Morgunblaðið - 14.05.1993, Síða 51

Morgunblaðið - 14.05.1993, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 14. MAI 1993 51 KNATTSPYRNA I I I í I I I I Knattspyrnumenn Vals ekki eftirbátar handknattleiksmanna í afmælisvikunni: Bikarínn þriðja áriðíröð að Hlíðarenda BIKARMEISTARAR Vals tryggðu sér nafnbótina meistarar meist- aranna þriðja árið í röð, er þeir lögðu íslandsmeistara ÍA að velli á Akranesi í gærkvöldi, 2:1 f árlegum leik bikarhafanna tveggja frá keppnistímabilinu á undan. Leikurinn var ágætlega spilaður af báðum liðum, og hefði sigurinn í raun getað lent hvorum megin sem var. En Valsarar höfðu heppnina með sér og tryggðu sér sigur. Varnarmaðurinn kunni Sævar Jónsson gerði bæði mörk Vals, og var það fyrra sérlega glæsilegt — þrumuskot úr aukaspyrnu efst í markvinkilinn. Skagamenn hófu leikinn af krafti og eftir aðeins þriggja mín. leik lá knötturinn í neti Vals- manna. Haraldur Sigþór Ingólfsson átti fasta Eiríksson sendingu fyrir skrifar markið eftir gott gegnumbrot vinstra megin og þar var Þórður Guðjóns- son mættur og renndi af öryggi framhjá Bjarna af stuttu færi. Heimamenn höfðu undirtökin og fengu nokkur góð tækifæri til að bæta við marki. Það besta fékk Haraldur Ingólfsson eftir hálftíma leik er hann átti þrumuskot af stuttu færi, en knötturinn fór í stöngina utanverða og framhjá. Skömmu áður átti Þórður góðan skalla rétt framhjá. Eftir þetta komu Valsmenn mun meira inn í leikinn og fengu nokkur góð færi. Næst því að jafna komst Anthony Karl Gregory er hann skallaði knöttinn ofan á þverslána eftir fyr- irgjöf frá hægri. Jafnræði var með liðunum í byij- un síðari hálfleiks. Á 53. mín. fengu Valsmenn. aukaspyrnu rétt utan vítateigshorns vinstra megin. Sæv- : Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Hetja Valsmanna Sævar Jónsson var hetja Valsmanna í leiknum gegn Skagamönnum í meistarakeppni KSÍ sem fram fór á Akranesi í gær. Hann skoraði bæði mörk Vals í 2:1 sigri. ar fyrirliði Jónsson gerði sér lítið fyrir og sendi knöttinn með þrumu- skot efst í homið ijær. Stórglæsi- legt mark! Aðeins tveimur mín. síð- ar voru Skagamenn hársbreidd frá því að ná forystu að nýju er Harald- ur átti góða fyrirgjöf og Þórður skallaði naumlega yfir úr góðu færi. Eftir þetta voru heimamenn með góð tök á leiknum og sóttu mun meira en Valsmenn beittu mjög hættulegum skyndisóknum og eftir eina slíka skoruðu þeir. Þórði Birgi Bogasyni var brugðið við vítateigs- homið — og vítaspyma réttilega dæmd. Úr henni skoraði Sævar Jónsson af öryggi. Skagamenn reyndu hvað af tók að jafna metin og komust næst því á 84. mín. er Jón S. Helgason bjargaði á mark- línu skoti Haraldar Ingólfssonar. Sævar Jónsson var sem klettur í vöm Vals, Bjarni mjög ömggur í markinu og Þórður Birgir var hættulegur. Hjá ÍA var Þórður Guðjónsson mjög góður og hafði gífurlega yfírferð, sömuleiðis Ólaf- ur Þórðarson og Luca Kostic var einnig góður, sem fyrr. Þorvaldur Örlygsson Þorvaldur frá Forest Ekki inni í myndinni hjá nýja framkvæmdastjóranum ÞORVALDUR Örlygsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, verð- leika knattspyrnu með félagsliði ur ekki áfram íherbúðum Nottingham Forest. Þaðskýrðist í sumar. Næsta verkefni væri í gær, eftir að hann ræddi víð Frank Clark, sem tók þá við landsleikurinn gegn Lúxemborg framkvæmdastjórn liðsins. ytra á fímmtudag í næstu viku ■Vlýji framkvæmdastjórinn tjáði ekki áfram hjá Forest. Algjörlega t ^ ný 1 ™ Þorvaldi það í gser að hann er óljóst, að hans sögn hvert Englands og skoðað, hvað vær, væri ekki inni í framtíðarmynd hann heldur. > bof.K \eTlð vær' f sinn hjá félaginu, og sagði landsl- Þorvaldur sagðist ekki reikna ekv? sWra'frá rbessTstid ' iðsmaðurinn því ljóst að hann yrði með að koma til íslands til að y P K1- KÖRFUKNATTLEIKUR Stálu sigrinum á elleftu stundu Eistlendingar sigruðu íslendinga með tveggja stiga mun, 91:93, í síðasta leik liðanna af þremur í íþróttahúsi Vals að ValurB Hlíðarenda í gær- Jónatansson kvöldi. Eistland gerði skrifar sigurkörfuna þegar ein sekúnda var til leiksloka í sveiflukenndum leik. íslenska liðið byijaði af miklum krafti, lék stífa pressuvörn og skor- aði grimmt — komst í 10:1 og 15:3 þegar fjórar míntúr voru búnar. En þá dofnaði yfir íslensku leikmönn- unum og gestirnir söxuðu á forskot- ið og komust yfir áður en flauta var til leikhlés, 42:46. Eistlendingar náðu mest 14 stiga mun í seinni hálfleik 59:73 er 10 mínútur vom eftir. Þá kom góður kafli þar sem Jón Arnar, Guðmundur Bragason og Albert Óksarsson fóm á kostum. Þegar fímm sekúndur voru eftir jafnaði Jón Arnar leikinn úr v>taskotum, 91:91. En það dugði ekki til því gestirnir stálu sigrinum á elleftu stundu. Guðmundur Bragason var yfir- burðamaður í liði Islands. Hann barð- ist mjög vel í vörn og tók á annan tug frákasta og gerði 25 stig. Jón Kr. og Valur byijuðu vel en brást síðan skotfímin. Jón Amar og Albert Óksarsson komu mjög sterkir inní leikinn í lokin. Annars virkaði liðið þreytt eftir sex erfiða leiki á sjö dög- um. Eistlendingar sýndu ekki nein snilldartilþrif og á góðum degi eigum við að vinna þá. „Það var svekkjandi að ná ekki framlengingu úr því sem komið var,“ sagði Torfi Magnússon, þjálfari. „Það var sýnileg þreyta í liðinu en við spilum með fjórtán leikmenn og skiptum oft svo menn fengu hvíld og það er því engin afsökun. Besti leikmaðurinn i þessum leikjum er sá sem hefur spilað mest, Guðmundur Bragason,” sagði þjálfarinn. Morgunblaðið/Kristinn Valur Ingimundarson reynir hér körfuskot í leiknum í gær. Margus Metstak, besti leikmaður Eistlendinga, reynir hávörn. Naumt tap í Helsinki Islenska unglingalandsliðið í körfuknattleik tapaði naumlega fyrir Finnum, 79:86, í fyrsta leik sínum í undanriðli Evrópumótsins í Helsinki í gær. Staðan í leikhléi var 36:48 fyrir Finna. Að sögn Björns Björgvinssonar, fararstjóra, voru liðin mjög áþekk að getu, en munurinn var sá að Finnar hittu betur, sérstaklega úr vítaskotum. Þar var ísland með 52% nýtingu á móti 77% nýtingu hjá Finnum. Bestu menn íslenska liðs- ins að sögn Björns voru Gunnar Einarsson og Bergur Emilsson. Stig íslands: Helgi Guðfinnsson 27, Gunnar Einarsson 17, Ómar Sigmarsson 11, Bergur Emilsson 9, Friðrik Stefánsson 5, Páll Krist- insson 3, Hafsteinn Lúðvíksson 3, Baldvin Johnsen 2 og Arnþór Birg- isson 2. ísland mætir Litháen í dag, en Litháen burstaði Hvíta-Rússland 121:60 í gær. Ellert afhendir UEFA- bikarinn Ellert B. Schram, stjómar- maður í Knattspymusam- bandi Evrópu (UEFA) verður eftirlitsmaður á síðari úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða —r _ UEFA-kepjminni svokölluðu — í Tórínó á Italíu. Ekki nóg með það, heldur á hann að afhenda bikarinn að leikslokum, og verð- ur þar með fyrsti íslendingurinn sem það gerir. Þess má geta að Ellert er varaformaður fram- kvæmdanefndar Evrópukeppn- innar. Það em ítalska stórliðið Juventus og Dortmund frá Þýskalandi sem eigast við. Ju- ventus sigraði 3: l í fyrri úrslita- leiknum í Þýskalandi þannig að telja verður líklegt að EUert muni afhenda hinum heims- kunna Roberto Baggio, fyrirliða ítalska liðsins, bikarinn eftir- sótta. 9 ÚRSLIT ÍA-Valur 1:2 Akranesvöllur, Meistarakeppni KSÍ, fimmtudaginn 13. maí 1993. Aðstæður: Góður grasvöllur, sól og gott veður - örlítil gjóla. Mark ÍA: Þórður Guðjónsson (3.) Mörk Vals: Sævar Jónsson 2 (53., 72. vspj| Gult spjald: Sturlaugur Haraldsson (34.) ÍA, og Baldur Bragason (43.) Val. Rautt spjald: Enginn. Dómari: Guðmundur Stefán Maríasson. ÍA: Kristján Finnbogason — Ólafur Adolfs- son, Luca Kostic, Brandur Siguijónsson (Sigurður Jónsson 72.) — Haraldur Hinriks- son, Sigursteinn Gíslason (Stefán Þór Þórð- arson 82.), Sigurður Sigursteinsson, Ólafur Þórðarson, Haraldur Ingólfsson — Þórður Guðjónsson, Sturlaugur Haraldsson. Valur: Bjami Sigurðsson — Gunnar Gunn- arsson, Sævar Jónsson, Hörður Már Magn- ússon — Jón Grétar Jónsson, Steinar Adolfs- son, Jón S. Helgason, Ágúst Gylfason, Bald- ur Bragason — Þórður Birgir Bogason, Anthony Karl Gregory (Kristján Brooks 46.) llndankeppni HM 6. RIÐILL Sofía, Búlgaríu Búlgaria - ísrael....................2:2 Khristo Stoichkov (35. - vítasp.), Nasko Sirakov (60.) - Ronen Harazi (52.), Ronnie Rosenthal (53.). 25.000. Túrku, Finnlandi: Finnland - Austurríki................3:1 Mika-Matti Paatelainen, Marko Rajamaki, Ari Hjelm - Michael Zisser. Staðan Frakkland..............6 5 0 1 11: 4 10 Búlgaría...............7 4 1 2 12: 7 9 Svíþjóð................4 3 0 1 7: 3 6 Austurríki.............5 2 0 3 9: 9 4 ísrael................5 0 1 4 5:16 1 Finnland...............5 1 0 4 4: 9 2 ísland - Eistland 91:93 íþróttahús Vals, vináttulandsle:kur í körfu- knattleik — þriðji leikur, fimmtunagmn 13 mai 1993. Gangur leiksins: 6:0, 18:1, 15:3, 17:8, 22:10, 25:14, 25:20, 33:33, 42:43, 42:46, 50:61, 54:68, 61:75, 68:78, 74:82, 77:84, 83:84, 85:86, 89:89, 91:91, 91:93. Stig fslands: Guðmundur Bragason 25, Jón Arnar Ingvarsson 16, Jón Kr Gtslason 14, Valur Ingimundarson 8, Magnús Matthías- son 7, Albert Óskarsson 6, Herbert Amar- son 5, Guðjón Skúlason 3, Teitur Örlygsson 3, Henning Henningsson 3, Brynjar Harðar- son 1. Stig Eistlands: Metstak 25, Kuusmaa 19, Kullamae 16, Rumma 12, Pekka 9, Sakssk- ullm 6, Noormets 6. Dómarar: Jón Otti Jónsson og Jón Bender. Áhorfendur: Um 100. FRJALSAR Víðavangshlaup ís- lands á sunnudag Víðavangshlaup íslands fer fram á Hamarsvelli í Borgarfirði sunnu- daginn 16. maí og hefst kl. 14.00. Mæting er við íþróttamiðstöðina í Borgarnesi þar sem öll gögn varð- andi hlaupið verða afhent.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.