Morgunblaðið - 29.06.1993, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1993
Framkvæmdastj óri VSÍ um efnahagsaðgerðir r íkisstj órnarinnar
Aög-erðirnar rúmast innan
forsendna kjarasamninga
Hlidarráðstafanirnar eru aðeins bráðabirgðaaðgerðir, segir forseti ASÍ
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, segir að efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar rúmist vel
innan forsendna kjarasamninganna, sem gerðir voru í vor. Hann
segir að óiyákvæmilegt hafi verið að minnka aflaheimildir, en kvóta-
ákvörðuninni geti fylgt meiri samdráttur í atvinnu en niðurskurður
heildarafla segir til um. Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusam-
bands íslands, segist vera ósammála því að gengisbreytingin sé Iang-
tímaaðgerð sem bæti hag sjávarútvegsins til frambúðar, og þá séu
þær hliðarráðstafanir sem gerðar eru aðeins bráðabirgðaaðgerðir.
Þórarinn sagði að kvótaákvörð-
uninni fylgdi óhjákvæmilega veru-
legur samdráttur þjóðartekna, sem
hefði áhrif á atvinnustigið. Áhrifin
yrðu meiri en meðaltalssamdráttur
sjávarvöruframleiðslu gæfi til
Leituðu hafnar í
suðaustanáttmni
Keflavfk.
ÞAÐ er ekki á hveijum degi sem erlend fley notfæra sér höfnina í
Höfnum í Hafnarhreppi. íbúum brá því nokkuð þegar stór erlend
skúta tók þar höfn í gær. Allt var þó í stakasta lagi um borð í skút-
unni sem er sænsk en skipstjórinn ákvað að leita vars fyrir suðaust-
anáttinni sem þá gekk yfir.
Skútan sem er sænsk heitir
Ljónshjarta og er hún smíðuð 1990
í Svíþjóð og er af gerðinni Wasa
530. Hún er 53 fet á lengd, mastur
hennar er 23 metrar og ristir hún
2,85 metra. í áhöfn eru 7 manns
og sagði skipstjórinn og eigandi
skútunnar Rolf Madig að ferðin til
íslands hefði gengið vel. í fyrra-
sumar hefði hann siglt niður til
Miðjarðarhafsins en þar hefði hitinn
verið nær óbærilegur og því hefði
verið ákveðið að sigla norður á bóg-
inn í sumar. Siglt hefði verið frá
Stokkhólmi til Orkneyja og þaðan
til íslands. „Við sigldum til Reykja-
víkur og höfum eytt nokkrum dög-
um í landi, fórum m.a. að Gullfoss
o g Geysi. Þetta hefur verið ákaflega
gaman og íslendingar hafa tekið
ákaflega vel á móti okkur hvar sem
við höfum komið“, sagði Rolf Mad-
ig í samtali við Morgunblaðið.
Frá Höfnum ætluðu þeir félagar
að halda til Færeyja og þaðan til
Hjaltlands áður en leiðin lægi heim
til Svíþjóðar. Rolf hafði hönd í
bagga með hönnun skútunnar og
hægt er að „fella“ kjölinn ef svo
mætti að orði komast ef sigla þarf
á grunnsævi. Það kom sér einmitt
vel þegar siglt var inn í höfnina í
Höfnum sem eingöngu er gerð fyr-
ir smærri báta. -BB
Morgunblaðið/Bjöm Blönda!
Skútan Ljónshjarta
í höfninni í Höfnum. í fjarska má sjá ratsjárskerma varnarliðsins í
Básendum.
í dag
Dagur Ólafs Bekks
Fjölmenni var á hátíðahöldunum í
tilefni af degi Ólafs Bekk í Ólafs-
firði 17
Kosningar í Japan
Nýr miðflokkur í Japan fékk mikið
fylgi í tvennum borgarstjómar-
kosningum 19
Gift íslendingi
Sheila Bonnick úr hljómsveitinni
Boney M er gift íslendingi og búa
þau í Danmörku 31
Fosteignir
Leiðari
Aðgerðir ríkisstjómar 20
► Staðan á sumarbústaða-
markaðnum - Eignaskipti auk-
ast í fasteignaviðskiptum - Úti-
vistarsvæði i Fossvogsdalnum -
Endurbyggð hús á Eyrarbakka
kynna, því að sex prósenta sam-
drátturinn væri þannig til kominn
að á móti 25% samdrætti þorsk-
veiða kemur veruleg aukning í
loðnuveiðum. Loðnan væri hins veg-
ar ekki eins vinnuaflsfrek og þorsk-
urinn og því hætt við meiri áhrifum
á vinnumarkaðinn en sem svaraði
heildarniðurskurði.
Hann sagði að gengisfelling um
7,5% væri að mati VSI skynsamleg
málamiðlun milli ýtrustu sjónar-
miða, sem verið hefðu á lofti. Hún
væri til þess fallin að eyða óvissu
um gengisviðmiðanir á næstunni
og einnig nýttist hún ferðamanna-
þjónustunni á tekjuöflunartíman-
um.
í forsendum kjarasamninganna,
sem gerðir voru í vor, sagði að
gengið skyldi haldast innan viðmið-
unarmarka Seðlabankans, að því
gefnu að heildarafli minnkaði ekki
og að verðlag sjávarafurða yrði að
meðaltali 3% hærra á 3. ársfjórð-
ungi 1993 en á 1. ársfjórðungi og
héldist jafnhátt út samningstímann.
Þórarinn sagði að aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar röskuðu kjarasamn-
ingum í engu. „Nú hefur það gerzt
að magnið er greinilega 6% minna,
og verðlagið er eins og nú stendur
um 7,5% lægra en við miðuðum við
að það yrði á þriðja ársfjórðungi.
Því miður er ekkert, sem bendir til
að það muni hækka, þannig að
þetta eru nú þær forsendur sem við
þurfum að lifa með.“
Benedikt Davíðsson sagði að út
úr yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
mætti lesa að gengisfelling hafí
verið innbyggð í kjarasamningana,
en svo væri auðvitað ekki.
„í kjarasamningunum vorum við
að gera ráð fyrir ákveðinni verð-
lagsþróun og ákveðnu aflamagni,
og samningurinn gerði ráð fyrir því
að ef út frá því brigði þyrfti að
grípa til einhverra aðgerða. Við
vorum ekki þar með að tala um
gengislækkunaraðgerðir, heldur
var til dæmis verið að ræða um
betri nýtingu aflans og vinnslunn-
ar. En það er út af fyrir sig rétt
að þær forsendur sem komnar eru
núna, bæði lækkun kvóta að þessu
marki og sú verðlækkun sem orðið
hefur á afurðunum gerir það að
verkum að það er ekki að okkar
mati skynsamlegt að grípa nú til
aðgerða á grundvelli neyðarákvæð-
isins í kjarasamningunum. En auð-
vitað kemur þetta allt til skoðunar
þegar kaupmáttaráhrifin verða
metin í haust og þá verður metið
hvort segja eigi samningunum
upp,“ sagði Benedikt.
Dómi í Efra-
nes-málmu
áfrýjað
MEIRIHLUTI hrepps-
nefndar Stafholtstungna-
hrepps samþykkti á fundi
nýlega að áfrýja til Hæsta-
réttar dómi Héraðsdóms
Vesturlands í Efranes-mál-
inu svokallaða frá því í
mars. Að sögn Jóns Þórs
Jónassonar oddvita voru
þrír hreppsnefndarmanna
samþykkir að áfrýja dómn-
um, en tveir voru á móti.
Á almennum hreppsfundi
sem haldinn var 20. júní var
samþykkt tillaga með 16 at-
kvæðum gegn 12 um að skora
á hreppsnefnd að falla frá
áfrýjuninni, en Jón Þór segir
að hreppsnefndin sé á engan
hátt bundin af þeirri áskorun.
Hann segir málið þó væntan-
lega verða rætt á fundi
hreppsnefndar í næsta mán-
uði.
Samkvæmt dómi Héraðs-
dóms Vesturlands frá því í
mars síðastliðnum var land-
búnaðarráðherra, ásamt
kaupanda og seljanda jarðar-
innar Efraness í Borgarfirði,
sýknaður af kröfu hrepps-
nefndar Stafholtstungna-
hrepps um að hnekkt verði
úrskurði landbúnaðarráðu-
neytisins, þar sem felld var
úr gildi ákvörðun hrepps-
nefndarinnar um að neyta
forkaupsréttar á jörðinni
Efranesi og endurselja hana
öðrum aðilum.
BRÖGÐ hafa verið að því að svokallaðir virðisaukaskattsbílar, fyrir-
tækjabílar sem ekki þarf að greiða af virðisaukaskatt, séu notaðir
til annars en þess sem snertir skattskyldan rekstur fyrirtækja, og
hafa starfsmenn eftirlitsskrifstofu Ríkisskattstjóra séð slíka bíla í
notkun á ólíklegustu stöðum. Ríkisskattstjóri hefur hafnað eftirgjöf
á virðisaukaskatti um 120 aðila frá miðju ári í fyrra til dagsins í
dag vegna misnotkunar á vsk.-bílum. Um næstu mánaðamót rennur
út frestur sem eigendum þessara bíla var gefinn til að skipta út
númeraplötum sínum fyrir rauðar númerplötur en með þeim verður
eftirlit með notkun bilanna auðveldara.
25% álag
Ekki þarf að greiða innskatt af
vsk.-bílum en bílana má ekki nota
til annars en sem tengist skatt-
skyldum rekstri fyrirtækja.
Á síðasta ári hafnaði Ríkisskatt-
stjóri eftirgjöf á virðisaukaskatti
40 aðila vegna misnotkunar, en alls
nemur sú upphæð 11 milljónum kr.
Átak var gert í þessum málum frá
miðju ári í fyrra til ársloka og nú
stendur yfir annað átak og hafa
þegar verið gerðar athugasemdir
við eigendur 80 bíla.
„Menn nota bílana jafnvel í úti-
legur, en við eigum von á því að
það muni draga úr þessu þegar
rauðu númerin verða almennt kom-
in á. Það eru ekki allir bílarnir
komnir með þessa sérmerkingu og
hafa menn frest til mánaðamóta
að skipta yfir,“ sagði Ragnar Gunn-
arsson forstöðumaður eftirlitsskrif-
stofu Ríkisskattstjóra.
„Við höfum alltaf fylgst með
þessum bflum og reiknum með að
frekara eftirlit fari í gang eftir
Guðni áfram hjá Tottenham
É
ÉFPTl
Iþróttir
► Valdimar Grímsson með þjálf-
aratilboð frá ÍBV - Velheppnað
Peyjamót í V estmannaeyj um -
Allt um Wimbledon
I
I
Allir vsk.-bílar með rauð númer um mánaðamótin
I
I
I
Eftirgjöf hafnað hjá 120
aðilum vegna misnotkunar
mánaðamótin. Við fylgjumst með
notkun þeirra, hvort þeim sé lagt
fyrir utan knattspymuvelli og golf-
velli. Einnig höfum við farið á úti-
vistarsvæði til að fylgjast með þessu
og orðið varir við misnotkun," sagði
Ragnar.
Hann sagði að þegar grunur léki
á um misnotkun væri gerð skýrsla
um málið og hún send eiganda bíls-
ins óg honum gefinn kostur á að
skýra út notkun bflsins. Fáist ekki
fullnægjandi skýring leiðir það til
þess að innskatturinn er felldur nið-
ur og eigandinn þarf að greiða virð:
isaukaskattinn með 25% álagi. í
framhaldinu er tekin ákvörðun um
hvort brotið sé þess eðlis að ástæða
sé til þess að senda það skattrann-
sóknarstjóra ríkisins.
Regnhlífaveður
STÓR hluti landsmanna, einkum á suðvestanverðu landinu, hefur þurft
að grípa til regnhlífa sinna tvo undanfama daga. Umhleypingasamt hefur
verið og gengið á með rigningu eða skúmm í kalda og strekkingi.