Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 8
8 $ ma iMO'RG.UWBMiMÐ I EMMórnmmmmM 19ft3A'iííV'TVíHOWI 1"T\ \ /^ersunnudagur20.júnísemerl71.dagur -L^xHj ársins 1993.2s. e.trínitatis. Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 6.28 og síðdegisflóð kl. 18.49. Fjara er kl. 00.27 og ki. 12.36. Sólarupprás í Rvík er kl. 2.54 og sólarlag ki. 24.04. Sól er í hádegisstað kl. 13.29 ogtunglið í suðri kl. 13.56. (Almanak Háskóla íslands.) Og ég segi yður: Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir, þeim sem á knýr, mun upp lokið verða. Er nokkur sá faðir yðar á meðal, að hann gefi syni sín- um, er biður um fisk, höggorm í staðinn, eða sporð- dreka, ef hann biður um egg? (Lúk. 11, 9-12.) ÁRNAÐ HEILLA AAára afmæli.Mínerva í/U Hafliðadóttir, Fannborg 1, Kópavogi, er níræð í dag. Hún tekur á móti gestum í sal DSVR, Ármúla 40, milli kl. 16 og 19 í dag. 0/\ára afmæli. Frímann O v/ Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóri Isaga hf., verður áttræður á morg- un, 21. júní. Hann tekur á móti gestum milli kl. 16 og 19 á afmælisdaginn í Félags- heimili Rafmagnsveitu Reykjavíkur við Eliiðaár. ORÐABOKIN Að mata eða maka krókinn Ekki alls fyrir löngu kom ég þar að, þar sem verið var að velta þvi fyrir sér, hvort sagt væri að mata eða maka krókinn, en merking þess væri ljós, hvort sem sagt væri. Ég varð að játa, að hvort tveggja væri mér nokkum veginn jafn tamt, en þó líklega frekar að tala um að mata krókinn. Um merkinguna voru menn sammála, þ.e. það væri haft um að hagnast á e-u, einkum íjárhagslega. Halldór Halldórsson próf. tekur þetta til athugunar í Islenzku orðtakasafni. Nefnir hann einungis að mata krókinn og segir orðtakið fyrst koma fyrir á 19. öld í kvæði eftir Benedikt Gröndal eldra: „ellegar vilji mata krók“. Hyggur HH, að orðtakið eigi „sennilega rætur að rekja til þeirrar athafnar að taka mat upp úr pott- um með krókum“. Bendir hann á að slíkir krókar hafa ýmist verið nefndir soðkrókar, matkrókar eða matgoggar. Ýmsir hafa haldið því fram, að orð- takið eigi rætur að rekja til beitingar, en það telur HH ósennilegt. Vel má það vera rétt hjá honum, að þetta sé tökuþýðing úr dönsku, made en krog, enda þótt það tákni þar að beita öngul. HH minn- ist hins vegar ekki á so. að maka í þessu sambandi en það kemur bæði fyrir hjá Blöndal og í OM og er áreiðanlega vel þekkt í máli manna, sbr. það, sem segir í upphafi þessa pistils. - J.A.J. KROSSGATAN HR 9 a 13 | j- IH 22 23 24 — LÁRÉTT: 1 listamaður, 5 bylgjan, 8 þor, 9 slóttuga, 11 starfið, 14 dyl, 15 spaðann, 16 endurtekið, 17 skrúfur, 19 þvinga, 21 veita tign, 22 oft, 25 gyðja, 26 poka, 27 sefi. LÓÐRÉTT: 2 grænmeti, 3 dæid, 4 þvaðrar, 5 þátttakend- ur, 6 aðstoð, 7 keyra, 9 þrjótur, 10 þjálfunin, 12 viðurkennd- ar, 13 kroppaði, 18 hafa í hyggju, 20 til, 21 frumefni, 23 varðandi, 24 fæði. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: 1 ágæta, 5 sálar, 8 íraks, 9 öldum, 11 raska, 14 ala, 15 vogar, 16 lærir, 17 ill, 19 náin, 21 efað, 22 nátt- aðj, 25^aka, 26 átt, 27 nýr, LÓÐRÉTT: 2 gil, 3 tíu, 4 armari, 5 skrall, 6 ása, 7 ask, 9 örvænta, 10 döggina, 12 skrefin, 13 afræður, 18 létt, 20 ná, 21 eð, 23 tá, 24 at. Verkin munu tala „Við skulum láta. verkin tala“ Jjj voru einkunnarorð Guðmundar O Árna Stefánssonar við komuna á nýjan vinnustað sinn í heilbrigðis- og Enga Hafnarfjarðarbrandara, góði. Hann á að öskra af sársauka en ekki hlátri. FRÉTTIR/MANNAMÓT BRUÐUBILLINN. Sýningar Brúðubílsins verða á morgun kl. 10 í Stakkahlíð og kl. 14 í Suðurhólum. Sýnt verður leikverkið Nú gaman, gaman er. Nánari uppl. gefa Helga í s. 25098 og Sigríður í s. 21651. KVENNADEILD Rauða krossins fer í árlega sumar- ferð sína þriðjudaginn 22. júníí Farið verður frá BSÍ kl. 11. FÉLAGSSTARF aldraðra í Reykjavík. Næsta sumarferð verður farin þriðjudaginn 22. júní kl. 13.30 í Skógrækt rik- isins að Tumastöðum í Fljóts- hlíð. Sætapantanir og uppl. í síma 689670 og 689671 fyrir hádegi. HANA NU, Kópavogi. Á mánudagskvöld verður kvöld- ganga um Elliðaárdal. Lagt af stað kl. 20 frá Gjábakka, Fannborg 8. Pantanir í síma 45700. SAMVERKAMENN Móður Theresu halda mánaðarleg- an fund sinn í safnaðarheimil- inu, Hávallagötu 16, á morg- un kl. 17.15. FÉLAG eldri borgara, Kópavogi. Spilað verður bingó í dag kl. 15 í Félagsmið- stöðinni Gjábakka, Fannborg 8. Húsið opið öllum. BÓLSTAÐARHLÍÐ 43, fé- lagsstarf aldraðra. Á morg- un er sundferð með Sigvalda kl. 9. Handavinnustofa opin alla daga. Sjá nánar sumar- dagskrá á staðnum. FELAGSSTARF aldraðra, Hafnarfirði. Miðvikudaginn 23. júni verður farið í tveggja daga ferð á söguslóðir Njálu. Hafið samband við Hún- björgu í s. 53444. FÉLAG eldri borgara í Reykjavík. Bridskeppni, tví- menningur, kl. 13. Félagsvist kl. 14 í Risinu. Dansað í Goð- heimum kl. 20. Pétur Þor- steinsson er til viðtals á þriðjudögum. Panta þarf tíma í s. 28812. Mánudag opið hús í Risinu kl. 13-17. Fijáls spilamennska, kaffi, spjall. SJALFBOÐALIÐASAM- TÖK um náttúruvernd efna til sjálfboðavinnu á Þingvöll- um í samvinnu við þjóðgarðs- vörð 24.-27. júní. Lagfærður verður flóraður stígur og tröppur úr náttúrugijóti við Öxarárfoss. Þetta er vanda- samt og nokkuð erfitt verk og eru þeir sem eitthvað kunna til grjóthleðslu sér- staklega velkomnir. Gist verður í tjöldum en aðstaða til matar og samveru er inn- andyra. Þjóðgarðsvörður leggur til ókeypis fæði. Mæt- ing er kl. 9 að morgni fimmtu- dagsins við starfsmannahús- ið. Nánari uppl. og skráning í s. 684241 eða 52119 fyrir 22. júní. FÉLAGSSTARF 67 ára og eldri, Aflagranda 40. Kl. 13 vinnustofa opin til fijálsra afnota undir stjórn Sheelu. Kl. 14 félagsvist. KIRKJUSTARF SELTJARNARNES- KIRKJA: Fundur í æskulýðs- félaginu í kvöld kl. 20.30. Dagbók Háskóla íslands VIKUNA 20. tii 26. júní verða eftirtaldir fundir, fyrirlestrar og aðrar samkomur haldnar á vegum Háskóla íslands. Fundirnir eru öllum opnir. Nánari upplýsingar um sam- komurnar má fá í síma 694306. Sunnudagur 20. júní. Kl. 15. HóteJ Saga. Skráning hefst fyrir 9. alþjóðaþingið um heilsufar á norðurslóð. Fullt þátttökugjald er 25.000 krónur en einnig er heimil þátttaka á hveijum degi fyrir sig, daggjald er 5.000 kr. Þingið verður haldið í Há- skólabíói og á Hótel Sögu og stendur til 25. júní. Dagskrá þingsins var birt í Morgun- blaðinu 15. júní sl. á bls. 5. Þingið fer fram á ensku. Mánudagur 21. júní. Kl. 8.30. Háskólabíó. Alþjóð- legt þing um heilsufar á norð- urslóð sett. Föstudagur 25. júní. Kl. 14. Eirberg, Eiríksgötu 34. Kynning á lokaverkefnum kandídata í hjúkrunarfræði til BS-prófs. Ríflega 60 kandí- datar kynna 19 verkefni á sviði hjúkrunarfræði. Laugardagur 26. júní. Kl. 14. Háskólabíó. Háskóla- hátíð. Alls verða tæplega 500 kandídatar brautskráðir frá Háskóla íslands. Ljósmynd Sófus Gústavsson Á gúmmíbát niður Hvítá t HVÍTÁ í Árnessýslu er hægt að fara í bátsferð niður ána og eru það hjónin á Drumb- oddsstöðum sem standa að þessum ferðum. 35 manna hópur fór á dögunum niður ána. í miðri ferðinni niður ána var áð og þar gafst fólki kostur á, á eigin ábyrgð, að stökkva niður 8 metra hátt bjarg. Sumum þótti þetta hið mesta glæfraatriði en flestir stukku þó. Að lokinni bátsferðinni kom hópurinn við á bænum Drumbodsstöðum þar sem kaffiveit- ingar voru bomar fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.