Morgunblaðið - 29.06.1993, Blaðsíða 13
MORGÚÍÍBLAÐIÐ’ ÞRIÐ3'UDA'G1M 29PJÚNÍ '1993
<T3
lag sem gerir slikt kleift. Það verður
ekki gert með þvi að breyta fyrir-
tækjum í einokunaraðstöðu í hlutafé-
lög. Slík breyting er í afturhaldsátt.
Þvert á móti þarf að auka aðhald
frá kjörnum fulltrúum þar sem mark-
aðseftirliti verður ekki við komið. Á
sama tíma þurfa opinberar stofnanir
að reyna stöðugt að bæta reksturinn,
gera þjónustuna íjölbreyttari og
sveigjanlegri. Það sem þjóðfélagið
þarf nú verulega á að halda er að
menn leggist á eitt um að stuðla að
aukinni hagkvæmni og nýjungum
sem gagnast okkur sem einstakling-
um og þjóðfélaginu í heild. Þetta á
að vera markmið til að stefna að.
Það þarf að stíga skref fram á við,
framkvæma breytingar sem raun-
verulega eru til bóta en hoppa ekki
inn á einhveijar tískubólur sem þeg-
ar allt kemur til alls virðast hvar-
vetna vera að springa.
Höfundur er formaður BSRB.
Ted Turner og Jane Fonda
Því hefur verið fleygt að Stöð 2
hafi boðið hinum frægu hjónum Ted
Tumer eiganda CNN og Jane Fonda
leikkonu til landsins síðla í júlí.
Fari svo að þau þekkist boðið verð-
ur þeim boðið í lax og er Norðurá
efst á óskalista forráðamanna
Stöðvar 2. Þá mun hafa verið óskað
eftir því við umboðsmann Orvis á
íslandi, að hann sjái hinum frægu
hjónum fyrir öllum nauðsynlegum
búnaði.
Enn lækkar sú hæsta...
Síðla vetrar voru veiðidagar á
dýrasta tíma í Laxá á Ásum boðnir
á 100.000 krónur, ein stöng í einn
dag. Þrátt fyrir stór orð fiskifræð-
inga um mikla yfirvofandi veiði, var
um gríðarlega verðlækkun að ræða,
því 1991 fóru stangardagar á allt
að 170.000 krónur stykkið. Afla-
brestur nú í byijun veiðitíma hefur
síðan sett allt á annan endann og
það heyrist víða að menn vilji losna
við veiðidaga í Laxá. Því er fleygt
manna á milli, það er auglýst í dag-
blöðum, þannig að það fer ekki á
milli mála. Einn viðmælandi Morg-
unblaðsins sagði að hann hefði feng-
ið upphringingu frá handhafa veiði-
leyfis á mjög góðum tíma í Laxá.
Sá bauð honum daga sem hann
hafði sjálfur greitt 100.000 krónur
fyrir, fyrir 30.000 krónur stangar-
daginn.
Misvel bókað...
Víða í hinum þekktari laxveiðiám
eru „dýr göt“ í bókuninni og sumar
af hinum ódýrari og minna þekktu
ám eru einnig með lausa daga á
víð og dreif. Það voru ekki nema
þijár ár sem lækkuðu svo í verði
að orð sé á gerandi, Laxá í Kjós,
Ytri Rangá og Norðurá. Fyrirfram-
bókun í Rangána er yfirleitt lítil
miðað við hinar, menn kaupa þar
daga með minni fyrirvara. Skreppa
dag og dag. Árni Baldursson segir
erfítt að selja í samdrættinum, en
hann geti vel við unað og mikil
aukning hafí orðið í sölu á erlendri
grundu. Þá eru forsvarsmenn SVFR
mjög ánægðir með viðtökurnar á
Norðurá, en á aðalsvæðinu eru að-
eins lö stangir eftir óseldar í sum-
ar. I fyrra voru brögð að því að
allt að 10 stangir væru óseldar í
einstökum hollum, þannig að breyt-
ingin er mikil.
„Islandsmót“
Heyrst hefur, að Stöð 2 undirbúi
þessa daganna óopinbert íslands-
mót í stangaveiði og tveimur af
kunnustu veiðiköppum landsins
verði boðið á bakka Laxár á Ásum
í byijun júlí, mjög nærri stórstraumi
sem verður 5. júlí. Þetta eru þeir
Guðlaugur Bergmann og Þórarinn
Sigþórsson og að sögn verður
keppnin einföld, þeir dragi um svæði
og sá vinnur sem hefur landað fleiri
löxum í lok veiðidags. Stöð 2 muni
síðan sýna þátt um keppnina í kjöl-
farið.
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS KYNNIR
Skipulag og fararstjórn:
Ingólfur Guðbrandsson
LISTA-, ÓPERU- OG SÆLKERAFERÐ
- ÞAÐ BESTA Á ÍTALÍU
15 daga listskoðun og lífsnautn ífegurstu héruðum og borgum Ítalíu. Brottför 13. ágúst.
VERÐ UNDIR HÁLFVIRÐI
40
ÞÚSUND
KRÓNA
FERÐAMÁTI: Flug til og frá MÍLANÓ. Akstur um
Italíu í-glæsilegustu gerð farþegavagna.
GISTING: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum,
sérvöldum með tilliti til gæða og staðsetningar.
Hlaðborðsmoreunverður.
HELSTU VIÐ KOMU STAÐIR:
l.MÍLANÓ, m.a. LA SCALA-óperan, dómkirkjan og Síðasta
kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci í Santa Maria delle Grazie.
Gisting: BAGLIONE DORIA.
2 VERONA, hin heillandi miðaldaborg Rómeós og Júlíu og óperan
AIDA í ARENUNNI með Kristjáni Jóhannssyni og öðrum
frægustu söngvurum heimsins. Gist á splunkunýju glæsihóteh,
LEON D'ORO.
3 GARDAVATNIÐ með töfrandi fegurð og bæjunum SIRMIONE,
BARDOLINO og GARDA. Siglt á vatninu.
4 Listir og líf í FENEYJUM, þar sem gist verður á HOTEL LUNA
við CANAL GRANDE, rétt við MARKÚSARTORG til að upplifa
töfra borgar hertoganna á nóttu sem degi.
5. ítalska hjartað — listaborgin FLÓRENS, þar sem gist er 3 nætur á
BERNINI PALACE, mitt í heimslistinni til að sjá með eigin
augum snilld endurreisnarinnar, mestu listfjársjóði veraldar í
söfnunum UFFIZI og PITTI.
6. PISA, SIENA OG ASSISI, borgimar, sem em sjálfar eins og
undurfagurt safn aftan úr öldum, ótrúlegri en orð fá lýst.
Gist á PERUGIA LA ROSETTA.
7 RÓM, borgin eilífa, fyrmrn miðpunktur heimsins, hefur engu
tapað af þeim segulmagnaða krafti, sem dregið hefur að
ferðamenn frá ölíum heimshornum í 2000 ár. Gist 4 nætur á
REGINA BAGLIONE hótelinu við sjálfa VIA VENETO.
Ef listir, saga og fegurð höfða til þín, er þetta ferð sem þú mátt
ekki missa af. Allur viðurgerningur, matur og vín, eins og best
gerist ígósenlandi sælkera.
f REYNSLA FARÞEGA: N
Fyrir öllu hafði verið hugsað af síkri kunnáttu, útsjónarsemi og
smekkvísi, að ferðin var óblandin ánægja og draumi líkust. Það var
sem við ferðuðumst um í landslagsmálverki, og nutum alls hins besta
sem Ítalía hefur að bjóða. Hvílík stemmning og lífsnautn! Listm og lífið
allt fá annað samhengi við reynslu af þessu tagi. Það er list að gera
ferðir svona úr gatöi og á fárra færi. Mér fannst hún nokkuð dýr £ fyrstu
Settu en komst að raun um að líklega væri hún ódýrasta ferðin að raungildi,
siálfa(n) bio sem ég hef nokkumtíma farið, ég heyrði ferðafélagana taka ísama
J J r ó streng. Ég vil þakka fyrir mig og hlýt að ráðleggja þeim sem vilja
l VCttU SpOnn l kynnast því besta að velja sér ferð með Heimsklúbbnum."
þessari ferð! V_________iír lesendabréfi Morgunblaðsins, scpt. 1991._J
Ferð engri annarri lík!
Ferð sem allir unnendur lista og fegurðar ættu áb láta
eftir sér og grípa
tækifæri
sem ekki
kemur
aftur.
HÉIMSKLÚBBUR INGÓLFS
"aUSTURSTRÆTI 17,4. h*í 101 REYtUAVIK^SiMI 620400>FAX 626564
VERÐLÆKKUN
FRÁ
SÍÐASTA ÁRI
Glæsileg gisting á
COGETA PALACE
HOTELS
AÐHNS 10
VIÐBÓTABSftTI