við reiknuðum með, og ég hefði
orðið miklu meira undrandi ef hvalveiðráðið hefði farið að
samþykkja kvóta,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið.
„Ástæðan fyrir því að við sögðum
okkur úr ráðinu var sú að við trúðum
ekki gylliboðum þeirra sem sögðu
að það væri rétt að bíða, og að því
kæmi að hvalveiðiþjóðirnar myndu
fá kvóta. Nú hefur það komið í ljós
að Bandaríkin sem ráða ferðinni
hafa hafnað vísindalegum niðurstöð-
um, og þessi afstaða hvalveiðiráðsins
er í fullu samræmi við þau sjónat-
mið meirihluta ríkjanna að virða
ekki hvalveiðisáttmálann,“ sagði
sjávarútvegsráðherra.
Frétt úr lausu
lofti gripin
Norsk fréttastofa, Norsk teleg-
rambyrá, birti í gær frétt um að ríkis-
stjórn íslands hefði rætt þann mögu-
leika að hefja hrefnuveiðar á þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní, oghefðu Islend-
ingar óskað eftir að fá aðgang að
norskum rannsóknagögnum til þess
að reikna út veiðikvóta. Þorsteinn
Pálsson sagði þessa frétt algerlega
úr lausi lofti gripna, og hefði hún
ekki við nein rök að styðjast. „Það
hefur verið mjög gott samstarf miili
Islenskra og norskra vísindamanna,
en við eigum mjög góð vísindaleg
gögn og höfum lagt þau fram fyrir
Alþjóða hvalveiðiráðið árum saman
og ráðum alveg yfir nægjanlegri vís-
indalegri þekkingu. En við metum
auðvitað mjög mikils gott samstarf
við norska vísindamenn," sagði
hann.
f