Morgunblaðið - 23.06.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
138. tbl. 81. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. JUNI 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stjórn Italíu teflir á tvær hættur
Vill banna af-
skipti flokka
af sjónvarpi
Róm. Reuter.
ÍTALSKA stjórnin hefur lagt fram í öldungadeild þingsins
frumvarp, sem bannar afskipti stjórnmálaflokka af ríkis-
sjónvarpinu, RAI, og hyggst hún standa og falla með því.
Var sú ákvörðun tekin eftir að stjórnarandstaðan hafði
lagt fram hundruð breytingartillagna við frumvarpið í því
skyni að tefja fyrir því.
Búist er við, að atkvæði verði
greidd um frumvarpið í kvöld eða
í fyrramálið og verði það fellt mun
ríkisstjórn Carlos Azeglios Ciamp-
is segja af sér. Verði það hins
vegar samþykkt mun verða bund-
inn endi á eitthvert versta dæmið
um pólitíska misnotkun ráðandi
flokka á Italíu og raunar helsta
stjórnarandstöðuflokksins líka,
kommúnistaflokksins gamla.
Skiptu milli sín stofnunum
Venjan hefur verið sú á Ítalíu,
að stjórnmálaflokkarnir hafa skipt
með sér ríkisstofnunum eins og
þeir ættu þær og notað þær síðan
til að krefjast mútugreiðslna af
viðskiptavinunum. Var þetta
ástand einna óskammfeilnast á
sjónvarpinu.
Fyrsta rásin hjá RAI hefur allt-
af verið í höndum kristilegra
demókrata, sem hafa verið í stjórn
síðan 1945. Aðra rásina fengu
sósíalistar og
þá þriðju
kommún-
istar, sem
hafa alltaf
verið í stjórn-
arandstöðu.
Fréttamenn
á RAI viður-
kenna, að
fréttum hafi
verið hag-
rætt á rásun-
um eftir því
hverjir fóru
Ciampi með ráðin og
pólitískar mannaráðningar voru
óheyrilegar. Flestir höfðu þó lítið
fyrir stafni en launin voru góð og
áttu auðvitað sinn þátt í skelfi-
legri fjárhagsstöðu sjónvarpsins.
Frumvarpið hefur þegar verið
samþykkt í neðri deildinni og flest-
ir búast við, að það verði einnig
samþykkt í öldungadeildinni.
*
Olögleg framleiðsla ónýtt
Reuter
TUGÞÚSUNDIR ólöglegra segulbands- og myndbandsspóla og eftirlíkinga
af ýmsum þekktum vörumerkjum voru eyðilagðar við sérstaka athöfn í
Bangkok í gær. Á myndinni moka tælenskir lögreglumenn segulbandsspól-
um í haug áður en þær voru eyðilagðar.
Breskir íhaldsmenn
„Þáðum
ekki fé af
S-Arabíu“
Lundúnum, Washington. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefur neitað því
opinberlega að breski íhalds-
flokkurinn hafi þegið um 700
milljóna króna framlag í kosn-
ingasjóð frá Saudi-Arabíu.
Hefur dagblaðið Guardian skýrt
frá því á forsíðu að skömmu fyrir
kosningar 1992 hafí ótilgreindur
ráðherra í þáverandi ríkisstjórn átt
fund með Bandar bin Sultan prinsi
í íbúð í Lundúnum og skömmu síð-
ar hafi Ihaldsflokknum borist fyrr-
greint framlag. Bandar vísar þessu
einnig á bug og kveðst vera að
íhuga málshöfðun.
Samkvæmt frásögn Guardian
voru kosningasjóðir íhaldsflokksins
gengnir til þurrðar á þessum tíma.
Hins vegar hefði flokknum borist
700 milljóna króna framlag
skömmu eftir fund ráðherrans ótil-
greinda og prinsins. Haft var eftir
Major, sem staddur var á leiðtoga-
fundi Evrópubandalagsins í Kaup-
mannahöfn, að frásögn Guardian
væri „alger uppspuni". Hann sagði.
að flokkurinn þæði hvorki framlög
frá erlendum ríkisstjórnum né kon-
ungsfjölskyldum.
Verkamannaflokkurinn hefur
krafist þess að íhaldsflokkurinn láti
uppskátt um framlög til flokksins
en Major hefur hafnað því á þeim
forsendum að hann sjái engin rök
fyrir slíkum uppljóstrunum enda
vilji margir styrktaraðilanna gæta
nafnleyndar.
Vísinda-
skáldsög--
ur til Mars
New York. Reuter.
GEISLADISKUR með úr-
vali af vísindaskáldsögum
verður sendur með rúss-
nesku geimfari sem á að
lenda á plánetunni á
næsta ári.
Vísindamaðurinn Carl Sag-
an, forseti Reikistjömufélags-
ins í New York, sagði að á disk-
inum yrðu meðal annars sögur
eftir H.G. Wells, Kurt Vonneg-
ut, Arthur C. Clarke og rúss-
neska rithöfundinn Alexej
Tolstoj.
Diskurinn verður í 140 kg
tæki, sem finnskir vísindamenn
hafa hannað til að mæla veður-
og loftslagsbreytingar á Mars.
Sagan sagði að diskurinn væri
ekki ætlaður Marsbúum, heldur
mönnum sem kynnu að búa á
plánetunni eftir nokkrar aldir.
Þeir sem standa fyrir þessu
viðurkenna þó að geisladiska-
tæknin verði að öllum líkindum
orðin úrelt þegar diskurinn
fínnst.
Leiðtogar EB bjóðast til að senda hermenn til að vernda griðasvæði í Bosníu
Tillögu Kohls um afnám
vopnasölubanns hafnað
Kaupmannahöfn. Reuter, The Daily Telegraph.
LEIÐTOGAR Evrópubandalagsins (EB)
buðust í gær til að sjá Sameinuðu þjóð-
unum fyrir hermönnum og fjármagni
til að vernda „griðasvæði“ fyrir piúsl-
ima í Bosníu. Hart var deilt á fundinum
um tillögu Helmuts Kohls, kanslara
Þýskalands, um að afnema bann við
sölu vopna til múslima og henni var að
lokum hafnað.
Francois Mitterrand, forseti Frakklands, hafði
lagt áherslu á að Evrópubandalagið bæri sér-
staka ábyrgð á því að vemda griðasvæðin. „Ef
við sláum þessu á frest gætum við komið of
seint,“ sagði hann við blaðamenn eftir fundinn.
Mitterrand fékk leiðtogana til að fallast á að
bjóða Sameinuðu þjóðunum hermenn og fjár-
magn til að vernda griðasvæðin þótt leiðtogar
flestra aðildarríkjanna hefðu sagt fyrir fundinn
að þeir myndu ekki senda fleiri hermenn til
Bosníu. Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráð-
Kohl lætur undan
Reuter
HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, á blaða-
mannafundi í gær eftir að hafa mistekist að
sannfæra leiðtoga EB-ríkjanna um ágæti
þess að aflétta banni við sölu vopna til músl-
ima i Bosníu.
herra Danmerkur, kvaðst búast við því að aðild-
arríkin myndu tilkynna framlag sitt til aðgerð-
anna innan nokkurra daga frekar en vikna. John
Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði hins
vegar að Bretar myndu ekki senda fleiri her-
menn til Bosníu.
Major og Kohl deila
Helmut Kohl hafði, með stuðningi Bandaríkja-
stjómar, hvatt til þess að bann við sölu vopna
til múslima yrði afnumið, en í yfirlýsingu, sem
leiðtogarnir gáfu út eftir fundinn, var ekki
minnst á það atriði. Tillaga Kohis olli miklu
uppnámi og John Major og nokkrir aðrir leiðtog-
ar mótmæltu henni harðlega, sögðu afnám
vopnasölubannsins aðeins leiða til enn harðari
bardaga. Kohl varð því að láta undan en sagði
eftir fundinn að bandalagið kynni að ræða þessa
hugmynd síðar ef allt annað brygðist.
Leiðtogarnir fögnuðu tillögu Mitterrands um
nýjan evrópskan öryggissáttmála til að vemda
minnihlutahópa og landamæri í álfunni og til
að afstýra stríðsátökum eins og í Bosníu.