Morgunblaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAI 1993
Þj óðréttarfræðingur utanrí kisráðuneytis
Kolbeinsey ræður ekki
úrslitum um lögsögu
GUÐMUNDUR Eiríksson, þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytis,
segist ekki telja að Kolbeinsey hafi úrslitaþýðingu um mörk lögsögu
íslands og Grænlands. Hann segir að það hafsvæði sem við gerum
kröfu til norður af Kolbeinsey sé allt innan 200 mílna frá grunnlín-
um landsins sjálfs og fleira en Kolbeinsey styðji kröfu okkar.
Guðmundur sagði að Kolbeinsey
væri vissulega einn af miðlínupunkt-
unum í lögsögu okkar að Grænlandi
en þó betra væri að hafa eyjuna en
ekki væri hún ekki það afgerandi
að lögsagan minnkaði sjálkrafa við
það að hún hyrfi. Hann sagði að
gráa svæðið milli Íslands og Græn-
lands sem við gerðum kröfu til væri
hvergi fjær landinu sjálfu en 200
mílur og ýmislegt fleira en Kolbeins-
ey leyfði okkur að fara út fyrir mið-
línu milli landanna sjálfra. Guð-
mundur sagðist ekkert vilja tjá sig
um hvort réttlætanlegt væri að
leggja í milljarðakostnað við vörn
Kolbeinseyjar. Hins vegar sagði
hann ekki skemmtilegt að þurfa að
byggja lögsögukröfu á uppsteyptri
eyju ef það þyrfti til að koma.
Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir
V er ðlaunaafhending
DAVÍÐ A. Gunnarsson (t.K.) afhendir Kjell Bjartveit verðlaun
Barátta dagblaðs gegn
reykingum verðlaunuð
SÆNSKA dagblaðið Dagens Nyheter og Kell Bjartveit, yfirlækn-
ir í Osló, hlutu Norrænu heiíbrigðisverðlaunin 1993 að þessu
sinni fyrir baráttu gegn reykingum. Afhenti Davíð A. Gunnars-
son, forsljóri Ríkisspítalanna, verðlaunin við Norræna heilbrigð-
isskólann í Gautaborg á norrænum heilsudegi hinn 6. maí sl.
Verðlaunin nema rúmlega hálfri milljón íslenskra króna.
í greinagerð dómnefndar segir að armikið innlegg í baráttuna gegn
Dagens Nyheter hafi með fjölmörg- þessu mikla heilbrigðisvandamáli.
um vel skrifuðum blaðagreinum út- Kjell Bjartveit hefur í rúmlega 35
skýrt skaðsemi reykinga á heilsufar ár rannsakað skaðsemi reykinga og
manna. Hafi þessi skrif verið þýðing- barist kröftuglega á móti reykingum.
Eldri borgarar á Vordögiim
HÚSASMIÐJAN bauð eldri borgara sérstaklega
velkomna þegar verslunun hleypti af stokkunum
vordögum sínum á föstudag. Dagskrá vordag-
anna verður fram til mánaðamóta og má þar
nefna að kl. 11 í dag verður efnt til svokallaðs
Húsasmiðjuhlaups frá Húsasmiðjunni í Hafnar-
firði og í dag og á morgun verður m.a. boðið
upp á pylsur, gos, kaffi og sælgæti við verslun-
ina í Skútuvogi 16 og verður þar opið milli 12-16
á morgun. Myndin er tekin i versluninni þegar
eldri borgar litu inn á föstudag.
Dagskrá dagsins á
Viku eldri borgara
Gönguferð
Göngu-Hrólfa kl. 10 frá Borgarhúsi. Fararstjóri
Ema Arngrímsdóttir kennari.
Coppelía
íslenski dansflokkurinn býður til sýningar í Borgar-
leikhúsinu kl. 14. Skráning í Borgarhúsinu í símum
15560 og 15565.
Pöbba-rölt
um miðbæinn frá kl. 18 undir leiðsögn Péturs H.
Ólafssonar. Þátttakendur mæti á Fógetann kl. 18.
Lokahátíð
á Lækjartorgi frá kl. 20.
Kvölddagskrá.
Skemmtidagskrá.
Dansað á palli til kl. 23.30. Hljómsveitin Gleðigjaf-
ar. Söngvarar Ellý Vilhjálms og André Bachman.
Kynnir Flosi Ólafsson, leikari.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Morgunblaðið/Kristinn
Góð kirkjusókn dag hvern
í DÓMKIRKJUNNI hefur verið dagleg helgi-
stund meðan Viku eldri borgara hefur staðið
yfir og hafa sótt hana 200 til 300 manns. Mynd-
in er frá slíkri helgistund á fimmtudag, þar sem
séra María Ágústsdóttir aðstoðarprestur í kirlg-
unni flutti hugvekju og kórar aldraðra sungu.
Náði sér í Undirbúningur hafinn að umbótum og nýsköpun í ríkísrekstri
vodkapela
og reiðhjól
Fj ármálaráðlierra vill
afnema æviráðningar
FRIÐRIK Sophusson fjárraálaráðherra sagði á ráðstefnu
um umbætur í ríkisrekstri í gær að ríkisstofnanir þyrftu
að fá aukið svigrúm til að ákveða vinnufyrirkomulag og
skapa þyrfti skilyrði til að unnt væri að skipta um stjórnend-
ur og færa þá til milli verkefna og stofnana. Því væri þörf
á að afnema æviráðningar. Stefnt er að ýmsum breytingum
sem eiga að stuðla að umbótum og nýsköpun í ríkisrekstri
en á fundinum sem fjármálaráðherra boðaði til í gær voru
kynntar hugmyndir sjö vinnuhópa, sem skipaðir voru 40
forstöðumönnum og starfsmönnum ríkisstofnana, um nýjar
stjórnunaraðferðir og áherslur í ríkisrekstri.
MAÐUR nokkur var uppvís
að því í fyrradag að hnupla
pela af vodka úr áfengis-
versluninni í Kringlunni.
Hann náði að hvolfa megn-
inu af drykknum í sig áður
en þjófnaðurinn uppgötvað-
ist, en var gripinn þegar
hann reyndi að hjóla úr úr
verslunarmiðstöðinni á
stolnu reiðhjóli.
Maðurinn átti leið í áfengis-
verslunina þar sem unglingar
höfðu beðið hann um að versla
fyrir sig. Hann gat þó ekki hugsað
sér að fara sjálfur flöskulaus út
og stakk á sig vodkapela.
Drakk pelann í botn
og hjólaði út
Þegar út úr áfengisversluninni
var komið staupaði maðurinn sig
ótæpilega. Því næst settist hann
upp á reiðhjól, sem var til sölu í
nærliggjandi verslun og lagði af
stað út úr húsinu, en starfsmenn
verslunarinnar stöðvuðu hann
fljótlega. Hann gaf þá skýringu,
að kona nokkur hefði beðið sig
um að sækja hjólið, en konan
kannaðist ekkert við það, þegar
lögreglan hafði samband við hana.
Fjármálaráðherra mun leggja
niðurstöðurnar -fyrir ríkisstjóm í
næstu viku til stefnumótunar í ríkis-
rekstrinum.
Samningsstjórnun hafin um
næstu áramót
Vinnuhóparnir mótuðu hug-
myndir sínar í framhaldi af ráð-
stefnu seln fjármálaráðherra boðaði
til 19. mars sl. um umbætur og
nýjunar í ríkisrekstri.
Meðal aðgerða sem fyrirhugað
er að hrinda í framkvæmd á næstu
misserum eru tilraunir sem gerðar
verða með svokallaða „samnings-
stjórnun" á árunum 1994 og 1995.
Hún felur í sér að viðkomandi fag-
ráðuneyti og fjármálaráðuneytið
gera samning við ákveðnar ríkis-
stofnanir, þar sem þjónusta hverrar
stofnunar er skilgreind eins ná-
kvæmlega og unnt er og í samn-
ingnum er tiltekið hve mikið ríkið
greiðir fyrir þjónustuna. Þannig
eiga stofnanirnar að fá aukið sjálf-
stæði, t.d. í starfsmannamálum,
fjárfestingar- og eignamálum og til
öflunar og ráðstöfunar sértekna.
Þá yrði viðkomandi stofnunum
einnig tryggðar ákveðnar fjárveit-
ingar til 2-3 ára í senn.
Aukið sjálfstæði og ábyrgð
stofnana
í ræðu Friðriks Sophussonar fjár-
málaráðherra á fundinum í gær þar
sem hann kynnti hugmyndir vinnu-
hópanna kom fram að áhersla verð-
ur lögð á aukið sjálfstæði og ábyrgð
ríkisstofnana og á að auka sveigjan-
leika í launa- og starfsmannamálum
til að stofnanir fái aukið svigrúm
til að ákveða vinnufyrirkomulag
ásamt sveigjanleika til að umbuna
starfsmönnum sem sýna frumkvæði
og hæfni í starfi. Þá sagði hann
að skapa þyrfti skilyrði til þess að
unnt sé að skipta um stjórnendur
og færa þá á milli verkefna og
stofnana. „Því ber að afnema ævir-
áðningar," sagði Friðrik.
Á næstunni verður einnig unnið
að því að styrkja rammafjárlög sem
stjómtæki í ríkisrekstri og hafínn
verður undirbúningur að gerð áætl-
ana til 2-3 ára, í því skyni að í fram-
tíðinni verði fjárveitingar ákveðnar
til lengri tíma en nú er. Valfrelsi
verður aukið og bein og óbein sam-
keppni efld, m.a. með samanburði
á útboðum og þjónustu.
Kaffiþjófar gripnir
Rannsóknarlögreglan hefur haft hendur í hári þriggja
manna, sem stálu kaffi úr vörugeymslu við Súðarvog.
Kaffið höfðu þeir selt veitingamanni.
Alls hurfu um sjö tonn af kaffi
úr vörugeymslunni. Nú er upplýst,
að maður sem hafði aðgang að
vörugeymslunni, fékk tvo aðra í
lið með sér og fluttu þeir kaffið í
aðra geymslu. Veitingamaður
keypti af þeim og hafa um fjögur
tonn af kaffinu fundist. Óvíst er
hvort þessir menn stálu öllu kaff-
inu, eða aðeins þessum íjórum
tonnum, en áfram er unnið að
rannsókn málsins.
>
>
>
>
>
>
i
i
i
i
i
i
>
>
i