Morgunblaðið - 15.06.1993, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNI 1993
___________Brids______________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Sumarbrids 1993
Miðvikudaginn 9. júní var spilaður
tölvureiknaður Mitchell með þátttöku
•35 para. Spiluð voru 30 spil og var
miðlungur 420. Efstu pör voru:
NS
ísak Öm Sigurðsson - Bryndís Þorsteinsd. 539
Hjálmar S. Pálsson - Þórður Sigfússon 534
Friðrik Jónsson - Sævar Jónsson 501
Ólína Kjartansdóttir - Dúa Ólafsdóttir 453
Sigurður Steingr. - Óskar Sigurðsson 446
AV
Jens Jensson - Erlendur Jónsson 545
Jón Andrésson - Guðmundur Þórðarson 491
Gísli Þorvaldsson - Reynir Bjamason 465
Kristján Þórarinsson - Vigfús Pálsson 457
Geirlaug Mapúsdóttir - Torfi Axelsson 453
Fimmtudaginn 10. júní mættu aftur
35 pör. Spilaður var tölvureiknaður
Mitchell og voru spiluð 30 spil. Miðl-
ungur var 420 og efstu pör voru:
NS
Kristófer Magnússon - Albert Þorsteinsson 526
Þorvaldur Axelsson - Páll Vermundsson 489
SævinBjamason-ÞórðurSigfússon 482
Eggert Bergsson - Bjöm Svavarsson 478
Marinó Kristinsson - Erlendur Jónsson 470
AV
Jón V. Jónmundsson - Eyjólfur Magnússon 520
Jón Ingi Bjömsson - Jón Hjaltason 489
Guðjón Siguijónsson - Björgvin Sigurðsson483
Eðvarð Hallgr. - Jóhannes Guðmannsson 477
Soffía Daníelsdóttir - Birgir Guðjónsson 472
Föstudaginn 11. júní mættu 34
pör. Spilaður var tölvureiknaður
Mitchell. Spilaðar voru 15 umferðir
með 2 spilum á milli para. Miðlungur
var 420. Efstu pör voru:
NS
Gylfi Baldursson - Gísli Hafliðason 535
Ámína Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 491
Óli Bjöm Gunnarsson - Valdimar Elíasson 466
Ársæll Vignisson - Trausti Harðarson 452
Rúnar Einarsson - Eggert Bergsson 451
NS
Sigurður Kristjánsson - Gestur Pálsson 518
Sveinn Sigurgeirsson - Jón Stefánsson 500
Bjöm Theodórsson - Guðmundur Eiriksson 486
Margr. Þorvarðard. - Hólmfr. Gunnarsd. 482
Sveinn R. Þorvaldsson - Páll Þ. Bergsson 482
Sumarbrids er spilaður alla daga
nema laugardaga og byijar alltaf
stundvíslega klukkan 19.00. Spilað
verður eftir áætlun fimmtudaginn 17.
júní. Allir eru velkomnir og sérstak-
lega þeir sem eru að, eða vilja, stíga
sín fyrstu spor í keppnisbrids.
RAÐAUGi YSINGAR
Kranamaður
Óskum eftir að ráða mann á byggingakrana.
Aðeins vanur kranamaður kemur til greina.
Hagvirki-Klettur hf.
Lagtækur maður
óskast á verkstæði okkar.
Glerið,
Bíldshöfða 16, sími 686510.
Framkvæmdastjóri
Þekkt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar
að ráða sem fyrst framkvæmdastjóra til að
sjá um daglegan rekstur stórrar rekstrarein-
ingar. Fyrirtækið er deildaskipt og starfs-
mannafjöldi er yfir 200 manns.
Við ieitum að manni með viðskipta- og/eða
verkfræðimenntun. Stjórnunarreynsla er
nauðsynleg.
í boði er sjálfstætt og krefjandi stjórnunar-
starf, sem krefst áræðni og frumkvæðis í
starfi.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Farið verður með ailar umsóknir sem trún-
aðarmál og umsóknum skilað, ef þær koma
ekki til greina.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar:
„135“, fyrir 23. júní nk.
Hagvai ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 I Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS
Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi leitar
eftir kennara (hjúkrunarfræðingi) á sjúkra-
liðabraut á hausti komanda.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk.
Umsóknir berist til skólameistara, Tryggva-
götu 25, 800 Selfossi, sími 98-22111, sem
gefur frekari upplýsingar.
Þór Vigfússon,
skóiameistari.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Hafnarbraut 3, þingl. eig. Ingibjörg Höskuldsdóttir, gerðarbeiðendur
Byggingasjóður ríkisins, Húsnaeðisstofnun ríkisins og Lílfeyrissjóður
Austurlands, 21. júní 1993 kl. 13.30.
Hlíðartúni 15, þingl. eig. Ómar Antonsson, gerðarbeiðendur Gjald-
heimta Austurlands og innheimtumaöur ríkisins.
Sýslumaðurinn á Höfn,
11. júní 1993.
Heilsuræktarfyrirtæki
Nudd, Ijós, líkamsrækt. Vinsæll staður. Góð
velta. Verð 8 milljónir. Skipti óskast á íbúðar-
húsnæði, verð 8-10 milljónir.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma á apglýs-
ingadeild Mbl. merkt: „H - 4725".
Vestmannaeyjar:
Kynningarfundur
einkavæðingu
verður haldinn í sal Sveinafélags járniðnað-
armanna á Heiðarvegi í kvöld, fimmtudag-
inn 15. júní, og hefst hann kl. 20.00.
Á fundinum verður fjallaö um starf og
stefnu ríkisstjórnarinnar i einkavæðingu.
Ræðumaður verður Hreinn Loftsson, for-
maður einkavæðingarnefndar.
Allir velkomnir.
Framkvæmdanefnd um einkavæöingu.
um
Tillaga að aðal- og deili-
skipulagi fyrir Sorpstöð
Suðurlands ílandi Kirkju-
ferjuhjáleigu, Ölfushreppi
Samkvæmt ákvörðun skipulagsstjórnar ríkis-
ins og með vísan til 17. og 18. greinar skipu-
lagslaga nr. 19/1964 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að aðal- og deili-
skipulagi á hluta af jörðinni Kirkjuferjuhjáleigu
fyrir sorpurðunarsvæði. Fyrirhugað urðunar-
svæði er staðsett vestast í landi Kirkjuferju-
hjáleigu við landamörk að Auðsholti. Ölfusá
afmarkar svæðið að sunnan.
Tillögur aðal- og deiliskipulags liggja frammi
á skrifstofu Ölfushrepps, Selvogsbraut 2,
815 Þorlákshöfn, frá 15. júní til 3. ágúst
1993 á skrifstofutíma alla virka daga.
Athugasemdum við aðal- og deiliskipulag
skal skila til skrifstofu Ölfushrepps. Allar
athugasemdir skulu vera skriflegar og þurfa
að berast framangreindum aðilum fyrir 18.
ágúst 1993. Þeir sem ekki gera athugasemd-
ir fyrir þann tíma teljast samþykkir tillögunum.
Þorlákshöfn, 9. júní 1993.
Sveitarstjóri Ölfushrepps,
skipulagsstjóri ríkisins.
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á íbúðarhús-
næði á Patreksfirði.
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða rað-
hús, u.þ.b. 160-200 m2 að stærð að meðtal-
inni bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, bygg-
ingaár- og efni, fasteigna- og brunabótamat,
verðhugmynd og áætlaðan afhendingartíma,
sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins,
Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 29. júní 1993.
Fjármálaráðuneytið, 14. júní 1993.
T'1
Sma ouglýsmgor
Garðsláttur
Ertu í vandræðum með garðinn?
Við leysum úr vandanum.
Geri föst verðtilboð.
Uppl. í síma 73555.
FERÐAFÉLAG
% ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Dagsferðir F.Í.:
Miðvikudag 16. júní kl. 20:
Heiðmörk, skógræktarferð
(frítt).
Fimmtudag 17. júnf kl. 13:
Nesjavallavegur - Borgarhólar.
Gengið frá nýja veginum til
Nesjavalla að Borgarhólum.
Verð kr. 1.100.
Laugardaginn 19. júnf kl. 20:
Esja um sumarsólstöður. Verð
kr. 800. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin, og
Mörkinni 6. Frítt fyrir börn að
15 ára aldri.
Dagsferðirtil Þórsmerkur:
Fimmtudaginn 17. júní kl. 08.
Sunnudaginn 20. júnf kl. 08.
Miðvikudaginn 23. júní kl. 08.
Verð kr. 2.500.
Helgarferðir næstu helgi:
17.-20. júní - Þórsmörk (4 dagar).
17. -18. júní - Þórsmörk (2 dagar).
-18.-20. júní - Þórsmörk (3 dagar).
Lægra verð í júní. - Gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal. Þar er allt
sem þarf fyrir gesti meðan á
dvöl stendur - gönguferðir - frá-
bær náttúrufegurö.
18. -20. júnf - Næturganga yfir
Fimmvörðuháls.
Ath.: Brottför kl. 18. - Gist I
Skagfjörðsskála.
25.-27. júní - Eiríksjökull
(aðeins þessi ferð í sumar).
25.-27. júní - Þórsmörk.
Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofu F.Í., Mörkinnf 6.
Ferðafélag íslands.
KFUM/KFUK, SÍK
Sólgæslu- og fyrirbænanám-
skeið verður í húsi félaganna við
Holtaveg í kvöld kl. 20.00.
Athugið breyttan fundarstað.
Allir velkomnir.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferðir fimmtud. 17. júní
Gengið verður úr Bláfjöllum í
Hljómskálagarð. Þátttakendur
geta valið sér lengd ferðar.
Kl. 8.00 Bláfjallaskáli.
Kl. 11.00 Heiðmörk.
Kl. 13.00 Árbæjarsafn.
Helgarferðir 17.-20. júni
Snæfellsjökull
- sólstöðuferð
Gengið á Snæfellsjökul og einnig
fariö ( styttri gönguferðir. Gist í
tjaldi/húsi á Arnarstapa. Farar-
stjórar: Þráinn Þórisson og Anna
Soffía Óskarsdóttir.
Básar við Þórsmörk
Fjölbreyttar gönguferöir um
Goðalandið og Þórsmörkina
með fararstjóra. Gist í skála eða
tjöldum. Brottför á hverjum
föstudegi kl. 20.00. Nánari uppl.
og miðasala á skrifstofu Útivistar.
Útivist.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Sumarleyfisferðir:
23.- 27. júní Látrabjarg -
Rauðisandur. Ekið I Stykkis-
hólm og siglt þaðan með Baldri
að Brjánslæk og áfram í Breiöa-
vík, þar sem gist verður næstu
3 nætur. Fariö út á Látrabjarg
að Rauðasandi og Sjöundá. A
fjórða degi ekiö yfir í Ketildali
og gist á Patreksfirði. Heim um
Barðaströnd. Sjá grein í Ársriti
Útivistar nr. 16 um gönguleiöir
frá Breiðavík.
Fararstjóri: Ingibjörg S. Ásgeirs-
dóttir.
2.- 8. júlí Hornstrandir,
Aðalvík - Hornvík. Gengið frá
Aðalvík um Látra, Fljótavík og
Hlöðuvík til Hornvíkur. Frá Horn-
vík er m.a. gengið á Hornbjarg.
Sjá grein í Ársriti Útivistar nr.
16 eftir Gísla Hjartarson: Göngu-
leiðir f Sléttuhreppi.
Fararstjóri: Þráinn Þórisson.
2.- 8. júli Hornstrandir,
Aðalvík. Tjaldbækistöð höfð að
Sæbóli í Aðalvík og farið þaðan
í dagsferðir m.a. á fjalliö Rit, að
Látrum, á Straumnesfjall o.fl.
Fararstjóri: Bóthildur Sveins-
dóttir.
4.-10. júli Vatnajökull.
Gengið á skíðum frá Kverkfjöll-
um yfir að Skálafellsjökli, gist i
tjöldum og skálum. Ferðin er
eingöngu ætluð vönu skíðafólki
í góðri þjálfun.
Fararstjóri: Sveinn Möller.
8. - 12. júlí Landmanna-
laugar - Básar. Fullbókað í
ferðina.
Fararstjóri: Margrét Björnsdóttir.
9. -19. júlí Vatnajökull.
Jökulheimar - Grímsvötn -
Skálfellsjökull. Gönguskíða-
ferð ætluð vönu skíðafólki í góðu
formi.
Fararstjóri: Reynir Sigurðsson.
10.-14. júní. Núpsstaða-
skógar - Grænalón. Gengið
inn með Núpsárgljúfrum að
Grænalóni og gist þar eina nótt.
Næstu dögum varið i göngur um
nágrennið. Sjá grein í Ársriti
Útivistar nr. 12. eftir Sigurð Sig-
urðarson um Núpsstaðaskóga.
Fararstjóri: Sigurður Einarsson.
13. -18. júlíLandmanna-
laugar - Básar. Aukaferð,
nokkur sæti laus. Gist í skálum.
Fararstjóri: Rannveig Ólafsdóttir.
14. - 19. júli Seyðisfjörður
- Mjóifjörður - Norðfjörður.
Gangan hefst á Seyðisfiröi og á
næstu dögum er komiö að Dala-
tanga, að Brekku ( Mjóafiröi og
yfir í Fannardal. Bakpokaferð um
hrikalega fegurð Austfjarða.
Fararstjóri: Óli Þór Hilmarsson.
Nánari upplýsingar og miðasala
á skrifstofu Útivistar. Ferðumst
um (sland með Útivist ( sumar.
Útivist.
Miðlarnir af Bylgjunni
Julia Griffiths og Iris Hall eru
komnar til landsins. Tímapant-
anir í síma 688704.
Silfurkrossinn.