Morgunblaðið - 29.06.1993, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
143. tbl. 81.árg.
ÞRIÐJUDAGUR 29. JUNI 1993
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Stórsókn Armena í Nagorno-Karabak
Azerar flýja frá
síðasta vígi sínu
Bakú. Reuter, The Daily Telegraph.
AZERAR flúðu í gær frá síðasta vígi sínu í Nagorno-Karabak, bæn-
um Mardakert, eftir stórsókn Armena í héraðinu.
Talsmenn vamarmálaráðu-
neytisins í Azerbajdzhan sögðu
að Armenar hefðu nú Nagomo-
Karabak algjörlega á valdi sínu.
Armensk fréttastofa í héraðinu
sagði að Azerar væra að flýja frá
Mardakert svo Armenar gætu
ekki króað þá af. Þúsundir manna
hafa beðið bana í bardögum Az-
era og Armena um héraðið á und-
anförnum fimm árum.
Samið við upp-
reisnarforingjann
Geidar Aliyev, staðgengill for-
seta Azerbajdzhans, ræddi í gær
við Suret Guseinov, leiðtoga az-
erskra uppreisnarmanna, fyrir
luktum dyram í þinghúsinu í
Bakú. Guseinov hóf uppreisn 4.
júní sem varð til þess að Abulfaz
Elchibey, þjóðkjörinn forseti
landsins, flúði höfuðborgina fyrir
tíu dögum. Þingið hefur veitt Aliy-
ev, sem er fyrrverandi forystu-
maður kommúnistaflokksins, um-
boð til að stjóma landinu til bráða-
birgða.
Vill embætti forseta ríkisráðs
Tyrknesk útvarpsstöð skýrði frá
því að Guseinov hefði verið boðið
embætti forsætisráðherra en hann
hefði hafnað því og krafíst meiri
valda. Þetta fékkst ekki staðfest
en fréttaskýrendur sögðu að svo
virtist sem Guseinov vildi fá nýtt
embætti forseta ríkisráðs, sem
færi með öryggis-, vamar- og inn-
anríkismál. Hann hefur einnig
krafíst þess að Elchibey segi tafar-
laust af sér.
Armenskar hersveitir í Nag-
omo-Karabak hafa notfært sér
pólitíska glundroðann í Azerbajdz-
han til að ná héraðinu á sitt vald.
Sex ára
Verdi-hátíð
London. Reuter.
KONUNGLEGA óperuhúsið í
London gerði í gær grein fyrir
þeim áætlunum að halda
stærstu Verdi-hátíð sem
nokkru sinni hefur verið hald-
in. Sviðsetja á allar óperumar
sem Verdi skrifaði; þær eru
28 talsins. Hátíðin mun standa
í sex sumur.
Hátíðin mun heflast í júní árið
1995 og ljúka árið 2001, en þá
eru hundrað ár liðin frá því að
Verdi lést. Meðal þeirra sem
munu syngja hlutverk eru tenór-
amir Placido Domingo og Jose
Carreras. Meðal hljómsveitar-
stjóra verða Sir Georg Solti og
Bemard Haitink.
Reutér
Ákærðir
NOKKRIR þeirra fjórtán sakborninga sem eru ásakaðir um aðild að samsæri um að myrða George
Bush, fyrrum Bandaríkjaforseta, í fangaklefa í Kúveit, þar sem nú standa yfir réttarhöld í máli þeirra.
Iraska leyuiþj ónustan
lömuð eins og til stóð
- segir Bill Clinton Bandaríkjaforseti
Washingfton. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gær að eldflauga-
árásin á Bagdad aðfaranótt sunnudags hefði lamað írösku leyni-
þjónustuna. Árásin var gerð vegna áforma íraka um að ráða
George Bush fyrrverandi Bandaríkj aforseta af dögum. írösk
dagblöð hafa það eftir háttsettum yfirmanni írösku leyniþjón-
ustunnar að árásarinnar verði hefnt.
Viðræður Serba og Króata um skiptingu Bosníu
Samkomulagi náð um
allt nema landamæri
Genf. Reuter.
FORSÆTISNEFND Bosníu mun funda á flugvellin-
um við Sarajevo í dag. Alija Izetbegovic, múslimsk-
ur forseti landsins, og varaforseti hans, Ejup Ganic,
mæta til fundarins. Leiðtogi Bosníu-Serba, sagði
I gær að Serbar og Króatar hefðu komist að sam-
komulagi um allt er varðaði skiptingu Bosníu í
þijú smáríki, nema hvað þeir ættu eftir að semja
um landamæri ríkjanna.
Fundurinn í Sarajevo í dag, sem er enn ein tilraun-
in til þess að fá forsetann að samningaborðinu, mun
fara fram á flugvellinum í Sarajevo, þar eð sumir full-
trúar í forsætisnefndinni gætu verið í lífshættu inni í
hersetinni borginni. Annar fundur nefndarinnar er
áætlaður eftir nokkra daga, og mun fara fram annars
staðar í landinu. Ekki var fullljóst í gær hvort sátta-
semjaramir Owen lávarður og Torvald Stoltenberg
myndu mæta á fundinn í Sarajevo í dag, en að sögn
embættismanna var búist við að þeir myndu fara til
króatísku höfuðborgarinnar Zagreb, til þess að vera í
kallfæri.
Kortið enn óljóst
Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, sagði eftir að hafa
rætt við leiðtoga Króata, Mate Boban, í gær, að þeir
hefðu samið um allt nema kort af þjóðríkjunum þrem
sem þeir vilja að verði mynduð í Bosníu. Fyrir fundinn
sagði hann að múslimar yrðu að taka skýra afstöðu.
„Geri þeir það ekki mun Bosnía í raun skiptast í tvennt,
og sumir múslimar verða okkar megin, en aðrir meðal
Króata.“ Boban sagði að viðræðumar í gær hefðu
verið nokkuð góðar, en ómögulegt væri að ræða um
landakort án þátttöku múslima.
Jafnt stuðn-
ingsmenn sem
andstæðingar
forsetans í
Bandaríkjunum
hafa lýst yfir full-
um stuðningi við
árásina. Vestræn
ríki styðja al- ______________
mennt árásina og ...
mörg höfðu þau Bl,! C,mton-
verið látin vita af henni fyrirfram.
Þó segir breska blaðið The Daily'
Telegraph að einungis Bretar hafi
sýnt skilyrðislausan stuðning við
ákvörðun Clintons. Sem dæmi má
nefna að franska stjórnin sagðist
„skilja“ ákvörðun forsetans. Sósíal-
istar þar í landi og Verkamanna-
flokkurinn í Bretlandi gagnrýndu
árásina harkalega. Margir virtir fjöl-
miðlar í Evrópu hafa einnig gagnrýnt
árásina. Kínastjórn fordæmdi árás-
ina og hún var einnig gagnfynd í
Úkraínu og hjá arabaþjóðum, þ. á. m.
Egyptum sem venjulega styðja
Bandaríkjamenn. Samkvæmt skoð-
anakönnun Gallup styðja 66% Banda-
ríkjamanna ákvörðun Clintons.
Markmiðinu náð
„Ég vann mitt starf,“ sagði Clint-
on í gær á fréttamannafundi. Hann
sagði að það markmið árásarinnar
að lama írösku leyniþjónustuna hefði
náðst. Hann sagðist hafa fyrirskipað
árás til þess að sýna „öðrum hryðju-
verkamönnum" að Bandaríkin
myndu ekki taka þá neinum vettlin-
gatökum.
Bandaríkjastjóm hefur ekki úti-
lokað frekari árásir á íraka og flug-
móðurskipið Roosevelt hefur verið
sent á vettvang í öryggisskyni. Þó
hafa bandarískir embættismenn
frekar lýst árásinni sem afmarkaðri
aðgerð í því skyni að sýna Saddam
Hussein Iraksforseta í tvo heimana
en að um sé að ræða upphafið að
langri viðleitni til að velta honum úr
sessi.
Sjá fréttir á bls. 18.
Svissræð-
ir við EB
Brussel. Reuter.
SVISSLENDINGAR ítrek-
uðu í gær tilmæli til Evr-
ópubandalagsins að hafnar
yrðu viðræður fljótlega um
tvíhliða samkomulag Sviss
við bandalagið.
„Þetta er mikilyægt atriði
og ekki einvörðungu hags-
munamál Sviss,“ sagði Jean-
Pascal Delmuraz, efnahags-
málaráðherra landsins í gær,
eftir að hann og utanríkisráð-
herrann, Flavio Cotti, höfðu
fundað með forystumönnum
EB, þeirra á meðal Jaques
Delors forseta þess og Hans
van den Broek.