Morgunblaðið - 29.06.1993, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1993
ii
-li
Suðurlandsmót í hestaíþróttum
Hart barist á
blautu mótí
Hestar______________
Valdimar Kristinsson
Ekki er hægt að segja að veðr-
ið hafi leikið við Selfyssinga
þegar þeir héldu Suðurlands-
mót í hestaíþróttum um helgina.
Fresta varð keppni á föstudag
vegna veðurs og riðlaðist dag-
skráin nokkuð við það en eigi
að siður tókst að ljúka mótinu
á skaplegum tima á sunnudegin-
um. Sæmilegt veður var á laug-
ardeginum. Auk þess að vera
Suðurlandsmót var þetta einnig
héraðsmót Héraðssambandsins
Skarphéðins og sér verðlaun
voru veitt fyrir þann hluta móts-
ins. Þátttaka var all þokkaleg
og vakti athygli mikil þátttaka
í hlýðnikeppninni, en þar voru
tólf skráðir tU leiks í fullorðins-
flokki sem þykir gott.
í fullorðinsflokki voru úrslit í
tölti og fjórgangi eftir bókinni þ.e.
Sigbjöm Bárðarson, Fáki, og Odd-
ur frá Blönduósi sigruðu næsta
auðveldlega en hinir keppendurnir
bitust um annað sætið í úrslitun-
um. í fímmgangi var annað upp á
teningnum því þar sigraði Frið-
þjófur Vignisson á Flugari. Hann
hefur átt góðu gengi að fagna á
innanfélagsmótum hjá Andvara,
en ekki blandað sér mikið í topp-
baráttuna á stærri mótum. Er allt-
af ánægjulegt að sjá ný andlit í
gullsætum á mótum sem þessum.
Þá sigraði Gísli Geir Gylfason,
Fáki, í gæðingaskeiðinu á Koli frá
Stóra-Hofi, en hann hefur verið
sigursæll í barna- og unglinga-
flokki síðustu árin og ætlar sér
greinilega sinn skerf af verðlaun-
unum í fullorðinsflokki í framtíð-
inni. í bama- og unglingaflokki
reyndust ósigrandi í öllum grein-
um þau Magnea Rós Axelsdóttir
og Guðmar Þór Pétursson, en þau
eru bæði í Herði.
Sleipnir, Selfossi, sigraði í stiga-
keppni aðildarfélaga HSK með 63
stig. Svanhvít Kristjánsdóttir varð
hlutskörpust HSK-manna í öllum
greinum í fullorðinsflokki nema
gæðingaskeiði þar sem Páll Bragi
Hólmarsson sigraði. í unglinga-
flokki héraðsmótsins sigraði
Haukur Baldvinsson, Sleipni, í
bæði tölti og fjórgangi en Þorkatla
sigraði í fimmgangi. í hlýðni-
keppni sigraði Kristín Þórðardótt-
ir, Smára. í bamaflokki varð Sig-
fús B. Sigfússon hlutskarpastur í
öllum greinum.
Umsjónarmaður hestaþáttar
Morgunblaðsins hefur beitt sér
fyrir því síðustu árin að getið sé
um fæðingarstað hrossa í móta-
skrám hvort sem um er að ræða
gæðinga-, íþrótta- eða kynbóta-
dóma. Er mikill misbrestur á þessu
og nú á Suðurlandsmótinu var
ekki getið um fæðingarstað hross-
anna og því ástæða enn og aftur
að hvetja mótshaldara til að ganga
ríkt eftir að þetta sé haft með.
Hér að neðan er getið fæðingar-
staða nokkurra hesta og byggt er
eingöngu á minni umsjónarmanns
og verða lesendur að taka viljann
fyrir verkið ef leynast villur þar í.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
Tölt
1. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki, á
Oddi frá Blönduósi, 93,60.
2. Halldór Viktorsson, Gusti, á
Herði frá Bjarnastöðum, 85,60.
3. íris Björk Hafsteinsdótir, Gusti,
á Gleði frá Þórukoti, 83,60.
4. Elsa Magnúsdóttir, Sörla, á
Kolbaki frá Húsey, 82,40.
5. Katrin Gestsdóttir, Sörla, á
Mekki frá Raufarfelli, 79,60.
Fjórgangur
1. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki, á
Oddi frá Blönduósi, 54,14.
2. Sveinn Ragnarsson, Fáki, á
Koli, 50,33.
3. Elsa Magnúsdóttir, Sörla, á
Kolbaki frá Húsey, 51,34.
4. Halldór Viktorsson, Gusti, á
Herði frá Bjamastöðum, 49,58.
5. Sævar Haraldsson, Herði, á
Háfeta frá Egilskoti, 46,81.
Fimmgangur.
1. Friðþjófur Örn Vignisson, And-
vara, á Flugari, 53,7.
2. Hulda Gústafsdóttir, Fáki, á
Stefni frá Tunguhálsi, 51,30.
3. Sveinn Ragnarsson, Fáki, á
Fróða, 53,1.
4. Sigurður V.Matthíasson, Fáki,
á Hildu úr Eyjafirði, 51,0.
5. Þorvaldur A. Þorvaldsson, Fáki,
á Höldi, 50,1.
Hlýðni.
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á
Hæringi. 2. Sævar Haraldsson,
Herði, á Háfeta. 3. Atli Guð-
mundsson, Fáki, á Þráni frá Gunn-
Það væri gaman að vita hvar Flugar, ágætur
hestur Friðþjófs Vignissonar sem sigraði óvænt
í fimmgangi, er fæddur en því miður var ekki
getið fæðingarstaðar hans né annarra hesta.
Magnea Rós hirti öll gullin í barnaflokki á Vafa
sínum frá Mosfellsbæ, á eftir henni kemur Sigfús
B. Sigfússon á Litla-Stjarna sem vann öll gull-
verðlaunin í sama flokki á héraðsmóti HSK.
arsholti.
íslensk tvíkeppni, 147,74 og
stigahæstur keppenda 388,80,
Sigurbjöm Bárðarson..
Skeiðtvíkeppni, Gísli Geir
Gylfason.
Unglingar: Tölt:.
1. Guðmar Þór Pétursson, Herði,
á Trostan úr Eyjafirði, 73,60.
2. Marta Jónsdóttir, Mána, á Sóta,
64,80.
3. Haukur Baldvinsson, Sleipni, á
Galsa, 65,20.
4. Berglind Sveinsdóttir, Ljúfi, á
Vafa, 51,60.
5. Kristín Þórðardóttir, Smára, á
Andvara,47,60.
Fjórgangur: 1. Marta Jóndótt-
ir, Mána, á Sóta, 47,31.
2. Guðmar Þór Pétursson, Herði,
á Trostan úr Eyjafirði, 45,30.
3. Haukur Baldvinsson, Sleipni, á
Galsa, 38,51.
4. Rúnar Stefánsson, Andvara, á
Stjama, 33,98.
5. Maríanna Bjarnleifsdóttir,
Gusti, á Söm, 33,20.
Fimmgangur
1. Guðmar Þór Pétursson, Herði,
á Kalsa frá Litladal, 49,8.
2. Ragnar E. Ágústsson, Sörla, á
Þey frá Akranesi, 43,8.
3. Þorkatla E. Sigurðardóttir,
Trausta, á Perlu, 33,3.
Hlýðni
1. Guðmar Þór Pétursson, Herði,
á Kvisti frá Skeggsstöðum.
Islensk tvíkeppni 118,9,
skeiðtvíkeppni 98,3 og stiga-
hæstur keppenda með 285,20
stig: Guðmar Þór Pétursson.
Börn: Tölt
1. Magnea Rós Axelsdóttir, Herði,
á Vafa frá Mosfellsbæ, 68.
2. Sigurður Halldórsson, Gusti, á
Frúar-Jarpi, 54,40.
3. Davíð Matthíasson, Fáki, á
Dreyra, 55,60.
4. Erlendur Guðmundsson, Geysi,
á Fáki, 43,60.
5. Sigfús B. Sigfússon, Smára, á
Litla-Stjarna, 48.
Fjórgangur
1. Magnea Rós Axelsdóttir, Herði,
á Vafa frá Mosfellsbæ, 46,05.
2. Sigurður Halldórsson, Gusti, á
Frúar-Jarpi, 39,51.
3. Davíð Matthíasson, Fáki, á
Dreyra, 40,77.
4. Erlendur Guðmundsson, Geysi,
á Fáki, 35,74.
5. Sigfús B. Sigfússon, Smára, á
Litla-Stjarna, 40,51.
Hlýðni A
1. Magnea Rós Axelsdóttir, Herði
á yafa frá Mosfellsbæ.
íslensk tvíkeppni: 114,06,
Stigahæsti keppandinn: 181,60:
Magnea Rós Axelsdóttir, Herði.
Hrafnfaxi með hæstu einkunn
Stóðhesturinn Hrafnfaxi frá
Grafarkoti náði hæstu einkunn
sem gefin hefur verið í gæðinga-
keppnum þessa árs. Hlaut hann
8,68 í B-flokki á félagsmóti Glaðs
í Dalasýslu sem haldið var á
Nesoddanum. Hrafnfaxi er und-
an Otri 1050 frá Sauðárkróki og
Brúnku frá Gröf en knapi var
Einar Öder Magnússon.
Einkunnir í öðrum flokkum gæð-
ingakeppninnar voru einnig góðar
og þá sérstaklega í unglingaflokki
en sigurvegarinn þar, Iris Hrand,
var með 8,54 í einkunn. Hross í
öðru og þriðja sæti í B-fiokki vöktu
einnig athygli fyrir háar einkunnir
en þau era aðeins fimm vetra göm-
ul. Úrslit í gæðingakeppni mótsins
urðu annars sem hér segir:
A-flokkur gæðinga
1. Beina frá Skörðum, F.: Dreyri
834, Álfsnesi, M.: frá Skörðum, eig-
andi og knapi Jón Ægisson, 8,25.
2. Sproti frá Miðsitju, F.: Náttfari
776, Y-Dalsgerði, M.: Drasla
Tungufelli, eigandi og knapi Grettir
B. Guðmundsson, 8,17.
3. Sylvía frá Hamraendum, F.: Flosi
966, Brunnum, M.: Biða 6075, eig-
andi Svandís Sigvaldadóttir, knapi
Guðmundur Ólafsson, 8,15.
Bflokkur gæðinga
1. Hrafnfaxi frá Gröf, eigandi
Skjöldur Stefánsson, knapi Einar
Öder Magnússon, 8,68.
2. Víðir Hafþór frá Efri-Brú, F.:
ófeigur 882, Flugum. M.: Katla,
Árgerði, eigandi Ægir Jónsson,
knapi Jón Ægisson, 8,32.
3. Dagsbrún frá Hrappsstöðum, F.:
Otur 1050, Skr. M.: Dúkka 4919,
Hrappsst., eigandi Alvilda Þóra
Elísdóttir, knapi Vignir Jónasson,
8,40.
Unglingar
1. íris Hrund Grettisdóttir á Demon
frá Hólum, 8,54.
2. Björk Guðbjömsdóttir á Surti frá
Magnúsarskógum, 8,47.
3. Dagný Lára Mikaelsdóttir á
Gýgju frá Indriðastöðum, 7,81.
Börn
1. Jón Atli Kjartansson á Bjóla frá
Hrafnfaxi er nú kominn i
fremstu röð gæðinga aðeins sex
vetra gamall en hann mun
fylgja föður sínum, Otri, í af-
kvæmasýningu á fjórðungsmót-
inu á Vindheimamelum sem
byrjar á morgun. Knapi er Ein-
ar Óder Magnússon.
Bjójuhjáleigu, 8,27.
2. Ólöf Inga Guðbjörnsdótir á Mána
frá Magnúsarskógum, 8,19.
3. Kolbrún ólafsdóttir á Skugga-
blakk, 8,12.
Fjórðungsmót á Norðurlandi
Fimm daga veisla hestamanna
Norðlenskir hestamenn leiða
saman hesta sína á morgun á
Vindheimamelum í Skagafirði
þsu- sem metnir verða norðlensk-
ir gæðingar og kynbótahross og
vekringar reyndir. Og síðast en
ekki síst munu hestamenn, vænt-
anlega af öllu landinu, hittast og
gleðjast saman og njóta þess
besta af hestakosti Norðlend-
inga.
Að venju verða það kynbóta-
hrossin sem draga að sér mesta
athygli mótsgesta þar sem hæst ber
afkvæmasýning stóðhesta. Öfugt
við það sem áður var er nú nánast
dagljóst hvemig þeim málum mun
lykta þar sem röðun í verðlauna-
sæti fer eftir kynbótamati Búnaðar-
félagsins (BLUP-inu). Kjarval frá
Sauðárkróki stendur þar efstur og
vantar að sögn Þorkels Bjamasonar
hrossaræktarráðunautar aðeins eitt
dæmt afkvæmi til að ná heiðurs-
verðlaunum. „Þeir feðgar Sveinn
Guðmundsson og Guðmundur sonur
hans voru reyndar ákveðnir í að
þeir bræður Kjarval og Otur kæmu
ekki fram með afkvæmum fyrr en
á landsmótinu á næsta ári svo það
var kannski fyrst fremst vegna
hvatningar okkar ráðunautanna að
afráðið var að þeir kæmu fram á
mótinu nú. Enda hefði þetta orðið
heldur fátæklegt ef þeir hefðu setið
heima því þá hefði aðeins einn hest-
ur, Snældublesi frá Árgerði, komið
fram með afkvæmum," sagði Þor-
kell. Um sýningu einstaklinganna
sagðist Þorkell ekki eiga von á öðru
en að þar væri margt gott að sjá,
léki enginn vafi á að þar kæmu fram
rífandi góð hross þótt úrvals hrossin
hefðu mátt vera fleiri að hans mati
eftir því sem gat að líta i forskoðun-
inni. Alls eru skráðir til leiks 25
stóðhestar og 46 hiyssur.
Það er einkum tvennt í dagskrá
mótsins sem vekur athygli; stökk
og brokk er ekki lengur meðal
keppnisgreina og boðið verður upp
á nýja grein sem kölluð er gæðinga-
íþróttir. Er þarna v.erið að reyna
nýtt fyrirkomulag á gæðingakeppni
sem í dag þykir ekki vel sniðin að
kröfum eða óskum áhorfenda og
langdregin í framkvæmd. Er hér um
að ræða kynningu á nýjum hug-
myndum sem verða vafalaust endur-
skoðaðar í Ijósi þeirrar reynslu sem
ætti að fást á mótinu. Af þessu til-
efni var um 20 kunnum knöpum
boðin þátttaka víða af Iandinu og
munu þeir mæta með sterka alhliða
gæðinga til leiks. Þessi tilraun norð-
anmanna er kærkomið innlegg í við-
leitni hestamanna til að snúa við
þeirri óheillaþróun sem átt hefur sér
stað, þar sem áhorfendum á hesta-
mótum fer stöðugt fækkandi. Að
sjálfsögðu fer fram hefðbundin gæð-
ingakeppni þar sem þau fimmtán
félög sem að mótinu standa senda
fulltrúa sína í keppnina. Til leiks era
skráðir 149 hestar sem skiptast á
milli A og B flokks og barna og
unglinga og þá eru 20 skráðir í tölt-
ið.
Kappreiðar verða heldur fátæk-
legar þar sem eingöngu verður
keppt í skeiði. Spennan í skeiðinu
virðist fara heldur minnkandi en
vonandi tekst að ná upp stemmingu
því það kann ekki góðri lukku að
stýra ef eins fer með skeiðið og
stökkið og brokkið.
En það verður fleira á boðstólum
en ferfættir skemmtikraftar því
Geirmundur Valtýsson mætir með
hljómsveit sína og mun sinna dans-
þyrstum mótsgestum bæði föstu-
dags- og laugardagskvöld í stóru
tjaldi sem staðsett verður á móts-
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Kjarval frá Sauðárkróki verður sýndur með afkvæmum ásamt
þeim Otri, bróður hans, og Snældublesa frá Árgerði. Knapi á
Kjarval er Einar Öder Magnússon.
svæðinu. Ef að líkum lætur má á kosið þar sem vanir menn halda
gera ráð fyrir góðu móti í Skaga- um stjórnvölinn og hestakosturinn
firði, aðstaða öll eins og best verður góður að sögn þeirra sem til þekkja.