Morgunblaðið - 22.09.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ ISLENZKA SYNINGIN MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
B 3
Gunnlaugur og Ingvar Ingvarssynir frá IceMac ásamt Steinari Guðmundssyni frá Stava.
Færanlegar einingar í
gámum fyrir útveginn
Forsvarsmenn Ice Mac
binda helst vonir við
9BH ICE MAC hf.
hefur þróað á sl.
árum færanleg-
ar vinnsluein-
f f ingar fyrir sjáv-
markað i þrounarlöndunum arútveg.
Vinnslueining-
arnar geta verið allt frá lítilli einingu, sem rúmast í einum gámi upp
í stórt og fullkomið frystihús með hámarks afkastagetu.
Vinnslueiningarnar eru þannig
uppbyggðar að fiskvinnsluvélum
og vinnslulínum er komið fyrir í
gámum, sem innréttaðir eru sem
nútíma vinnsluhús. Veggir og loft
eru klæddir trefjastyrktum
plastsamlokum með innsteyptri úr-
etan-einangrun. Gólf eru lögð
trefjaplastlagi með yfirborðsáferð
að vali kaupanda auk þess sem
loftræsti-, raf-, pípu- og frárennsli-
kerfum er komið fyrir í gámahús-
unum. Á vinnustað, hvort sem er
á sjó eða landi, eru gámar tengdir
saman og mynda þeir þá rúmgóð
fiskvinnsluhús. Afgreiðslutími hús-
anna er innan við sex mánuðir.
Þessi nýstárlegu fiskvinnsluhús
voru kynnt á íslensku sjávarút-
vegssýningunni 1993, sem lauk um
helgina. Eigendur Ice Mac, þeir
Gunnlaugur og Ingvar Ingvarssyn-
ir og Reynir Arngrímsson, sögðu í
samtali við Morgunblaðið að þessi
nýja „tímamótalausn" gæti hentað
vel við ýmis verkefni hér á lahdi,
t.d. sem stór og smá fiskvinnslu-
hús, vinnslueiningar um borð í skip-
um, laxavinnslur í landi, sláturhús
og kjötvinnslur. Einnig á afskekkta
staði þar sem fjárfestar eru ragir
við að fjárfesta, t.d. vegna óstöðug-
leika í efnhags- og stjórnmálum.
„Við teljum að markaðinn sé að
finna í þróunarlöndunum, til dæmis
víða í Afríku, Suður-Ameríku og
sums staðar í Asíu. Einnig bindum
við miklar vonir við Rússland," seg-
ir Gunnlaugur, en þeir Ice Mac-
menn hafa nú þegar selt fyrsta
færanlega frystihúsið til Kamt-
sjatka í Rússlandi fyrir 200 milljón-
ir kr.
Ice Mac hefur hannað vinnslu-
stöðina, sem samanstendur af átta
40 feta gámum auk þjónustugáms,
og er framleiðsla á tækja- og
vinnslubúnaði í verksmiðjuna í
höndum annarra íslenskra fyrir-
tækja svo að óhætt er að segja að
hér sé á ferðinni útflutningingur á
íslensku hugviti, tækni og þekk-
ingu, segja þeir félagar.
Afhending vinnslustöðvarinnar,
sem verður með 50-70 tonna fram-
leiðslugetu á sólarhring, sé unnið
á tveimur tíu tíma vöktum, fer fram
hér á landi eigi síðar en 5. desem-
ber nk. En þá á eftir að flytja stöð-
ina til Suður-Kóreu þar sem verk-
smiðjunni verður komið fyrir í
móðurskipinu, sem á að vera fljót-
andi frystihús fyrir önnur veiðiskip.
Gert er ráð fyrir 130 starfsmönn-
um, það er 65 á hvorri vakt, en í
móðurskipinu eru íbúðir fyrir allt
að 450 manns. Tæknimenn Ice Mac
munu annast það verk með aðstoð
suður-kóreskra verkamanna. Þá
verða íslenskir tæknimenn um borð
í þijá mánuði eftir að vinnsla hefst
til að kenna heimamönnum að
umgangast vélar og tæki og fram-
leiða fisk fyrir vestrænan markað,
að sögn Gunnlaugs. Samfara þessu
hyggst Ice Mac koma á fót sölu-
og tækniskrifstofu á Kamtsjatka
til að markaðssetja fleiri hús.
Notað og nýtt
Auk hönnunar á færanlegum
frystihúsum, er þetta tveggja ára
gamla fyrirtæki það eina hér á landi
sem verslar með notaðar físk-
vinnsluvélar í umboðssölu fyrir fyr-
irtæki og einstaklinga. Einnig hef-
ur Ice Mac tekið að sér umboð fyr-
ir Cretel roðvélar, sem henta fyrir
allan fisk, og Weber ísvélar. Nýver-
ið tók Ice Mac að sér sölu og mark-
aðssetningu fyrir Stava seiða- og
fiskflokkara, sem framleiddir eru
af Stálvinnslunni undir stjórn Þrá-
ins Sigtryggssonar. Þráinn einbeit-
ir sér eftir sem áður að hönnun og
smíði á flokkurunum á meðan Ice-
Mac hefur tekið að sér sölu- og
kynningarstarfsemi. Að lokum má
geta þess að fyrirtækið hefur yfír
1.500 fermetra sýningarsal að ráða
í Faxaskála 2 sem opinn er á virk-
um dögum frá kl. 8.00 til 18.00
eða eftir samkomulagi.
Botnmálning skipa
veldur lífverum í
sjónum vanskapnaði
RANN SÓKNIR sýna að eitur-
efni, sem er m.a. að finna í botn-
málningu skipa, hefur áhrif á
lífverur í sjónum. Efnið veldur
til dæmis vanskapnaði á nákuð-
ungum við íslandsstrendur.
A vegum Líffræðistofnunar og
rannsóknastofu í lyfjafræði er ver-
ið að kanna umfang tríbútýltín-
mengunar hérlendis og hefur magn
tríbútýltins verið mælt í nákuð-
ungi, kræklingi og beitukóngi. Á
Suðvesturlandi hafa nákuðungar
verið athugaðir á 28 stöðvum.
Vanskapaðir nákuðungar fundust
á 23 þeirra, en vansköpunar varð
ekki vart innst í Hvalfírði og við
Herdísarvík, Selvog og Knarrarós
á suðurströnd landsins. Öll kven-
dýr reyndust vansköpuð nærri
hafnarsvæðum. Fjarri hafnar-
svæðum var_ tíðni vansköpunar
lægri og kvendýr voru þar með
minni háttar vansköpun.
Lífræna efnasambandið tríbú-
týltín hefur lengi verið notað í
botnmálningu skipa. Tríbútýltínið
er eiturefni, sem veldur því að líf-
verur þrífast ekki á botni skipa.
Efnið er eitt það hættulegasta sem
sett hefur verið í sjó og olli því að
ostrurækt við Frakkland misfórst
á árunum 1977 til 1979. Tekjutap
varð um 600 milljónir franka, sem
svarar til um sjö milljarða ís-
lenskra króna.
= ORYGGI
Einföld, þœgileg, hnéstýrð
blöndunartœki.
Þar sem ýtrasta hreinlœtis
Steersta dráttarbraut
á Islandi í byggingu
Við Arnarvog í Garðabæ er nu unmð við byggingu stærstu dráttar-
brautar á Islandi sem að öllum líkindum verður tekin í notkun upp
úr áramótum. Það er vélsmiðjan Normi hf. í Garðabæ sem stendur
að mannvirkinu, en það er í eigu Sævars Svavarssonar og fjölskyldu,
eins og reyndar Norm-X, sem sérhæft hefur sig í framieiðslu fiski-
kera, plasttanka og vörupalla.
Vélsmiðjan Normi er hátt í 30 ára
gamalt fyrirtæki, sem að sögn Sæv-
ars, hefur unnið mikið fyrir Álverið
í Straumsvík. „Síðan eignuðumst við
Stálvík í Garðabæ þegar hún fór í
gjaldþrot fyrir um ári, en fram-
kvæmdir við dráttarbrautina voru
þá vel á veg komnar þegar við tókum
við,“ segir Sævar.
Nýja dráttarbrautin, sem áætlað
er að kosti um hálfan milljarð, verð-
ur fær um að taka við allt að 3.000
tonna skipum, allt að 18 metra breið-
um og 100 metra löngum, og inn í
hús verður hægt að taka við allt að
400 tonna skipum. „Samkeppnin er
gífurlega hörð í skipaiðnaðinum og
það er ljóst að við verðum að fá
mikla starfsemi til að þetta dæmi
geti gengið upp. Markaðurinn er'
hinsvegar stór enda snúast viðskipt-
in um hvort innlendi iðnaðurinn er
samkeppnishæfur við þann erlenda.
I fyrra voru fluttar inn skipaiðnaðaC';
vörur fyrir sex milljarða á meðan
innlend markaðshlutdeild nam 600.
milljónum. Við ætlum okkur að vera
samkeppnishæfir," segir Sævar
Svavarsson.
TRAUSTAR VÖRUR
OG ÞJÓNUSTA
VIÐ ÍSLENSKAN
FISKIÐNAÐ OG
HÁÞRÝSTIVÖKVAKERFI
Drifbúnaöur fyrir spii o.fl.
Radial stimpildælur • Vökvamótorar
J=SAB
ALLT TIL RAFSUÐU
Vélar, vír og fylgihlutir
INTERROLL,
v f JOKl
FÆRIBANDAMÓTORAR
MONO • LOWARA
DÆLUR
Ryðfríar há- og lágþrýstiþrepadælur
Fiskidælur • Slógdælur
í þjónustudeild okkar veita sölumenn fúslega
faglegar upplýsingar - hafið samband.
= HÉÐINN =
V E R S L U N
SELJAVEGI 2 SÍMI 624260
ARGUS/SlA