Morgunblaðið - 22.09.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
17
Kasparov burstaði Short
___________Skák
Margeir Pétursson
ÚTSÉÐ virðist um það hver fer
með sigur af hólmi í heims-
meistaraeinvígi Kasparovs og
Shorts í London. Sjöunda skák-
in var tefld í gærkvöldi og
heimsmeistarinn lék sér að
áskorandanum eins og köttur
að mús. Short gaf eftir 36 leiki
og Kasparov hefur náð fjögurra
vinninga forskoti. Hann hefur
fimm og hálfan vinning, en
Short aðeins einn og hálfan og
Englendingurinn hefur ekki
ennþá unnið skák. Diana Breta-
prinsessa fylgdist með skákinni
í dag. Ekki virtist það verða til
að auka einbeitingu Shorts sem
tefldi sína lélegustu skák til
þessa.
Eftir að hafa teflt fremur rólega
í fyrstu skákum einvígisins og lát-
ið Short um að sækja setti Ka-
sparov á svið flugeldasýningu í
gær. Það var spurt hér í Morgun-
blaðinu fyrir viku, hvað myndi
verða um Short þegar heimsmeist-
arinn færi að beita sér af öllu afli.
Svarið fékkst í gærkvöldi. Short
tefldi miðtaflið ráðleysislega og
sá sig knúinn til að veikja kóngs-
stöðuna í 21. leik. Þá réðst Ka-
sparov á hann af öllu afli, fórnaði
tvívegis peði til að opna línur í
sókninni og lauk svo skákinni með
glæsilegri fléttu.
Sannkölluð heimsmeistaratafl-
mennska, en af skákinni í gær að
dæma eru litlar líkur til þess að
einvígið verði spennandi. Því verð-
ur ekki hætt þótt annar hvor hljóti
12V2 og tryggi sér sigur, heldur
verða allar skákirnar 24 tefldar.
7. einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Nigel Short
Spánski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
— a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7
6. Hel - b5 7. Bb3 - 0-0 8. a4
— Bb7 9. d3 - d6
Short teflir sífellt traustar gegn
Anti-Marshall vopni andstæðings-
ins. í fyrstu skákinni lék hann 8.
— b4?! og nú breytir hann út af
taflmennsku sinni í þeirri þriðju.
Þá lék hann 9. — He8 10. Rbd2
— Bf8 en lagði svo ekki í að fylgja
því eftir með d7—d5 og fékk erf-
iða stöðu.
Nú hafa 10. Bd2 og 10. Rc3
verið algengustu leikimir í stöð-
unni en Kasparov fer lítt troðnari
slóðir.
10. Rbd2 - Rd7 11. c3 - Rc5
12. axb5 — axb5 13. Hxa8 —
Bxa8
Hér kom ekki síður til greina
að leika 13. — Dxa8 14. Bc2 —
b4. Eftir 15. d4 — bxc3 16. bxc3
— Rd7 17. Rfl — Dal ætti svart-
ur að hafa fullnægjandi mótspil.
Díana prinsessa gerði sér ferð
á skákstað til að fylgjast með
skákinni.
Það er skiljanlegt með tilliti til
stöðunnar í einvíginu að Short
skuli ekki tefla upp á einfaldanir,
en eftir að hvítur fær að leika
b2—b4 stendur hann ívið betur.
14. Bc2 - Bf6 15. b4 - Re6 16.
Rfl - Bb7 17. Re3 - g6 18.
Bb3 - Bg7
Short hefur ekki tekist að jafna
taflið. Menn hvíts standa betur
og nú hefur Kasparov aðgerðir á
kóngsvængnum.
19. h4! - Bc8 20. h5 - Kh8 21.
Rd5 - g5
Taflmennska Shorts í miðtafl-
inu hefur alls ekki verið sannfær-
andi. Hann sér sig nú knúinn til
að veikja f5 reitinn og stöðuyfir-
burðir hvíts eru óvefengjanlegir.
Enn verra var 21. — gxh5? 22.
g3! og næst 23. Rh4 með yfir-
burðastöðu.
22. Re3 - Rf4?
Hvíta sóknin fær nú ennþá
meiri vind í seglin. Short varð að
reyna að þreyja þorrann með 22.
— h6 þótt ekki sé útlitið glæsilegt.
• b c d • I q h
23. g3! - Rxh5 24. Rf5 - Bxf5
25. gxf5 - Dd7 26. Bxg5!
Miðað við gang skákarinnar
virðist þetta ennþá sterkara en
nærtæka framhaldið 26. Rxg5 —
Rf6 27. Df3. Nú leggur Short
ekki í 26. - Dxf5 27. Bd5! - Dd7
28. Rh4 - Rf6 29. Bxf6 - Bxf6
30. Df3 — Bxh4 31. Bxc6 og
svartur tapar manni.
26. - h6 27. Rh4! - Rf6 28.
Bxf6 - Bxf6 29. Dh5 - Kh7 30.
Rg2 - Re7 31. Re3 - Rg8 32.
d4!
Kasparov er hreint óstöðvandi
í slíkum stöðum. Eftir að staðan
opnast leikur hann sér að Short.
32. — exd4 33. cxd4 — Bxd4 34.
Rg4 - Kg7
34. — Bg7 er svarað með 35.
f6! En nú verða lokin ennþá glæsi-
legri:
35. Rxh6! - Bf6?
Short hefði fremur átt að reyna
35. — Rxh6 því eftir 36. Dg5n—
Kh7 gæti hann svarað 37. f6 með
37. — Bxf2+! Hvítur vinnur hins
vegar örugglega eftir 37. Bc2! —
f6 38. Dg6+ - Kh8 39. Dxh6+ -
Kg8 40. He4.
36. Bxf7! og Short gafst upp.
Bæði 36. — Rxh6 og 36. — Hxf7
er svarað með 37. Dg6+.
Næsta skák verður tefld á
fimmtudaginn.
Enn brennir Timman af
Hollendingurinn Jan Timman
var nálægt sigri í níundu skákinni
í FIDE einvíginu á mánudaginn.
Henni lauk með jafntefli í 49 leikj-
um og Karpov hefur því enn vinn-
ingsforskot, 5—4. Timman beitti
Torre árásinni í drottningarpeðs-
byijun, sem einmitt varð uppi á
teningnum þegar þeir Karpov
mættust í fyrsta skipti á Evrópu-
meistaramóti unglinga 1967.
Karpov hefur slæma reynslu af
þessari fáséðu byijun. Kortsnoj
lagði hann að velli með henni í
skák þeirra í Hastings 1972. Vikt-
or Kortsnoj var einmitt viðstaddur
skákina. Hann kom við á FIDE
einvíginu á heimleið frá London
og brosti í kampinn þegar hann
rifjaði upp skákina. „Karpov tefldi
byijunina illa þá og hefur greini-
lega ekkert lært síðan,“ sagði
hann glottandi.
Þrátt fyrir að vera neyddur til
að rifla upp dapurlegar æsku-
minningar fékk Karpov þokkalega
stöðu út úr byijuninni, en missti
þá þráðinn og Timman bætti stöð-
una með hveijum leik. Eftir öflug-
an 29. leik hafði Hollendingurinn
tögl og hagldir í stöðunni og staða
Karpovs virtist að hruni komin.
En honum tókst þó að halda henni
saman og ná jafntefli eftir afar
erfiða vörn.
9. einvígisskákin:
Hvítt: Jan Timman
Svart: Anatólí Karpov
Drottningarpeðsbyrjun
1. d4 - Rf6 2. Rf3 - e6 3. Bg5
— h6 4. Bxf6 — Dxf6 5. e4 —
d6 6. Rc3 - g5 7. e5 - De7 8.
Bb5+ - Bd7 9. 0-0 - d5 10.
Bd3 - Rc6 11. Rb5 - 0-0-0 12.
c3 - h5 13. a4 - Kb8 14. b4 -
Bg7 15. Ra3 - Hdf8 16. De2 -
g4 17. Rd2 - f6 18. exf6 -
Bxf6 19. b5 - Ra5 20. f4 - Dg7
21. Rc2 - Be7 22. Re3 - g3 23.
h3 - Bd6 24. f5 - Hh6 25.
Hael - a6!? 26. Rf3 - He8 27.
Dd2 - Hd8 28. bxa6 - b6 29.
Re5! — Bc8 30. fxe6 — Hxe6 31.
Rf5 - Dg8
32. Rh6
Mun sterkara virðist strax 32.
Rxd6 — Hdxd6 33. Hf5! og svart-
ur getur ekki varið peðin á kóngs-
væng til lengdar.
32. - Dg7 33. Rf5 - Dg8 34.
Rh6 - Dg7 35. Rhf7 - Hf8 36.
Rxd6 - Hxd6 37. Hxf8 - Dxf8
38. Hfl - Hf6! 39. De3 - h4
40. Rf3 - Rc4! 41. Dg5 - Bxa6
Það er með ólíkindum hvernig
Karpov tekst að halda erfíðum
stöðum saman jafnvel þótt hann
sé í bullandi tímahraki. Nú hangir
hann á jafntefli, því hann tapar
ekki peði á kóngsvængnum. 42.
Dxh4 má nefnilega svara með 42.
- Rd2! 43. Bxa6 - Hxf3 44.
gxf3 — Rxf3+ 45. Hxf3 — Dxf3
46. Dd8+ - Ka7 47. Dxc7+ -
Kxa6 og svartur heldur jafntefli.
42. a5 - Dh6 43. Dxh6 - Hxh6
44. axb6 — cxb6 45. Rg5 — Bb5
46. Hf8+ - Ka7 47. Kfl - Ra3
48. Ke2 - Hc6 49. Hf3 og hér
var samið jafntefli.
Áttunda einvígisskákin var
tefld á laugardaginn og þá hristi
Timman laglega nýjung fram úr
erminni í 10. leik og fékk auðvelt
jafntefli með svörtu. Einn aðstoð-
armanna hans, Bandaríkjamaður-
inn Yasser Seirawan, fullyrðir að
Timman sé miklu betur undirbúinn
en Karpov og eigi góða möguleika
á sigri.
Það er til mikils meira að vinna
fyrir Timman en Karpov. Verð-
launasjóðurinn er dágóður, 100
milljónir ísl. króna, og þar af koma
u.þ.b. 60 í hlut þess sem sigrar,
en sá sem tapar fær u.þ.b. 40.
Sigri Timman, skráir hann nafn
sitt óafmáanlegu gullnu letri i
skáksöguna sem opinber heims-
meistari auk þess sem hann fær
sín hæstu verðlaun. Karpov hefur
hins vegar áður teflt um hærri
sjóði og sigri hann er hann kominn
í þá hlálegu aðstöðu að hafa tví-
vegis orðið „heimsmeistari“ án
þess að hafa sigrað þann ríkjandi.
Fyrra skiptið var 1975, þegar
Fischer varði ekki titilinn. Þessi
mismunandi aðstaða kann að hafa
einhver dulin áhrif á baráttuvilja
Karpovs og færa Timman aukna
möguleika.
8. einvígisskákin:
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Jan Timman
Drottningarbragð
I. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3
— d5 4. Rc3 — dxc4 5. e4 — Bb4
6. Bg5 — c5 7. Bxc4 — cxd4 8.
Rxd4 — Bxc3+ 9. bxc3 — Da5
10. Rb5 - Rxe4!?
Þetta hefur verið talið slæmt
vegna svars Karpovs. í sjöttu
skákinni lék Timman 10. — Bd7
sem reyndist alltof hægfara og
hann tapaði illa.
II. Dd4 - 0-0! N
■bCd« f g h
Þessi tímabunda mannsfórn
virðist leysa vandamál svarts.
12. Dxe4 — a6 13. Be7 — axb5
14. Bb4 - Dc7 15. Bxb5 - Bd7!
16. Bd3!?
Karpov vill fremur reyna að
halda í biskupaparið en seilast i
skiptamun. Eftir 16. Bxd7 — Rxd7
17. Bxf8 - Dxc3+ 18. Ke2 -
Db2+ (18. — Rf6!? kemur einnig
til greina) 19. Kf3 — Kxf8 20.
g3 — Hxa2 er jafntefli líklegasta
niðurstaðan.
16. - g6 17. 0-0
Nú er orðið of seint að hirða
skiptamuninn: 17. Bxf8 — Dxc3+
18. Ke2 - Db2+ 19. Ke3 - Ha4!
er stórhættulegt.
17. - He8 18. De3 - Rc6 19.
Bc5 - Re7! 20. Be4 - Rf5 21.
Bxf5 - exf5 22. Dd4 - He4 23.
Dd6 - Dxd6 24. Bxd6 - f6 25.
f3 - He2 26. Hf2 - Hae8 27.
a4 — Hel+ 28. Hfl. Jafntefli.
Þeir Karpov og Timman tefla
tíundu skákina í dag.
NÝUA BÍLAHÖL.L.IN FUNAHÖF-ÐA 1 S:672277
MMC Lancer GLX árg. '89, ek. 40 þ. km.,
hvitur, sjálfsk. Verð kr. 770.000,- stgr. Ath
skipti.
Toyota Camry GLI árg. '89, ek. 60 þ. km.,
hvítur, vetrardekk. V. 1.120.000,- stgr. Ath.
skipti.
Mercedes Benz 280SE árg. '85, ek. 120
þ. km., s-grár, leður, cen., ABS, álflegur 2
sett, sóllúga, sjálfsk. Topp bíll. Verð kr.
1.890.000,- stgr. Ath. skipti.
Subaru station DL árg. '90, ek. 75 þ. km.,
l-blár. Verð kr. 930.000,- stgr. Ath. skipti.
Toyota Double Cap árg. '88, ek. 89 þ.
km., rauður, hús, 35“ dekk, 2 tankar, hlut-
föll, læsing. Góður bfll. Verð kr. 1.340.000,-
stgr. Ath. skipti.
BÍLATOFtG FUNAH
Citroen XM árg. '91, vínrauður, sjálfsk.,
álfelgur, rafdrifnar rúður, ekinn 51 þ. km.
Verð kr. 1.950.000,- sk. á ód.
MMC Pajero langur árg. '91, blásans, ál-
felgur, sjálfsk., intercooler, turbo, diesel
ekinn 103 þ. km. Verð kr. 2.200.000,- sk. á
ód.
Nissan Pathfinder SE árg. '92, gullsans,
sjálfsk., einn með öllu, ekinn 24 þ. km. Verð
kr. 2.700.000,- skipti.
Range Rover Vouge árg. '89, blásans,
topplúga, sjálfsk., ekinn 61 þ. km. Verð kr.
2.800.000,- skipti skuldabróf.
Chevrolet S 1500 Silverado Step Side árg.
'88, blásans, álfelgur, 33“ dekk, upphækk- *
aður, plasthús, ekinn 108 þ. km. Verð kr. 8
1.800.000,- sk. á dýrari Mercedes Benz. s
7PID MÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA FRÁ KL. I O TIL 2 1