Morgunblaðið - 26.06.1993, Page 1
64 SIÐUR LESBOK/C
lál.tbl. 81.árg. LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Múslimar andvígir þrískiptrí Bosníu
Eistland í vanda
Samningamenn í gíslingu
ÞESSARI bifreið var í gær ekið inn í byggingu í Jóhannesarborg
þar sem fram fóru viðræður 26 flokka um nýja stjómarskrá. Hundr-
uð hægriöfgamanna réðust síðan inn í bygginguna og héldu samn-
ingamönnunum í gislingu í þijár klukkustundir.
Rússar
loka fyr-
ir gasið
Moskvu. Reuter.
RÚSSAR lokuðu í gær fyrir gas-
leiðslur til Eistlands og talið er
að þetta sé fyrsta refsiaðgerð
þeirra vegna nýrra laga um dval-
ar- og ríkisborgararétt sem sett
voru í landinu fyrr í vikunni.
Embættismaður rússneska gas-
fyrirtækisins Gazprom sagði að lok-
að hefði verið fyrir leiðslurnar
vegna þess að Eistar hefðu ekki
staðið í skilum vegna gasviðskipt-
anna í tæpa þrjá mánuði. Akvörðun-
in er þó talin tengjast deilu eist-
neskra og rússneskra stjórnvalda
um réttindi rússneska minnihlutans
í Eistlandi. Borís Jeltsín hafði dag-
inn áður hótað refsiaðgerðum og
sakað Eista um aðskilnaðarstefnu
gagnvart Rússum.
Rekstur fyrirtækja stöðvast
Mart Laar, forsætisráðherra
Eistlands, sagði í sjónvarpsávarpi
að ákvörðun Rússa myndi hafa al-
varlegar afleiðingar, mörg fyrirtæki
yrðu að hætta starfsemi og atvinnu-
leysið myndi aukast. Lokun gas-
leiðslanna kæmi verst niður á svæð-
um rússneska minnihlutans.
Sjá „Hörð viðbrögð Rússa ...“
á bls. 20.
Clinton
Washington. Reutcr.
BILL Clinton
Bandaríkjafor-
seti fagnaði því
í gær að öld-
ungadeild
þingsins hefði
samþykkt fjár-
lagafrumvarp
hans að lokinni
átján klukku-
stunda sleitu-
lausri umræðu.
Mjög mjótt var
á munum og réð
atkvæði AIs
Gore varaforseta úrslitum.
Clinton sagði úrslitin gera það
að verkum að Bandaríkjamenn
mættu sterkari til leiks á fund sjö
helstu iðnríkja heims í Tókýó dag-
ana 7.-9. júlí. Hann sagði einnig
að með þessu hefði verið tekin
ákvörðun um að draga úr ríkisút-
gjöldum um 500 milljarða dollara
á næstu fimm árum og myndi það
stuðla að því að halda vöxtum í
landinu lágum.
Áður hafði fulltrúadeild þingsins
samþykkt fjárlagafrumvarpið en
öldungadeildin gerði á því umtals-
verðar breytingar. Verður því að-
efna til funda milli fulltrúadeildar
og öldungadeildar og ná málamiðl-
un um frumvarpið.
Hægríöfgamenn í Suðnr-Afríku krefjast heimalands fyrír hvíta
Yopnaðir nýnasistar ráð-
ast inn á stjórnlagafund
Jóhannesarborg. Reuter, The Daily Telegraph.
SUÐUR-AFRÍKUMENN fengu í gær smjörþefinn af hættunni
sem þeim gæti stafað af hægriöfgamönnum þegar hundruð
nýnasta réðust inn á fund um stjórnlagabreytingar og lýð-
ræðisumbætur í landinu til að ítreka kröfur sínar um sér-
stakt land fyrir hvíta minnihlutann. F.W. de Klerk, forseti
landsins, fordæmdi atburðinn og krafðist þess að árásarmenn-
irnir yrðu handteknir.
Fulltrúar á fundinum ræddu fyr-
irhugaðar breytingar á stjórnkerfi
landsins .þegar nýnasistarnir óku
brynvörðum bíl gegnum glerhurðir
fundarstaðarins; vopnaðir byssum og
með nasistafána á lofti. Þar voru á
ferð félagar í Andspymuhreyfingu
Búa. Samningamennirnir á fundinum
voru gíMar nýnasistanna í þijár
klukkustundir og margir þeirra urðu
fyrir barsmíðum. Öryggisverðirnir í
byggingunni höfðust ekkert að og
nokkrir þeirra göntuðust við árásar-
mennina.
Heimalandi hafnað
Hryðjuverkum
spáð í Evrópu
Sarajevo. Reuter.
EJUP Ganic, varaforseti Bosníu, varaði við því í gær að bosnísk-
ir múslimar í Evrópu kynnu að hefja öldu hryðjuverka í álf-
unni ef Evrópubandalagið féllist á skiptingu landsins í þrjú
smáríki.
Bandaríkjaþing
A1 Gore
Ganic sagði að hvorki hann né
Alija Izetbegovic, forseti Bosníu,
myndu taka þátt í viðræðum um
skiptingu landsins. Hann sagði að
með því að fallast á hana væri
Evrópubandalagið að leggja blessun
sína yfír þjóðarmorð og þjóðernis-
hreinsanir.
Reiðubúnir að beijast
Varaforsetinn sagði að milljón
bosnískra múslima byggi nú í Vest-
ur-Evrópu. „Ef Evrópubandalagið
er að reyna að svíkja Bosníu á þetta
fólk eftir að hegða sér eins og vél-
menni og það mun hafa hörmulegar
afleiðingar," sagði Ganic. Hann
bætti við að múslimar myndu beij-
ast áfram gegn Króötum og Serbum
fremur en að fallast á tillögu þeirra.
Þing Júgóslavíu, sambandsríkis
Serbíu og Svartfjallalands, kaus í
gær nýjan forseta ríkisins, Zoran
Lilic, bandamann Slobodans Milo-
sevics Serbíuforseta. Forveri hans
í embættinu, Dobrica Cosic, varð
að segja af sér 1. júní eftir að þing-
ið hafði samþykkt vantraust á hann.
bjargar
Clinton
Attali lætur af störfum
Lundúnum. Reuter.
JACQUES Attali, bankasljóri Endurreisnar- og þróunarbanka
Evrópu (EBRD), tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að
láta af störfum. Attali hefur að undanförnu verið gagnrýnd-
ur harðlega fyrir bruðl við stjómun bankans.
í bréfi sem hann ritaði Ann
Wibble, fjármálaráðherra Svíþjóð-
ar og formanni stjómar bankans,
segir Attali að bankinn hafí á síð-
ustu mánuðum sætt hörðum árás-
um fjölmiðla og hafi það verið
farið að hafa áhrif á starf hans
og starfsfólk. Með hagsmuni
bankans í huga hafi hann því
ákveðið að segja starfi sínu lausu.
„Engilsaxnesk valdaklíka“
Roland Dumas, fyrrverandi
utanríkisráðherra Frakklands,
sagðist harma að Attali hefði tek-
ið þessa ákvörðun. Sagði Dumas
að Attali væri fórnarlamb „engil-
saxneskrar valdaklíku" sem aldrei
hefði sýnt bankanum áhuga.
Búist er við að reynt verði að
taka ákvörðun um arftaka Attalis
eins skjótt og unnt er til að eyða
óvissu um framtíð bankans. Má
gera ráð fyrir að málið verði rætt
á fundi sjö helstu iðnríkja heims
í Tókýó 7. júlí.
Reuter
Attali, fyrrverandi bankastjóri.
Nýnasistamir fóm á brott eftir
að hafa lagt fram kröfur sínar. Á
fimmtudag höfðu flestir samninga-
mannanna í viðræðunum um framtíð
landsins hafnað tilmælum íhalds-
flokksins, sem er fylgjandi aðskilnað-
arstefnu, um sérstakt land fyrir hvita
áður en blökkumenn fengju að
mynda ríkisstjórn. Var beiðnin sögð
óraunsæ og bera vott um kynþátta-
hatur. í tilmælunum sagði að de
Klerk væri óhæfur fulltrúi Búa, af-
komenda hollenskra og franskra inn-
flytjenda.
De Klerk fordæmdi aðgerðir And-
spyrnuhreyfingarinnar og sagði i
sjónvarpsviðtali að lögreglan myndi
bregðast við af sömu hörku og sýnd
var blökkumönnum sem efndu til
óeirða í kjölfar morðsins á blökku-
mannaleiðtoganum Chris Hani í apríl
síðastliðnum.