Morgunblaðið - 29.06.1993, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 29.06.1993, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1993 Morgunblaðið/Kristinn SAMEIGENDUR — Nýheiji hf. hefur gerst meðeigandi að Skrifstofu- og ritaraskólanum, sem verið hefur í eigu Stjómunarfélags íslands. Á myndinni eru (í fremri röð) þeir Gunnar Hansson, forstjóri Nýheija, og Ámi Sigfússon, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins, og í aftari röð þau Sjöfn Ágústsdóttir og Jón Georgsson, skólastjórar Tölvuskóla Stjórnunarfélagsins og Nýheija, og Ragna S. Óskarsdóttir, verkefnisstjóri Viðskiptaskóla Stjómunarfélagsins og Nýheija. Viðskipti Bankahneyksli í Sviss áfall fyrir Roth- schild-fjölskylduna „HEFÐU einhverjir aðrir en Rothschild-fjölskyldan átt í hlut, hefði þetta endað með ósköpum," Þessi ummæli bankamanns í Ziirich lúta að hneykslinu, sem borgarbúar hafa fylgst með af mikilli athygli síðasta árið. Það snýst um Rothschild Bank, útibú N.M. Rothschild í London, en að undanförnu hefur hann orðið að afskrifa um 12 milljarða kr. vegna tapaðra útlána. Kom það flestum á óvart því talið var, að bankinn væri eingöngu í því að annast fjárreiður ríks fólks en ekki í útlánum Sagan hófst í júlí í fyrra þegar Rothschild-bankinn tilkynnti, að hann yrði að grípa til leyndra vara- Nýheiji gengur inn írekstur Skrifstofu- og ritaraskólans NÝHERJI hf. í Reykjavík hefur gerst meðeigandi að Skrifstofu- og ritaraskólanum, sem verið hefur í eigu Stjómunarfélags ís- lands. í tilefni af þessari breytingu hefur nafni skólans verið breytt og heitir hann nú Viðskiptaskóli Stjórnunarfélagsins og Nýherja. Frá og með næsta hausti mun tölvukennsla skólans fara fram í húsnæði Nýheija hf. við Skaftahlíð en allur annar rekstur verður í húsnæði Stjórnunarfélagsins að Ánanaustum 15. í fréttatilkynningu frá Við- skiptaskóla Stjórnunarfélagsins og Nýheija segir, að með sam- starfi þessara aðila um rekstur skólans sé hægt að bjóða nemend- um upp á bestu tölvukennslu, tengda skrifstofustörfum, sem völ sé á hveiju sinni. Breytingin á nafni skólans endurspegli þá gífur- legu þróun, sem átt hafi sér stað á starfi skrifstofumannsins á þeim tuttugu árum, sem skólinn hafi starfað. Upphaflegt nafn skólans hafí verið Einkaritaraskólinn, en þó sérhæfð störf ritara séu enn í fullu gildi, þá séu skrifstofustörfin orðin mun fjölbreyttari. Á undan- förnum árum hafí stóraukist þörf markaðarins fyrir skrifstofufólk, sem hafí góða almenna kunnáttu á flestum þáttum skrifstofustarfa, svo sem tölvuvinnslu, bókhaldi, bréfaskriftum, einföldum útreikn- ingum og skjalavörslu, og þeirri þörf hafí skólinn kappkostað að mæta. Fram kemur, að skólinn bjóði upp á tvö aðskilin námsár. Annars vegar sé um að ræða „Almennt skrifstofunám“ sem skiptist í bók- færslu- og enskusvið, og hins veg- ar „Sérhæft skrifstofunám“, sem skiptist í sölu- og markaðsbraut og fjármála- og rekstrarbraut. ís- landsbanki veiti nemendum lán fyrir- skólagjöldum til allt að þriggja ára með þeim skilmálum að endurgreiðslur hefjist ekki fyrr en að námi loknu. Otrúleg verö -\ — J Bleksprautuprentarar HP Deskjet 510 prentarí HP Deskjet Portable ferðaprentari Litaprentarar HP Deskjet 500 C litaprentari HP Deskjet 550 Iitaprentari HP Deskjet 1200 C litaprentari HP Deskjet 1200 C/PS litaprentari HP Paintjet XL300 litaprentari Maclntosh Prentarar HP DeskWriter prentari HP DeskWriter C litaprentari HP DeskWriter 550 litaprentari Geislaprentarar HP Laserjet IlIPprentari HP Laserjet IIIDprentari HP Laserjet IIISi prentari i HP Laserjet 4L prentari HP Laserjet 4 prentari III* Laserjet 4M prentari HP Laserjet 4Si prentari HP Laserjet 4Si Mx prentari Myndlesarar HP Scanjet IIP HP Scanjet IIC HP Scanjet IIC/Macintosh 44.900,- stgr. 44.900, - stgr. 49.900, - stgr. 99.900, - stgr. 149.900, - stgr. 209.900, - stgr. 289.900, - stgr. 34.900, - stgr. 49.900, - stgr. 99.900, - stgr. 99.900, - stgr. 199.900, - stgr. 295.000,- stgr. 83.900, - stgr. 199.900, - stgr. 289.900, - stgr. 379.900, - stgr. 549.900, - stgr. 94.900, - stgr. 149.900, - stgr. 134.900, - stgr. Tæknival ÖII verð eru staðgreiðsluverð og með 24.5% VSK. Verð gildir frá 28. júní 1993 Tæknival hf. áskilur sér ailan rétt.til verðbreytinga án fyrirvara SKEIFAN17 - StUl: 91 ■ 6816 6S, FAX■ 91-68 0664 VIÐURKENNDUR HP SÖLUAÐILI sjóða vegna 4,4 milljarða kr. útl- ánataps. Þóttu það mikil tíðindi, ekki síst með tilliti til þess, að hlutafé bankans var ekki nema rúmir átta milljarðar. Nokkrum dögum síðar var svo Jtírg Heer, lánastjóri bankans, handtekinn og ákærður fyrir að hafa svikið út úr honum fé. Seinna kom í ljós, að tapið var miklu meira og aðal- lega vegna lána til eins og sama viðskiptavinarins. Það stríðir hins vegar gegn svissneskum lögum. „Glæpsamlegt kerfi“ í október kom Heer fram með alvarlegar ásakanir á Rothschild- bankann í svissneskum fjölmiðl- um. Sagði hann, að í gangi væri samsæri um að hafa hann að blóraböggli og kvaðst ekki mundu skirrast við nefna þátt annarra. Hélt hann því fram, að bankinn hefði starfrækt „glæpsamlegt kerfi“ í þeim tilgangi að hjálpa ríkum ítölum við að sleppa við skattgreiðslur. Heer hélt því fram, að Rot- hschild-bankinn hefði tekið þátt í ýmsu, sem ekki þyldi dagsins ljós, jafnvel borgað meintum morðingj- um Robertos Calvis, fyrrverandi stjómarformanns Banco Ambros- ianos, en hann fannst hengdur undir Blackfriars-brúnni í London árið 1982. Talsmaður bankans vísar þessu öllu á bug en ásakanirnar hafa ekki aðeins valdið bankanum veru- legum álitshnekki, heldur einnig Rothschild-ijölskyldunni. Hún hef- ur hins vegar ákveðið að bjarga bankanum með sínu eigin fé og taka reksturinn til endurskoðunar í samræmi við tillögur Coopers & Lybrands. Ekki verður fullljóst fyrr en síð- ar hvernig þetta mál er vaxið en megindrættirnir eru þó skýrir. Erfiðleikamir hófust 1981 þegar Gilbert de Botton, aðalfram- kvæmdastjóri Zúrich-bankans fór til starfa hjá Rothschild-bankan- um í London. Elie de Rothschild barón, höfuð frönsku Rothschild- fjölskyldunnar og stjórnarformað- TELEFAX PAPPÍR 260 krónur 30 metrarúlla. 10% afsláttur af kassa meö 6 rúllum. CSHI33>= HALLARMÚIJí 2 AVSTURSTRÆTl 18 KRINGL UNNl ur bankans í Ztírich, réð þá Alfred Hartmann, svissneskan banka- mann, til að taka við af honum. Hvorki Elie barón né Hartmann sinntu bankanum mikið og rekstur hans var aðallega í höndum þriggja manna, þar á meðal Jtírg Heers. Vafasöm viðskipti Þegar frá leið flæktist bankinn inn í ýmislegt misjafnt. Hann út- vegaði til dæmis fjármála- og fjár- glæframanninum Marc Rich ólög- legt lán 1984 og keypti hlutabréf í Jacob Suchard-sælgætisfyrirtæk- inu fyrir hálfan milljarð kr. á sama tíma og hann annaðist ráðgjöf vegna hugsanlegrar yfírtöku á fyr- irtækinu. Alvarlegast var þó þegar bank- inn tók að lána Karsten von Wersebe og Wolfgang Stolzen- berg, tveimur þýskum Kanada- mönnum, sem stóðu þá ásamt ýmsum evrópskum fjárfestum í miklum fjárfestingum á banda- ríska fasteignamarkaðinum. Heer annaðist þessi mál en lánin voru veitt tveimur fyrirtækjum í tengsl- um við Kanadamennina, Castor og York Hannover. Hefur nú verið upplýst, að Heer tók mikla þóknun fyrir lánsútvegunina. Þegar lánin voru komin að þeim mörkum, sem lög leyfa, voru þau veitt í gegnum milliliði til að allt væri með felldu á pappírunum. Var Heer einn að verki? 1991 fór að harðna á dalnum á bandaríska fasteignamarkaðinum og þá jukust lánin að því marki, að grunsemdir vöknuðu. Snemma á síðasta ári fóru síðan Castor og York Hannover á hausinn og Roth- schild-bankinn sat uppi með gíf- urlegt tap. Málið snýst nú um það hver bar ábyrgð á þessu ólöglega athæfi. Heer viðurkennir að hafa þegið rúmlega 1,3 milljarða kr. í þóknun fyrir lánin og forsvarsmenn bank- ans halda því fram, að hann hafí verið einn að verki og blekkt bankastjórana, bankaráðið og end- urskoðendur. Hefur síðan verið skipt um allt liðið. Bankamenn í Ztírich eiga hins vegar erfítt með að skilja hvernig einn maður í litlum banka gat lán- að út næstum 12 milljarða kr. án þess, að aðrir yfirmenn hans væru með á nótunum. Beinist rannsókn svissneska bankaeftirlitsins nú að því en það gerir því erfitt fyrir, að Heer flýði frá Sviss í desember sl. og hefur ekki sést síðan. V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.