Morgunblaðið - 29.06.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1993
Sigríður G. Þorláks-
dóttir — Minning
Fædd 13. apríl 1902
Dáin 21. júní 1993
Mánudaginn 21. þ.m. lést á
hjúkrunarheimilinu Skjóli hér í
Reykjavík Sigríður Guðrún Þorláks-
dóttir eftir langvarandi veikindi.
Sigríður var Skaftfellingur að
ætt og uppruna, fædd í Skálmar-
bæjarhraunum í Álftaveri, dóttir
hjónanna Sigríðar Jónsdóttur frá
Skálmarbæ í sömu sveit og Þorláks
Sverrissonar frá Klauf í Meðal-
landi. Sigríður var elst þriggja
barna þeirra hjóna, en hin eru séra
Óskar Jón Þorláksson, fyrrum dóm-
prófastur, látinn 7. ágúst 1990, og
Guðrún Þorláksdóttir, húsmóðir í
Kópavogi.
Sigríður ólst upp í foreldrahúsum
í Skálmarbæ, þar sem foreldrar
hennar settu saman bú. Bjuggu þau
þar til ársins 1911, að þau flytjast
til Víkur í Mýrdal, en þar stofn-
setti Þorlákur verslun. Átti fjöl-
skyldan heima í Vík til ársins 1925,
en fluttist þá til Vestmannaeyja.
Þar gerðist Þorlákur einnig kaup-
maður og rak Söluturninn, sem var
á sínum tíma ein kunnasta verslun
bæjarins, enda gegndi hún mikil-
vægu hlutverki með þjónustu við
sjávarsíðuna. Verður það ekki rakið
frekar.
.Sigríður ólst upp við þau störf
og þau kjör, sem þá tíðkuðust, fyrst
framan af almenn sveitastörf og
síðar í kauptúninu í Vík. Á ungl-
ingsárum sínum var hún í kaupa-
vinnu á ýmsum bæjum í Vestur-
Skaftafellssýslu, enda fýsti hana
mjög að kynnast nýjum aðstæðum
og kanna ókunnar slóðar. En um
Fæddur 14. maí 1930
Dáinn 9. júní 1993
Okkur langar að minnast tengda-
föður okkar, Baldurs Hólmgeirsson-
ar, nokkrum orðum. Það var okkur
talsvert áfall, þegar við fengum þær
fréttir að Baldur hefði látist í svefni
að morgni 9. júní sl. Hann sem var
alltaf svo glaður í bragði, þrátt fyrir
erfiða sjukdómslegu sem hafði staðið
nær samfellt í rúmlega ár.
Þeir voru margir laugar- og
sunnudagarnir sem strákarnir fóru
með pabba sinn í bíltúra um bæinn
til að skoða mannlífið og hafa gaman
af því að vera til. Fá sér kannski ís
í tilefni dagsins, eða bara gera eitt-
hvað skemmtilegt og gleyma um
stundarsakir sjúkdómum og þess
háttar. En þessir dagar með Baldri
eru allir og geymast því aðeins í
minningunni um manninn sem alltaf
hélt góða skapinu og var með hjartað
á réttum stað.
Fráfall hans bar skjótt að. Hann
hafði verið með Diddu og strákunum
eitthvað deginum áður, farið á hækj-
unum léttur í skapi niður Klappar-
tvítugsaldur hélt hún til Reykjavík-
ur til náms í húsmæðrafræðum og
nam jafnframt kjólasaum. Á næstu
árum vann hún við iðn sína og jafn-
framt við önnur störf, er til féllu.
Var hún m.a. eitt sumar matráðs-
kona hjá vegagerðarmönnum á
Suðurlandi, en settist síðan að í
Vestmannaeyjum, þar sem hún átti
heimili allt til ársins 1970.
Árið 1930 gekk Sigríður að eiga
Bjarna Guðjónsson, myndskera og
listamann frá Bæ í Lóni. Bjarni
hafði lært myndskurð hjá Ágústi
heitnum Sigurmundssyni í Reykja-
vík. Settu þau saman bú og bjuggu
lengst af i húsi foreldra Sigríðar í
Hofi í Vestmannaeyjum. Það hús
fór undir hraun í eldgosinu 1973.
Unnu þau hjón bæði við það, sem
þau höfðu menntað sig til að vinna,
kenndu m.a. um skeið við Gagn-
fræðaskólann í Vestmannaeyjum,
Bjarni teiknun og handavinnu pilta,
en Sigríður handavinnu stúlkna.
Bjarni Guðjónsson átti lengst af
ævi sinnar við mikla vanheilsu að
stríða. Féll það því að mestu leyti
í hlut Sigríðar að sjá heimilinu far-
borða. Gekk hún þá að þeim störf-
um, sem til féllu á þeim árum í
Vestmannaeyjum. En um 1960 tók
hún við forstöðu elliheimilisins
Skálholts og gegndi því starfi allt
til ársins 1970, er þau hjón tóku
sig upp og fluttust til Reykjavíkur.
Settust þau að í íbúð, sem þau festu
kaup á, í Hraunbæ 26 og bjuggu
þar allt fram að andláti Bjarna, en
hann lést i nóvembermánuði árið
1987.
Þegar til Reykjavíkur kom, réðst
Sigríður til starfa hjá fyrirtæki, sem
stíginn • í heimsókn á Laugaveginn
til gamals félaga síns og átt þar við-
burðaríkan eftirmiðdag. Hann þurfti
að fara í nýrnavél daginn eftir, og
því var hann alltaf á Borgarspítalan-
um nóttina áður.
Það er mikill missir að jafn ástrík-
um og stórbrotnum persónuleika og
Baldur Hólmgeirsson var. Ævintýrin
sem fjölskyldan hefur gengið í gegn-
um myndu duga flestum á langri
ævi, en sumir eru það lánsamir að
hafa dugnað og þor til að lifa lífínu
lifandi og njóta þess til fullnustu.
Við þökkum Baldri fyrir kynnin
og erum þakklátar fyrir það að hafa
fengið tækifæri til að kynnast góð-
mennsku hans og örlæti. Hann gerði
aldrei mannamun og stórmennska
hans kom beint frá hjartanu. Við
vitum það að Baldri líður vel þar sem
hann er og við fáum öll tækifæri til
að hittast seinna, en minningin um
góðan og hjartahlýjan mann lifir
áfram í okkur öllum. Hafðu þökk
fyrir, elsku Baldur okkar.
Auðbjörg Jóhannesdóttir,
Þórey Erla Gísladóttir.
framleiddi fatnaðarvörur. Vann hún
við þau störf allt þar til hún varð
að hætta vegna aldurs, þá orðin
70 ára.
Á Reykjavíkurárunum höfðu að-
stæður batnað svo, að Sigríður gat
látið óskir sínar um ferðir til fjar-
lægra landa og þjóða rætast. Fór
hún margar ferðir til Evrópulanda
og minntist þeirra stunda jafnan
með mikilli ánægju. Auk þess spar-
aði hún ekki, ef kostur var, að taka
þátt í hópferðum innanlands og
naut þess engu síður, enda var
ferðahugurinn runninn henni í merg
og bein. Ég ætla, að Reykjavíkurár-
in hafi, þrátt fyrir allt, verið eitt
ánægjulegasta tímabilið á löngu
æviskeiði hennar.
Sigríður var vel gefin kona og
vel gerð. Hún var mjög listfeng, svo
sem ýmsar hannyrðir hennar eru
ljós vottur um. Hún fékkst einnig
við myndskurð og brá fyrir sig að
mála, ef svo bar undir. Bera öll
hennar verk vott um gott og vand-
að handbragð.
Þeim Sigríði og Bjarna varð
tveggja barna auðið, sem bæði eru
á lífi. Sverrir, húsvörður, kvæntur
Guðbjörgu Jóhannsdóttur frá Stíg-
húsi í Vestmannaeyjum. Sverrir var
áður kvæntur danskri konu, Inger
'27
Bjarnason, og áttu þau saman tvær
dætur, 'sem báðar eru búsettar í
Danmörku. Sjöfn, gift Hermanni
Jónssyni, úrsmið hér í bæ. Eiga þau
fjögur börn uppkomin.
Eins og fyrr segir lést Bjarni
Guðjónsson í nóvembermánuði
1987. Skömmu síðar tók að bera á
þeim veikindum Sigríðar, er leiddu
til þess, að hún varð að dveljast á
sjúkrastofnunum til æviloka, en hún
lést, eins og fyrr segir, mánudaginn
21. júní sl. á 92. aldursári.
Líf hinnar látnu sæmdarkonu var
ekki eilífur dans á rósum. Þar skipt-
ust á skin og skúrir. Hinum erfiðu
stundum lét hún nægja að líða hjá,
en þeirra stunda, er sól skein í heiði,
minntist hún jafnan með gleði og
þakklæti fyrir að fá að njóta þeirra.
Börnum hennar og öðrum ætt-
ingjum sendi ég innilegar samúðar- —
kveðjur nú, er leiðir skiljast. Ég er
þakklátur fyrir að hafa kynnst
henni náið og átt að vini um langt
árabil.
Útför hennar fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag, 29. júní kl. 13.30.
Einar H. Eiríksson.
ur. Eiga þau þrjú börn, Önnu,
Lydiu og Davíð. Heimili þeirra er
í Danmörku. Lydia var ein af þess-
um hljóðlátu persónum, en var
gefandi. Hennar styrkur var trúin
á Guð.
Heimili Lydiu og föður míns var
notalegt. Var gott að koma þangað
og njóta vináttu Lydiu og hins ljúf-
fenga heimabakaða brauðs og þess
sem hún bar á borð. Þá bar ptjóna-
skapur hennar vitni um fallegt
handbragð. Lydia var mikið veik í
lokin, hún dvaldist á Grund.
Ég veit að ég get tjáð mitt þakk-
læti til hennar fyrir hönd bama
minna og þeirra fjölskyldna, sem
ekki geta fylgt henni síðasta spöl-
inn. Tveim dögum fyrir lát Lydiu
sat ég hjá henni góða stund. Þá
hefur hún vitað að hveiju stefndi.
Kveðju hennar mun ég ekki
gleyma, sem voru hennar síðustu
orð til mín, þegar hún bað Guð að
vera með mér.
Blessuð sé minning Lydiu.
Ellen Svava Stefánsdóttir.
Minning
Lydia N. Þorláksson
Minning
Baldur Hólmgeirsson
Fædd 7. janúar 1918
Dáin 13. júní 1993
Mig langar í örfáum orðum að
minnast Lydiu tengdamóður
minnar, sem lést eftir erfið veik-
indi á elliheimlinu Grund hinn 13.
þ.m.
Lydia var fædd í Vági í Suðurey
í Færeyjum hinn 7. janúar 1918.
Hún var eitt af börnum Magdalenu
og Niclas Niclasen. Systkini henn-
ar, sem upp komust, eru Henri-
etta, Ansgar, Judith og Poula. Á
lífi eru nú Henrietta, búsett í Hafn-
arfirði, og Judith, búsett í Færeyj-
um. Vegna veikinda móður sinnar
tók Lydia við heimilinu ung_ að
árum, ásamt föður sínum. Árið
1953 má segja að Lydia hafi
tengst íslandi æviböndum, þegar
hún giftist Stefáni K. Þorlákssyni,
sem lést árið 1990. Þau hjónin
eignuðust soninn Stefán Niclas,
sem er búsettur í Danmörku,
ásamt undirritaðri og þremur
börnum, Önnu, Lydiu og Davíð.
„Oh Jesus I have promised to
serve thee to the end.“ „Ó, Jesús,
ég hef heitið að þjóna þér, allt til
enda.“
Þessi orð fann ég á spjaldi inni
í Biblíu, sem Lydia átti. Þegar ég
lít til baka, finnst mér eins og þau
séu yfirskrift yfir hennar lífi, sem
einkenndist af þjónustu við aðra.
Þá þjónustu lét hún í té af fúsleika
og alhug. Þannig þjónaði hún
Drottni sínum í orði og verki.
Um árabil helgaði Lydia hjálp-
ræðishernum krafta sína, fyrst í
Færeyjum, síðan lá leið hennar á
skóla hjálpræðishersins í Eng-
landi. Eftir seinni heimsstyijöldina
starfaði hún í illa förnum fátækra-
hverfum Lundúnarborgar. Þannig
var Lydia. Hún vildi alls staðar
hjálpa, ekki síst þeim, sem minna
máttu sín. Einnig starfaði hún
fyrir hjálpræðisherinn í Noregi og
á íslandi.
Lydia var hlédræg, hógvær og
fórnfús og bar tilfinningar sínar
ekki á borð fyrir aðra. Hún var
vel gefin og fróð og flest allt lék
í höndum hennar, hvort sem var
pijónaskapur eða annað. Gott var
að leita til Lydiu, því hún reyndi
að ráða fram úr hveijum vanda
af alhug. Hún kom yfirleitt auga
á björtu hliðarnar og stutt var í
húmorinn.
Barnabörnin voru mikli sólar-
geislar í lífi Lydiu og var hún iðin
við að segja þeim sögur úr Bibl-
íunni og aðstoða við heimalexíurn-
ar.
Að leiðarlokum þökkum við
Lydiu fyrir allt sem hún gerði fyr-
ir okkur. Blessuð sé minning henn-
ar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem)
Sigríður Magnúsdóttir.
Með fáum orðum langar mig að
minnast Lydiu. Er mér þá efst í
huga þakklæti til hennar. Lydia
var gift föður mínum, Stefáni Karli
Þorlákssyni, en hann lést á Land-
spítalanum 13. október 1990, eftir
erfið veikindi. Þá reyndi mikið á
Lydiu. Sat hún við sjúkrabeð hans
öllum stundum, þótt heilsu hennar
hafi verið farið að hraka.
Lydia og faðir minn eignuðust
einn son, Stefán Niclas, lyfjafræð-
ing. Eiginkona hans er Sigríður
Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðing-
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Sparið og saumið sumarfötin.
Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Upplýsingar í sfma 17356.
tölvur
■ Word fyrir Windows
15 klst. ítarlegt námskeið, 5.-9. júlí,
kl. 9-12.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
sími 688090.
■ Tölvusumarskóli f. 10-16 ára
Morgun- og síðdegisnámskeið fyrir
hressa krakka. Næstu námskeið hefjast
19. júlí.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
sími 688090.
■ Excel töflureiknirinn
15 klst. námskeið fyrir Macintosh og
Windows notendur. 19.-23. júlí,
ki. 13-16.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
sími 688090.
■ Windows og PC grunnur.
9 klst. um Windows og grunnatriði PC
notkunar 12.-14. júlí kl. 9-12.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
sími 688090.
■ Krakkar og foreldrar
Af tölvum má hafa bæði gagn og gaman.
Tölvuskóli Reykjavíkur heldur 24 klst.
námskeið fyrir börn og unglinga á aldrin-
um 10-16 ára þar sem megin áhersla
er lögð á gagnið en gamanið er aldrei
langt undan. Eingöngu er kennt á PC
tölvur. Velja má um morgun- eða siðdeg-
istíma. Innritun er hafin.
■ Tölvunám fyrir unglinga
hjá Nýherja í sumar.
30 klst. á aðeins kr. 12.900!
Nám, sem veitir unglingum forskot við
skólanámið og verðmætan undirbúning
fyrir vinnu síðar meir. Fræðandi,
þroskandi og skemmtilegt nám.
• 8.-23. júní kl. 9-12 eða 13-16.
• 28.júm - 9. júlíkl. 9-12 eða 13-16.
• 9.-20. ágúst kl. 9-12 eða 13-16.
Upplýsingar í síma 697769
eða 697700.
■ NÝHERJI
tungumál
Enska málstofan
■ Sumarnámskeið:
Vantar þig þjálfun í að tala ensku?
Við bjóðum námskeið með áherslu á
þjálfun talmáls. Fámennir hópar. Nýjir
nemendur geta byrjað hvenær sem er.
Einnig bjóðum við námskeið i viðskipta-
ensku og einkatíma.
Upplýsingar og skráning í síma
620699 frá kl. 14-18 alla virka daga.