Morgunblaðið - 15.05.1993, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1993
KNATTSPYRNA
Bandaríkjamaður tekur í fyrsta
sinn þátt í úrslitaleik ensku
bikarkeppninnar í dag; John Harkes,
miðvallarleikmaður hjá Sheffield
Wednesday. Hann gerði einmitt
mark liðsins er það tapaði úrslitaleik
deildarbikarkeppninnar gegn Ars-
enal á Wembley um daginn.
Ian Wright, framherji Arsenal, von-
ast til að skora loks í stórleik í
'dag. Wright hefur gert 54 mörk í
77 leikjum með Arsenal, en aldrei í
úrslitaleik. Þá hefur hann ekki náð
að skora í neinum þeirra átta land-
sleikja sem hann á að baki fyrir
England.
Knötturinn hefur tvisvar sprungið
í bikarúrslitaleik á Wembley —
árin 1946 og 1947.
Arsenal leikur í dag í tólfta skipti
til úrslita í bikarkeppninni.
Ekkert lið hefur komist jafn oft í
úrslit.
Reglum verður breytt í Englandi
frá og með næsta keppnistíma-
biii þannig að nafn leikmanns skal
ætíð skráð á bak keppnistreyju hans.
Forskot verður tekið á þessu sælu í
dag, og verða allir leikmennirnir á
Wembley merktir á þennan hátt.
I Btlit er fyrir gott veður í London
í dag, þó ekki sé búist við sól-
skini, þannig að úrslitaleikurinn fer
eflaust fram við bestu ákjósanlegu
aðstæður eins og svo oft áður.
S eiknað er með að enski lands-
*!■ liðsmaðurinn David Hirst verði
í frámlínunni hjá Sheffield Wed-
nesday í dag, en hann hefur verið
meiddur undanfarið. Ekki er vitað
hvort Mark Bright eða Paul War-
hurst verða með honum í sókninni,
en hugsanlega verður þeim öllum
þremur 'stillt upp þar. Warhurst er
varnarmaður, sem settur var í sókn-
ina eftir að Hirst meiddist og hefur
gert 18 mörk í vetur.
Steve Morrow, hetja Arsenal í
úrslitaleik deildarbikarkeppn-
innar gegn Sheff. Wednesday á
Wembley um daginn, fær verðlauna-
pening sinn fyrir þann sigur í dag.
Hann slasaðist í fagnaðarlátunum
-“Kftir sigur Arsenal og var fluttur á
sjúkrahús. Hann gengur upp þrepin
að heiðursstúkunni og tekur við pen-
ingi sínum 25 mín. áður en leikurinn
hefst í dag.
Tekst Arsenal að
stöðva Waddle?
ARSENAL og Sheffield Wed-
nesday mætast í úrslitaleik
ensku bikarkeppninnar f dag á
Wembley. Ávallt er mikið í húfi
þegar komið er í úrslit keppn-
innar — en aðstæður eru jafn-
vel óvenju spennandi að þessu
sinni, þvf það gerðist í vetur í
fyrsta skipti að sömu lið mæt-
ast f úrslitum bikarkeppninnar
og deildarbikarkeppninnar.
Arsenal hafði betur ífyrri viður-
eigninni, og ætla leikmenn liðs-
ins sér að sjálfsögðu sigur aft-
ur nú, en leikmenn Wednesday
ætla sér hins vegar ekki að
þurfa að kyngja tapi aftur.
Það er talið velta mikið á
frammistöðu útheijans Chris
Waddles hjá Sheffield Wednesday,
hvort lið hans á möguleika á sigri.
Waddle náði sér ekki á strik í fyrri
leiknum, og þar með komst lið hans
aldrei almennilega í gang. Waddle
var kjörinn knattspyrnumaður árs-
ins í Englandi á dögunum, af frétta-
mönnum og bíða menn spenntir
eftir frammistöðu hans í dag. Hvort
hann nær að kóróna frábært keppn-
istímabil með bikarmeistaratitli, eða
hvort allt fer á sömu leið og síðast.
Herbragð George Grahams,
stjóra Arsenal, í úrslitaleik deildar-
bikarkeppninnar, heppnaðist full-
komnlega. Hann reyndi ekki að láta
taka Waddie sérstaklega úr umferð
heldur lét hann unglinginn Steve
Morrow elta miðvallarleikmanninn
John Sheridan hvert sem hann fór.
Sheridan hefur verið mjög kraft-
mikill á miðjunni hjá Wednesday,
verið iðinn að vinna knöttinn og
látið Waddle síðan hafa hann. Þetta
tókst liði Arsenal að stöðva í síð-
asta úrslitaleik og Waddle var því
nánast vængstífður vegna þess hve
sjaldan hann fékk boltann. Bolta-
laus skapaði hann ekki mikla hættu.
Hetjan fjarri
Morrow, sem auk þess að taka
Sheridan algjörlega úr umferð gerði
sigurmarkið á Wembley, er illa
fjarri góðu gamni í dag vegna
meiðsla sem hann hlaut í fagnaðar-
látunum eftir þann leik. Fyrirliði
Arsenal, Tony Adams, var með
hann á háhest en missti strákinn,
þannig að hann handleggsbrotnaði.
Ekki var ljóst í gær hver kæmi í
liðið í hans stað en líklegast er að
það verði Daninn John Jensen —
sem lítið hefur fengið að spreyta
sig síðan hann kom til Arsenal sl.
sumar, eða unglingurinn Ian Selley.
Stuðningsmenn
Arsenal í Ölveri
Arsenal-klúbburinn gengst fyrir
opnu húsi í veitingahúsinu Ölveri í
Glæsibæ í dag, í tilefni bikarúrslita-
leiksins í Englandi. Húsið verður
opnað kl. 14, hálftíma fyrir leik.
Knattspyrnumaður ársins
Chris Waddle, leikmaður Wednesday, sem kjörinn var knattspyrnumaður ársins
í Englandi á dögunum af blaðamönnum. Búist er við að það velti mikið á
frammistöðu hans í dag hvort lið hans sigri.
Venables rekinn
en heldur starfinu
Terry Venables, stjórnarmaður
í enska knattspymuféiaginu
Tottenham og framkvæmdastjóri
þar á bæ, var í gær rekinn frá
félaginu — en síðar um daginn
kvað dómari upp þann úrskurð að
Venables skyldí settur í starfið á ný!
Venables var á sínum tíma leik-
maður Tottenham, síðar fram-
kvæmdastjóri liðsins — keypti þá
m.a. Guðna Bergsson — en hætti
síðan að skipta sér af liðinu sjálfu
og er nú einn eiganda, stjómarmað-
ur, og sér um rekstur fyrirtækis-
ins, sem hann á 23% hlut í.
Það var stærsti hiuthafinn, Alan
Sugar — sem er forstjóri tölvufyrir-
tækisins Amstrad — sem sá til
þess að Venables var látinn fjúka.
Sugar á 46% hlutafjár {Tottenham.
Hópur stuðningsmanna Totten-
ham safnaðist saman fyrir utan
White Hart Lane, leikvang félags-
ins, strax og fréttir bárust af brott-
rekstri Venables. Kröfðust þeir að
hann yrði um kyrrt en Sugar færi
á brott. Nokkrir leikmanna Totten-
ham tóku fréttunum einnig illa, og
hótuðu að yfirgéfa félagið ef Vena-
bles kæmi ekki aftur til starfa.
Síðdegis bárust svo þær fregnir
að dómari hefði úrskurðað á þá
leið að Venables skyldi settur í
starfið á nýjan leik, og féllst þar
með á rök hans að brottreksturinn
hefði ekki verið ákveðinn með
hagsmuni félagsins að leiðarljósi.
Nánar verður fjallað um málið fyr-
ir dómi 25. maí.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Chicago óstöðvandi
Charles Barkley með stórleikfyrir Phoenix gegn Spurs
Leikmaður í treyju númer 9 hefur
gert 50 af 178 mörkum í bikar-
úrslitaleikjum, síðan treyjur leik-
manna voru fyrst númeraðar fyrir
sextíu árum — árið 193.3.
Innan valiar á Wembley í dag verða
engir skoskir leikmenn, og verður
tþað í fyrsta skipti síðan 1975 sem
slíkt gerist.
Trevor Franeis og George Graham
verða í dag fyrstu fram-
kvæmdastjórar bikarúrslitaliða sem
fá verðlaunapeninga að leik loknum,
eins og leikmenn. Þeir eiga að ganga
upp þrepin frægu á eftir leikmönnum
*í>g' ná í peningana.
Chicago Bulls hefur leikið mjög
vel í NBA-úrslitakeppninni og
er eina liðið sem ekki hefur tapað
■■■■■■■ leik það sem af er.
Frá í fyrrinótt sigraði
Gunnari Chicago lið Cleve-
Valgeirssyni i jan(j örugglega
Bandaríkjunum 104;g5 Qg hefur nú
yfir 2:0. Næstu tveir leikir fara
fram í Cleveland, en það lið sem
fyrr vinnur fjóra kemst áfram.
Horace Grant var stigahæstur í liði
meistaranna með 20 stig og Scottie
Pippen kom næstur með 19 stig.
Michael Jordan tilkynnti fyrir leik-
inn að hann væri meiddur á úlnlið
hægri handar og gæti því ekki beitt
sér að fullu í leiknum. Hann gerði
þó 18 stig en lék aðeins þrjá leik-
hluta.
Charles Barkley var í miklu stuði
er Phoenix vann San Antonio Spurs
109:103. „Sir“ Charles gerði 35
stig og tók 10 fráköst. Hann skor-
aði úr 12 af 18 skottilraunum sín-
um, en í fyrsta leik liðanna náði
hann aðeins að nýta fimm af 21.
Eftir þann leik fór hann á sérstaka
skotæfingu aleinn og sú æfing skil-
aði sér í þessum leik. David Robin-
son var að vanda stigahæstur í liði
San Antonio með 27 stig. Phoenix
er 2:0 yfir í einvíginu.
■ ALEX Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Englandsmeistara
Manchester United, var í gær út-
nefndur framkvæmdastjóri ársins.
Hann er fyrsti stjór-
Frá Bob 'nn sem ?týrir liði til
Hennessyí meistaratitils bæði í
Englandi Skotlandi og Eng-
landi.
■ FERGUSON fékk ávísun upp
á 5.000 pund (tæp 500 þúsund kr.)
í viðurkenningarskyni, ásamt verð-
launagrip.
■ SIR Matt Busby, sem síðastur
stýrði liði United til Englands-
meistaratitils, árið 1967, var sá síð-
asti úr herbúðum liðsins til að hljóta
titilinn framkvæmdastjóri ársins.
Það var 1968, eftir að liðið varð
• Evrópumeistari.
■ KEVIN Keegan, sem nú er við
stjórnvölinn hjá Newcastle — sem
sigraði í 1. deild með yfirburðum —
var kjörinn framkvæmdastjóri árs-
ins í 1. deild.
■ TILKYNNT var í gær að
nokkrir eldri leikmanna Leeds, sem
varð enskur meistari í fyrra, séu
til sölu. Það eru þeir Lee Chap-
man, sem verið hefur markahæsti
leikmaður Leeds síðustu þijú
keppnistímabil, varnarmarmaður-
inn Chris Whyte og framheijinn
Carl Shutt. Þeir eru allir komnir
yfir þrítugt.
■ JAMIE Redknapp, 19 ára mið-
vallarleikmaður sem lék mjög vel
með Liverpool í vetur, hefur gert
nýjan fjögurra ára samning við fé-
lagið. Hann er í enska landsliðinu
skipuðu leikmönnum 21 árs og
yngri. Faðir hans, Harry
Redknapp, er aðstoðar fram-
kvæmdastjóri West Ham.
■ BRIAN Flynn, stjóri Wrexham,
ákvað í vikunni að leyfa gömlu jöxl-
unum Jimmy Case, sem gerði
frægan með Liverpool á sínum
tíma, og Mickey Thomas, sem
m.a. lék með Man. Utd., að fara
frá félaginu án þess að krefjast
greiðslu fyrir þá.
UM HELGINA
Golf
Fyrsta stigamót ársins, bæði í karla og
kvennaflokki, verður hjá Golfklúbbnum
Keili í Hafnarfirði um helgina. Leiknar
verða 36 holur, með og án forgjafar.
Golfmót sem frestað var 2. maí fer fram
á Húsatóftavelli í Grindavík á morgun,
sunnudaginn 16. maí. Skráning er í dag frá
kl. 16-21.
Almenningshlaup
Víðavangshlaup íslands fer fram á morg-
un, sunnudag, og hefst kl. 14 við Hamar-
svelli í Borgarnesi.
Húsasmiðjuhlaupið verður í dag og hefst
kl. 11 við Húsasmiðjuna í Hafnarfirði.
Skráning hefst kl. 8.30 á sama stað. Hægt
er að velja milli þess að hlaupa 4 km, 10
km eða hálfmaraþon. Þátttökugjald er
1.000 krónur fyrir hálfmaraþon en 500
krónur fyrir hinar vegalengdirnar, nema
hvað 14 ára og yngri greiða 300 krónur.
Pílukast
Reykjavíkurmeistaramót í pílukasti, hið
þriðja í röðinni, fer fram á morgun, sunnu-
dag 16. maí, í matsal Stálsmiðjunnar við
Mýrargötu. Keppni hefst kl. 12.
Veggtennis
íslandsmót í veggtennis (raquetball) hefst
í Dansstúdíói Sóleyjar í dag. Þá fer fram
keppni í undanriðlum í karlaflokki.
Málþing um gildi íþrótta
íþróttanefnd ríkisins og menntamála-
ráðuneytið efna til málþings um gildi íþrótta
í dag, laugardaginn 15. mai, á Holiday Inn
kl. 13.
Körfuskotkeppni
Körfuskotkeppni verður haldin á Lækjar-
torgi í dag á vegum Tommahamborgara.
Keppnin hefst kl. 13 og er öllum heimil
þátttaka. Að keppninni standa Tommaham-
borgarar, Körfuknattleikssambandið og FM
95,7 en Austurbakki veitir verðlaun fyrir
bestan árangur. Karlalandsliðið mætir á
staðinn og sýnir „götukörfubolta".
Uppskeruhátíð KR
Uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildar
KR fyrir alla flokka verður á morgun,
sunnudag 16. maí, kl. 14.00 í félagsmiðstöð-
inni við Frostaskjól. Verðlaunaafhendingar
og veitingar.
Frjálsíþróttir
Vormót HSK, sem átti að vera á Varmár-
velli í Mosfellsbæ í dag, hefur verið frest-
að. Mótið verður á sama stað á þriðjudags-
kvöld kl. 20.