Morgunblaðið - 14.05.1993, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1993
49
Vinningstölur ,-------------
miðvikudaginn:| 12. maf 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
H 6a(6 1 77.250.000,-
2 .ffffl 0 1.095.595,-
R1 5 af 6 15 57.388,-
E| 4a(6 969 1.413,-
ra 3 af 6 fJ+bónus 3.558 165,-
Aðaltölur:
(§)(g)(48)
Heildampphæð þessa viku:
81.162.682,-
áísi.: 3.912,682,-
UPPLYStNGAR, SIMSVARI 91- 68 15 1,
LUKKULtNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MED FYRÍflVARA UU PRENTVtLLUR
FYRIR GARÐA
OG SUMARHÚS
MR búðin*Laugavegi 164
sími 11125 * 24355
LÆKNARITARI
hlekkur í keðju heilbrigðis-
starfsfólks
Frá Guðfinnu Ólafsdóttur:
FELAG íslenskra læknaritara var
stofnað árið 1970. Allt frá stofnun
félagsins hefur það haft að aðal-
markmiði sínu að koma á námi í
læknaritun hér á landi og löggild-
ingu starfsheitisins. Læknaritarar
höfðu hlotið menntun sína m.a. á
Norðurlöndunum og í Englandi en
flestir höfðu ekki hlotið neina sér-
staka starfsmenntun, heldur voru
með stúdentspróf og byrjuðu starf
sitt á þeim grunni.
Læknaritarar fengu löggildingu
Heilbrigðismálaráðuneytisins á
starfsheiti sínu árið 1986 og fengu
þeir læknaritarar sem ekki höfðu
lokið sérstöku læknaritaranámi
löggildingu út á ákveðna starfs-
reynslu. Arið 1991 lauk löggildin-
um án tilskilinnar menntunar al-
farið. Nú öðlast enginn löggildingu
í læknaritum nema að loknu námi.
Haustið 1992 hófst kennsla í
læknaritun við Fjölbrautaskólann
í Ármúla á sérstakri starfsrétt-
indabraut en sá skóli er í raun
orðinn móðurskóli heilbrigðis-
menntunar á framhaldsskólastigi,
sem verður að teljast skynsamlegt
á tímum niðurskurðar og um leið
verður námið markvissara við það
að vera aðeins á einum stað.
í samvinnu Félag íslenskra
læknaritara, Heilbrigðis- og
menntamálaráðuneytis var gengið
frá námskrá fyrir læknaritara.
Námið skyldi vera tvær annir bók-
legar að loknu stúdentsprófi eða
hliðstæðri menntun og 9 mánaða
starfsþjálfun sem nemendur
fengju á heilsgæslustöðum og
sjúkrahúsum. Læknaritaranám við
Fjölbrautaskólann í Ármúla er
eina viðurkennda læknaritara-
námið á íslandi. Skólinn hefur
gert samning við Ríkisspítalann,
Borgarspítalann, Heilsugæslu-
stöðvarnar í Reykjavík og víðar
um starfsþjálfun.
En hvað er læknaritari og hvað
gerir hann?
Læknaritari er samstarfsmaður
lækna í öllum sérgreinum læknis-
fræðinnar við að útbúa læknis-
fræðilegar skýrslur sem eru ómet-
anlegar heimildir varðandi sjúk-
dóma einstakra sjúklinga og fyrir
vísindastörf varðandi sjúkdóma og
slys.
Fullkomnar og nákvæmar
sjúkraskýrslur eru ákaflega mikil-
vægar öllum sem láta sig varða
gæði vg framþróun heilbrigðis-
þjónustu í nútíma þjóðfélagi.
Læknaritari er því mikilvægur
hlekkur í keðju heilbrigðisstarfs-
fólks við sjúkrahús, heilsugæslu-
stöðvar, læknastofur og vísinda-
stofnanir innan læknisfræðinnar.
í Reglugerð um sjúkraskrár og
skýrslugerð varðandi heilbrigðis-
mál nr. 227/1991 segir m.a.: „All-
ir læknar sem taka einstakling til
greiningar og meðferðar skulu
halda sjúkraskrá um hvern ein-
stakling". og „Sérfræðingar sem
hefur haft sjúkling til greiningar
eða meðferðar skal ávallt senda
læknabréf til heilsugæslu- eða
heimilislæknis sjúklings og ef við
á til þess sérfræðing sem hafði
milligöngu um komuna.“
Læknaritari skráir eftir handriti
eða segulbandi læknis sjúkra-
skýrslur, dagnótur, læknabréf,
útskriftir, skoðanir sérfræðinga,
aðgerðarlýsingar, röntgenlýsing-
ar, dánarvottorð og ýmis vottorð
fyrir sjúklinga. Auk þess fyrir-
lestra, ritgerðir og önnur atriði
vísindalegs eðlis á ensku, íslensku
eða Norðurlandamálum.
Læknaritarar hafa umsjón með
skráningu sjúkdómsgreininga og
aðgerða. Þeir hafa ennfremur
umsjón með spjaldskrám og varð-
veislu sjúkraskráa en skv. áður-
nefndri reglugerð er skylt að
geyma sjúkraskrá á tryggum stað
og þess skal gæta að einungis
þeir starfsmenn sem nauðsynlega
þurfa eigi aðgang að skránni. Við
alla meðferð sjúkraskráa skal það
haft í huga að þær hafa að geyma
upplýsingar um einkahagi sjúkl-
ings sem ekki eru ætlaðar almenn-
ingi til skoðunar.
Læknaritarar hafa einnig um-
sjón með umfangsmiklum árs-
skýrslum um læknisfræðileg efni.
í Félagi íslenskra læknaritara
eru nú um 350 félagar og eru á
þriðja hundrað læknaritarar starf-
andi á hinum ýmsu stofnunum
heilbrigðissviðsins.
GUÐFINNA ÓLAFSDÓTTIR,
formaður Félags Islenskra lækna-
ritara,
Engjavegi 83,
Selfossi.
LEIÐRÉTTIN G AR
Meira vín
í ísinn
Líkjörmagn misritaðist í upp-
skrift af konfektís, sem birtist á
neytendaopnu í gær. í stað 0,2 cl
átti að standa 0,2 dl.
Eignir Tölvusam-
skipta hf.
Þau mistök urðu í blaðinu í gær
að farið var rangt með ummæli
Davíðs Björnssonar, forstöðu-
maums fyrirtækjasviðs Landsbréfa,
um Tölvusamskipti. Sagt var að
eignir lyrirtækisins hefðu verið níu
milljónir um síðustu áramót en hið
rétta er að Davíð sagði að eignir
fyrirtækisins aðrar en forritið og
dreifingarfyrirtæki þess hefðu num-
ið níu milljónum króna um sl. ára-
mót. Eru hlutaðeigandi beðnir vel-
virðingar.
Nafnabrengl
í frétt á blaðsíðu 33 í Morgun-
blaðinu í gær féll niður nafn Páls
R. Magnússonartrésmiðs, sem kjör-
inn var á Alþingi sem varamaður í
stjóm Húsnæðisstofnunar. Þá varð
einnig brengl í sömu frétt, J)ar sem
skýrt var frá kjöri í stjóm Áburðar-
verksmiðju ríkisins. Þar var sagt
að kjörinn hefði verið Kjartan Sig-
fússon. Þetta nafn hefur hins vegar
orðið til úr tveimur nöfnum manna,
sem kjörnir voru í stjórnina, en
þeir em Kjartan Ólafsson og Stefán
H. Sigfússon. Beðist er velvirðingar
á þessu.
Athugasemd frá
ökumanni
í frétt Morgunblaðsins þriðjudaginn
11. maí sl. af árekstri í Hveragerði
var sagt að sendibifreið hefði verið
ekið inn á í veg fyrir fólksbifreið
sem síðan valt ofan í Varmá. Öku-
maður sendibílsins óskar eftir að
koma þeirri athugasemd á fram-
færi að hann hafi ekki ekið í veg
fyrir bílinn og ekki farið yfir á rang-
an vegarhelming. Hafi orðalag
fréttarinnar verið óljóst og valdið
misskilningi er beðist velvirðingar
á því.
Sjómannsskottís
Mynd, sem birtist frá viku eldri
borgara í Reykjavík á miðsíðu
blaðsins í gær, er af dönsumm úr
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. Á
myndinni eru Sverrir Sverrisson og
Kolfinna Sigurvinsdóttir og dansa
þau sjómannsskottís. Myndin er því
ekki af sjónleik eins og sagði í
myntatexta og eru hlutaðeigendur
beðnir afsökunar.
Stúdentastjarnan,
14 karat gull, hálsmen eða prjónn.
Verð kr. 3.500
Im Sipunisson
Skorl^ripdverzlun
LAUGAVEG 5 - 101 - REYKJAVÍK
SÍMI 13383
Á meðan fuglalífið er að blómstra og sumarið
að ganga í garð bjóðum við eftirfarandi
ferðapakka ftRE/*)
(-S?/ \/ Gisting í eina nótt á HóteN^r
, v/ Eyjaferöum (herb. m/baði).
^ ^ Morgunverður þar sem m.a.
er boðið upp á svartbaksegg.
Ævintýrasigling með Eyjaferðum'
þar sem m.a. er veiddur
skelfiskur og ígulker sem snætt
er um borð.
Þríggja rétta máltíð
á veitingahúsinu Knudsen:
Forréttur:
Sjávarréttasúpa með koníakstári.
Aðalréttur:
Rósasteiktur lanibahryggsvöðvi
_ _ _ _ ' ml dijonsinnepssósu.
Eftirréttur:
\ ístvenna ogferskir ávextir
ÞETTA ásamt heitri
súkkulaðisósu.
Lifandi tónlist
allar helgar á
Knudsen. .
FYRIR ADEH
pr. mann (tveir í herb.).
Hægt er að fá ódýrari gistingu.
Gisting [ fleiri nætur hagstæðari.
VETRARVERÐ GISTINGAR GILDIR
FRAM YFIR NÆSTU MÁNAÐARMÓT
i. 6.800,-
Pantanir í síma
93-81450.
Eyjaferðir/Knudsen
Stykkishólmi