Morgunblaðið - 29.06.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1993
25
Olíumarkaðurinn
Guðmundur W. Vilhjálmsson
Olíuframleiðsla og
notkun tíl 2010
Þarfir 1990 2000 2005 2010
Efnah. og Framfarst. (OECD) 37,9 42,6 43,4 45,2
Au. Evrópa og fyrrum Sovétlýðveldi 10,0 8,3 9,3 10,3
Aðrir heimshlutar 18,4 26,4 31,0 37,0
Heimilisþarfír 66,3 77,3 83,6 92,5
Birgðabreyting +0,7 +0,2 +0,2 +0,3
Framboð
Efnah. og Framfarast. (OECD) 15,9 15,3 14,5 13,8
Au Evrópa og fyrrum Sovétlýðveldi 11,8 8,6 9,4 10,6
Persaflóaríki og Venezueía 20,0 31,1 36,9 45,4
Aðrir heimshlutar 17,9 20,8 21,2 21,1
Aukning við vinnslu 1,4 1,7 1,8 1,9
Heimsframboð 67,0 77,5 83,8 92,8
Tvennt er athyglisvert við þessa
spá. Annars vegar það, að sú fram-
leiðsluaukning, sem þörf er á og
spáð er verður að langmestu leyti
í Miðausturlöndum og Venezuela,
en þar er spáð um 127% aukningu.
Hins vegar er það hversu mikilli
tilfærslu er spáð í olíunotkun milli
heimshluta.
Framboð og verð
Gert er ráð fyrir minnkandi fram-
leiðslu í Bandaríkjunum. í Sovét-
ríkjunum fyrrverandi er talið að
framleiðsla haldi áfram að minnka
til ársins 2005, en fari þá að auk-
ast. Framleiðslan í Rússlnadi nær
sér ekki á strik án þátttöku ólíufyr-
irtækja á Vesturlöndum. í Rúss-
landi einu sér, en Rússland er með
90% af olíuframleiðslu fyrrverandi
Sovétríkja, minnkar framleiðslan ú
7,9 MT/D árið 1992 í 6,9 MT/D á
þessu ári. Útflutningur hefur þó
haldist að mestu, enda færast olíu-
verð í Rússlandi nær heimsmark-
aðsverði. Tilhugalíf vestrænna olíu-
fyrirtækja við ráðandi menn og oíu-
deildir Rússlands hefur verið þyrn-
um stráð. Ávallt þegar samningar
virðast vera komnir á koppinn,
koma Rússar með ný skilhyrði,
körfur um nýja skatta. Er rætt um
að Rússar séu að skattleggja sig
út úr olíuframleiðslu næstu árarað-
ir, en það tekur áratugi að koma
framleiðslu í eðlielgt horf í hinum
geysiauðugu olíunámum Rússlands.
I einu fyrrum samveldanna hefur
tilhgualífið orðið að hjónabandi, en
það í Kazakstan, en þar voru fram-
leidd 20% af olíu Sovétríkjanna. Á
þar í hlut olíufyrirtækið CHEVR-
ON. Framleiðsla úr Norðursjó mun
minnka á árunum fram til 2010 og
vafasamt að framleiðsla Breta end-
ist svo lengi. Alþjóðaorkustofnunin
gerir ráð fyrir að hráolíutunnan
muni kosta um 30 dollara árið 2005
og haldast í því verði til 2010, þ.e.
helmingshækkun frá verði í dag.
Aðrir telja að verðið verði nær 22
dollurum. Ef hins vegar áætlunin
um olíunotkun stenst mundi maður
telja að 30 dollara verðið sé réttari
áætlun, því með lægra verði er vafa-
samt að takast megi að auka fram-
leiðsluna svo sem þörf er þá. Hér
er átt við verð til framleiðenda, sem
þurfa gífurlegt fjármagn til fram-
leiðsluaukningar. Hvað með meng-
- ódýr gisting
um allt land
unarskatta? Ef mengunarskattur
verður 10 dollarar á tunnu, eins og
rætt er um í Efnahgsbandalaginu,
yrðu 40 dollarar enn sennilegri tala
á verði olíutunnu árið 2005. Al-
þjóðaorkumálastofnunin er þeirrar
skoðunar að skatturinn einn muni
ekki draga mikið úr mengun. Fleira
þurfi að koma til.
Eftirspurn og notkun
Alþjóðaorkustofnunin gerir ekki
ráð fyrir að notkun ríkja Efnahags-
og Framfarastofnunarinnar
(OECD) muni aukast verulega á
þessum 20 árum, sem áætlunin nær
yfir. I Austur-Evrópu og fyrrum
Sovétríkjunum muni hún fyrst
minnka vegna bágs efnahags en
síðan árið 2010 muni notkunin orð-
in jöfn árinu 1990. En það vekur
athygli að spáð er rúmlega 100%
aukningu á olíunotkun í öðrum
heimshlutum. Gert er ráð fyrir að
fólksfjöldi muni aukast langmest í
Afríku, en orkuþörf mun ekki auk-
ast þar að sama skapi. Það er fyrst
og fremst í Asíu, einkanlega í Kína,
sem olínotkun mun aukast. Svo
virðist sem efnahagslíf Kína hafi
fengið vítamínsprautu. Það vítamín
kallast kapitalismi. Sömu æðarnar
flytja blóðið, kefið hefur ekki
brenglast. Kínveijar hafa ekki rúst-
að kerfi sínu eins og gerðist í Sovét-
ríkjunum en það hefur orðið mynd-
breyting á kerfinu. Nýir kapítalistar
koma nú í tuga þúsunda tali úr
röðum fyrrum embætismanna og
kommissara og „græða“ nú marg-
faldar upphæðir miðað við fyrri
laun. Þeir hafa tileinkað sér þá
hætti Vesturlandabúa að fullnægja
þörfum borgaranna og ekki síður
að skapa nýjar þarfir. Kína fram-
leiðir nú um 2,9 MT/D a_f olíu og
hafa löngum flutt út olíu. Árið 1994
er gert ráð fyrir að olíuþörf Kína
hafi aukist svo, að þeir verði að
flytja inn olíu. Kínveijar eru miklir
vopnaframleiðendur og óttast nú
ýmsir að þeir muni skipta á vopnum
og olíu Miðausturlanda.
Kolanotkun í Kína
Rætt hefur verið um aukna olíu-
notkun í Kína, en þó mun kolanotk-
un aukast meir og kol eru töluvert
meiri mengunarvaldur en olía. Raf-
magnsnotkun í Kína er um 0.6 mw
á mann á ári en í Bandaríkjunum
um 10 mw. 75% af rafmagnsfram-
leiðslu Kína er unnin með kolum.
Kínveijar hafa stófelld áform um
rafvæðingu og hafa samið við fyrir-
tæki á Vesturlöndum um að byggja
þau. Þar verði aðallega kol notuð.
Kína á nóg af koium og kolin eru
ódýrari en olía og kjarnorka. Kol
hafa ekki verið hreinsuð í Kína fyr-
ir brennslu. Kolanotkun hefur til
skamms tíma verið styrkt af kín-
verska ríkinu. Helmingur húsa í
borgum Kína hafa verið hituð með
litlum kolaofnum og matseld farið
fram við kolaeldavélar. En Kínveij-
ar eins og aðrir eru farnir að átta
sig á mengun vegna orkunotkunar.
Þeir sjá skóga sína eyðileggjast
vegna súrs regns. Mikil er hættan
í dag, en hún margfaldast við þá
miklu framleiðsluaukningu, sem er
að verða þar. Reyndar gildir sama
um önnur ríki i Austur-Asíu, sem
eru að losna úr álagaham. Allur
heimurinn hefur áhyggjur af kola-
notkun þessara ríkja og reyndar
allri orkunotkun þar, sem er viðbót
við myndun þess koldíoxíðs, sem
fer út í andrúmsloftið. Stórfelld
skattlagning á olíugjafa í Evrópu
og Ameríku til að draga úr mengun
verða dvergaspor í hlutfalli við vax-
andi mengun í Austur-Asíu.
Kínveijar eiga mikið af gasi í
jörðu, en dreifingarkerfið er feyki-
lega dýrt, eins og alls staðar. Þeir
hafa áform um að nota gas til heim-
ilsinota eftir því sem fjáhagur leyf-
ir þeim að koma upp dreifikerfi jafn-
framt því sem gas yrði notað til
rafmangsframleiðslu. Kínveijar sjá
skóga sína deyja af súru regni og
önnur merki mikillar mengunar.
Áhugi hefur vaknað meðal þeirra
að bæta úr þessu, en þeir þurfa
mikla hjálp til þessa, ekki síst þekk-
ingu frá Vesturlöndum, t.d. við
hreinsun kola, sem getur leitt til
40% meiri afkasta á sama tíma sem
30% minna koldíoxíð færi út í and-
rúmsloftið. Gífurlegur uppgangur
er nú í efnahags- og athafnalífi
Kína. Drekinn stóri er að rumska
og andardráttur hans og brölt skapa
allri jörðinni stórhættu. Sviti hans
eitrar vötn og læki. Aðgerðir Vest-
ur-Kanada í mengunarmálum eru
sem hirðing á haustlaufum i skrúð-
garði miðað við þær aðgerðir sem
þörf er á í Austur Asíu.
Höfundur er forstöðumaður elds-
neytisdeildar Flugleiða
Þjónusta
Kolaportið í
samstarf við
Electrolux
KOLAPORTIÐ mun í sumar bjóða
til leigu 50-150 fermetra tjöld fyr-
ir samkomur af ýmsu tagi, en fyr-
irtækið hefur undanfarið leigt út
200-800 fermetra tjöld. Nýlega
var gengið frá samningum við
Electrolux Goods Protection um
samvinnu á þessu sviði.
Kolaportið mun m.a. bjóða allt að
160 fermetra álgrindartjöld sem ætl-
að er að standa í lengri tíma og hef-
ur eitt slíkt verið leigt húsdýragarð-
inum að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu. Þá gefst kostur á 10 þús-
und fermetra stálgrindartjöldum sem
þykja heppileg fyrir fyrirtæki sem
þurfa á geymsluhúsnæði að halda í
nokkra mánuði.
SAMNINGUR — Kolaportið hefur gert samstarfssamning
við Electrolux Goods Protection. Á myndinni eru Jens Ingólfsson
frá Kolaportinu, Mads Johansen, framkvæmdastjóri útflutnings-
deildar Electrolux Goods Protectionan og Kim Sabroe Jensen, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs.
CCL 600
Wd'liJJfildilJiH.'WilB
A3 og A4 papptr
600x600 punkta upplausn (dpi)
Intel 80960KB RISC 7^766
Intel 82961KD graf ?66r 7í$7e6
H 7*K68uft (7 m K6SÚ3
Margf 7ð®ninnisn 7ífg
Postscript, PCL5 og HP-GL/2
35 TrueType leturger 760
13 HP-PCL5 leturger 760
Appletalk-, ra TðSg hli 78Bgi
Getur unni 760HE6n tengjum
samt if&§
SCSI tengi fyrir fontadisk
Sj TfMrk skynjun 7fPbstscript og
PCL5
Tekur vi 7pt)entg Tpfljm 7rtte 780
prenta 780
Ska TBtekki Ozon lagi 760
<Q>
•CalComp NÝHrRJI
A lockheed Company
SJALFVIRKI
OFNHITASTILLIRINN
Lágmarks
orkunotkun
- hámarks
þægindi.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
BAKHJARL
,,. i
Kynnið ykkur kjör og skilmála samkeppnis- og útflutningslána
IÐN LANASJÓÐUR
ÁRMÚLA 13 a *108 REYKJAVÍK-SÍMI 68 04 00
ARGUS/SlA